21 janúar 2025
/
Úrskurður nr. 52/2025
Hinn 21. janúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 52/2025
í stjórnsýslumálum nr. KNU24100086 og KNU24100087
Endurteknar umsóknir í málum
[…] og barna þeirra
I. Málsatvik
Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 599/2024, dags. 5. júní 2024 staðfesti nefndin ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags 26. febrúar 2024. um að synja […], fd. […] (hér eftir M) og […], fd. […] (hér eftir K), og börnum þeirra […], fd. […] (hér eftir A) og […], frd. […] (hér eftir B), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir kærendum 6. júní 2024 og 11. júní 2024 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Kröfu kærenda var hafnað með úrskurði, dags. 24. júní 2024. Hinn 9. október 2024 bárust kærunefnd endurteknar umsóknir kærenda.
Kærendur byggja endurteknar umsóknir sínar á 35. gr. a. laga um útlendinga.
II. Málsástæður og rök kærenda
Kærendur byggja endurteknar umsóknir sínar á nýjum upplýsingum um ásandið í heimaríki þeirra. Ástandið hafi verið slæmt fyrir kosningarnar en versnað til muna eftir kosningarnar. Eftir kosningarnar hafi miklar óreiðir brotist út og í landinu ríki mikil upplausn. Kærendur telji að alþjóðlegar skýrslur sýni gjörbreytta stöðu í landinu. Kærendur telja að nefndin hafi ekki tekið tillit til ástandsins. Þá hafi ekki verið fjallað um forsetakosningarnar í úrskurði kærunefndar. Kærendur telja að þau uppfylli bæði skilyrði 1. mgr. 35. gr. a. laga um útlendinga, auk þess hafi þau lagt fram ný gögn, sbr. 35. gr. a. sömu laga.
III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Endurtekin umsókn á grundvelli 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga skal endurtekinni umsókn vísað frá. Þó skal taka endurtekna umsókn til meðferðar að nýju ef umsækjandi er staddur hér á landi og nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans sem leiða til þess að sýnilega auknar líkur séu á því fallist verði á fyrri umsókn hans samkvæmt 24. gr. laganna.
Ákvæði 35. gr. a. laga um útlendinga kom nýtt inn í lög um útlendinga með lögum nr. 14 frá 27. mars 2023. Kveður ákvæðið á um að endurtekin umsókn skuli tekin til meðferðar að nýju ef umsækjandi er staddur hér á landi og nýjar upplýsingar liggja fyrir í málinu sem leiða til að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsókn. Í ákvæðinu kemur jafnframt fram að ákvæði 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gildi ekki um ákvarðanir í málum er varða alþjóðlega vernd. Í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 14/2023 kemur fram að mælikvarðann um ,,sýnilega auknar líkur“ verði að túlka með hliðsjón af því að líkur séu á því að önnur niðurstaða fáist í málið vegna upplýsinga sem ekki lágu fyrir við meðferð upphaflegrar umsóknar. Gerir orðalag ákvæðisins og útskýringar í greinargerð því ekki þá kröfu að fullvissa sé fyrir því að niðurstaðan verði önnur en í fyrri umsókn. Þá verður einnig að líta til þess að við mat á endurtekinni umsókn má oft útiloka að hinar nýju upplýsingar hafi áhrif á fyrri niðurstöðu.
Eins og áður hefur komið fram kvað kærunefnd upp úrskurð í máli kærenda 5. júní 2024. Með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að kærendur og börn þeirra uppfylltu ekki skilyrði 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ættu því ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat kærunefndar að aðstæður kærenda og barna þeirra væru ekki með þeim hætti að veita bæri þeim dvalarleyfi á grundelli 74. gr. laga um útlendinga.
Kærendur byggja endurteknar umsóknir sínar á því að í kjölfar forsetakosninga í Venesúela í lok júlí 2024 hafi ástandið í Venesúela farið versnandi. Kærendur vísa til alþjóðlegra skýrsla og telja að þær upplýsingar sem nú liggja fyrir sýna breytta stöðu í heimaríki.
Þær upplýsingar um heimaríki kærenda í kjölfar forsetakosninganna sem kærunefnd hefur skoðað gefa til kynna að 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Edmundo Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar ný afstaðinna forsetakosninga séu harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Það er því mat kærunefndar að framangreindar upplýsingar í máli kærenda þeirra leiði ekki til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsóknir þeirra samkvæmt 24. gr. laga um útlendinga og telur kærunefnd því skilyrði ákvæðis 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga ekki vera uppfyllt.
Að framangreindu virtu er kröfu kærenda um endurtekna umsókn vísað frá.
Úrskurðarorð:
Endurteknum umsóknum kærenda og barna þeirra er vísað frá.
The appellants´ and their children‘s subsequent applications are dismissed.
F.h. kærunefndar útlendingamála,
Þorsteinn Gunnarsson, formaður