05 desember 2024

/

Úrskurður nr. 1215/2024


Hinn 5. desember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 1215/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24090154

Kæra [...] og barns hennar á ákvörðunum Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 25. september 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kúbu (hér eftir kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 11. september 2024, um að synja kæranda og barni hennar, [...], fd. [...], ríkisborgara Kúbu (hér eftir B), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Kærandi sótti einnig um alþjóðlega vernd fyrir son sinn [...], fd. [...], ríkisborgara Kúbu (hér eftir A), og voru mál þeirra unnin samhliða. Fjallað er um umsókn A í úrskurði kærunefndar nr. 1216/2024. Úrskurðirnir taka mið af meginreglunni um einingu fjölskyldunnar.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi og barn hennar eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Kúbu og lagði fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 7. ágúst 2023. Kvaðst kærandi hafa sótt um vernd hér á landi vegna efnahagsástandsins í heimaríki og lélegra lífskjara. Kærandi kvaðst hafa komið hingað til lands með tveimur barna sinna og að nafngreindur bróðir hennar væri búsettur hér á landi. Eiginmaður kæranda og uppkominn sonur þeirra séu enn í heimaríki. Kærandi og börn hennar séu við góða heilsu.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 6. febrúar 2024 ásamt löglærðum talsmanni og kvað helstu ástæður flótta síns vera ótti við yfirvöld í heimaríki vegna stjórnmálaskoðana hennar og almennt ástand í landinu. Kærandi kvaðst vera fædd og uppalin í borginni Havana á Kúbu og kvaðst hafa búið þar áður en hún fór frá landinu. Eiginmaður hennar og uppkominn sonur búi þar enn þar sem sonur þeirra sé að gegna herskyldu sinni. Kærandi kvaðst hafa starfað hjá ríkinu sem [...], en að hún hafi sagt starfi sínu lausu árið 2010 þar sem hún hafi ekki verið sammála vinnubrögðum yfirvalda og að þar hafi verið mikil spilling sem hún hafi ekki viljað vera viðriðin. Aðspurð hvort hún hafi verið beðin um að gera eitthvað ólöglegt í starfi kvaðst hún hafa fengið fyrirmæli um að segja ósatt. Í eitt skipti hafi hún neitað og verið skömmuð fyrir framan samstarfsfólk sitt. Fleiri starfsmenn hafi lent í þessu. Eftir að hún hafi látið af störfum kvaðst kærandi hafa orðið fyrir áreiti sem hafi miðast að því að fá hana til að hefja aftur störf. Áreitið hafi verið þess eðlis að opinberir starfsmenn, bæði fyrrum samstarfsfélagar hennar og fólk sem hún þekkti ekki, hafi komið að heimili hennar eða viljandi hitt hana á förnum vegi og talað kurteisislega við hana og hrósað henni fyrir vel unnin störf. Þó taldi kærandi að þetta hafi allt verið sagt í kaldhæðni og í eitt skipti hafi hún verið spurð hvort ástæða þess að hún vildi ekki kom aftur til starfa væri að hún væri á móti ríkinu eða væri með brenglaða hugmyndafræði. Síðasta tilfellið hafi verið í júní 2023 þegar hún hafi hitt fyrrum samstarfsmann sinn, sem starfi enn hjá ríkinu, úti í búð en hann hafi tjáð henni að ástandið væri orðið slæmt og að þetta gengi ekki lengur. Hann hafi einnig spurt hana hvort hún væri að íhuga að ferðast til bróður síns, sem sé búsettur hér á landi, og þá hafi hún áttað sig á því að hún væri undir eftirliti. Kærandi greindi einnig frá því að ótilgreindir einstaklingar í heimaríki viti að hún sé á móti ríkisstjórn landsins, en kvaðst þó ekki hafa mætt á mótmæli vegna ótta við afleiðingarnar og þar sem hún hafi ekki haft neinn til þess að hugsa um börnin á meðan. Enn fremur kvaðst kærandi tilheyra minnihlutahópi í heimaríki sem andstæðingur ríkisstjórnarinnar. Hins vegar kvaðst hún ekki tilheyra stjórnmálaflokki þar sem engir andspyrnuflokkar séu til í landinu. Hafi kærandi hvorki tjáð skoðanir sínar opinberlega né sýnt þær í verki. Þá kvaðst kærandi ekki hafa haft tilefni til að leita aðstoðar lögreglu í heimaríki þar sem hún hafi aldrei orðið fyrir árás eða verið rænd eða annað slíkt. Kærandi óttist jafnframt að vera fangelsuð og missa börnin sín ef hún tjái skoðanir sínar um stjórnvöld í heimaríki. Það séu lög á Kúbu um að yfirvöld geti tekið börn af borgurum sem séu andstæðir ríkisstjórninni. Kærandi kvaðst þegar vera komin í vandræði þar sem hún hafi tekið börnin úr landi og sé álitin föðurlandssvikari þar sem bankareikningi hennar hafi verið lokað og hún tekin út úr kerfinu tveimur mánuðum eftir að hún yfirgaf landið. Í skólum landsins sé börnum kennt að fólk sem yfirgefi landið séu föðurlandssvikarar. Í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun greindi kærandi jafnframt frá því að eiginmaður hennar, sem einnig sé andstæðingur ríkisstjórnarinnar, hafi verið handtekinn og haldið í fimm ár í fangelsi fyrir að hafa reynt að segja upp starfi sínu hjá ríkinu. Uppsögn hans hafi ekki verið samþykkt og í kjölfarið hafi hann verið ásakaður um tilraun til þjófnaðar og fangelsaður. Eftir það hafi uppsögn hans verið samþykkt. Kærandi kvað hann í raun hafa verið rekinn og að hann geti ekki fengið annað starf vegna þess.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli B kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við barnið með vísan til ungs aldurs þess og framburðar móður þess.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kæranda og barni hennar synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan frests sem henni hefði verið veittur yrði endurkomubann hennar fellt niður. Barni kæranda var brottvísað frá landinu. Kærandi kærði ákvarðanirnar til kærunefndar 25. september 2024 og kærunefnd barst greinargerð kæranda og barna hennar, A og B, ásamt fylgiskjölum 15. október 2024. Útskýringar á fylgiskjölum bárust nefndinni 16. október 2024. Viðbótargögn bárust nefndinni 12., 15., 18., 22., 26. og 28. nóvember 2024. Þá barst kærunefnd greinargerð varðandi A, dags. 23. október 2024, frá Barnavernd Kópavogs 22. nóvember 2024.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kæranda og barna hennar í heimaríki lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi óttist yfirvöld í heimaríki og að vera fangelsuð og svipt forsjá barna sinna. Hún óttist einnig ofsóknir á grundvelli þess að hún verði álitin föðurlandssvikari snúi hún aftur til landsins. Kærandi sé andsnúin ríkisstjórn landsins sem geti haft slæmar afleiðingar fyrir hana. Yfirvöld hafi verið að fylgjast með kæranda og ítrekað gefið sig á tal við hana. Kærandi hafi starfað sem [...] fyrir lögregluyfirvöld, en hafi sagt starfi sínu lausu m.a. þar sem lagt hafi verið fyrir hana að undirrita falskar skýrslur. Þá hafi hún verið ávítt í viðurvist samstarfsmanna og sökuð um að hafa ekki pólitískt rétta hugmyndafræði. Eiginmaður kæranda hafi verið fangelsaður á grundvelli rangra sakargifta, en hann hafi jafnframt starfað fyrir yfirvöld. Þá sé ástandið í heimaríki kæranda búið að versna frá því hún fór þaðan. Auk framangreinds fjallar kærandi um 2. og 3. mgr. 45. gr. laga um útlendinga í löngu máli en gerir ekki kröfu um fjölskyldusameiningu.

Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna, fréttaflutnings frá Kúbu og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum á Kúbu mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt.

Kærandi krefst þess aðallega að henni og B verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi og B hafi flúið heimaríki sitt þar sem kærandi hafi orðið fyrir ofsóknum af hálfu yfirvalda vegna stjórnmálaskoðana hennar og hún óttist frekari ofsóknir yfirvalda. Kærandi telji að hún hafi sætt eftirliti yfirvalda í áraraðir og líkur séu á að hún yrði handtekin við komu hennar aftur til landsins og svipt forsjá barna sinna þar sem hún sé stjórnarandstæðingur. Kærandi óttist jafnframt að vera álitin föðurlandssvikari snúi hún aftur til baka. Þá hafi kærandi og B ástæðuríkan ótta við ofsóknir þar sem eiginmaður kæranda og faðir B hafi sætt ofsóknum, en hann hafi tekið þátt í mótmælum í heimaríki.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefst kærandi þess til vara að henni og B verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi og B eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í heimaríki sínu með vísan til almenns ástands í landinu.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefst kærandi þess að henni og B verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Viðvarandi mannréttindabrot eigi sér stað á Kúbu og yfirvöld í landinu brjóti með alvarlegum hætti gegn eigin þegnum. Einnig búi nær allur almenningur við sárafátækt.

Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir hennar og B um alþjóðlega vernd á Íslandi til meðferðar á ný. Kærandi telur að annmarkar séu á hinum kærðu ákvörðunum og að rannsókn Útlendingastofnunar á aðstæðum þeirra í heimaríki hafi verið ófullnægjandi.

Með endursendingu kæranda og B til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Í viðbótarathugasemdum kæranda, dags. 13. nóvember 2024, er vísað til nokkurra atriða sem leiða eigi líkum að áreiðanlegum uppruna skjals sem hún hafi lagt fram með greinargerð á kærustigi. Um sé að ræða samansafn af boðunum í skýrslutökur frá byltingarlögreglunni á Kúbu og staðfestingar á mætingum kæranda og eiginmanns hennar, með undirritunum þeirra, í skýrslutökur hjá byltingarlögreglunni á árunum 2019 til 2022 þar sem þeim hafi verið afhentar viðvaranir frá yfirvöldum. Kærandi telur skjalið bera með sér nánar tilgreind einkenni sem sýni að það stafi frá byltingarlögreglunni á Kúbu, m.a. leturgerð skjalsins og opinberir stimplar á skjalinu. Einnig telur kærandi að umrætt skjal sé ekki auðfengið og almennt ekki afhent af yfirvöldum. Hættulegt sé að hafa gögn sem stafi frá byltingarlögreglunni undir höndum. Ólíkt flestum borgurum landsins hafi kærandi haft hvata, burði og tækifæri til þess að afla umrædds skjals með aðstoð.

Með tölvubréfi frá talsmanni kæranda til kærunefndar 28. nóvember 2024 gerir kærandi alvarlegar athugasemdir varðandi mat Útlendingastofnunar á heilbrigðiskerfinu á Kúbu og lagði fram skýrslu máli sínu til stuðnings.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd móður sinnar og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

5.3 Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað kúbverskum vegabréfum fyrir sig og barn sitt. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi og barn hennar hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi og barn hennar séu kúbverskir ríkisborgarar.

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Kúbu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Cuba (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Cuba (U.S. Department of State, 23. apríl 2024);
  • Amnesty International Report 2023/24 – Cuba (Amnesty International, 24. apríl 2024);
  • Annual Report of the Inter-American Commission on Human Rights 2022, Chapter IV.b Cuba (Inter-American Commission on Human Rights, 1. apríl 2023);
  • Annual Report of the Inter-American Commission on Human Rights 2023, Chapter IV.b Cuba (Inter-American Commission on Human Rights, 31. desember 2023);
  • Brief analysis of conflict-related incidents and protests in selected countries (covering 8 – 14 October 2022) (ACLED, https://acleddata.com/dashboard/#/dashboard);
  • Brief update on recent developments (security, politics, economy) in selected countries (Federal Office for Migration and Refugees Germany (BAMF), 21. október 2024);
  • BTI 2024 Country Report: Cuba (Bertelsmann Stiftung, 19. mars 2024);
  • Congressional Research Service: Cuba: U.S. Policy Overview (uppfært 4. apríl 2024);
  • Corporal punishment of children in Cuba (End Corporal Punishment, síðast uppfært ágúst 2024);
  • Country Security Report – Cuba (U.S. Department of State‘s Overseas Security Advisory Council (OSAC), 18. mars 2024);
  • Cuba asks UN for help as food shortages worsen (vefsíða BBC News, 29. febrúar 2024);
  • Cuba: New penal code that came into force on 1 December 2022 tightens restrictions on freedom of expression and assembly (Amnesty International, 2. desember 2022);
  • Cuba Overview (The World Bank, skoðað 15. nóvember 2024);
  • Cuba protests: latest information (Amnesty International, 22. júlí 2021);
  • Cuba: Repressive Rules for Doctors Working Abroad (Human Rights Watch, 23. júlí 2020);
  • Cuba – Statistics & Facts (Statista, uppfært 3. júlí 2024);
  • Cuba: Three years after the protests of 11-12 July 2021 (Amnesty International, 7. júlí 2024);
  • Cubans endure days without power as energy crisis hits hard (vefsíða BBC News, 26. október 2024);
  • Factsheet: Reforms in Cuba (WOLA Advocacy for Human rights in the Americas, 30. nóvember 2016);
  • Factsheet: Reforms in 21st Century Cuba(WOLA Advocacy for Human rights in the Americas, 14. mars 2016);
  • Freedom in the World 2024 - Cuba (Freedom House, 2024);
  • Fuel in Cuba to become five times more expensive (vefsíða BBC News, 9. janúar 2024);
  • Hospitals in Cuba (heimasíða International Citizens Insurance, sótt 15. nóvember 2024);
  • Hurricane Oscar Threatens Humanitarian Crisis in Cuba (vefsíða IPS – Inter Press Service, 30. október 2024);
  • July 11 in Cuba: A Year Later (WOLA Advocacy for Human Rights in the Americas, 7. júlí 2022);
  • Political Repression in Cuba Ahead of the 2023 Parliamentary Elections (Acled, 23. mars 2023);
  • Prison or Exile. Cuba‘s Systematic Repression of July 2021 Demonstrators (Human Rights Watch, júlí 2022);
  • Situation of Human Rights in Cuba (Inter-American Commission on Human Rights, 3. febrúar 2020);
  • Situación de los niños en Cuba (vefsíða UNICEF, ódags., síðast skoðað 30. Nóvember 2024);
  • The Health System in Cuba: Origin, Doctrine and Results (Salim Lamrani, Études caribéennes, 7. júlí 2021);
  • The World Factbook: Cuba (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 13. nóvember 2024) og
  • World Report 2024 – Cuba (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Í framangreindum gögnum kemur fram að Kúba sé eyríki í Karabíska hafinu með um 11 milljónir íbúa. Árið 1945 gerðist Kúba aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1995 og samning Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1980. Kúba er einræðisríki með eins flokka kerfi þar sem kommúnistaflokkurinn er eini löglegi stjórnmálaflokkurinn. Fidel Castro hafi leitt uppreisnarher til sigurs árið 1959 og stjórnað þar til bróðir hans, Raul Castro, hafi tekið við í febrúar 2008. Miguel Díaz-Canel hafi verið handvalinn til að taka við, verið samþykktur sem forseti af þjóðþinginu og tekið við embætti 19. apríl 2018. Þá hafi hann leyst fyrrverandi forseta, Raul Castro, af hólmi sem ritari Kommúnistaflokksins 19. apríl 2021.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að kosningar í landinu séu hvorki frjálsar né sanngjarnar. Viðskiptabann við Bandaríkin hafi verið í gildi frá árinu 1961. Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafi frá desember 2014 sýnt viðleitni til að koma á diplómatískum samskiptum við kúbversku ríkisstjórnina og hafi bæði ríkin opnað sendiráð í sínum löndum frá júlí 2015. Viðskiptabannið sé enn í gildi og samband Bandaríkjanna og Kúbu stirt.

