30 janúar 2025
/
Úrskurður nr. 83/2025
Hinn 30. janúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 83/2025
í stjórnsýslumálum nr. KNU24120057
Kæra […] og barna hennar á ákvörðunum Útlendingastofnunar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 13. desember 2024 kærði […] , fd. […] (hér eftir K), ríkisborgari Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 29. nóvember 2024, um að synja henni og börnum hennar, […], fd. […] (hér eftir A) og […], fd. […] (hér eftir B), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendandi og börn hennar eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Kærandi og börn hennar lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt eiginmanni kæranda. Voru mál fjölskyldunnar unnin samhliða en um umsókn hans er fjallað í úrskurði kærunefndar nr. 84/2025.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Perú ásamt perúskum eiginmanni sínum og lagði fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 5. október 2023. Kvaðst kærandi vera að sækja um vernd vegna ástandsins í Venesúela. Kærandi hafi ekki gegnt herþjónustu, hafi ekki unnið hjá lögreglu eða hjá einkaöryggisfyrirtæki. Kærandi kvaðst vera að sækja um vernd vegna hótana í Venesúela, hún hafi þurft að borga mútur í hvert sinn sem hún hafi farið á milli landanna. Kærandi kvað eiginmann sinn eiga systur hér á landi og að hún hafi aðstoðað fjölskylduna við kaup á farmiðum til Íslands.
Kærandi og A komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 8. apríl og 5. júní 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Í viðtali greindi kærandi frá því að hafa komið til Perú árið 2019. Hún hafi verið með tímabundið dvalarleyfi þar í landi og dvalið þar til ársins 2023. A hafi á þeim tíma dvalið hjá móður kæranda í heimaríki. Maki kæranda sé ríkisborgari Perú auk þess sem B sé fædd í Perú og með ríkisborgararétt þar í landi. Kærandi greindi frá því að hafa endurnýjað tímabundið dvalarleyfi í Perú á hverju ári nema árið 2023. Kærandi kvaðst geta endurnýjað dvalarleyfið en þyrfti að sækja um vegabréfsáritun til að ferðast til Perú til að sækja um leyfi fyrir sig og börn sín. Kærandi kvaðst geta starfað við hvað sem er í Perú, hún hafi verið að vinna fyrst eftir að hún hafi flutt til Perú en síðar hætt þegar hún hafi orðið barnshafandi. Kærandi greindi frá því að vera við góða líkamlega heilsu en hún sé áhyggjufull og hugsi mikið um að þurfa snúa aftur til heimaríkis eða Perú. Kærandi greindi frá því að A og B séu við góða heilsu. Kærandi greindi frá því að hafa verið í ofbeldissambandi með fyrrverandi barnsföður sínum auk þess sem henni hefði verið hótað af einstaklingum tengdum stjórnvöldum í heimaríki. Þá sé fólkið sem hafi hótað henni í heimaríki nú flutt til Perú en hún hafi þó ekki fengið hótanir meðan hún hafi verið búsett þar í landi. Kærandi greindi frá því að systir hennar hafi verið að vinna hjá í Venesúela. Kærandi hafi verið kennari og unnið með systur sinni að verkefni við að endurnýja kennsluefni. Kærandi hafi orðið mótfallinn kerfinu og hætt í vinnunni. Kæranda hafi byrjað að berast hótanir og hún hafi verið þvinguð til að skrifa undir pappíra sem að hún hafi ekki viljað skrifa undir. Kærandi hafi verið neydd til að mæta á pólitíska viðburði og mótmæli. Þar sem hún hafi ekki viljað taka þátt hafi átt að reka kæranda úr starfi en hún hafi ákveðið að hætta fyrst. Þá hafi „þeir“ byrjað að kalla hana svikara. Hafi kærandi farið til Perú, en hafi heimsótt Venesúela tvisvar þar sem A hafi búið þar. A hafi ekki farið með henni til Perú þar sem hún hefði þurft leyfi frá föður hans til þess, en hann hafi búið í Bandaríkjunum. Kærandi greindi frá því að eiga móður, bróður og hálfsystkini í Venesúela.
Í viðtali við A greindi hann frá því að hafa komið til landsins með móður sinni, stjúpföður og B. A hafi búið í La Guaria fylki í Venesúela þar sem hann hafi verið fæddur og uppalinn. A hafi búið hjá móðurömmu sinni. Móðir hans hafi búið með þeim til ársins 2018 þar til hún hafi flutt til Perú. A greindi frá því að lífið í Venesúela hafi sína kosti og galla. Veðrið sé betra en lífið sé áhættusamt, hætta á að vera rændur eða vera rænt. A hafi gengið í skóla í heimaborg sinni þegar kennsla hafi verið og verið með vinum sínum eftir skóla. A kvaðst vera heilsuhraustur en hann hafa þurft að leggjast inn á sjúkrahús í heimaríki vegna brjóstverkja tengdum hræðslu, kvíða og áhyggjum en hann hafi jafnað sig eftir dvölina á sjúkrahúsinu. A greindi frá því að móðir hans sé kennaramenntuð og hafi unnið sem kennari í Venesúela. Þegar hann hafi búið hjá ömmu sinni hafi amma hans reynt að ná endum saman en stundum hafi vantaði upp á aðgengi að helstu nauðsynjum, mat og drykkjarvatn.
Útlendingastofnun ákvað 31. júlí 2024 að taka umsóknir kæranda og A um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi brottvísað frá landinu. Útlendingastofnun taldi að kærandi og A hefðu slík tengsl við Perú að eðlilegt og sanngjarnt væri að þau dveldu þar, ferðist eða yrðu flutt þangað, sbr. d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Með ákvörðun, dags. 31. júlí 2024 synjaði Útlendingastofnun B um alþjóðlega vernd ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kæranda sama dag og sættu sjálfkrafa kæru til kærunefndar. Ákvörðun í máli B var kærð til kærunefndar 16. ágúst 2024. Bárust greinargerðir kæranda og barna hennar 29. ágúst 2024. Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 963/2024, dags. 17. október 2024, var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda og A til efnismeðferðar og að taka mál B til nýrrar meðferðar.
