30 janúar 2025
/
Úrskurður nr. 78/2025
Hinn 30. janúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 78/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24090188
Kæra […]
á ákvörðun Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 27. september 2024 kærði […], kt. […], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. september 2024, um að synja umsókn hans um ótímabundið dvalarleyfi, sbr. 58. gr. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt ótímabundið dvalarleyfi.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 11. júlí 2016. Hinn 30. ágúst 2016 tók Útlendingastofnun ákvörðun í máli hans og komst að þeirri niðurstöðu að umsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar. Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 374/2016, dags. 18. október 2016, var ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.
Hinn 20. mars 2020 fékk kærandi útgefið dvalareyfi á Íslandi vegna skorts á starfsfólki með gildistíma til 31. ágúst 2020. Kærandi lagði fram umsókn um endurnýjun á dvalarleyfinu sem var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. mars 2021. Hinn 28. desember 2021 fékk kærandi útgefið dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérþekkingar með gildistíma til 20. desember 2022. Leyfið var endurnýjað með gildistíma til 20. desember 2023. Hinn 14. október 2023 lagði kærandi fram umsókn um ótímabundið dvalarleyfi, sbr. 58. gr. laga um útlendinga. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. september 2024, var kæranda synjað um ótímabundið dvalarleyfi, með vísan til þess að rof hefði myndast á samfelldri dvöl hans á dvalartímanum, sbr. 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga, þar sem kærandi hafi ekki verið með dvalarleyfi í gildi á Íslandi frá 31. ágúst 2020 til 28. desember 2021. Ákvörðunin var móttekin af kæranda 13. september 2024. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 27. september 2024. Kærandi lagði ekki fram greinargerð hjá kærunefnd.
III. Málsástæður og rök kæranda
Kærandi lagði ekki fram greinargerð hjá kærunefnd. Ráða má af kæru að kærandi krefjist þess að honum verði veitt ótímabundið dvalarleyfi á grundvelli 58. gr. laga um útlendinga.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í 58. gr. laga um útlendinga er fjallað um ótímabundið dvalarleyfi. Samkvæmt 1. mgr. 58. gr. er heimilt að veita útlendingi ótímabundið dvalarleyfi hafi hann dvalist hér á landi samfellt síðustu fjögur ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Um nánari skilyrði fyrir veitingu ótímabundins dvalarleyfis er m.a. mælt fyrir í a-e-liðum 1. mgr. 58. gr. laganna.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. september 2024, var kæranda synjað um ótímabundið dvalarleyfi, með vísan til þess að rof hefði myndast á samfelldri dvöl hans á dvalartímanum þar sem kærandi hafi ekki verið með dvalarleyfi í gildi á Íslandi frá 31. ágúst 2020 til 28. desember 2021, sbr. 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt því sem að framan hefur verið rakið fékk kærandi 20. mars 2020 útgefið dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki með gildistíma til 31. ágúst 2020. Kærandi lagði fram umsókn um endurnýjun á dvalarleyfinu sem var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. mars 2021. Hinn 28. desember 2021 fékk kærandi útgefið dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérþekkingar með gildistíma til 20. desember 2022. Leyfið var endurnýjað með gildistíma til 20. desember 2023. Kærandi lagði fram umsókn um ótímabundið dvalarleyfi, sbr. 58. gr. laga um útlendinga, 14. október 2023.
Af framangreindu er ljóst að kærandi var ekki með dvalarleyfi í gildi á Íslandi frá 31. ágúst 2020 til 28. desember 2021. Af þeim sökum varð rof á samfelldri dvöl kæranda hér á landi. Skilyrði um að kærandi hafi dvalist hér á landi samfellt síðustu fjögur ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis er því ekki uppfyllt, sbr. 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga. Þá eiga ákvæði 3. mgr. ákvæðisins ekki við um kæranda. Með vísan til framangreinds er ljóst að kærandi uppfyllir ekki skilyrði fyrir veitingu ótímabundins dvalarleyfis.
Að framangreindu virtu verður hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar, um að synja kæranda um ótímabundið dvalarleyfi, staðfest.
Kærandi mun að óbreyttu uppfylla skilyrði 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga fyrir ótímabundnu dvalarleyfi hinn 28. desember 2025, að því gefnu að ekki myndist frekara rof í samfellda dvöl hans.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Jóna Aðalheiður Pálmadóttir