30 janúar 2025
/
Úrskurður nr. 84/2025
Hinn 30. janúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 84/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24090142
Kæra […] á ákvörðun Útlendingastofnunar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 23. september 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Perú (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. september 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt eiginkonu sinni og tveimur börnum. Voru mál fjölskyldunnar unnin samhliða en um umsóknir þeirra er fjallað í úrskurði kærunefndar nr. 83/2025.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 5. október 2023 ásamt venesúelskri eiginkonu sinni og tveimur börnum. Kvaðst kærandi vera að sækja um vernd vegna ástandsins í Venesúela. Kærandi kvaðst hafa verið að fara til og frá Venesúela í sex ár. Kærandi hafi ekki verið í herþjónustu, hafi ekki unnið hjá lögreglu eða hjá einkaöryggisfyrirtæki. Kærandi kvaðst sækja um vernd vegna hótana í Perú og Venesúela. Hann kvaðst hafa þurft að borga mútur í hvert sinn sem hann hafi farið á milli landanna. Kærandi kvaðst eiga systur hér á landi og að hún hafi aðstoðað fjölskylduna við kaup á farmiðum til Íslands.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 27. maí 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi greindi frá því að hafa verið fæddur og uppalinn í borginni Lima í Perú þar sem hann hafi búið þegar hann hafi flúið heimaríki sitt í júní 2023. Kærandi kvaðst eiga eldri dóttur, foreldra, bróður, ömmu og afa í heimaríki sem hann sé í sambandi við. Kærandi kvaðst hvorki vera aðili að stjórnmálaflokki né virkur í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki. Kærandi kvaðst hvorki tilheyra minnihlutahópi né vera af sérstökum þjóðernisuppruna í heimaríki. Kærandi greindi frá því að hafa verið af verkmannastétt og hafa búið á heimili foreldra sinna í hverfi þar sem glæpatíðni hafi verið lág. Kærandi sé við góða andlega og líkamlega heilsu. Kærandi greindi frá því að eftir heimsfaraldurinn COVID-19 hafi hann hafið störf hjá fyrirtæki æskuvinar síns sem sérhæfi sig í kaffi. Fyrirtækið hafi gengið vel og hann hafi þénað vel. Árið 2020 hafi hann hitt eiginkonu sína sem sé frá Venesúela. Eiginkona hans hafi orðið barnshafandi og eftir fæðingu dóttur þeirra í Perú hafi þau flutt til foreldra kæranda í heimaríki hans. Fyrirtækið sem kærandi hafi starfað fyrir hafi blómstrað og aukið markaðshlutdeild sína. Kærandi hafi tekið á sig meiri ábyrgð í fyrirtækinu og hafi m.a. séð um að taka út fjármuni í banka til að sinna erindum og greiðslum fyrir fyrirtækið. Kæranda hafi byrjað að berast hótanir eftir það. Í fyrsta skipti hafi hann verið á leið úr bankanum og hafi næstum lent í bílslysi. Tveir einstaklingar á hinum bílnum hafi sýnt kæranda byssu og hótað honum. Í seinna skipti hafi hann einnig verið að koma úr bankanum með poka af peningum til að greiða fyrir vörur. Hann hafi verið í bílastæðahúsi og ætlað að bakka út úr stæðinu þegar tveir einstaklingar á mótorhjólum hafi komið að og sagt við kæranda að hann hafi næstum því klesst á þá. Þeir hafi hótað honum og sýnt honum byssu. Síðar í viðtalinu greindi kærandi frá því að hótanir framangreindra einstaklinga hafi falið í sér móðgun gegn honum. Kærandi kvaðst telja að þeir hefðu drepið hann ef hann hefði sýnt merki um mótþróa. Síðar í viðtalinu greindi kærandi frá því að hann hafi ekki vitað hvaða einstaklingar þetta hafi verið þar sem þeir hafi fyrst verið með grímur og síðar hjálma, hann hefði bara greint kólumbískan og venesúelskan hreim hjá þeim. Kærandi kvaðst halda að um sama hóp hafi verið að ræða en hann væri ekki viss, en hann teldi að um glæpahóp hafi verið að ræða. Um 15 til 20 dögum eftir síðara atvikið hafi kæranda byrjað að berast skilaboð á tilgreindu samskiptaforriti um að hann yrði að greiða lán, sem hann