19 desember 2024
/
Úrskurður nr. 1287/2024
Hinn 19. desember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 1287/2024
í stjórnsýslumálum nr. KNU24090125 og KNU24090126
Endurteknar umsóknir
í málum […], […] og barna þeirra
I. Málsatvik
Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 325/2024, dags. 27. mars 2024 staðfesti nefndin ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 31. október 2023, um að synja […], fd. […], ríkisborgara Venesúela (hér eftir M) og […], fd. […], ríkisborgara Venesúela (hér eftir K), og börnum þeirra, […], fd. […] (hér eftir A) og […], fd. […] (hér eftir B, ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Hinn 19. september 2024 barst kærunefnd beiðni kærenda um endurupptöku.
Kærendur byggja endurtekna umsókn sína á 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga. Þá krefjast kærendur þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar verði frestað með vísan til 3. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga.
II. Málsástæður og rök kærenda
Kærendur byggja endurteknar umsóknir sínar á því að þau hafi verið þátttakendur í mótmælum á Íslandi. Myndefni af þeim, í afmörkuðum og fámennum hópi, hafi verið sjónvarpað á ríkisrekinni sjónvarpsstöð í Venesúela þar sem innanríkis-, dómsmála – og friðarráðherra hafi úthrópað þau sem stuðningsmenn hryðjuverkamanna í beinni útsendingu fyrir framan venesúelsku þjóðina.
Kærendur séu stödd á landinu og uppfylli því ótvírætt fyrra skilyrði 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga. Að mati kæranda séu nýjar málsástæður og upplýsingar sem liggi fyrir í máli þeirra sem auki líkur á að fallist verði á umsókn í máli þeirra. Í fyrsta lagi hafi birst myndefni af kærendum sem hafi verið sjónvarpað í beinni útsendingu í sjónvarpsþætti innanríkisráðherra Venesúela. Mannréttindasamtök hafi reiknað út fylgni milli birtingar stjórnarandstæðinga í umræddum þætti innanríkisráðherra og þvingunaraðgerða. Í öðru lagi sé einstaklingsbundin staða kærenda sem mótmælenda og stjórnarandstæðinga í Venesúela breytt frá því að kærunefnd útlendingamála lagði mat á aðstæður þeirra. Séu skilyrði 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga því uppfyllt í málum kærenda.
Kærendur séu andsnúin stjórnvöldum í Venesúela. Að undanförnu hafi þau verið virk í hagsmunabaráttu Venesúelabúa m.a. með að sækja og skipuleggja mótmæli á vegum hópsins [...]. Ljósmynd og myndband af þátttöku kæranda í mótmælum á Íslandi 17. og 28. ágúst sl. hafi þannig borist í venesúelska fjölmiðla og útvarpað í framangreindum sjónvarpsþætti ráðherra. Að því er kærendur best viti hafa þau enn ekki verið nafngreind í fjölmiðlum en myndir af þeim hafi birst víðsvegar og auðvelt sé að auðkenna kærendur af myndefninu. Jafnframt hafi sá sem hafi unnið sjónvarpsefnið talið þá einstaklinga sem birtist á myndinni, sem bendi til þess að rýnt hafi verið í myndina. Kærendur byggja á því að dreifing á upplýsingum um þátttöku þeirra í mótmælum gegn venesúelsku ríkisstjórninni geri þau að skotmarki yfirvalda og hægt sé að auðkenna kærendur á myndefninu. Kærendur hafi augljóslega náð athygli stjórnvalda. Í nýrri skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna sé sérstaklega minnst á myndbirtingar ráðherrans af stjórnarandstæðingum í umræddum þætti og þá vísa kærendur til frekari alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings.