Kærandi kom til viðtals á ný hjá Útlendingastofnun 29. október 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi greindi frá því að hafa verið fædd í Karakas og uppalin í La Guaira fylki í Venesúela. Kærandi kvaðst eiga móður og þrjú systkini í Venesúela og að hún hafi búið hjá móður sinni í […] borg í La Guaira fylki í Venesúela áður en hún hafi komið til Íslands í september 2023. Kærandi kvaðst vera við góða andlega og líkamlega heilsu, en hafa verið mjög slæm á taugum vegna áreitis sem fjölskyldan hafi þurft að þola. Kærandi greindi frá því að börn hennar séu við góða heilsu. Kærandi kvaðst hvorki hafa verið aðili að stjórnmálaflokki eða virk í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki. Þá kvaðst kærandi hvorki tilheyra sérstöku þjóðarbroti né minnihlutahóp í heimaríki. Kærandi greindi frá því að hafa verið kennari og að hafa starfað fyrir í heimaríki. Systir hennar hafi verið yfirmaður hennar. Systir kæranda hafi verið […]og hafi stutt stjórnvöld. Eftir ákveðinn tíma í starfi hafi kæranda farið að mislíka vinnuumhverfið. Hluti af vinnu kæranda hafi verið að mæta á stuðningsfundi fyrir stjórnvöld og hún hafi þurft að vera í klæðnaði í tilteknum litum til að sýna að hún styddi stjórnvöld. Kærandi hafi þurft að kjósa núverandi stjórnvöld. Það séu starfandi hópar sem sjái til þess að ríkisstarfsmenn mæti á þessa fundi. Árið 2016 hafi kærandi ákveðið að segja upp starfi sínu. Nokkrum vikum síðar hafi meðlimir hópsins Círculos bolivarianos komið heim til kæranda og rænt hana. Kærandi hafi tilkynnt atvikið til lögreglu en hafi ekki nefnt nein nöfn af hræðslu við hefnd. Lögreglan hafi ekki gert neitt í málinu. Kærandi hafi flutt til bróður síns í öðru fylki í um 12 tíma aksturfjarlægð um tíma. Þar hafi ekkert hent hana. Kærandi hafi síðan flutt aftur í heimafylki sitt þar sem hún hafi orðið fyrir áreiti á ný, einstaklingar hafi keyrt nálægt henni á mótorhjólum og hlutum hafi verið hent í hana. Í kjölfarið hafi kærandi farið til Perú árið 2018. Kærandi kvað framangreindan hóp hafa byrjað með starfsemi þar sem bróðir hennar hafi búið og þess vegna hafi hún ekki getað flutt þangað aftur og verið örugg, hópurinn hefði komist að því hvar hún væri á endanum. Eftir þetta hafi hún ekki getað starfað fyrir stjórnvöld. Kærandi greindi frá því að þessi hópur styðji stjórnvöld og vinni fyrir þau. Meðlimir hópsins séu vopnaðir með hnífum og skotvopnum. Þeir sjái um að hóta fólki sem sýni einhvers konar andúð við stjórnvöld. Kærandi kvað systur sína ekki hafa lent í vandræðum eftir að kærandi hafi hætt í starfi og hún starfi enn í. Kærandi kvaðst ekki vera í miklu sambandi við systur sína sem viti þó að kærandi sé stödd á Íslandi. Í Perú hafi kærandi rekist á einn af einstaklingunum sem hafi ráðist inn á heimili hennar árið 2016. Einstaklingurinn hafi ekki gert neitt og kærandi telji að hann hafi ekki verið að leita hennar. Kærandi kvaðst tvisvar sinnum hafa farið til Venesúela á meðan hún hafi búið í Perú til að heimsækja A sem hafi átt erfitt tilfinningalega. Kærandi hafi farið akandi til að ekki væri hægt að rekja flug, en hún hafi einnig farið akandi til að eiga ekki á hættu að missa dvalarleyfið sitt í Perú. Kærandi hafi verið í Venesúela í fjóra til fimm mánuði í senn. Kærandi greindi frá því að þegar hún hafi dvalist í Venesúela hafi hún orðið fyrir áreiti úti á götu. Kærandi hafi vitað hvaða glæpahópur stóð að áreitinu þar sem þeir séu merktir, með fána og séu á mótorhjólum, allir hafi vitað hverjir þeir séu. Kærandi kvaðst telja að ástæður þess að framangreindur hópur hafi áreitt hana hafi verið að hún hafi ekki stutt stjórnvöld og til að hún myndi sjá eftir því að segja upp starfi sínu. Ef ríkisstarfsmenn segi upp starfi sínu séu þeir settir á lista stjórnvalda og hafi engin réttindi, s.s. styrki eða þjónustu frá yfirvöldum. Kærandi kvaðst hafa sýnt opinberlega að hún hafi verið á móti stjórnvöldum með því að segja upp starfi sínu. Kærandi greindi frá því að þegar hún hafi verið í Venesúela árið 2021 ásamt eiginmanni sínum hafi meðlimir hópsins komið heim til hennar og þau hafi verið áreitt og rænd. Kærandi hafi kært atvikið til lögreglunnar og sé með skýrslu þess efnis. Kærandi kvaðst ekki geta fullyrt að um framangreindan hóp hafi verið að ræða í þetta skipti og hvort að innbrotið hafi tengst uppsögn hennar úr starfi. Þetta hafi verið þrír til fjórir menn sem hafi ráðist á þau og að líklega hafi það verið vegna þess að þeir hafi vitað að hún hafi verið að koma erlendis frá og hafi haldið að hún ætti peninga, dollara. Aðspurð um hvað kærandi teldi gerast ef hún sneri aftur til heimaríkis kvaðst hún ekki geta fengið vinnu í neinu fylki, hún yrði líklega áfram áreitt og það yrði fylgst með henni. En það hafi ýmislegt breyst síðan kærandi hafi farið