kvaðst aldrei hafa fengið. Í skilaboðum hafi aðilarnir kynnt sig sem kólumbískan/venesúelskan glæpahóp sem aðstoði við að tryggja greiðslur á okurlánum. Árið 2021, þegar kærandi hafi heimsótt Venesúela ásamt eiginkonu sinni, hafi einhver brotist inn í húsið hans, þeim hafi verið hótað og þau rænd. Síðar í viðtali greindi kærandi frá því að það hafi verið hús tengdamóður hans í Venesúela sem hafi verið brotist inn í og að það hafi enginn verið heima, þau hafi verið úti að sinna erindum. Kærandi kvaðst telja að innbrotið í Venesúela hafi verið tengt framangreindum atvikum í Perú og að öll þessi atvik tengist þjóðerni eiginkonu hans og því að hann hafi farið að þéna meira í starfi. Í kjölfar þessa hafi kærandi óttast um sig og fjölskyldu sína og þau ákveðið að flýja frá Perú. Kærandi kvaðst hafa reynt að leita aðstoðar yfirvalda en lögreglan í Perú geri ekkert þangað til eitthvað slæmt hendi fólk. Kærandi hafi hætt að vinna vegna ótta við að eitthvað slæmt myndi henda hann eða fjölskyldu hans. Kærandi kvaðst ekki geta búið annars staðar í heimaríki þar sem allir geti ferðast til allra ríkja í Suður-Ameríku nema það þurfi vegabréfsáritun til að fara til Venesúela. Þá greindi kærandi frá því að ástandið í Perú sé aðeins stöðugra, matur og menntun sé góð og ódýr. Hins vegar sé mikið um óöryggi og mannrán.
Hinn 21. ágúst 2024 óskaði Útlendingastofnun eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Í svörum kæranda, sem bárust Útlendingastofnun 23. ágúst 2024, kemur fram að kærandi telji að fyrra atvikið sem hann greindi frá í viðtali hjá Útlendingastofnun varðandi hótanir hafi átt sér stað í júní 2021 og síðara atvikið hafi átt sér stað í júlí sama ár. Kærandi kvaðst ekki hafa aðgang að skilaboðum í tilgreindu samskiptaforriti sem honum hafi borist. Kærandi hafi ekki leitað til lögreglu í Perú vegna framangreindra atvika. Þá hafi verið brotist inn í húsið í Venesúela 25. ágúst 2021 í samræmi við framlagða lögregluskýrslu. Kærandi kvað heilsu barna sinna almennt vera góða en eldra barn hans sé með [...] og hafi farið til læknis vegna þess.
Kærandi lagði fram hjúskaparvottorð og afrit af tilkynningu til ráðuneytis, dags. 25. ágúst 2021, við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 23. september 2024. Greinargerð barst kærunefnd 7. október 2024. Hinn 22. janúar 2025 óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Hinn 24. janúar 2025 bárust kærunefnd svör kæranda.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er vísað til fyrirliggjandi gagna hvað aðstæðum kæranda varðar.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Perú mótmælt. Heimildir beri með sér að öryggisástand í Perú sé mjög alvarlegt og ótryggt, en í ríkinu viðgangist mannréttindabrot á við pyndingar, spilling stjórnvalda, þar á meðal í dómskerfinu, ofbeldi gegn konum og stúlkum og nauðungarvinna. Mikil stjórnmálaóreiða hafi einkennt Perú undanfarin ár. Síðustu fjórir forsetar hafi allir verið annað hvort ákærðir eða tilneyddir til að segja af sér og fjórir þar á undan lokið kjörtímabili sínum aðeins til að sæta ákæru eða rannsókn eftir að hafa yfirgefið embættið. Um það bil 1,5 milljónir hælisleitenda frá Venesúela hafi ferðast til Perú á undanförnum árum. Flóttamenn sem haldi áfram að koma til Perú um norðurlandamærin séu í sífellt viðkvæmari stöðu. Langflestir búi í Lima, borginni þar sem flest fólk frá Venesúela sé í heiminum fyrir utan Venesúela. Mannréttindasamtök hafi tekið eftir aukinni glæpavæðingu, alhæfingu og staðalmyndum flóttamanna bæði í fjölmiðlum og pólitískri og opinberri umræðu í Perú frá ársbyrjun 2022. Kærandi bendir á að glæpatíðni og tíðni fjárkúgana í Lima sé sérstaklega há. Kærandi vísar til landaupplýsinga um að fjárkúganir í fylkinu Lima, af hálfu venesúelskra og kólumbískra hópa, hafi aukist. Grunur leiki á um að þessir hópar tengist glæpahópnum Tren de Aragua.