Efnahagskerfið sé að mestu ríkisrekið þó einkavæðing og erlendar fjárfestingar hafi aukist. Raul Castro hafi byrjað að færa Kúbu í átt að blönduðu hagkerfi með sterkari einkageira og merkja megi breytingar þó þær séu hægfara. Með nýrri stjórnarskrá sem Kúba hafi samþykkt árið 2019 hafi verið stigið skref til umbóta en yfirráð yfir efnahagsmálum hafi haldist hjá ríkinu. Covid-19 heimsfaraldurinn hafi bitnað harkalega á kúbversku efnahagslífi. Ríkisstjórnin hafi lækkað hagvaxtaspá sína fyrir árið 2022 úr 4% í 2%. Þá hafi hæg endurreisn ferðaþjónustunnar haft áhrif á hagkerfið, auk skorts á gjaldeyri og áhrifa vegna innrásar Rússlands í Úkraínu, þ.m.t. á matvæli og eldsneytisverð. Stórfelldur bruni í ágúst 2022 sem hafi skemmt helstu olíugeymslu Kúbu og fellibylurinn Ian, sem hafi valdið miklum skemmdum í vesturhluta Kúbu í lok september 2022 hafi enn fremur haft neikvæð áhrif á efnahag landsins. Ástandið í landinu hafi ekki farið batnandi árið 2024 en stærsta kolaorkuveri Kúbu hafi óvænt verið lokað 18. október 2024 sem olli rafmagnsleysi um allt land. Í höfuðborginni, Havana, hafi rafmagnið verið komið aftur á daginn eftir, en sex klukkustundum síðar hafi borgin aftur orðið rafmagnslaus. Þá hafi fellibylurinn Oscar gengið yfir Kúbu 20. október 2024 og valdið manntjóni og víðtæku tjóni í austurhluta landsins m.a. á innviðum. Allt landið hafi verið rafmagnslaust í marga daga. Rafmagnsbilanir hafa verið reglulegar, stundum daglegar, síðan árið 2021 vegna úrelts og illa viðhaldins raforkukerfis í landinu. Skortur á eldsneyti vegna minni innflutnings frá Venesúela hafi einnig haft áhrif á efnahag landsins þar sem eldsneytisverð í landinu hafi hækkað fimmfalt. Þá hafi minnkandi landbúnaðarframleiðslu og hækkandi matvælaverð á heimsvísu valdið erfiðleikum og leitt til matarskorts og áhyggja af fæðuóöryggi. Seint á árinu 2023 lagði Kúba fram brýna beiðni til Sameinuðu þjóðanna um frekari mataraðstoð fyrir börn í landinu.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að innanríkisráðuneytið hafi eftirlit með lögreglu, öryggissveitum og fangelsiskerfinu. Þjóðarbyltingarlögreglan (e. The National Revolutionary Police) sé æðsta löggæslustofnun ríkisins. Sérhæfðar deildir öryggissviðs ráðuneytisins beri ábyrgð á eftirliti og að halda niðri sjálfstæðri stjórnmálastarfsemi. Forysta ríkisins, þar á meðal meðlimir hersins, haldi uppi virkri stjórn á öryggissveitum. Trúverðugar heimildir beri með sér að meðlimir öryggissveitanna hafi framið fjölda ofbeldisverka og að pólitískum föngum hafi fjölgað. Þá séu aðstæður í fangelsum afar bágbornar.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda séu ólögleg og handahófskennd morð, þ.m.t. án dóms og laga, mannshvörf, pyndingar, ómannúðleg og vanvirðandi meðferð yfirvalda, erfiðar og lífshættulegar aðstæður í fangelsum, handahófskenndar handtökur og gæsluvarðhald pólitískra fanga og skerðing á sjálfstæði dómstóla. Í skýrslunni kemur fram að handahófskennd eða ólögmæt afskipti af friðhelgi einkalífs viðgangist og stjórnvöld hafi beint hefndaraðgerðum gegn fjölskyldumeðlimum vegna meintra brota einstaklinga. Þá séu í landinu alvarlegar takmarkanir á tjáningar- og fjölmiðlafrelsi þar sem ofbeldi og hótanir um ofbeldi gegn blaðamönnum tíðkist í auknum mæli auk þess sem ritskoðun og meiðyrðalög séu notuð gegn einstaklingum sem gagnrýni forystu stjórnvalda auk þess sem stjórnvöld stundi alvarlegar takmarkanir á netfrelsi. Vanmáttur borgaranna til að hafa áhrif á stjórn ríkisins með friðsamlegum hætti í frjálsum og sanngjörnum kosningum, þ.m.t. alvarlegar og óeðlilegar takmarkanir á stjórnmálaþátttöku auk mikillar spillingar innan stjórnkerfisins. Þrátt fyrir að það sé stefnumál stjórnvalda, þá láta þau hjá líða að rannsaka og lögsækja þá sem fremji ofbeldisverk og refsileysi gerenda sé því enn útbreitt. Enn fremur ríki refsileysi gagnvart mannréttindabrotum opinberra fulltrúa og vegna opinberrar spillingar.

Í sömu skýrslu kemur fram að stjórnarskrá Kúbu frá 2019 kveði á um tjáningarfrelsi borgaranna, þ. á m. blaðamanna og annarra fjölmiðlamanna, en með því skilyrði að tjáningin „samrýmist markmiðum sósíalísks samfélags“. Lögin kveði á um fangelsisrefsingu frá þremur mánuðum að 15 ára fangelsi fyrir að gagnrýna stjórnmálamenn eða dreifingu áróðurs gegn stjórnvöldum. Þá hafi stjórnvöld takmarkað tjáningu og aðgengi að samfélagsmiðlum s.s. Facebook, Instagram og Telegram, m.a. á efni sem stjórnvöld telji „viðkvæm“. Kúbversk stjórnvöld haldi áfram að bæla niður og refsa fyrir hvers kyns andóf og opinbera gagnrýni. Hinn 11. júlí 2021 hafi tugþúsundir manna streymt út á götur víðs vegar um landið og hafið friðsamleg mótmæli vegna efnahagsmála, lyfjaskorts, viðbragða stjórnvalda við Covid-19 heimsfaraldrinum, takmarkana á tjáningarfrelsi og banns á rétti fólks til að safnast saman á friðsamlegum samkomum. Ríkisstjórnin hafi brugðist við með harkalegum aðgerðum, þar á meðal víðtæku varðhaldi mótmælenda, aðgerðarsinna og almennra borgara. Í kjölfar mótmælanna hafi hundruð mótmælenda verið sóttir til saka og dæmdir, þar á meðal 25 ólögráða börn.