Kærendur byggja á því að útsending á myndefni af þeim á ríkisrekinni sjónvarpstöð, í þætti innanríkisáðherra sem eigi sér fylgnisamband við þvingunaraðgerðir, leiði til þess að skilyrði 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga séu uppfyllt. Sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á alþjóðlega vernd skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Löggjöf og aðgerðir stjórnvalda, lögreglu og dómstóla feli í sér mismunun að efni, enda einkum beint að stjórnarandstæðingum og brjóti markvisst og endurtekið á borgaralegum réttindum þeirra og meintar athafnir kærenda heyri undir sérlögsögu herdómstóla sem þverbrjóti réttindi sakborninga, sbr. b-, c- og d- liður 2. mgr. og e-lið 3. mgr 38. gr. laga um útlendinga. Þá séu sýnilega auknar líkur á því að fallist verði á viðbótarvernd skv. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Auknar líkur séu á að kærendur eigi í hættu á að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu vegna stjórnmálaskoðana, nú þegar stjórnvöld hafa auðkennt þau. Auknar líkur séu á ólögmætri frelsissviptingu sem varði við 1. og 2. mgr. 5. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 3. gr. sáttmála um bann við ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð. Einnig séu sýnilega auknar líkur á að fallist verði á dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Almennar og félagslegar aðstæður kærenda hafi breyst til hins verra í Venesúela þar sem þau hafi nýlega verið auðkennd stjórnarandstæðingar fyrir framan venesúelsku þjóðina og valdamikill ráðherra sérstaklega tilgreint og fullyrt að þau séu hryðjuverkamenn. Fyrirsjáanlegt sé að borgarleg réttindi þeirra séu orðin að engu en að auki megi þau búast við frekari erfiðleikum við að sækja grunnþjónustu, s.s. mataraðstoð sem sé ekki úthlutað til stjórnarandstæðinga. Kærendur telja þá brýnt að endurtaka mat undir meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Kærendur lögðu fram myndband með ljósmynd af kærendum og myndbandi af mótmælum við [...] og skjáskoti af kynningu á samtökunum [...].
Með viðbótarathugasemdum, sem bárust kærunefnd 3. desember 2024, lögðu kærendur fram tvö fylgiskjöl. Kærendur greina frá því að fylgiskjölin séu annars vegar fyrirköll í sakamáli nafngreinds einstakling, X, sem hafi verið brottvísað frá Íslandi í október 2024. X hafi verið forsprakki mótmælendahópsins en sæti nú sakamálarannsókn hjá lögreglunni CICPC í Venesúela vegna gruns um hryðjuverk og föðurlandssvik. Hins vegar sé um að ræða fyrirkall sem hafi borist á heimili fjölskyldumeðlima eins nafngreinds mótmælenda, Y, í Venesúela, en Y sé staddur á Íslandi. Kærendur telji framangreind gögn styðja fyrri sjónarmið í greinargerð sínum um að mótmælendur hafi vakið athygli stjórnvalda á samfélagsmiðlum og í venesúelskri sjónvarpsútsendingu. Huglægur ótti kærenda vegna stöðu sinna sem stjórnarandstæðinga og mótmælenda sé því orðin ástæðuríkari.
III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Beiðni um endurtekna umsókn á grundvelli 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga skal endurtekinni umsókn vísað frá. Þó skal taka endurtekna umsókn til meðferðar að nýju ef umsækjandi er staddur hér á landi og nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans sem leiða til þess að sýnilega auknar líkur séu á því fallist verði á fyrri umsókn hans samkvæmt 24. gr. laganna.
Ákvæði 35. gr. a. laga um útlendinga kom nýtt inn í lög um útlendinga með lögum nr. 14 frá 27. mars 2023. Kveður ákvæðið á um að endurtekin umsókn skuli tekin til meðferðar að nýju ef umsækjandi er staddur hér á landi og nýjar upplýsingar liggja fyrir í málinu sem leiða til að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsókn. Í ákvæðinu kemur jafnframt fram að ákvæði 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gildi ekki um ákvarðanir í málum er varða alþjóðlega vernd. Í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 14/2023 kemur fram að mælikvarðann um ,,sýnilega auknar líkur“ verði að túlka með hliðsjón af því að líkur séu á því að önnur niðurstaða fáist í málið vegna upplýsinga sem ekki lágu fyrir við meðferð upphaflegrar umsóknar. Gerir orðalag ákvæðisins og útskýringar í greinargerð því ekki þá kröfu að fullvissa sé fyrir því að niðurstaðan verði önnur en í fyrri umsókn. Þá verður einnig að líta til þess að við mat á endurtekinni umsókn má oft útiloka að hinar nýju upplýsingar hafi áhrif á fyrri niðurstöðu.
Eins og áður hefur komið fram kvað kærunefnd upp úrskurð í máli kærenda 27. mars 2024. Með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að kærendur og börn þeirra uppfylltu ekki skilyrði 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ættu því ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat kærunefndar að aðstæður kærenda og barna þeirra væru ekki með þeim hætti að veita bæri þeim dvalarleyfi á grundelli 74. gr. laga um útlendinga.
Kærendur byggja endurteknar umsóknir sínar á því að myndefni af kærendum hafi verið sjónvarpað í beinni útsendingu í sjónvarpsþætti innanríkisráðherra Venesúela. Þau hafi verið auðkennd sem mótmælendur og kölluð hryðjuverkamenn. Þær upplýsingar sem nú liggi fyrir sýni að einstaklingsbundin staða kærenda sem mótmælenda og stjórnarandstæðinga í Venesúela hafi breyst frá því að kærunefnd hafi lagt mat á aðstæður þeirra og að nú séu því sýnilega auknar líkur á því að fallist verði á fyrri umsókn þeirra.