Kærandi vísar til þess að í för með honum séu tvö börn og að leggja beri mat á hagsmuni þeirra á þeirra eigin forsendum. Kærandi bendir m.a. á að börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd og sé stjórnvöldum skylt að hafa það sem sé börnunum fyrir bestu í forgangi í þeim ákvörðunum sem teknar séu í málum þeirra. Kærandi vísar til 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Í ljósi reynslu foreldra barnanna og upplýsinga um stöðu barna í Perú sé augljóst að hvaða leyti framtíð þeirra sé stefnt í hættu. Með hliðsjón af því og málsatvikum öllum sé öryggi, velferð og félagslegur þroski þeirra auðsjáanlega ekki tryggð í Perú. Kærandi bendir á að m.a. fátækt og menningarlegir þættir hafi áhrif á stöðu barna sem setji þau í enn viðkvæmari stöðu og það eigi við í þessu tilviki og því séu börnin í margfalt verri stöðu en önnur börn. Kærandi vísar til landaupplýsinga, m.a. skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2021, máli sínu til stuðnings. Að senda kæranda og börn hans til Perú, þar sem verulegt óöryggi ríki og ofbeldi sé gríðarlegt, sé þeim augljóslega ekki fyrir bestu. Endursending þeirra til Perú þjóni ekki hagsmunum barnanna. Stjórnvöldum beri því að framkvæma ítarlegt og einstaklingsbundið mat á væntanlegum aðstæðum barna kæranda í Perú.
Kærandi vísar til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og mótmælir því mati. Kærandi vísar til þess að í lögum um útlendinga sé ekki að finna ákvæði um framkvæmd trúverðugleikamats en að það þurfi að samrýmast þeim verklagsreglum sem fram komi í leiðbeiningum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Kærandi áréttar að frásögn hans komi heim og saman við fyrirliggjandi landaupplýsingar. Kærandi hafi greint frá því að hafa þrívegis orðið fyrir hótunum af hálfu ótilgreinds venesúelsks og kólumbísks glæpahóps og fengið hótanir frá hópnum í gegnum tilgreint samskiptaforrit.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi búi við ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli þess að hann tilheyri þjóðfélagshópunum viðskiptamenn, fjársterkir aðilar úr millistéttinni, perúskir einstaklingar giftir Venesúelabúum og fórnarlömb gengjatengds ofbeldis af hálfu ótilgreinds glæpagengis, sbr. 1. mgr. 2. mgr., d- liður 3. mgr. og c-liður 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Ljóst sé að yfirvöld í heimaríki hans hafi ekki getu til að vernda almenna borgara fyrir gengjatengdu ofbeldi í Lima. Kærandi uppfylli því skilyrði 1. mgr. 37. gr. og 40. gr. laga um útlendinga.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til frumvarps með breytingarlögum nr. 115/2010 sem hafi lögfest ákvæði um viðbótarvernd og að taka beri mið af skilgreiningu og afmörkun viðbótarverndar í 2. gr. e og 15. gr. tilskipunar Evrópubandalagsins nr. 2004/83/EB frá 29. apríl 2004, ásamt síðari breytingum. Með tilliti til stöðu kæranda og ástandsins í Lima í Perú verður að telja að ekki sé með sanngjörnum hætti hægt að ætlast til þess að hann leiti frekari verndar stjórnvalda í Perú í ljósi öryggisástandsins þar. Með hliðsjón af framangreindu og sérstaklega slæmu öryggisástandi í heimafylki kæranda uppfylli hann skilyrði alþjóðlegrar verndar skv. 40. gr. laga um útlendinga á grundvelli 2. mgr. 37.gr. sömu laga.