frá landinu og hún kvaðst ekki vita hvernig þetta yrði. Kærandi kvaðst óviss um hvort hún gæti fengið vinnu hjá einkareknum fyrirtækjum sem ekki hafi tengsl við ríkið og að það væri lítið framboð af vinnu. Kærandi greindi frá því að ástandið í Perú væri einnig erfitt núna, mikið af innflytjendum, há glæpatíðni, mikið um fjárkúganir og mannrán og stjórnvöld hafi lýst yfir neyðarástandi. Kærandi greindi frá því að það sé hægt að sækja um dvalarleyfi vegna maka í Perú þegar þau hafi verið fimm ár í sambúð, sem þau hafi ekki verið. Það sé ekki hægt að sækja um vegabréfsáritanir í Perú lengur þar sem sé búið að loka sendiráði Venesúela í Perú. Kærandi greindi frá því að vegna lokunar á sendiráðinu geti eiginmaður hennar ekki sótt um vegabréfsáritun, sem hann þurfi til að fá dvalarleyfi í Venesúela.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli B kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við það með vísan til ungs aldurs þess og framburðar foreldra þess.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 29. nóvember 2024, var kæranda og börnum hennar synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan veitts frests yrði endurkomubann hennar fellt niður. Börnum kæranda var brottvísað frá landinu. Kærandi kærði ákvarðanirnar til kærunefndar 13. desember 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 2. janúar 2025. Hinn 22. janúar 2025 óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Hinn 24. janúar 2025 bárust kærunefnd svör kæranda.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi hafi búið í húsi móður sinnar í La Guaria fylki þar til hún hafi flúið heimaríki árið 2018. Andlega heilsa hennar hafi verið bág vegna atvika sem hafi hent hana í heimaríki. Kærandi hafi starfað í þar sem systir hennar hafi gegnt hlutverki og verið yfirmaður kæranda. Hluti af starfi kæranda hafi verið að klæðast litum sem sýndu að hún hafi verið á bandi stjórnvalda og taka þátt í viðburðum til stuðnings stjórnvöldum. Kærandi hafi upplifað skert athafnafrelsi og hafi verið þvinguð til að kjósa stjórnvöld. Kæranda hafi farið að líka illa við vinnuumhverfið og sagt upp störfum árið 2016. Í kjölfarið hafi glæpahópurinn Círculos bolivarianos, veist að henni. Meðlimir hópsins hafi komið að heimili kæranda með ofbeldi og rænt hana. Á árunum 2016 til 2018 hafi hún yfirgefið heimafylki sitt í stuttan tíma. Árið 2018 hafi hún flutt til Perú. Í Perú hafi kærandi rekist á einn einstakling sem hafi ruðst inn á heimili hennar í Venesúela þegar hún var búsett þar. Árið 2021 hafi kærandi orðið fyrir áreiti og verið rænd í Venesúela. Þá kvaðst kærandi hafa verið í þolandi í ofbeldissambandi við fyrrum barnsföður sinn í Venesúela.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Kærandi vísar til þess að ástandið í Venesúela sé eldfimt og ofsóknir gegn almennum borgurum hafi margfaldast vegna úrslita forsetakosninga. Mótmæli hafi brotist út um allt land og meðlimir stjórnarandstöðu og leiðtogar hennar hafi verið handteknir. Kærandi vísar m.a. til yfirlýsinga ellefu alþjóðlegra mannréttindasamtaka, dags. 1. ágúst 2024, og nýlegrar skýrslu óháðrar rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um aðstæður í Venesúela. Kærandi vísar til þess að frásögn hennar eigi sér styrka stoð í landaupplýsingum hvað varðar aðstæður stjórnarandstæðinga sem séu ríkisstarfsmenn.
Börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd og sé stjórnvöldum skylt að hafa það sem sé börnum fyrir bestu að leiðarljósi þegar þau taki ákvarðanir um málefni þeirra, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003, og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Þá beri samkvæmt 1. mgr. 22. gr. sama samnings að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu flóttamanns fái viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta þau réttindi sem við eiga og kveðið er á um í samningnum og öðrum alþjóðlegum löggerningum á sviði mannréttinda- og mannúðarmála. Kærandi hafnar túlkun stjórnvalda á landaupplýsingum um skólagöngu barna og vísar til landaupplýsinga máli sínu til stuðnings. Ef litið sé til hagsmuna barnanna hér á landi til samanburðar við Venesúela sé auðséð að öryggi þeirra, velferð og félagslegum þroska þeirra sé betur borgið hér og það myndi ganga þvert gegn hagsmunum þeirra að dvelja í Venesúela þar sem árásir hafi farið fram gegn foreldrum þeirra. Með hliðsjón af einstaklingsbundnu mati á væntanlegum aðstæðum barnanna beri að veita þeim alþjóðlega vernd hér á landi. Þá ber til þess að líta að faðir og stjúpfaðir barnanna muni ekki getað endurnýjað dvalarheimild sína í Venesúela líkt og kærandi hafi bent á. Kærandi og börn hennar muni því enda ein og yfirgefin, án stuðningsnets og fjölskylduföður, verði þeim gert að snúa aftur til Venesúela.
