18 desember 2024

/

Úrskurður nr. 1236/2024


Hinn 18. desember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 1236/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24070088


Kæra [...]

á ákvörðun Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 28. júní 2024 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari Rúmeníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. maí 2024, um brottvísun og endurkomubann til sjö ára, sbr. 1., sbr. 2. mgr. 95. gr. og 1. mgr. 96. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Hinn 24. maí 2024 var ákvörðunin birt fyrir kæranda.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina.

Með tölvubréfi, dags. 28. júní 2024, lagði kærandi fram stjórnsýslukæru og bar fyrir sig að lengd endurkomubanns væri úr hófi með hliðsjón af lengd dvalar og eðlis brota hans. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 10. júlí 2024, var kæranda tilkynnt að kæra hans hefði verið lögð fram of seint með tilliti til kærufrests og var honum veitt færi á því að leggja fram frekari skýringar til stuðnings þess að taka ætti málið til efnislegrar meðferðar. Ekki voru lögð fram frekari gögn eða skýringar til kærunefndar.

II. Niðurstaða

Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

  1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

  2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér getur t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar skal m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Samkvæmt gögnum málsins var ákvörðun um brottvísun og endurkomubann, dags. 10. maí 2024, birt fyrir kæranda 24. maí 2024. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert beina skuli kæru í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Þá fór birting fram í samræmi við 4. mgr. 44. gr. reglugerðar um útlendinga, m.a. með aðstoð túlks. Gögn málsins bera ekki með sér að afsakanlegt sé að kæra hafi borist seint. Að framangreindu virtu verður kæran ekki tekin til meðferðar á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda auk röksemda hans um óhóflegt endurkomubann vegna fyrri dvalar og eðlis brota hans. Hvorki verður séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Þar að auki lítur nefndin til þess að kæranda er unnt að sækja um niðurfellingu endurkomubanns ef verulegar breytingar verða á þeim aðstæðum sem réttlættu ákvörðun um endurkomubann, sbr. 2. mgr. 96. gr. laga um útlendinga.

Að öllu framangreindu virtu er kæru þessari vísað frá nefndinni.


Úrskurðarorð:

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá.

The applicant‘s appeal of the decision of the Directorate of Immigration is dismissed.

Valgerður María Sigurðardóttir

Gunnar Páll Baldvinsson Sandra Hlíf Ocares