20 desember 2024

/

Úrskurður nr. 1288/2024


Hinn 20. desember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 1288/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24020105

Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 14. febrúar 2024 kærði einstaklingur sem kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. febrúar 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnun sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd 25. nóvember 2023. Kvaðst kærandi sækja um vernd vegna þess að reynt hafi verið að drepa hann í heimaríki. Kærandi kvaðst hafa notið aðstoðar smyglara til að komast til Íslands. Þá kvaðst kærandi vera heilsuhraustur.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 18. janúar 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Þar greindi kærandi frá því að fæddur og uppalinn í Mógadisjú í Sómalíu. Kærandi hafi búið fyrstu tvö árin í Mógadisjú og aftur á árunum 2012 til 2022. Kærandi hafi verið uppalin í [...] og búið þar í rúmlega ár áður en hann hafi yfirgefið heimaríki í ágúst 2023. Kærandi kvaðst vera við góða andlega og líkamlega heilsu. Kærandi kvaðst eiga foreldra og þrjár systur í heimaríki. Kærandi greindi frá því að tilheyra minnihlutaættbálknum [...]. Kærandi kvaðst hafa sætt mismunum og slæmri meðferð vegna aðildar sinnar að ættbálknum. Kærandi greindi frá því að hafa verið í sambandi við nágrannastúlku sem tilheyrði meirihlutaættbálki í heimaríki. Kærandi hafi beðið um hönd stúlkunnar í hjónaband en fjölskylda hennar hafi hafnað bónorði kæranda. Fjölskylda hennar hafi hótað honum og hent honum út af heimili þeirra. Síðar í viðtali kvaðst hann hafa yfirgefið heimili hennar án vandkvæða en síðar hitt bróður hennar sem hafi ráðist á kæranda. Kærandi og kærasta hans hafi flúið til [...] í Sómalíu þar sem þau hafi gift sig. Í kjölfar þess hafi fjölskylda kærustunnar ráðist á fjölskyldu kæranda. Kærandi og kærastan hans hafi farið aftur í heimabæ sinn. Kærastan hans hafi þá verið orðin barnshafandi og fjölskylda hennar hafi rænt móður kæranda. Þegar kærandi hafi snúði heim aftur hafi bróður kærustu skotið vin kæranda og kæranda hafi verið kennt um að vinur hans hafi verið drepinn. Kæranda hafi síðar borist hótunarskilaboð vegna þessa. Kærandi hafi þá flúið frá heimsvæði sínu og síðar frá heimaríki.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 14. febrúar 2024. Greinargerð barst kærunefnd 19. febrúar 2024 ásamt fylgiskjölum.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Í ljósi niðurstöðu kærunefndar er ekki ástæða til þess að reifa greinargerðina frekar.

4 Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. sömu laga sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Þá kemur fram í 1. mgr. 74. gr. laganna að heimilt sé að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins. Af athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga verður jafnframt ráðið að rétturinn til alþjóðlegrar verndar nái ekki til flóttamanna sem eru utan marka landsins. Verða ákvæðin ekki skilin öðruvísi en svo að réttur umsækjenda til alþjóðlegrar verndar og dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé háður því ófrávíkjanlega skilyrði að umsækjandi sé utan heimaríkis og staddur hér á landi eða komi hér að landi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kom fram að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar. Ljóst er því að kæranda var heimilt að dvelja á landinu á meðan mál hans var til meðferðar hjá kærunefnd.

Útlendingastofnun barst beiðni frá stjórnvöldum í Frakklandi, dags. 5. ágúst 2024, um að taka við kæranda á grundvelli b-liðar 18. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin) og samþykktu íslensk stjórnvöld viðtöku kæranda degi síðar. Hinn 7. nóvember 2024 barst kærunefnd tölvubréf frá Útlendingastofnun um að kærandi hafi verið skráður horfinn. Ljóst sé að kærandi hafi yfirgefið landið eftir ákvörðun stofnunarinnar þar sem beiðni hafi borist frá frönskum stjórnvöldumum að taka kæranda aftur, sem Ísland hafi samþykkt. Hinn 21. nóvember 2024 barst kærunefnd tölvubréf frá Útlendingastofnun um að kærandi hafi komið til Frakklands 17. júlí 2024 og sótt um vernd þar í landi 24. júlí 2024. Hinn 2. desember 2024 barst kærunefnd tölvubréf frá Útlendingastofnun um að kærandi sé staddur í Frakklandi og að Frakklandi hafi frest til 6. febrúar 2025 til að flytja hans til landsins nema tilkynning um frestun flutnings skv. 29. gr. Dyflinarreglugerðarinnar berist. Með vísan til þessa hafði kærunefnd samband við talsmann kæranda og greindi honum frá því að nefndinni hafi borist upplýsingar um að kærandi hafi yfirgefið landið og sótt um vernd í Frakklandi. Kærunefnd óskaði eftir upplýsingum frá talsmanni um hvort kærandi væri staddur hér á landi og ef svo væri var talsmanni veittur frestur til að leggja fram staðfestingu á því. Í svari frá talsmanni kæranda sem barst kærunefnd samdægurs greindi talsmaður frá því að hafa sent fyrirspurn á kæranda og myndi upplýsa kærunefnd um stöðuna um leið og hann svaraði pósti talsmannsins. Frekari upplýsingar bárust ekki frá talsmanni kæranda innan gefins frests. Kærunefnd hafði samband við Heimferða- og fylgdardeild Ríkislögreglustjóra 17. desember 2024. Í svörum deildarinnar, sem bárust kærunefnd degi síðar, kom fram að deildin hefði ekki frekari upplýsingar um hvort kærandi hafi komið til landsins eða hvort hann væri staddur á landinu. Þar sem kærandi hefur ekki sýnt fram á að hann sé staddur hér á landi, verður með vísan til framangreindra upplýsinga, lagt til grundvallar að hann hafi yfirgefið landið.

Líkt og að framan er rakið nær rétturinn til alþjóðlegrar verndar ekki til umsækjanda sem er utan marka landsins. Ekkert bendir til annars en að brottför kæranda af landinu hafi verið sjálfviljug en eins og áður hefur komið fram frestaði kæra til kærunefndar réttaráhrifum ákvörðunar Útlendingastofnunar. Það er því niðurstaða kærunefndar að vísa beri kæru kæranda frá nefndinni þar sem ekki hefur verið staðfest að hann sé staddur innan marka landsins.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er kæru kæranda vísað frá.


Úrskurðarorð:

Kæru kæranda er vísað frá.

The Appeal is dismissed.

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,

Þorsteinn Gunnarsson

formaður