Kærandi byggir á því að hinar kærðu ákvarðanir séu haldnar verulegum annmörkum, einkum á grundvelli rannsóknarreglu. Kærandi vísar til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og mótmælir því mati. Ekki hafi verið lagt til grundvallar að kærandi hafi lagt fram gögn um áreiti glæpahóps. Við meðferð maka hafi verið lögð fram tilkynning til ráðuneytis í Venesúela. Ekki hafi átt að aðskilja mál kæranda og eiginmanns hennar og því hafi einnig átt að leggja framangreint gagn til grundvallar í máli kæranda, enda tilkynningin í hennar nafni.
Kærandi krefst þess aðallega að henni og börnum hennar verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu aðila sem nefndir séu í a- til d- lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga á grundvelli stjórnmálaskoðana og aðildar að þjóðfélaghópunum fyrrum ríkisstarfsmaður sem sé andsnúin stefnu stjórnvalda og þolendur glæpahópsins Círculos bolivarianos sbr. d – liður 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Um sé að ræða líkamlegt ofbeldi og gróf, endurtekin brot á friðhelgi einkalífs og löggjöf og aðgerðir stjórnvalda, lögreglu og dómstóla sem feli í sér mismun að efni til. Þá byggir kærandi á að saksókn og refsing sem sé óhófleg eða mismuni einstaklingum á ómálefnalegum grunni sbr. a- til d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga séu ofsóknir. Það að kærandi hafi verið þvinguð til að kjósa stjórnmálaflokk þvert á samvisku sína og taka þátt í stuðningsgöngum í þágu venesúelskra stjórnvalda hafi einnig falið í sér ofsóknir. Þá sé það að kærandi hafi sagt upp störfum í ráðuneytinu til þess fallið að gefa stjórnvöldum ástæðu til að ætla að hún tilheyri stjórnarandstöðu sem leiði til þess að hún líði ofsóknir á grundvelli e-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Verði að líta til þess að hún sé útsettari fyrir ofsóknum í ljósi starfa systur hennar fyrir stjórnvöld. Í fyrri málsmeðferð greindi kærandi frá því að hafa verið þolandi ofbeldissambands barnsföður síns í heimaríki, en ekki hafi verið spurt út í það í efnisviðtali við kæranda. Staða hennar sem þolandi marki bæði henni og börnunum aðild að þjóðfélagshópi í skilningi d-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga og kalli á rannsókn á þeirri málstæðu og sjálfstæðri rannsókn hvað börnin varðar og á högum kæranda. Verði framangreint ekki talið ná eðli ofsókna sem greint sé frá í 1. og 2 mgr. 38. gr. laga um útlendinga verði að líta á það sem samansafn ástæðna með samtvinnun við annað mótlæti í heimaríki. Ljóst sé að yfirvöld í heimaríki kæranda hafi ekki getu til að veita henni vernd þar sem yfirvöld séu á meðal ofsóknaraðila. Kærandi uppfylli því skilyrði 1. mgr. 37. gr., 1.- 3. mgr. 38. gr. og 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga.
Verði ekki fallist á aðalkröfu krefst kærandi þess til vara að henni og börnum hennar verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til málsástæðna í aðalkröfu og tilvísaðra landaheimilda. Kærandi byggir á því að eiga á hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hún og börn hennar send aftur til heimaríkis. Endurtekin rán, innbrot á heimili og ofbeldi og þvinganir kæranda í opinberu starfi séu svívirðileg brot á friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu og tjáningarfrelsi. Því hafi verið fylgt eftir með hótunum og líkamlegu ofbeldi. Í ljósi athafna og athafnleysis stjórnvalda verði að líta svo á að um ómannúðlega og vanvirðandi meðferð sé að ræða.
Flutningur innanlands sé hvorki raunhæfur eða sanngjarn kostur fyrir kæranda og börn hennar.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefst kærandi þess að henni og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Verndarþörf kæranda sé rík enda sé hún þolandi ofbeldisglæpa og fyrrum ríkisstarfsmaður sem sé andsnúin stefnu stjórnvalda. Þá sé borðleggjandi að kærandi geti ekki iðkað fyrri störf eða starfað hjá ríkinu almennt, snúi hún til baka til Venesúela. Fjölskyldutengsl kæranda við systur hennar sem hafi verið hátt sett innan venesúelska stjórnkerfisins setji kæranda í sérstaklega erfða félagslega stöðu. Kærandi sé auðveldlega auðkennd innan Venesúela vegna þessara fjölskyldutengsla sinna. Kærandi búi einnig við erfiðar félagslegar aðstæður í Venesúela þar sem hún hafi verið gerð að skotmarki valdamikils glæpahóps í landinu sem lögregla hafi ekki burði til að vinna gegn. Þá sé ástand mannréttindamála afar bágborið og fari versnandi samkvæmt nýjustu heimildum.
Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að henni og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi og börn hennar hafi sótt um alþjóðlega vernd 5. október 2023 og því verða senn liðnir 16 mánuðir frá umsókn þeirra um alþjóðlega vernd. Gerð sé krafa um dvalarleyfi á grundvelli framangreinds ákvæðis, verði kærunefnd útlendingamála ekki við framangreindum kröfum kæranda. Kærandi byggir á því að öll skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt, líði 16 mánuðir frá því að umsókn þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi án úrskurðar í málinu.
Með endursendingu kærenda og barna þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við töku ákvörðunar Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi vísar til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og mótmælir því mati. Ekki hafi verið lagt til grundvallar að kærandi hafi lagt fram gögn um áreiti glæpahóps. Við meðferð maka hafi verið lögð fram tilkynning til ráðuneytis. Ekki hafi átt að aðskilja mál kæranda og maka hennar og því hafi einnig átt að leggja framangreint gagn til grundvallar í máli kæranda, enda tilkynningin í hennar nafni. Kærandi hafi greint frá því í fyrri málsmeðferð að hafa verið þolandi ofbeldissambands barnsföðurs síns í heimaríki, en ekki hafi verið spurt út í það í efnisviðtali við kæranda. Staða hennar sem þolandi marki bæði henni og börnunum aðild að þjóðfélagshópi í skilningi d-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga og kalli á rannsókn á þeirri málstæðu og sjálfstæða rannsókn hvað börnin varði og á högum kæranda.
Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og framkvæmt sjálfstætt mat á öllum þáttum málanna. Rökstuðningur Útlendingastofnunar er að einhverju leyti ábótavant, einkum varðandi ofbeldi af hálfu fyrrum barnsföður kæranda, og framlagt gagn. Bætt hefur verið úr framangreindum annmörkum við málsmeðferð kærunefndar og með vísan til niðurstöðu úrskurðar þessa er ljóst að annmarkarnir hafa ekki haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
5.3 Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og börn sín. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og börn hennar hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður lagt til grundvallar að kærandi og A séu venesúelskir ríkisborgarar.
Í viðtali við kæranda kemur fram að B hafi fæðst í Perú og sé með perúskan ríkisborgararétt. Í ljósi framangreinds leggur kærunefnd til grundvallar að B sé perúskur og venesúelskur ríkisborgari.
5.4 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 18. janúar 2025);
- UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);.
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezeula (Britannica, síðast uppfært 21. janúar 2025);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 20. janúar 2025);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
- Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024)
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025) og
- Vefsíða stjórnvalda í Perú (https://www.gob.pe/).
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Emundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða álitnum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðarsinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahóps myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.
Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.
Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.
Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 höfðu 971 venesúelskir ríkisborgarar yfirgefið Ísland sjálfviljugir á árinu 2024. Þá hafi a.m.k. 825 þeirra farið aftur til Venesúela. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.
Af upplýsingum af vefsvæði perúskra yfirvalda verður ráðið að fjölskyldumeðlimir ríkisborgara Perú eða erlendra ríkisborgara sem búsettur sé í Perú eigi rétt á dvalarleyfi á grundvelli þeirra tengsla að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. stjórnarskrár Venesúela telst hvert barn sem fætt er á erlendri grund og á föður eða móður sem hafa venesúelskan ríkisborgararétt frá fæðingu, vera venesúelskur ríkisborgari við fæðingu. Samkvæmt 2. mgr. 33. gr. stjórnarskrár Venesúela, telst hver erlendur ríkisborgari sem er giftur venesúelskum ríkisborgara, og hefur lýst því yfir að vilja öðlast venesúelskan ríkisborgararétt, sem hann hefur rétt til eftir að minnsta kosti fimm ár frá því að gengið er í hjúskap, venesúelskur ríkisborgari við veitingu ríkisborgararéttar.
5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki vegna ofsókna af hálfu yfirvalda og glæpahópa á grundvelli stjórnmálaskoðana sem fyrrum ríkisstarfsmaður og vegna heimilisofbeldis sem hún hafi orði fyrir af hálfu fyrrum barnsföðurs síns.
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið kennari í heimaríki og að hafa starfað hjá í Venesúela. Systir kæranda hafi verið […]Venesúela og hafi verið yfirmaður kæranda. Kærandi greindi frá því að í starfi sínu hjá ráðuneytinu hafi hún verið neydd til að klæðast litum sem sýndu fram á stuðning við ríkisstjórnina, þvinguð til að kjósa stjórnvöld og mæta á stuðningsfundi fyrir stjórnvöld. Kæranda hafi farið að líka illa við vinnuumhverfið og sagt upp störfum árið 2016. Kærandi greindi frá því að nokkrum vikum síðar hafi glæpahópurinn Círculos bolivarianos brotist inn hjá henni og rænt hana og beitt ofbeldi. Eftir að hafa búið fjarri heimafylki í smá tíma, hafi kærandi flutt aftur í sitt heimafylki þar sem einstaklingar á mótorhjólum hafi keyrt nærri henni og hlutum hafi verið hent í hana. Kærandi greindi frá því að hafa flutt til Perú tveimur árum síðar, árið 2018. Eftir það hafi hún komið í heimsókn til Venesúela, þar sem A hafi búið, tvisvar sinnum í fjóra til fimm mánuði í senn og hafi orðið fyrir áreiti úti á götu. Árið 2021 hafi kærandi verið með eiginmanni sínum í heimsókn í Venesúela og þá hafi einstaklingar áreitt og rænt þau. Þá greindi kærandi frá því að hafa verið í ofbeldissambandi með fyrrum barnsföður sínum.
Með tölvubréfi, dags. 22. janúar 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum í máli kæranda einkum hvað varðar starf hennar og systur hennar fyrir stjórnvöld, misræmi annars vegar á milli frásagnar hennar og frásagnar eiginmanns hennar og hins vegar á milli frásagnar hennar og framlagðra gagna um rán í ágúst 2021. Í svörum kæranda, sem bárust með tölvubréfi dags. 24. janúar 2025, kemur m.a. fram að kærandi hafi þekkt einstaklinga sem hafi brotist inn til hennar árið 2016, þeir hafi tilheyrt glæpahópnum Círculos bolivarianos. Kærandi gaf upp nafn systur sinnar sem sé […]. Kærandi kvaðst ekki geta lagt fram neina staðfestingu á því að hún hafi sagt upp störfum í. Kærandi greindi frá því að hún hafi verið sett á lista yfirvalda sem hafi geymt upplýsingar um hvaða fólk væri í starfi hjá yfirvöldum, hafi ólíkar stjórnmálaskoðanir og hvaða einstaklingar kysu ríkisstjórnina. Kærandi kvaðst ekki geta lagt fram nein gögn um tilvist þessa lista. Kærandi greindi frá því að ránið hafi átt sér stað í húsi móður hennar. Kærandi, eiginmaður hennar og A hafi verið að koma til baka eftir að hafa verið að sinna erindum og hafi þá séð árásarmennina við inngang hússins. Þeir hafi ráðist að þeim og neytt þau inn í húsið. Þá hafi þeir leitað um allt af fjármunum og verðmætum á meðan þeir hafi hótað þeim. A hafi verið í stofunni á meðan á ráninu hafi staðið.