Í skýrslu Human Rights Watch frá 2022 kemur fram að mótmælin hafi verið þau stærstu og útbreiddustu í áratugi. Þess hafi verið krafist að kúgun stjórnvalda yrði hætt og hafi stjórnvöld verið gagnrýnd fyrir að gera ekkert til að uppfylla grunnþarfir borgaranna. Kúbverjar séu orðnir langþreyttir á efnahagsástandinu í landinu en auk þess hafi Covid-19 heimsfaraldurinn gert illt verra og stjórnvöld séu sökuð um að nýta sér ástandið til að brjóta enn frekar á borgurum sínum. Öryggissveitir hafi mætt mótmælendum með táragasi, barsmíðum og handtökum. Forsetinn hafi kallað til „alla byltingarsinna og kommúnista til að takast á við þessi mótmæli“, sem sé tilvísun í 4. gr. stjórnarskrárinnar, sem veiti borgurum rétt til að „berjast með hvaða hætti sem er, þar á meðal með vopnum í bardaga“ gegn hverjum þeim sem „ætli að kollvarpa pólitísku, félagslegu og efnahagslegu skipulagi sem komið sé á með þessari stjórnarskrá“. Í október 2021 hafi yfirvöld hafnað beiðni um að veita leyfi fyrir friðsamlegum mótmælum sem fyrirhuguð hafi verið 15. nóvember 2021 og haft uppi hótanir gegn skipuleggjendum. Yfirvöld hafi lýst yfir að fyrirhuguð mótmæli, sem hópur listamanna og andófsmanna hafi skipulagt, væru ólögleg. Seinna í októbermánuði hafi ríkissaksóknari gefið út yfirlýsingu þar sem fólk hafi verið varað við saksókn ef mótmælin færu fram.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að stjórnvöld á Kúbu hafi sett handahófskenndar takmarkanir á ferðafrelsi ríkisborgara landsins m.a. á rétt þeirra til að fara úr landi og snúa aftur til landsins. Lögin kveði á um fangelsisvist, sekt eða hvort tveggja reyni kúbverskir ríkisborgarar að yfirgefa landið ólöglega. Þegar fyrrverandi ríkisstarfsmenn hafi flutt frá Kúbu hafi fjölskyldumeðlimum þeirra stundum verið synjað um vegabréf til að ferðast og heimsækja eða sameinast þeim erlendis. Stjórnvöld á Kúbu krefjist þess að einstaklingar úr ákveðnum starfsstéttum fái leyfi til að flytja úr landi, m.a. sérhæft heilbrigðisstarfsfólk, her- eða öryggisstarfsmenn, embættismenn, þ. á m. fræðimenn, og fyrrverandi pólitískir fangar og mannréttindafrömuðir. Þá hafi stjórnvöld meinað mannréttindafrömuðum, trúarleiðtogum, óháðum blaðamönnum og listamönnum að ferðast út fyrir landsteina Kúbu til þess að sækja viðburði sem tengist mannréttindum og lýðræði. Aðgerðarsinnar hafi einnig greint frá því að þeir hefðu þurft að sæta verulegri aukningu í yfirheyrslum og upptöku eigna þeirra á flugvellinum á Kúbu við komu þeirra aftur til landsins. Í skýrslunni kemur enn fremur fram að kúbversk stjórnvöld hafi handahófskennt tilnefnt suma einstaklinga sem regulados, sem heimili stjórnvöldum að synja þeim um vegabréf, að fara úr landi eða snúa aftur. Áætlað sé að a.m.k. 600 borgurum Kúbu hafi verið neitað um heimild til að fara úr landi á grundvelli nýrrar reglu sem skattyfirvöld í landinu birtu árið 2022 um að þessir einstaklingar skuldi hinu opinbera verulegar fjárhæðir. Nýju reglunni sé beitt af geðþótta hverju sinni. Þá reyni stjórnvöld að þrýsta á aðgerðarsinna til að fara frekar í útlegð og þannig forðast langa fangelsisvist eða hótanir gagnvart fjölskyldum þeirra. Auk framangreinds segir í skýrslu Human Rights Watch að fyrir kúbverska ríkisborgara sem séu andstæðir stjórnvöldum sé aðeins fangelsisvist eða útlegð í boði. Árið 2022 voru 53 kúbverskir aðgerðarsinnar og blaðamenn í útlegð. Stjórnvöld heimili sumum aðgerðarsinnum að yfirgefa Kúbu en þó aðeins ef þeir samþykki að fara í útlegð.

Í grein um heilbrigðiskerfið á Kúbu frá árinu 2021og í frétt á vef Human Rights Watch frá 23. júlí 2020, kemur fram að eftir byltinguna árið 1959 hafi stjórnvöld á Kúbu einsett sér að veita öllum borgurum alhliða heilbrigðisþjónustu og vandaða ókeypis menntun. Þá kemur fram að heilbrigðiskerfi Kúbu þyki lofsvert á heimsvísu, m.a. vegna þess að það sé ókeypis fyrir alla borgara landsins. Það séu engin einkasjúkrahús eða heilsugæslustöðvar á Kúbu þar sem allir þættir heilbrigðisþjónustunnar séu reknir af stjórnvöldum og miði stefna stjórnvalda einkum að öflugum forvörnum. Heilbrigðisþjónusta hafi verið í forgangi og þyki sjálfsögð mannréttindi allra borgara landsins enda hafi náðst mikill árangur í baráttu við ýmis konar sjúkdóma og sé meðallífaldur 79 ár sem sé á pari við ríkustu lönd heims. Þá eigi þær fjölmörgu heilbrigðisstofnanir sem starfi í landinu að aðlaga sig að þörfum þess hóps sem leiti til þeirra, t.d. ef mikill fjöldi sjúklinga sé með sykursýki eða háan blóðþrýsting þá sé þjónusta við þá hópa efld. Þó hrjái ýmislegt heilbrigðisþjónustuna, m.a. þarfnist innviðir endurnýjunar, flestar byggingar séu í slæmu ástandi og þarfnist viðgerða. Læknar glími einnig við ýmis vandamál, svo sem lyfjaskort og skort á lækningatækjum. Viðskiptabann Bandaríkjanna hafi haft mikil áhrif á aðgang Kúbu að lækningatækjum þar sem búnaður sé fluttur alla leið frá Kína sem geti tekið langan tíma að fá afhentan. Þrátt fyrir að ekki séu starfandi einkarekin sjúkrahús eða heilsugæslustöðvar, þá séu starfandi sérhæfðar heilsugæslustöðvar sem séu sérstaklega ætlaðar diplómötum og ferðamönnum. Bestu sjúkrahúsin og læknar sinni ferðamönnum og stjórnmálamönnum og almennir borgarar þurfi að lifa við skerta þjónustu. Í janúar 2022 hafi yfirvöld viðurkennt að skortur væri á lyfjum í landinu og að um 88 af þeim 262 lyfjum sem væru talin mikilvægust væru ófáanleg í landinu.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 um stöðu mannréttinda á Kúbu kemur fram að stjórnarskráin kveði á um jafnan rétt kvenna og karla. Konur hafi sömu réttindi og skyldur í hjónabandi, við skilnað, við forsjárskyldur og til atvinnu. Lög kveði á um bann við nauðgunum og ,,lostafullri misnotkun“ gegn báðum kynjum. Viðurlög við nauðgun séu að minnsta kosti fjögurra ára fangelsi auk þess sem kynferðisleg áreitni sé refsiverð. Þá hafi nýleg fjölskyldulög í landinu, sem tóku gildi í september 2022, styrkt réttindi kvenna og stúlkna, m.a. með því að efla rétt til barnseigna og leggja bann við heimilisofbeldi og öllum líkamlegum refsingum. Í skýrslum baráttuhópa um kvenréttindi komi hins vegar fram að glæpir gegn konum séu vanskráðir og stjórnvöld rannsaki málin ekki með fullnægjandi hætti.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins tók gildi á Kúbu árið 1991 þegar texti samningsins var birtur í heild sinni í Stjórnartíðindum landsins. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að stjórnarskráin og framangreind fjölskyldulög mæli fyrir um réttindi barna og skyldur forráðamanna þeirra. Í hegningarlögum landsins séu að finna viðurlög við því að sinna ekki skyldum sínum gagnvart barni sem forráðamaður þess og fyrir að brjóta á réttindum barns. Viðurlög við ofbeldi og vanrækslu gegn börnum séu sex mánaða til fimm ára fangelsi, en lengd refsingar fari eftir alvarleika brotsins og hvort barnið hafi hlotið verulegan skaða af ofbeldinu. Almennt hafi yfirvöld framfylgt lögunum á áhrifaríkan hátt. Á Kúbu séu starfræktar þrjár sérhæfðar verndarmiðstöðvar fyrir börn og ungmenni í landinu (Centro de Protección a Niñas, Niños y Adolescentes), m.a. í höfuðborginni Havana. Séu miðstöðvarnar hugsaðar fyrir börn sem séu fórnarlömb afbrota og annars konar skaða á heilindum þeirra og þroska. Einnig er viðvera UNICEF áberandi á Kúbu og er skrifstofa þeirra staðsett í Havana. Framangreind fjölskyldulög byggi að miklu leyti á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og þeim hafi því fylgt miklar umbætur á regluverki í kringum börn á Kúbu, m.a. sé núna bannað að niðurlægja og beita börn hvers kyns ofbeldi sem uppeldisaðferð, sbr. 146. gr. laganna. Í eldri fjölskyldulögum frá árinu 1975 hafi foreldrum verið heimilt að leiðrétta hegðun barna sinna og aga þau til með því að beita viðeigandi viðurlögum í hófi. Í lögunum sé einnig lögð áhersla á meginregluna um einingu fjölskyldunnar og að ekki megi aðskilja börn frá foreldrum sínum nema í undantekningartilvikum, þegar brýna nauðsyn beri til og sé það gert skuli það aðeins vara tímabundið. Í skýrslu IACHR fyrir árið 2022 kemur þó fram að áhyggjur séu uppi um reglur sem hindri réttindi barna þeirra sérfræðinga sem starfi fyrir ríkið á alþjóðavettvangi, m.a. séu takmarkanir á því að börnin fái að alast upp með foreldrum sínum. Rúmlega 20.000 börn hafi verið aðskilin af stjórnvöldum frá foreldrum sínum á grundvelli svokallaðrar átta ára reglu. Sérfræðingar sem ekki snúi aftur heim til Kúbu eftir að hafa lokið starfi sínu fyrir ríkið á alþjóðavettvangi eigi yfir höfði sér allt að átta ára fangelsi fyrir athæfið. Þar sem ekki sé hægt að handtaka umrædda sérfræðinga séu þeir yfirlýstir liðhlaupar af stjórnvöldum og þeim meinaður aðgangur til Kúbu í að minnsta kosti átta ár.