Flutningur innanlands sé hvorki raunhæfur eða sanngjarn kostur fyrir kæranda.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Fyrri liggi að langvarandi neyðarástand hafi ríkt í Lima fylki í Perú. Kærandi hafi upplifað á eigin skinni að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki nægilega vernd gegn ofbeldi og glæpum. Ástand mannréttindamála í heimafylki kæranda sé afar bágborið. Um erfiðar efnahagslegar- og félagslegar aðstæður sé að ræða auk almenns ótryggs ástands í landinu og ríkjandi mannréttindabrota. Auk þess telur kærandi raunhæfa ástæðu til að ætla að hann eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð af hálfu ótilgreinds glæpahóps snúi hann aftur til Perú. Kærandi hafi upplifað gengjatengt ofbeldi, líflátshótanir og aðgerðarleysi lögregluyfirvalda.
Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við töku ákvörðunar Útlendingarstofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn reglum stjórnsýslulaga hvað varðar trúverðugleikamat.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað perúsku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé perúskur ríkisborgari.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Perú, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Peru (U.S. Department of State, 23. apríl 2024);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Peru (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- A/HRC/46/35/Add.2: Visit to Peru - Report of the Special Rapporteur on the situation of human rights defenders, Michel Forst (OHCHR, 22. desember 2020);
- The State of the World´s Human Rights; Peru 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
- Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
- Freedom in the World 2024 – Peru (Freedom House, 2024);
- Freedom in the World 2023 – Peru (Freedom House, mars 2023);
- Healthcare Resource Guide – Peru (International Trade Administration);
- Heimasíða perúskra stjórnvalda, upplýsingar um SIS kerfið (https://www.gob.pe/131-seguro-integral-de-salud-sis-gratuito);
- OECD Reviews of Pension Systems: Peru (OECD, 9. september 2019);
- Peru Country Report 2022 (BTI, 2022);
- Peru Country Security Report (OSAC, 30. september 2022);
- Peru Situation Report (GTRM, R4V, 17. janúar 2022);
- Peru – Country Focus (European Union Agency for Asylum, september 2023);
- Primary Health Care Systems (PRIMASYS), Case study from Peru (World Health Organization, 6. janúar 2017);
- Report of the Mission to Peru 17 – 22 November 2020 (OHCHR, 1. nóvember 2020);
- The World Factbook – Peru (https://www.cia.gov/the-world-factbook/countries/peru, síðast uppfært 15. janúar 2025);
- Vefsíða World Education – Education in Peru (https://wenr.wes.org/2022/03/education-in-peru-2);
- Vefsíða stjórnvalda í Perú (https://www.gob.pe/) og
- World Report 2025 – Peru (Human Rights Watch, 16. janúar 2025).
Perú er forsetalýðveldi í Suður-Ameríku og í landinu búa um 33 milljónir manna. Árið 1956 gerðist Perú aðili að Sameinuðu þjóðunum. Árið 1978 gerðist ríkið aðili að bæði alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi. Perú gerðist aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1988 og samningi Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1982. Þá gerðist Perú aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna 21. desember 1964 og mannréttindasáttmála Ameríku 28. júlí 1978. Þá fullgilti Perú barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 1990.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í Perú séu m.a. takmarkanir á fjölmiðlafrelsi, ofbeldi, hótanir, spilling innan stjórnkerfis, refsileysi, skortur á rannsókn á ofbeldi gagnvart konum og stúlkum og mansal. Yfirvöld hafi þó á undanförnum árum ákært og sakfellt opinbera starfsmenn vegna spillingar og misnotkunar valds, þ. á m. háttsetta embættismenn. Heimildir beri með sér að lögregluyfirvöld í Perú séu að jafnaði fagleg en þó viðgangist spilling innan lögreglunnar. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 að ríkislögreglan heyri undir innanríkisráðuneyti landsins og viðhaldi öryggi innanlands. Perúski herinn, sem heyri undir varnarmálaráðuneyti landsins, sé einkum ábyrgur fyrir ytra öryggi landsins en beri einnig ábyrgð á að tryggja öryggi innan tiltekinna svæða innanlands. Samkvæmt skýrslunni hafi perúsk yfirvöld viðhaldið skilvirkri stjórn yfir öryggissveitum landsins. Fram kemur að tilkynningar hafi borist um brot af hálfu meðlima öryggissveitanna.