Kærandi lagði einnig fram þrjú skjáskot frásögn sinni til stuðnings. Af fyrsta skjáskoti verður ráðið að nafngreindur einstaklingur sem kærandi kveður vera systur sína hafi verið […] (e. […]) og […] (e. […]). Af öðru skjáskoti verður ráðið að um sé að ræða staðfestingu á greiðslum kæranda inn í almannatryggingakerfi í Venesúela, að hún sé atvinnulaus í augnablikinu, og tryggð undir nafngreindu fyrirtæki. Þriðja skjáskot ber með sér að vera viðurkenning frá deildarstjóra námskrár fyrir störf í þágu þróunar rafræns námsefnis árið 2013. Framangreint ber ekki með sér að kærandi hafi starfað í til ársins 2016 þegar hún kveðst hafa sagt upp störfum.
Kærunefnd telur ýmislegt í heildarfrásögn kæranda hjá íslenskum yfirvöldum draga úr trúverðugleika hennar, einkum hvað varðar áreiti glæpahópa í tengslum við uppsögn hennar úr starfi, tengsl yfirvalda við meintar ofsóknir á hendur kæranda og innbrot í Venesúela í ágúst 2021. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 29. október 2024, greindi kærandi frá því að árið 2021, þegar hún og eiginmaður hennar hafi verið í stuttri heimsókn í Venesúela, hafi þau orðið fyrir áreiti og þau rænd. Kærandi kvaðst ekki geta sagt með fullvissu að um meðlimi glæpahópsins Círculos bolivarianos hafi verið að ræða, en að þrír til fjórir menn hafi ráðist á þau og þeir hafi líklega vitað að kærandi hafi verið að koma erlendis frá og hafi átt pening. Kærandi kvaðst heldur ekki vera viss um að þetta tengdist fyrra innbroti á heimili hennar. Kærandi hafi tilkynnt atvikið til lögreglu og væri með skýrslu þess efnis. Í viðtali eiginmanns kæranda, sem sótti um alþjóðlega vernd á sama tíma og kærandi, greindi hann frá því að í ágúst 2021 á meðan hann hafi verið í heimsókn í Venesúela með eiginkonu sinni, hafi verið brotist inn á heimili tengdamóður hans, móður kæranda, og húsið rænt. Enginn hafi verið heima þar sem þau hafi verið úti að sinna erindum. Við meðferð málsins hjá stjórnvöldum lagði kærandi fram afrit af tilkynningu til ráðuneytis í Venesúela varðandi innbrot í ágúst 2021. Tilkynningin ber með sér að kærandi sé tilkynnandi. Fram kemur að átta þungvopnaðir einstaklingar hafi mætt kæranda, eiginmanni hennar og A í anddyri byggingar sem fjölskyldan hafi dvalið í, beint að þeim byssu og neytt þau inn í íbúðina, þau hafi verið bundin á höndum og fótum og rænd. Tilkynning ber einnig með sér gerendurnir hafi kynnt sig sem meðlimir glæpahópanna Collectívos og Círculos bolivarianos og að atvikið hafi tengst kæranda þar sem meðlimir glæpahópanna eigi að hafa þekkt hana um langa tíð og kunnugir því að hún sé á móti stjórnvöldum. Framangreind tilkynning og framburður eiginmanns kæranda er í engu samræmi við framburð kæranda í viðtali hjá Útlendingastofnun. Svör kæranda hvað þetta varðar til kærunefndar eru einnig ekki í samræmi við framangreinda frásögn kæranda, frásögn eiginmanns hennar og tilkynningu til ráðuneytis. Þá dregur það úr trúverðugleika frásagnar kæranda að kærandi hafi leitað til ráðuneytis í heimaríki vegna framangreinds innbrots þegar kærandi hefur greint frá því að glæpahópar hafi ofsótt hana fyrir hönd stjórnvalda vegna þess að hún hafi sagt upp starfi sínu í og sé á móti yfirvöldum í heimaríki. Samkvæmt upplýsingum um heimaríki kæranda var það fyrrum forseti Venesúela, Chaves, sem hafi stofnað nýja kynslóð stjórnmálatengdra glæpahópa sem þekktust undir hugtakinu Círculos bolivarianos og hafi slíkir hópar m.a. tekið þátt í að verja forsetann í valdránstilraun árið 2002. Eftir valdránstilraunina, eða um 2006, hafi hugtakinu Círculos bolivarianos verið skipt út fyrir hugakið Collectívos í opinberri umræðu og hjá stjórnvöldum. Dregur það enn úr trúverðugleika frásagnar kæranda að hún hefur greint frá því að nafn glæpahóps sem hafi rænt hana árið 2016 og árið 2021, fjölmörgum árum eftir að notkun hugtaksins Círculos bolivarianos hafi verið hætt, og að hún kvaðst ekki hafa getað flutt og búið örugg í heimafylki bróður síns vegna þess að Círculos bolivarianos hafi verið að hefja starfsemi og myndi komast að því hvar hún væri stödd.