Á vefsíðu AACRAO (The American Association of Collegiate Registrars and Admissions Officers) kemur fram að menntun á Kúbu sé ókeypis, frá grunnskóla til doktorsnáms. Menntun sé í hávegum höfð og höfuðáhersla sé á að hafa hana aðgengilega fyrir alla. Að jafnaði velji nemendur námsfög sem höfði til þeirra og nemendur hafi tækifæri til að snúa aftur í skóla til endurmenntunar og skipta um starfsferil óski þeir þess og eftirspurn sé eftir því starfi.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún og B séu í hættu í heimaríki þar sem kærandi verði álitin föðurlandssvikari snúi hún aftur til baka, hún hafi orðið fyrir ofsóknum af hálfu yfirvalda vegna stjórnmálaskoðana sinna og hún óttist frekari ofsóknir yfirvalda. Kærandi telji að hún hafi sætt eftirliti yfirvalda í áraraðir og líkur séu á að hún yrði handtekin við komu hennar aftur til landsins og svipt forsjá barna sinna þar sem hún sé stjórnarandstæðingur. Þá hafi kærandi og B ástæðuríkan ótta við ofsóknir þar sem eiginmaður kæranda og faðir barnsins hafi sætt ofsóknum, en hann hafi tekið þátt í mótmælum í heimaríki.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa starfað hjá ríkinu sem [...], en að hún hafi sagt starfi sínu lausu árið 2010 þar sem hún hafi ekki verið sammála vinnubrögðum yfirvalda og vegna mikillar spillingar sem hún hafi ekki viljað vera viðriðin. Eftir að kærandi hafi látið af störfum kvaðst hún hafa orðið fyrir áreiti sem hafi miðað að því að fá hana til að hefja aftur störf. Áreitið hafi verið þess eðlis að opinberir starfsmenn, bæði fyrrum samstarfsfélagar hennar og fólk sem hún þekkti ekki, hafi komið að heimili hennar eða viljandi hitt hana á förnum vegi og talað kurteisislega við hana og hrósað henni fyrir vel unnin störf. Síðasta tilfellið hafi verið í júní 2023 þegar hún hafi hitt fyrrum samstarfsmann sinn úti í búð en hann hafi tjáð henni að ástandið væri orðið slæmt og að þetta gengi ekki lengur. Hann hafi einnig spurt kæranda hvort hún væri að íhuga að ferðast til bróður síns, sem sé búsettur hér á landi, og þá hafi hún áttað sig á því að hún væri undir eftirliti. Kærandi greindi einnig frá því að ótilgreindir einstaklingar í heimaríki viti að hún sé á móti ríkisstjórn landsins, en kvaðst þó ekki hafa mætt á mótmæli vegna ótta við afleiðingarnar og þar sem hún hafi ekki haft neinn til þess að hugsa um börnin á meðan. Enn fremur kvaðst kærandi tilheyra minnihlutahópi í heimaríki sem andstæðingur ríkisstjórnarinnar en ekki tilheyra stjórnmálaflokki þar sem engir andspyrnuflokkar séu til í landinu. Hafi kærandi hvorki tjáð skoðanir sínar opinberlega né sýnt þær í verki nema með því að hætta störfum fyrir stjórnvöld. Kærandi óttist jafnframt að vera fangelsuð og missa börnin sín ef hún tjáir skoðanir sínar um stjórnvöld í heimaríki vegna nýrra fjölskyldulaga. Kærandi kvaðst þegar vera komin í vandræði þar sem hún hafi tekið börnin úr landi og sé álitin föðurlandssvikari þar sem bankareikningi hennar hafi verið lokað og hún tekin út úr kerfinu tveimur mánuðum eftir að hún yfirgaf landið. Í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun greindi kærandi jafnframt frá því að eiginmaður hennar, sem einnig sé andstæðingur ríkisstjórnarinnar, hafi verið handtekinn og haldið í fimm ár í fangelsi fyrir upplognar sakir eftir að hann hafi reynt að segja upp starfi sínu hjá ríkinu. Eftir það hafi uppsögn hans verið samþykkt.