Kærendur hafa lagt fram myndband úr sjónvarpsþætti innanríkisráðherra Venesúela og telja að hægt sé að bera kennsl á þau við mótmæli hér á landi í umræddu myndbandi. Kærendur telja að dreifing á upplýsingum um þátttöku þeirra í mótmælum í venesúelsku ríkisstjórninni geri þau að skotmarki yfirvalda. Myndefnið bendi til þess að sá sem hafi unnið það hafi farið yfir myndefnið og borið kennsl á tiltekna einstaklinga sem mætt hafi á mótmælin, þar á meðal kærendur. Nafn kærenda sé þó ekki komið í dreifingu. Kærunefnd hefur horft á tilvísaðan þátt innanríkisráðherra og kynnt sér efni hans. Í þættinum er fjallað um mótmæli víðsvegar um heiminn og stutt myndbrot eða stutt birting mynda sýnd af mótmælendum. Þátturinn ber það ekki með sér að verið sé að úthúða mótmælendum sem stuðningsmönnum hryðjuverkamanna heldur sé verið að benda á það hve fáir hafi mætt á þau mótmæli sem sýnt hafi verið frá í þættinum og virðist lítið úr þeim gert. Í þættinum eru mótmælendur ekki nafngreindir og ekki hvatt til sérstakra aðgerða gagnvart þeim einstaklingum er þar birtast. Þá kemur ekkert fram í þættinum sem bendir til þess að umræddir aðilar séu í sérstakri hættu á ofsóknum yfirvalda í Venesúela frekar en aðrir þeir þúsundir mótmælenda sem mótmælt hafa ríkjandi stjórnvöldum í landinu síðastliðin ár. Í umsókn kærenda um endurupptöku kemur fram að í nýrri skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 17. september 2024 sé sérstaklega minnst á myndbirtingar ráðherrans af stjórnarandstæðingum í umræddum þætti. Vísar kærunefnd til þess að í umræddri skýrslu er umfjöllun um sjónvarpsþáttinn í sambandi við svokallaða Tuntun aðgerð stjórnvalda í Venesúela. Í skýrslunni kemur fram að í þættinum hafi birst myndefni af handtökum vegna aðgerðarinnar, m.a. til að dreifa hræðsluáróðri og skapa skelfingu meðal íbúa landsins. Kærandi vísar jafnframt til skýrslu Amnesty International frá árinu 2022 þar sem fram komi að fylgni sé á milli birtinga í sjónvarpsþættinum og handtaka í kjölfarið. Í skýrslunni kemur fram að á tímabilinu 2019 til 2021 hafi verið fylgni á milli myndbirtinga í fjölmiðlum og handtaka og gæsluvarðhalds í Venesúela. Samkvæmt skýrslunni taka niðurstöður rannsóknarinnar til einstaklinga sem setið höfðu í gæsluvarðhaldi á fyrrnefndum árum og leiddi í ljós að um 65% þeirra höfðu á einhverjum tímapunkti verið teknir fyrir í fyrrnefndum sjónvarpsþætti ráðherra. Framangreind rannsókn og niðurstöður hennar staðfesta það þó ekki að allur sá fjöldi einstaklinga sem kemur fyrir í þættinum eigi í beinni hættu á að verða handteknir af þeim sökum eða eigi á hættu ofsóknir stjórnvalda í Venesúela.
Þá hafa kærendur lagt fram afrit af skjölum sem þau kveða vera fyrirköll lögreglunnar CICPC í Venesúela til tveggja nafngreindra einstaklinga. Kærunefnd lítur til þess að framangreindar boðanir í skýrslutökur hjá lögreglunni beinast ekki gegn kærendum og þau hafi ekki fengið slíkar boðanir sjálf. Verður því ekki fallist á það með kærendum að framlögð gögn styðji við þá málsástæðu þeirra að þau hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu stjórnvalda eða annara aðila í heimaríki þeirra á grundvelli stjórnmálaskoðana þeirra.
Það er því mat kærunefndar að framangreindar upplýsingar í máli kærenda og barna þeirra leiði ekki til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsóknir þeirra samkvæmt 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga og telur kærunefnd því skilyrði ákvæðis 35. gr. a laga um útlendinga ekki vera uppfyllt.
Að framangreindu virtu er kröfu kærenda um endurtekna umsókn vísað frá.
Úrskurðarorð:
Endurteknum umsóknum kærenda er vísað frá.
The appellants´ subsequent application is dismissed.
F.h. kærunefndar útlendingamála,
Þorsteinn Gunnarsson, formaður