Að teknu tilliti til framangreindra landaheimilda, frásagnar kæranda og framlagðra gagna er þó ekki ástæða til að draga í efa þá frásögn kæranda um að hún geti hafa orðið fyrir einhvers konar áreiti eða hótunum af hálfu glæpahópa í heimaríki. Að mati kærunefndar hefur kærandi hins vegar ekki leitt að því líkum að framangreind atvik hafi tengst uppsögn kæranda úr starfi hjá ríkinu og andstöðu hennar við stjórnvöld heldur ber frásögn kæranda frekar með sér að um ótengd atvik sé að ræða og tilviljun hafi ráðið því að kærandi hafi verið fórnarlamb þeirra. Þá er til þess að líta að framangreind innbrot og rán hafi átt sér stað fyrir tæplega fjórum og níu árum og að kærandi hafi búið á heimasvæði sínu í tæp tvö ár eftir fyrra ránið áður en hún hafi flutt til Perú án frekari afskipta af hálfu meðlima glæpahópa og hafi dvalið í Venesúela í nokkra mánuði í senn, á heimili móður sinnar og fyrrum heimili kæranda, á þeim árum sem hún var búsett í Perú. Þá er til þess að líta að innbrot í Venesúela í ágúst 2021 hafi átt sér stað á heimili móður kæranda á meðan kærandi og fjölskylda hennar dvöldu þar í stuttan tíma þremur árum eftir að kærandi hafi flutt til Perú. Ekki sé hægt að slá því föstu að innbrotið hafi tengst kæranda og fjölskyldu hennar á nokkurn hátt. Vísast þar einkum til frásagnar kæranda um að hún sé ekki viss um hver hafi brotist inn og rænt þau í ágúst 2021 og hvort það hafi tengst fyrra innbroti á heimili hennar einkum með vísan til framangreinds misræmis hvað þetta atvik varðar. Þá verður ekki fram hjá því litið að kærandi hefur ekki getað lagt fram nein gögn því til staðfestingar á því að hún hafi verið starfsmaður, sagt þar upp störfum eða að hún sé á lista yfirvalda. Hefur kærandi heldur ekki lagt fram neitt sem staðfestir frásögn hennar af innbroti á heimili hennar árið 2016 þrátt fyrir að hún, að eigin sögn, hafi tilkynnt atvikið til lögreglu. Hefur kærandi því ekki lagt neitt fram til stuðnings helstu ástæðu sinnar vegna umsóknar um alþjóðlega vernd. Gögn málsins bera ekki með sér að framangreind atvik hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga eða að kærandi sé eða hafi verið sérstakt skotmat glæpahópa af neinum þeim ástæðum sem talin eru upp í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Kærunefnd telur þó ekki ástæðu til að útiloka að kærandi hafi starfað sem kennari í heimaríki á einhverjum tímapunkti og sem slík verið ríkisstarfsmaður og hætt þeim störfum m.a. þegar hún flutti til Perú. Að mati kærunefndar er ekki ástæða til að ætla að kærandi eigi á hættu að sæta meðferð eða áreiti af hálfu stjórnvalda eða annarra aðila vegna stjórnmálaskoðana hennar en af heimildum um Venesúela, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Frásögn kæranda ber ekki með sér að hún hafi verið skráð í stjórnmálaflokka í Venesúela eða tekið þátt í mótmælum. Enn fremur er það mat kærunefndar að þær landaupplýsingar sem kærunefnd hefur kynnt sér gefi ekki til kynna að opinberir starfsmenn í Venesúela eigi á hættu áreiti eða annars konar meðferð af hálfu stjórnvalda sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. sömu laga eingöngu á grundvelli stöðu þeirra sem opinberir starfsmenn eða vegna fyrri starfa þeirra fyrir stjórnvöld.
Þá hafa kærandi, A og B fengið gefin út vegabréf í júlí 2023 í Venesúela og samkvæmt útstimpli í vegabréfi kæranda frá Simon Bolivar flugvellinum 23. september 2023 ferðaðist kærandi frá Venesúela án vandkvæða. Gefur framangreint ekki til kynna að kærandi sé eftirlýst eða undir sérstöku eftirliti stjórnvalda.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið í ofbeldissambandi með fyrrverandi barnsföður sínum sem nú sé búsettur í Bandaríkjunum. Þá greindi kærandi frá því að áður en hún hafi farið frá Venesúela hafi hún verið í sambandi við fyrrverandi barnsföður sinn og fengið hann til að samþykkja að kærandi hefði fullt forræði yfir A. Af frásögn kæranda og A má ráða að þau hafi ekki verið í miklum samskiptum við föður A í fjölda ára. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga frásögn kæranda í efa um að hún hafi mátt þola ofbeldi af hálfu fyrrverandi barnsföður sínum á einhverjum tímapunkti. Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið bera með sér að sett hafi verið á fót stofnun í Venesúela sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Sett hafi verið saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Í desember 2021 hafi verði gerð breyting á lögum um rétt kvenna til lífs án ofbeldis þar sem refsingar hafi m.a. verið þyngdar og sérhæfðir dómstólar sem fást við mál er varða kynbundið ofbeldi hafi verið settir á fót og starfi víðsvegar í Venesúela. Er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn kynbundnu ofbeldi eða áreiti, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá verður ekki talið að það sé bundið erfiðleikum fyrir kæranda að leita aðstoðar lögreglu eða framangreindra yfirvalda í landinu telji hún ástæðu til þess.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni barnanna samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kæranda og eiginmanns hennar, viðtali við A og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi móður sinni aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd móður sinnar og föður B og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnum kæranda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja móður sinni til heimaríkis síns.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum hennar og barna hennar í heimaríki, telst kærandi ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að eiga á hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hún og börn hennar send aftur til heimaríkis. Endurtekin rán, innbrot á heimili og ofbeldi, þvinganir kæranda í opinberu starfi séu svívirðileg brot á friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu og tjáningarfrelsi. Því hafi verið fylgt eftir með hótunum og líkamlegu ofbeldi. Í ljósi athafna og athafnleysis stjórnvalda verði að líta svo á að um ómannúðlega og vanvirðandi meðferð sé að ræða.