Samkvæmt framangreindum heimildum, m.a. skýrslu EUAA frá september 2023, eru vopnuð rán, fjárkúgun, mannrán og netglæpir algengustu glæpir í Perú. Fjöldi glæpahópa séu starfandi í landinu, einkum í Lima. Þá hafi glæpahópar frá Venesúela, Kólumbíu og Ekvador hafið starfsemi í Perú, einkum í Lima og séu að taka yfir af perúskum glæpahópum í ljósi fjárhags- og liðsafla sem þau hafa yfir að búa. Fjárkúgun sé algengt vandamál í Perú og helstu aðferðir sem glæpahópar beiti til fjárkúgunar séu m.a. að glæpagengi krefjist „gjalds“ af starfsmönnum, fyrirtækjaeigendum, opinberum flutningafyrirtækjum og bílstjórum, í gegnum síma eða samskiptaforritið WhatsApp, lausnargjald fyrir stolnar bifreiðar og okurlán. Fórnarlömb fjárkúgana séu af fjölbreyttum bakgrunni og upphæðir fari eftir aðstæðum. Perú sé annar stærsti farmleiðandi kókaíns í heiminum á eftir Kólumbíu. Perúskir eiturlyfjasmyglarar hafi sambönd við smyglarasamtök frá Kólumbíu og Mexíkó og aðra glæpahópa í löndum á borð við Brasilíu og Ítalíu.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að lög í Perú leggi bann við mismunun í starfi vegna kynþáttar, húðlitar, kyns, trúar, stjórnmálaskoðana, þjóðernisuppruna, ríkisborgararéttar, félagslegs uppruna, fötlunar, aldurs eða félagslegrar stöðu. Þó hafi félagasamtök greint frá mismunun í atvinnulífinu hjá framangreindum hópum og að mörg tilvik mismununar hafi ekki verið tilkynnt. Þá sé kveðið á um jafnræði í stjórnarskrá Perú. Þrátt fyrir það hafi framkvæmd stjórnvalda við að framfylgja því verið misjöfn. Mismunun á grundvelli kynþáttar- eða þjóðernis sé refsiverð samkvæmt hegningarlögum í Perú. Þá séu refsingar lagðar við glæpum sem grundvallist á hatri gegn tilteknu þjóðerni. Mismunun á grundvelli tungumáls, trúarbragða, aldurs, kyns eða félagslegrar stöðu séu einnig refsiverð. Við framangreindum brotum sé refsiramminn fjögur ár auk sektargreiðslna en lögunum hafi þó ekki verið framfylgt í öllum tilvikum. Í Perú hafi dómsmála- og mannréttindaráðuneyti yfirumsjón með stefnu landsins í mannréttindamálum. Þá hafi innanríkisráðuneytið og ráðuneyti sem starfi á sviði málefna kvenna og einstaklinga í viðkvæmri stöðu, gegnt mikilvægu hlutverki á sviði mannréttindamála í Perú. Jafnframt kemur fram að þjónustumiðstöðvar séu starfsræktar af ráðuneytinu fyrir þolendur heimilis- og kynferðisofbeldis og annarra brota. Um helmingur miðstöðvanna séu staðsettar á lögreglustöðvum. Þá sé unnt að leita athvarfs hjá ákveðnum miðstöðvum auk lögfræðilegrar, sálfræðilegrar og félagslegrar aðstoðar. Þessar opinberu stofnanir hafi almennt verið taldar áhrifaríkar á þessu sviði. Þá hafi embætti umboðsmanns starfað án afskipta stjórnvalda eða annarra aðila og frjáls félagasamtök og almenningur talið störf umboðsmanns áhrifarík.