Hinn 12. og 13. nóvember 2024 sendi kærunefnd viðbótarspurningar til kæranda til að fá frekari upplýsingar um skjal sem hún lagði fram við meðferð máls hennar á kærustigi. Kærandi var beðin um að gera grein fyrir því hvort hún hefði frumrit skjalsins undir höndum, hvernig hún hafi fengið skjalið sent, hver hafi sent henni skjalið, hvenær hún hafi fengið það í hendurnar og hvers vegna hún hafi ekki lagt skjalið fram fyrr en á kærustigi. Þá vísaði kærunefnd til þess að í greinargerð kæranda til nefndarinnar kemur fram að hún hafi fengið umrætt skjal frá fyrrum samstarfsfélaga sínum sem starfi hjá lögreglunni í heimaríki. Með vísan til þess að skjalið bæri með sér að kærandi og eiginmaður hennar hafi verið boðuð í skýrslutökur/viðtöl og mætt í skýrslutökur/viðtöl til lögreglunnar í nokkur skipti á árunum 2019 til 2022, og hafi sjálf undirritað boðanirnar og kvittað fyrir mætingu, taldi kærunefnd skýringu kæranda í greinargerð ótrúverðuga. Skjalið væri þess eðlis að kærandi og eiginmaður hennar hafi átt að hafa það undir höndum þar sem það varði þau með beinum hætti. Kærunefnd vísaði einnig til þess að kærandi hafi hvorki greint frá umræddum boðunum í skýrslutökur/viðtöl og mætingu til lögreglu né tilvist gagnanna í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun. Kærandi var því beðin um að gera frekari grein fyrir því hvers vegna hún haldi því fram að fyrrum samstarfsfélagi hennar hafi sent henni skjalið, hvers vegna hún hafi ekki greint frá framangreindu við málsmeðferð sína hjá Útlendingastofnun, hvers eðlis skýrslutökurnar/viðtölin hafi verið og hvort hún hafi orðið fyrir frekari ofsóknum eða áreiti frá yfirvöldum. Auk þess var kærandi beðin um að gera grein fyrir því hvar hún hafi starfað frá árinu 2010 eftir að hún hafi sagt starfi sínu lausu sem [...], hvernig hún hafi framfleytt fjölskyldu sinni á meðan eiginmaður hennar hafi verið í fangelsi og hvar eiginmaður hennar hefur starfað síðan hann losnaði úr fangelsi.

Svör kæranda bárust kærunefnd 15. nóvember 2024. Kærandi kvað m.a. að hún hafi ekki frumrit af umræddu skjali undir höndum heldur aðeins skannað afrit og að það hafi verið sent til hennar af eiginmanni hennar í gegnum samskiptaforritið Whatsapp 2. október 2024. Í svörum sínum við því hvers vegna hún lagði umrætt skjal ekki fram fyrr en á kærustigi greindi kærandi frá því að hún hafi ekki verið með umrætt skjal né haft aðgang að því. Það hafi verið mjög hættulegt fyrir hana og eiginmann hennar að fá skjölin og ekki síst einstaklinginn sem hafi sent þeim skjalið. Gögnin í skjalinu séu ekki geymd rafrænt heldur á pappírsformi í byggingu lögreglunnar á Kúbu þar sem ekkert sé stafrænt í landinu. Þá ítrekaði kærandi að hún hafi fengið skjalið frá fyrrum samstarfsfélaga sínum 2. október 2024 og að hún hafi aldrei fengið gögnin í skjalinu afhent frá yfirvöldum þar sem slíkt sé sönnun fyrir kúgun stjórnvalda gagnvart borgurum landsins. Það sé ekkert lýðræði í landinu og kærandi eigi ekki rétt á að fá nein gögn sem stafi frá yfirvöldum. Í svörum kæranda við því hvers vegna hún hafi ekki greint frá atburðum sem komi fram í umræddu skjali við málsmeðferð hennar hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa greint frá því í viðtali sínu hjá stofnuninni að hún hafi fengið heimsóknir og aðvaranir frá lögreglunni á meðan eiginmaður hennar hafi verið í fangelsi og eftir það. Hún hafi ekki upplýst um tilvist þeirra gagna sem sé að finna í umræddu skjali þar sem hún hafi ekki verið með þau. Á Kúbu fái fólk ekki afrit af gögnum sem þau hafi undirritað hjá yfirvöldum. Kærandi greindi einnig frá því að skýrslutökurnar hjá lögreglu hafi verið til þess að ógna henni og vara hana við því að tjá skoðanir sínar á stjórnvöldum og henni tjáð að hún mætti ekki deila upplýsingum sem hún hafi fengið í starfi sínu sem [...]. Hún kvaðst ekki hafa orðið fyrir frekari ofsóknum eða áreiti frá yfirvöldum eftir að hún yfirgaf heimaríki, en að hún hafi fengið hótanir í gegnum fjölskyldu sína. Eldri sonur hennar hafi lokið herskyldu sinni í heimaríki en stjórnvöld neiti að gefa út staðfestingu á því og án þess geti hann ekki yfirgefið landið. Þá sé eiginmaður kæranda enn að fá heimsóknir og aðvaranir frá lögreglu. Í svörum kæranda við því hvar hún hafi starfað frá árinu 2010 eftir að hún hafi sagt starfi sínu lausu sem [...] kvaðst hún hafa unnið á kassa í matvörubúð og síðan sem yfirmaður á einkareknu veitingahúsi. Á meðan eiginmaður hennar hafi verið í fangelsi hafi hún séð fyrir fjölskyldu sinni með því að vinna og með aðstoð frá bróður sínum sem sé búsettur hér á landi. Eftir að eiginmaður kæranda hafi losnað úr fangelsi hafi hann starfað sem húsvörður í ótilgreindri byggingu og núna starfi hann í byggingageiranum á Kúbu.

Hinn 15. nóvember 2024 sendi kærunefnd viðbótarspurningar til kæranda til að fá frekari upplýsingar um framburð hennar í viðtali hjá Útlendingastofnun þar sem hún greindi frá því að hún ætti ekki lengur bankareikning í heimaríki og búið væri að skrifa hana út úr kerfinu þar í landi. Svör kæranda bárust kærunefnd 18. nóvember 2024. Kærandi var beðin um að gera grein fyrir því hvenær hún hafi vitað að búið væri að loka bankareikningi hennar, hvernig hún hafi komist að því, hvað hún meini með að búið sé að skrá hana út úr kerfinu í heimaríki, hvenær og hvernig hún hafi komist að því að búið væri að skrifa hana út úr kerfinu og hvort hún hafi gögn sem sýni fram á að búið sé að loka bankareikningi hennar og skrifa hana út úr kerfinu í heimaríki. Kærandi kvað m.a. að hún hafi komist að því u.þ.b. mánuði eftir að hún kom til Íslands að búið væri að loka bankareikningi hennar í heimaríki þar sem eiginmaður hennar hafi farið og spurt bankann út í þetta. Bróðir kæranda, sem sé búsettur hér á landi, hafi ætlað að senda pening út til eiginmanns kæranda og elsta sonar þeirra hjóna í gegnum bankareikning kæranda. Þau hafi vitað að búið væri að loka svokallaðri skömmtunarbók (e. ration book) kæranda og eiginmaður hennar hafi því farið og spurst fyrir um bankareikning kæranda til þess að passa að peningurinn yrði ekki tekinn eða honum týnt. Bróðir kæranda hafi á endanum millifært peninginn á bankareikning eiginmanns kæranda, en yfirvöld hafi neitað að láta hann fá peninginn. Bróðir kæranda hafi síðan fengið hluta af fjárhæðinni til baka en yfirvöld haldið afganginum. Hvað varðar vitneskju kæranda um að hún hafi verið skrifuð út úr kerfinu í heimaríki greindi hún frá því að nokkrum dögum eftir að hún kom hingað til lands hafi eiginmaður hennar upplýst hana um að búið væri að loka skömmtunarbók hennar og barnanna. Með svörum sínum lagði kærandi fram ljósmyndir úr skömmtunarbók sinni og kvað eiginmann sinn ekki geta aflað gagna frá bankanum í heimaríki þar sem þeir afhendi aðeins eigendum bankareikninga upplýsingar um þá.