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar ný afstaðinna forsetakosninga séu harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda og barna hennar hefur ekki verið lagt til grundvallar sú frásögn kæranda að hún eigi á hættu að vera ofsótt af yfirvöldum eða glæpahópum á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna. Þá er ljóst að þau atvik sem kærandi hafi lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsett í […] í La Guaira fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er La Guaira fylki í norðurhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærandi og börn hennar hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi og börn hennar eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.
Í greinargerð kæranda er vísað til þess að ástandið í Venesúela hafi orðið miklu verra eftir forsetakosningarnar. Eftir kosningarnar hafi miklar óeirðir brotist út og í landinu ríki mikil upplausn. Kærandi telji að alþjóðlegar skýrslur sýni gjörbreytta stöðu í landinu. Þær upplýsingar um heimaríki kæranda í kjölfar forsetakosninganna sem kærunefnd hefur skoðað gefa til kynna að 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Edmundo Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninganna hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst eða beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi og börn hennar eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og barna hennar og aðstæður í heimaríki þeirra, benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 8. apríl 2024, greindi kærandi frá því að hún og börn hennar séu við góða heilsu. Kærandi sé áhyggjufull og hugsi mikið um að þurfa að snúa aftur til heimaríkis eða Perú. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 29. október 2024, greindi kærandi frá því að hún og börnin séu við góða líkamlega heilsu en að hún hafi verið mjög slæm á taugum vegna áreitis sem þau hafi þurft að þola í heimaríki. Kærandi hafi leitað til heilbrigðiskerfis í heimaríki og hafi verið með tryggingu í gegnum vinnu sína og hafi ekki þurft að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu. Kærandi kvaðst ekki taka nein lyf að staðaldri. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 5. júní 2024, greindi A frá því að vera heilsuhraustur en að hann hafi fengið brjóstverki og legið inn á sjúkrahúsi vegna þess um tíma. Verkirnir hafi tengst hræðslu, kvíða og áhyggjum, hann sé ekki á neinum lyfjum, en verkirnir hafi horfið eftir að hann hafi fengið hvíld.
Af framburði kæranda og A verður ekki ráðið að kærandi eða börn hennar glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi og börn hennar þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærandi og börn hennar hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hún eða börn hennar hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 8. apríl 2024, greindi kærandi frá því eiga móður, bróður og hálfsystkini í Venesúela. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 29. október 2024, greindi kærandi frá því að eiga móður og þrjú systkini í Venesúela. Kærandi hafi búið í einbýlishúsi í eigu móður hennar í Venesúela. Kærandi greindi frá því að vera kennari og hafi starfað hjá í Venesúela. Kærandi hafi haft efni á mat og öðrum nauðsynjum. A hafi gengið í skóla í Venesúela en B hafi fæðst í Perú. Kærandi kvaðst ekki vita hvort hún gæti fengið vinnu hjá einkaaðilum þar sem ekki sé verið að leita af starfsfólki núna. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 5. júní 2024, greindi A frá því að hafa gengið í skóla og hitt vini sína eftir skóla. Hann eigi hálfsystkini í föðurfjölskyldu en faðir hans sé búsettur í Bandaríkjunum og hann hafi lítið samband við hann.
Kærandi hefur greint frá því að eiga bakland í heimaríki, móður og systkini, og af gögnum málsins verður talið að hún hafi getað framfleytt sér og A í heimaríki. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi sé heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kæranda og barna hennar við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Eiginmaður kæranda sótti einnig um alþjóðlega vernd á sama tíma og kærandi og börn kæranda. Eiginmaður er með perúskan ríkisborgararétt. Kærandi kvaðst hafa búið í Perú í næstum fimm ár og verið með tímabundið dvalarleyfi. Kærandi kvað B vera fædda í Perú og sé með tvöfalt ríkisfang, í Perú og Venesúela. Heimildir bera með sér að fjölskyldumeðlimir perúsks og venesúelsks ríkisborgara geti sótt um dvalarleyfi í öðru hvoru landinu á þeim grundvelli að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Með vísan til framangreinds og niðurstöðu í máli eiginmanns kæranda í úrskurði nr. 84/2025 er það mat nefndarinnar að ekkert bendi til annars en að kærandi, eiginmaður hennar og börn kæranda geti sameinast í heimaríki föður B, Perú eða í heimaríki kæranda, Venesúela.
Við þetta mat hefur kærunefnd litið til meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar, hagsmuna barna kæranda og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barnanna í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og barna hennar í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hún eða börn hennar hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 5. október 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kærenda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að þau eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda og barna hennar. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda og barna hennar þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barna þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa henni og börnum hennar frá Íslandi og ákvarða kæranda endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki eiga nákomna ættingja á Íslandi eða öðrum ríkjum Schengen svæðisins, en mágkona hennar sé búsett á Íslandi. Kærandi kvað brottvísun og endurkomubann ekki beinlínis ósanngjarnar ráðstafanir, stjórnvöld taki sínar ákvarðanir og stjórni flæði innflytjenda til landsins. Fjölskyldan sé reglusöm og með hrein sakarvottorð. Það fylgi þeim engin vandamál. Kærandi hafi verið á námskeiðum og hafi verið í starfi á tímabili hér á landi. Eiginmaður hennar vinni á flugvellinum. Kæranda finnist landið öruggt og það yrði gott ef börnin fengju stöðugleika í líf sitt.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kæranda og barna hennar og endurkomubann kæranda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi geti komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hún Ísland innan þess frest sem henni er gefinn. Getur kærandi þá nýtt sér heimild sína til að koma aftur til aðildarríkja Schengen-samstarfsins, m.a. til að rækta fjölskyldutengsl sín, á grundvelli vegabréfsáritunarfrelsis sem ríkisborgarar Venesúela njóta.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda og barna hennar til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi hún landið innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, her re-entry ban will be revoked.
Valgerður María Sigurðardóttir
Jóna Aðalheiður Pálmadóttir