Á vefsíðu Flóttamannastofnunar kemur fram að öll börn í Perú eigi rétt á gjaldfrjálsri menntun óháð þjóðerni eða réttarstöðu og því eigi börn innflytjenda einnig rétt á menntun í landinu. Menntamálaráðuneyti Perú sé ábyrgt fyrir því að tryggja þessi réttindi á landsvísu og staðbundnar menntastofnanir (UGEL) beri ábyrgð á þjónustunni á sínu svæði.
Fátækt hafi farið minnkandi frá árinu 2004, þegar tæplega 60% íbúa Perú hafi búið við fátæktarmörk, til ársins 2019 þegar rúmlega 20% íbúa hafi búið við fátæktarmörk. Fátækt hafi aukist í heimsfaraldri Covid-19 og hafi rúmlega 30% íbúa búið við fátæktarmörk árið 2020. Lífeyriskerfið í Perú sé að mestu byggt á lífeyriskerfinu NPS (e. National Pension System) og SPP (e. Private Pension System) sem einstaklingar greiði í með hluta af tekjum sínum yfir ævina. Lífeyriskerfið Pensión 65 hafi verið sett á fót árið 2011 til þess að mæta þörfum eldri borgara sem glími við mikla fátækt og fái ekki greitt úr lífeyriskerfunum SNP eða PPS. Félagsmálaráðuneyti Perú (s. El Ministerio de Desarrollo e Inclusión Social) hefur yfirumsjón með verkefnum sem stuðla að félagslegum umbótum í landinu. Á vegum ráðuneytisins hafa margvísleg verkefni verið sett á laggirnar, s.s. styrktarsjóðir eins og framangreindur lífeyrissjóður, Pensión 65. Þá vinni ráðuneytið að því að útrýma fátækt og vannæringu barna, auk þess að tryggja að börn hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu og góðri menntun.
Í 11. gr. stjórnarskrár Perú er kveðið á um aðgang að endurgjaldslausri heilbrigðisþjónustu. Í skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar frá árinu 2017 kemur fram að heilbrigðiskerfið í Perú samanstandi af fjórum þáttum, opinberu kerfi (s. Seguro Integral de Salud, SIS), kerfi fyrir lögreglu og vopnaðar sveitir, sjúkratryggingakerfi og einkaaðilum sem samanstandi bæði af hagnaðardrifnum rekstri sem og sjálfstæðum félagasamtökum, s.s. trúfélögum. Heilbrigðiskerfið hafi tekið ýmsum breytingum frá árinu 2003. Breytingarnar hafi miðað að því að bæta grunnheilbrigðisþjónustu og mæta betur þörfum fjölskyldna og íbúa í dreifbýli. Best sé aðgengi að heilbrigðisþjónustu í stærri borgum landsins. SIS tryggi margvíslegum hópum aðgang að heilbrigðiskerfinu m.a. fólki sem sé ekki með sjúkratryggingu. Þá kemur fram á vefsíðu stjórnvalda í Perú að þeir útlendingar sem dvelji löglega í landinu og séu með sérstakt dvalarleyfiskort (s. carné de extranjería) hafi aðgang að atvinnumarkaðnum og opinbera heilbrigðiskerfinu, geti stofnað fyrirtæki og sótt um bankalán.
Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. stjórnarskrár Venesúela telst hvert barn sem fætt er á erlendri grundu og á föður eða móður sem hafa venesúelskan ríkisborgararétt frá fæðingu, vera venesúelskur ríkisborgari við fæðingu. Samkvæmt 2. mgr. 33. gr. stjórnarskrár Venesúela, telst hver erlendur ríkisborgari sem er giftur venesúelskum ríkisborgara, og hefur lýst því yfir að vilja öðlast venesúelskan ríkisborgararétt, sem hann hefur rétt til eftir að minnsta kosti fimm ár frá því að gengið er í hjúskap, venesúelskur ríkisborgari við veitingu ríkisborgararéttar. Af vefsvæði sendiráðs Venesúela í Perú verður ráðið að fjölskyldumeðlimir venesúelskra ríkisborgara geta sótt um vegabréfsáritun í sendiráði þar. Af upplýsingum af vefsvæði perúskra yfirvalda verður ráðið að fjölskyldumeðlimir ríkisborgara Perú eða erlendra ríkisborgara sem búsettur sé í Perú eigi rétt á dvalarleyfi á grundvelli þeirra tengsla að tilteknum skilyrðum uppfylltum.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir umsókn um alþjóðlega vernd á því að vera í hættu í heimaríki vegna hótana af hálfu ótilgreinds glæpahóps.
Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu perúskra yfirvalda sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 27. maí 2024, greindi kærandi frá því að hafa tvisvar sinnum, í júní og júlí 2021, nærri lent í árekstri við einstaklinga sem hafi síðan hótað honum og beint að honum byssu. Um 15 til 20 dögum eftir síðara atvikið hafi honum borist hótanir í skilaboðum á tilgreindu samskiptaforriti þess efnis að hann þyrfti að greiða lán sem hann hafi aldrei fengið. Þá greindi kærandi frá því að brotist hafi verið inn í hús tengdamóður hans í Venesúela þegar hann og eiginkona hans hafi verið þar í heimsókn. Kærandi kvaðst telja að hótanir tengdust þjóðerni eiginkonu hans og fjárhagsstöðu hans. Kærandi kvaðst ekki hafa aðgang að skilaboðum í umræddu samskiptaforriti en lagði fram tilkynningu til ráðuneytis í Venesúela dags. 25. ágúst 2021 hvað varðar innbrotið í Venesúela sem þó er í nokkru ósamræmi við frásögn kæranda. Af tilkynningunni megi ráða að eiginkona kæranda hafi tilkynnt að glæpahópur hafi hitt þau fjölskylduna í anddyri hússins, neytt þau inn í íbúðina, miðað á þau byssum og rænt viðstadda. Um hafi verið að ræða meðlimi glæpahópanna Collectívos og Círculos Bolivarianos de Maiquetía. Í viðtali eiginkonu kæranda, sem sótti um alþjóðlega vernd á sama tíma, greindi hún frá því að árið 2021 hafi kærandi verið með eiginkonu sinni í heimsókn í Venesúela og þá hafi einstaklingar áreitt og rænt þau. Frásögn kæranda hvað framangreint innbrot varðar er því hvorki í samræmi við frásögn eiginkonu hans né framlögð gögn.
Með tölvubréfi, dags. 22. janúar 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum í máli kæranda einkum hvað varðar misræmi annars vegar á milli frásagnar hans og frásagnar eiginkonu hans og hins vegar frásagnar hans og framlagðra gagna um framangreint innbrot í ágúst 2021. Í svörum kæranda, sem bárust með tölvubréfi dags. 24. janúar 2025, kemur m.a. fram að það hafi verið hús tengdamóður kæranda sem hafi verið rænt. Kærandi, eiginkona hans og A hafi verið að koma til baka eftir að hafa verið að sinna erindum og hafi þá séð árásarmennina við inngang hússins. Þeir hafi ráðist að þeim og neytt þau inn í húsið. Þá hafi þeir leitað um allt af fjármunum og verðmætum á meðan þeir hafi hótað kæranda og eiginkonu hans. A hafi verið í stofunni á meðan ráninu hafi staðið.