Við meðferð málsins lagði kærandi fram afrit af persónuskilríkjum eiginmanns síns og uppkomins sonar, afrit af sakavottorði eiginmanns síns, dags. 8. febrúar 2024, afrit af fæðingarvottorði uppkomins sonar síns, dags. 27. desember 2002, afrit af hjúskaparvottorði sínu og eiginmanns síns, ólæsileg dags., afrit af skólavottorði A, dags. 9. júlí 2019, afrit af frumvarpi til laga um fólksflutninga, dags. maí 2024, afrit af lögum um fjölskyldur á Kúbu, dags. 27. september 2022, fimm ljósmyndir af B, ódags., þar sem sjá má sár um allan líkama barnsins og umbúðir á handlegg og afrit af vottorði, dags. 1. júlí 2012, um að eiginmaður hennar hafi verið leystur frá virkri herþjónustu og fluttur í varalið hersins. Auk framangreinds lagði kærandi fram skjáskot af Whatsapp samskiptum sínum við fimm mismunandi einstaklinga og þýðingum þeirra á ensku. Samskiptin hafi verið við mágkonu hennar, dags. 31. júlí 2023, nafngreinda konu, dags. 11. til 18. ágúst 2023, og ótilgreindan einstakling, sem af samhengi skilaboðanna megi ætla að sé eiginmaður kæranda, dags. 15. ágúst 2022. Þá séu samskipti kæranda við tvo nafngreinda einstaklinga ódagsett. Á kærustigi lagði kærandi fram skjal sem hefur að geyma samsafn af sex boðunum í skýrslutökur frá lögreglunni á Kúbu og samtals sex staðfestingar á mætingum kæranda og eiginmanns hennar, með undirritunum þeirra, í skýrslutökur hjá lögreglunni á árunum 2019 til 2022 þar sem þau hafi fengið viðvaranir frá yfirvöldum. Enn fremur lagði kærandi fram 15 kvittanir frá Landsbankanum um erlendar millifærslur frá mágkonu hennar til hennar sjálfrar á tímabilinu febrúar 2022 til júlí 2023 og myndband, ódags., sem sýnir íslenskan heimabanka mágkonu kæranda og að ekki sé lengur hægt að finna kúbverskan bankareikning kæranda. Einnig lagði kærandi fram sex ljósmyndir af svokallaðri skömmtunarbók sinni (e. ration book) og tölvupóstsamskipti hennar og bróður hennar við talsmann hennar á tímabilinu 2. október til 14. nóvember 2024. Þá lagði kærandi fram skýrslu um heilbrigðiskerfið á Kúbu, dags. 7. febrúar 2021.

Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e.-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Í frásögn sinni hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa sætt áreiti yfirvalda eftir að hafa sagt starfi sínu hjá stjórnvöldum lausu árið 2010. Hún hafi þá í júní árið 2023 áttað sig á að hún sætti eftirliti stjórnvalda eftir að fyrrum samstarfsmaður hennar hafi sagt henni að þetta gengi ekki lengur og spurt hana hvort hún ætlaði að heimsækja bróður sinn sem búsettur væri á Íslandi. Framangreind frásögn kæranda um það hvenær hún hafi áttað sig á að hún sætti eftirliti stjórnvalda er þó ekki í samræmi við gögn sem hún lagði fram hjá kærunefnd. Þau gögn kveður kærandi sýna að hún hafi verið undir eftirliti stjórnvalda í lengri tíma en hún kvaðst þó ekki hafa haft gögnin undir höndum eða vitað að slík mappa væri til hjá stjórnvöldum um sig. Gögnin gefa þó til kynna að kærandi og eiginmaður hennar hafi verið boðuð í skýrslutökur hjá lögreglunni á Kúbu sex sinnum á árunum 2019 til 2022. Þá hafi kærandi og eiginmaður hennar mætt öll sex skiptin og kvittað fyrir mætingu. Má því ljóst vera að kærandi hafi vitað að hún hafi sætt ákveðnu eftirliti af hálfu stjórnvalda á Kúbu löngu fyrir þann tíma sem hún greindi frá í viðtali sínu. Þá greindi kærandi ekki frá þessum skýrslutökum hjá lögreglu heldur aðeins frá framangreindu áreiti á heimili sínu og á förnum vegi. Fyrsta boðunin í skýrslutöku er dagsett 25. júlí 2019 eða um níu árum eftir að hún kvaðst hafa hætt störfum fyrir ríkið. Dregur framangreint misræmi úr heildar trúverðugleika frásagnar kæranda. Þá vekur athygli að kærandi tók sérstaklega fram við málsmeðferð sína hjá Útlendingastofnun að hún hafi hvorki tekið þátt í mótmælum né tjáð skoðanir sínar opinberlega eða sýnt þær í verki nema með því að hætta störfum fyrir stjórnvöld. Verður því ekki lagt til grundvallar að kærandi sæti sérstöku eftirliti stjórnvalda á Kúbu vegna stjórnmálaskoðana sinna eða vegna þess að hún hafi látið af störfum fyrir ríkið og neitað að koma aftur til starfa. Þrátt fyrir að ekki sé hægt í ljósi framlagðra gagna og heimilda um stjórnarhætti í Kúbu að útiloka að kærandi hafi þurft að mæta til viðtals hjá lögreglu árlega verður ekki séð að hún sé undir sérstöku eftirliti af hálfu stjórnvalda umfram aðra einstaklinga í heimaríki sem einnig hafa hætt störfum fyrir ríkið. Þá má ekki ráða af frásögn kæranda eða gögnum málsins að það eftirlit hafi að öðru leyti haft áhrif á stöðu kæranda og fjölskyldu hennar í heimaríki. Lítur kærunefnd við það mat til þess að kærandi greindi frá því að hafa starfað í heimaríki, fyrst í verslun og síðan á einkareknum veitingastað, börn hennar hafi gengið í skóla, hún hafi átt eigið húsnæði og eiginmaður hennar hafi einnig unnið úti. Þá er ljóst að kærandi og börn hennar fengu útgefin vegabréf 18. janúar 2023, útgefna vegabréfsáritun í sendiráði Svíþjóðar í Havana í ágúst 2023 og gátu ferðast frá Kúbu óhindrað. Með vísan í framangreindar heimildir um eftirlit stjórnvalda um ferðalög til og frá landinu og ferðatakmarkanir sem gilda um aðila sem taldir eru andstæðir stjórnvöldum bendir það ekki til þess að kærandi sæti sérstöku eftirliti stjórnvalda eða eigi ólokin mál til meðferðar hjá stjórnvöldu á Kúbu.

Með hliðsjón framlagðra gagna telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa frásögn kæranda um að eiginmaður hennar hafi setið í fangelsi í heimaríki. Í framlögðu afriti af sakavottorði eiginmanns kæranda kemur fram að hann hafi setið í fangelsi frá 28. nóvember 2011 til 20. október 2015, eða í tæp fjögur ár, fyrir tilraun til ráns. Hann hafi þó fengið níu ára dóm fyrir athæfið. Þá kemur fram í afriti af vottorði um lausn frá herþjónustu, dags. 1. júlí 2012, að eiginmaður kæranda hafi verið leystur frá virkri herþjónustu og fluttur í varalið hersins. Þetta hafi verið gert um átta mánuðum eftir að hann hafi hafið afplánun í fangelsi. Með vísan til þess sem kemur fram í framangreindum gögnum er það mat kærunefndar að þau staðfesti ekki að eiginmaður kæranda hafi setið í fangelsi á grundvelli rangra sakargifta vegna þess að hann hafi verið talinn stjórnarandstæðingur eða vegna þess að hann hafi tekið þátt í mótmælum.