Að teknu tilliti til framangreindra landaheimilda, frásagnar kæranda og framlagðra gagna er þrátt fyrir framangreint misræmi þó ekki ástæða til að draga í efa frásögn kæranda um að hann hafi orðið fyrir einhvers konar áreiti eða hótunum af hálfu glæpahópa í heimaríki og í Venesúela. Framangreind atvik hafi þó átt sér stað um tveimur árum áður en kærandi flúði heimaríki og frásögn kæranda um að hann telji að um sama hóp hafi verið að ræða sem hafi hótað honum í bifreið hans í tvö skipti, sent honum skilaboð á tilgreindu samskiptaforriti og rænt heimili tengdamóður hans í Venesúela virðist ekki byggja á öðru en getgátum kæranda og er ekki í samræmi við framlögð gögn og frásögn eiginkonu kæranda líkt og að framan greinir. Því verður ekki annað ráðið af frásögn kæranda og gögnum málsins að um ótengd atvik sé að ræða og að tilviljun hafi ráðið því að kærandi hafi verið fórnarlamb umræddra atvika. Gögn málsins bera ekki með sér að framangreind atvik hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga eða að kærandi sé eða hafi verið sérstakt skotmark glæpahópa af neinum þeim ástæðum sem talin eru upp í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur skoðað bera með sér að lögregluyfirvöld í Perú séu alla jafna skilvirk og fagleg. Með tilliti til framangreinds verður talið að yfirvöld heimaríkis hafi getu og vilja til að veita kæranda vernd og að kærandi geti leitað aðstoðar lögreglu og annarra þar til bærra yfirvalda vegna áreitis og hótana af hálfu glæpahópa í heimaríki telji hann þörf á því.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi kvað að með tilliti til stöðu hans og ástandsins í Lima í Perú verði ekki með sanngjörnum hætti hægt að ætlast til þess að hann leiti frekari verndar stjórnvalda í Perú í ljósi öryggisástandsins þar. Með hliðsjón af framangreindum málsástæðum kæranda og sérstaklega slæmu öryggisástandi í heimafylki hans uppfylli hann skilyrði alþjóðlegrar verndar skv. 40. gr. laga um útlendinga á grundvelli 2. mgr. 37.gr. sömu laga.
Líkt og fram hefur komið bera þær heimildir sem kærunefnd hefur skoðað með sér að lögregluyfirvöld í Perú séu alla jafna fagleg og virk og að kæranda standi til boða vernd yfirvalda vegna áreitis og hótana af hálfu glæpahópa telji kærandi þörf á því.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið fæddur og uppalinn í borginni Lima í Perú og hafi verið búsettur þar þegar hann hafi yfirgefið heimaríki. Með vísan til framangreindra heimilda er það mat kærunefndar að ástandið í heimaborg kæranda sé ekki á því alvarleikastigi að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærandi séu í raunverulegri hættu, í heimaborg sinni, á að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til Perú.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda aðstæður í heimaríki hans, benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði hans í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 27. maí 2024, greindi kærandi frá því að vera við góða andlega og líkamlega heilsu. Kærandi greindi frá því að hafa farið í [...] þegar hann hafi verið 17 ára.
Af framburði kæranda verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærandi hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærandi hefur greint frá því að eiga bakland í heimaríki m.a. dóttur, foreldra, bróður, ömmu og afa sem hann sé í sambandi við. Af gögnum málsins verður ekki annað ráðið en að hann hafi getað framfleytt sér og fjölskyldu sinni í heimaríki. Þá verður ekki annað ráðið en að kærandi sé almennt heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Eiginkona kæranda, dóttir þeirra og barn eiginkonu hans sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi á sama tíma og kærandi. Eiginkona hans er með venesúelskan ríkisborgararétt. Kærandi kvaðst ekki hafa búið í Venesúela en heimsótt landið í einn til þrjá mánuði í senn í nokkur ár. Barn kæranda er fætt í Perú og með perúskan ríkisborgararétt. Heimildir bera með sér að fjölskyldumeðlimur perúsks og venesúelsks ríkisborgara geti sótt um dvalarleyfi í öðru hvoru landinu á þeim grundvelli að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Með vísan til framangreinds og niðurstöðu í máli kæranda, eiginkonu hans og barna í úrskurði nr. 83/2025 er það mat nefndarinnar að ekkert bendi til annars en að kærandi, eiginkona hans og börn þeirra geti sameinast í heimaríki eiginkonu hans og barna þeirra, Venesúela, eða heimaríki kæranda, Perú. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar og hagsmuna barna kæranda og eiginkonu hans og aðstæðna barna almennt í Perú í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Í Perú er menntun gjaldfrjáls til 16 ára aldurs og skólaskylda á grunnskólastigi.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 5. október 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst eiga systur á Íslandi. Kærandi kvaðst sætta sig við niðurstöðu Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn. Getur kærandi þá nýtt sér heimild sína til að koma aftur til aðildarríkja Schengen-samstarfsins, m.a. til að rækta fjölskyldutengsl sín, á grundvelli vegabréfsáritunarfrelsis sem ríkisborgarar Venesúela njóta.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Valgerður María Sigurðardóttir
Jóna Aðalheiður Pálmadóttir