Með vísan til framangreinds verður ekki talið að þau atvik sem kærandi hefur lýst nái því marki að teljast ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana, sbr. e- lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá lítur kærunefnd til þess að kærandi hafi ekki tjáð stjórnmálaskoðanir sínar opinberlega og því hafi yfirvöld á Kúbu ekki vitneskju um að hún sé stjórnarandstæðingur. Verður því ekki lagt til grundvallar að kærandi hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna eða eiginmanns hennar, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun og í greinargerð sinni til kærunefndar byggir kærandi á því að hún sé í hættu í heimaríki þar sem hún verði álitin föðurlandssvikari snúi hún aftur til baka. Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Kúbu sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda á Kúbu séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að kærandi eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnsins var nægilega komið á framfæri með framburði kæranda og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að barnið fylgi móður sinni aftur til heimaríkis. Barn það sem um ræðir er í fylgd móður sinnar sem er heilsuhraust og vinnufær og nýtur barnið stuðnings hennar. Eins og áður greinir stendur barni kæranda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að barnið muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnsins er það barninu fyrir bestu að fylgja móður sinni til heimaríkis síns.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum hennar og barns hennar í heimaríki, telst kærandi ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærandi og barn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hún og barn hennar eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í heimaríki sínu með vísan til almenns ástands í landinu.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda og barns hennar er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður hennar og barns hennar leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka. Við það mat hefur kærunefnd sérstaklega litið til málsástæðna kæranda um að hún sé andsnúin stefnu stjórnvalda.

Kærandi vísar til þess að hún sé í hættu vegna almenns ástands og erfiðra efnahagslegra aðstæðna í heimaríki. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið á Kúbu sé víða ótryggt sökum náttúruhamfara og efnahagsþrenginga, m.a. í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins, og að fjöldi þeirra sem yfirgefið hafa landið hafi aukist verulega síðustu ár. Það er þó mat kærunefndar að virtum framburði kæranda, gögnum málsins og landaupplýsingum um ástandið á Kúbu að kærandi og barn hennar eigi ekki á hættu meðferð sem brjóti gegn 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, s.s. að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði þeim gert að snúa til Kúbu.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barns hennar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi og barn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi og barn hennar eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hún og B muni búa við erfiðar efnahags- og félagslegar aðstæður verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Almennt ástand í landinu sé afar bágborið og viðvarandi mannréttindabrot eigi sér stað þar í landi, m.a. af hálfu yfirvalda. Þá sé heilbrigðisþjónusta í landinu af skornum skammti.

Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Við meðferð málsins hafa ekki komið fram gögn sem kalla á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem fram koma í þessum athugasemdum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að andleg heilsa hennar sé ekki góð þar sem hún hafi þurft að skilja eiginmann sinn og elsta son eftir í heimaríki. Kærandi kvaðst hafa haft aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki þar sem öll læknisþjónusta sé gjaldfrjáls þar í landi, en kerfið sé ekki gott, m.a. sé skortur á tækjum til að greina og meðhöndla veikindi. Kærandi taki engin lyf að staðaldri. Þá kvað kærandi börn hennar vera við góða heilsu eftir að hafa komið hingað til lands. Hafi B verið með útbrot um allan líkamann og marbletti á lærinu, en hún hafi fengið meðhöndlun við hvoru tveggja hér á landi. Hún sé með [...], noti ótilgreint krem og ofnæmislyf. Læknum í heimaríki hafi grunað að B væri með ofnæmi fyrir moskítóbitum, en það hafi aldrei verið rannsakað. Þá hafi B verið lögð inn á sjúkrahús í heimaríki og kærandi kvaðst hafa þurft að kaupa lyf af fólki sem hafi verið að koma erlendis frá þar sem lyfin hafi ekki verið til á Kúbu. Engin heilsufarsgögn liggja fyrir í málinu. Kærandi lagði hins vegar fram ljósmyndir af útbrotum B og skjáskot af samskiptum sínum við eiginmann sinn, dags. 15. ágúst 2022, þar sem þau hafi verið að ræða meðferð B og að þau hafi verið að reyna útvega henni sýklalyf í heimaríki.

Af framburði kæranda verður ekki ráðið að hún eða B glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi eða barn hennar þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærandi og barn hennar hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hún eða barn hennar hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að eiginmaður hennar og uppkominn sonur þeirra séu í heimaríki þar sem sonur þeirra sé að sinna herskyldu og þau hafi ekki viljað skilja hann eftir einan þar í landi. Kærandi greindi einnig frá því að eiga ekki marga að í heimaríki þar sem foreldrar hennar séu látin og bróðir hennar sé búsettur hér á landi. Hún eigi þó vini í heimaríki. Kærandi kvaðst hafa verið með atvinnu í heimaríki, en að hún og maðurinn hennar hafi ekki verið vel stödd fjárhagslega. Hafi bróðir kæranda verið að aðstoða þau. Auk þess greindi kærandi frá því að hún eigi sitt eigið húsnæði í heimaríki og sé ekki skuldug. Þá greindi kærandi jafnframt frá því að A og B hafi verið í skóla í heimaríki og stundum um helgar hafi þau farið út að leika. Af gögnum málsins verður talið að kærandi hafi getað framfleytt sér og börnum sínum í heimaríki. Kærandi er á [...] og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hún sé heilsuhraust og vinnufær. Stjórnarskrá Kúbu kveður á um jafnan rétt kvenna og karla. Konur hafi sömu réttindi og skyldur í hjónabandi, við skilnað, við forsjárskyldur, framfærslu heimilis og til atvinnu. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kæranda og barns hennar við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og B í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hún eða barn hennar hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda og barni hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 7. ágúst 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda og barns hennar. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda og barni hennar þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsóknum kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimildir kæranda og barns hennar til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Með tölvubréfi Útlendingastofnunar, dags. 2. september 2024, var kæranda leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa henni frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Í svörum kæranda, dags. 4. september 2024, kemur fram að hún eigi bróður sem sé búinn að vera búsettur hér á landi í 11 ár. Kærandi teldi það vera óréttlátt að leggja brottvísun og endurkomubann á hana og börn hennar þar sem Kúba sé einræðisríki og þeir stjórnarandstæðingar sem snúi þangað aftur séu álitnir úrþvætti. Við heimkomu yrðu börn kæranda tekin af henni og hún strax sett í fangelsi vegna kúbverskra laga um fjölskyldur sem tóku gildi 20. júlí 2022. Lögin kveði á um að andstæðingar ríkisstjórnarinnar geti misst forræði yfir börnum sínum. Í augum stjórnvalda á Kúbu séu umsóknir ríkisborgara landsins um pólitískt hæli jafngildar stríðsyfirlýsingu þar sem slíkar umsóknir séu til þess gerðar að smána kúbversk stjórnvöld og afhjúpa misferli og mannréttindabrotum yfirvalda.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kæranda og barns hennar og endurkomubann kæranda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hún Ísland innan þess frest sem henni er gefinn.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum kæranda og barns hennar var þeim brottvísað og kæranda ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið auk þess sem tekið var fram að yfirgefi hún landið sjálfviljug innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda og barns hennar til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi hún landið innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barns hennar eru staðfestar. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hún sjálfviljug frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellant and her child are affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, her re-entry ban will be revoked.

Þorsteinn Gunnarsson


Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir