06 febrúar 2025
/
Úrskurður nr. 98/2025
Hinn 6. febrúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 98/2025
í stjórnsýslumálum nr. KNU24110092 og KNU24110093
Kæra [...] þeirra á ákvörðunum Útlendingastofnunar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 14. nóvember 2024 kærðu […], fd. […] (hér eftir M) og […], fd. […] (hér eftir K), ríkisborgarar Kólumbíu, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 31. október 2024, um að synja þeim og börnum þeirra, […], fd. […] (hér eftir A) og […], fd. […] (hér eftir B), ríkisborgurum Kólumbíu, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og börn þeirra eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Kólumbíu og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 8. október 2023. Kváðust kærendur sækja um alþjóðlega vernd vegna árása og hótana sem hafi beinst gegn M í heimaríki. Kærendur kváðust hafa selt eigur sínar til að fjármagna ferðina til Íslands. K kvaðst vera heilsuhraust en M kvaðst vera með ummerki eftir líkamsárás í handarkrika, útbrot, [...] og vandamál í meltingavegi.
Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 26. mars og 3. apríl 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. M greindi frá því að vera fæddur í […] og uppalinn í […], í Cauca fylki í Kólumbíu. K greindi frá því að vera fædd í […] og uppalin í […] í Cauca fylki í Kólumbíu. Kærendur hafi verið búsett í Valle del Cauca fylki í Kólumbíu þegar þau hafi yfirgefið heimaríki í október 2023. Þau hafi búið í […] til 2021 og síðan flutt til […] 2022 vegna vinnutengdra vandræða og félagslegra aðstæðna og til […] í Valle del Cauca fylki árið 2023 vegna hótana sem þeim hafi borist. M greindi frá því að eiga dóttur, foreldra, ömmu og frændfólk í heimaríki. Dóttir M búi í Kólumbíu með móður sinni og gangi í skóla. M telji hana ekki örugga í heimaríki. Dóttir hans hafi ekki komið með til Ísland því ferðalagið hafi verið ákveðið með stuttum fyrirvara og það hefði tekið tíma að sækja um ferðaleyfi og fleiri gögn til að fara með hana úr landi. Það hafi verið of hættulegt að bíða. Dóttir hans kæmi eflaust síðar til Íslands. M sé í daglegum samskiptum við hana. K greindi frá því að eiga foreldra, tengdaforeldra, frænkur og frænda í heimaríki.
Kærendur greindu frá því að tilheyra minnahlutahópi í heimaríki sem einstaklingar af afró-kólumbísku þjóðarbroti. M greindi frá því að tilheyra fimm nafngreindum mannréttindasamtökum sem séu þekkt á heimasvæði kærenda. M greindi frá því að hafa útskrifast sem félagsráðgjafi árið 2015 og hafa starfað sem félagsleiðtogi í átta ár. M hafi verið að verja mannréttindi fyrir framangreind samtök og einstaklinga á Cauca og […] Cauca svæðunum frá árinu 2013. M kvaðst enn vera aðili að framangreindum samtökum. M hafi starfað sem leiðbeinandi um réttindi fólk og aðstoðað við þróun verkefna í sjálfboðavinnu. Mannréttindasamtökin hafi haft þann tilgang að efla samfélög, m.a. hafi hann unnið fyrir félög sem hafi verið að vinna með afró unglingum og ungum konum í minnihluta og í erfiðri stöðu. M greindi frá því að vera stjórnmálalegur leiðtogi stjórnmálahreyfingarinnar […] í yfir átta ár. Hreyfingin sé studd af stjórnmálaflokknum Partido Liberal Colombiano. Hlutverk M hafi verið að kenna pólitískt efni og leiðbeina. Þá hafi flokkurinn verið kosinn í sveitastjórnarkosningum. M greindi frá því að vera í diplómanámi í mannréttindum með félagslegu sjónarhorni í gegnum skóla í Mexíkó, diplómanámi í kynþáttafordómum og jafnræði, á vegum varaforseta Kólumbíu í samvinnu við ríkisháskólann og diplómanámi í félagslegu eignarnámi á vegum vísinda- og tækniráðuneytisins í Kólumbíu í samstarfi við háskólann Uniminuto. M kvaðst vera sérfræðingur í mannréttindafræðslu frá háskólanum UniCatolica og þess vegna hafi hann verið að taka þátt í mannréttindasamtökum og í ríkisáætlunum um að fræða um mannréttindi og tryggja að þau séu virt. Þá kvaðst M vera með diplóma gráðu í þjóðarbrots nálgun og í íhlutun, átökum og fjölskylduofbeldi út frá kynjasjónarmiðum. M greindi frá því að hafa verið að vinna fyrir sveitafélagið […] sem félagsráðgjafi og friðarstjóri auk þess að hafa verið umsjónarmaður verkefnis til að berjast gegn fátækt. M hafi einnig starfað fyrir nafngreind fyrirtæki í byggingaiðnaði þar sem hann hafi verið að kynna kosti byggingaverkefna í samfélaginu. M greindi frá því að hafa fengið líflátshótun í síma árið 2022, en hann muni ómögulega hvenær. Hann hafi ekki tekið þessa hótun alvarlega og haldið áfram að starfa fyrir réttindi samfélagsins en flutt lögheimili sitt. Hinn 13. maí 2023 hafi M fengið annað símtal frá manni sem hafi hótað honum lífláti eða að skaða fjölskyldu hans ef M hætti ekki að verja samfélagið. Í síðara viðtali greindi M frá því að það hafi verið sama rödd í símanum í bæði skiptin. Hinn 6. júní 2023 hafi M lagt fram kæru hjá ríkissaksóknara landsins vegna síðari líflátshótunarinnar. Kæran hafi verið skráð í kerfi saksóknara 14. júní 2023. Saksóknari hafi skipað lögregluembættunum í Cauca að veita M vernd af því að líf hans væri í hættu. M hafi verið veitt vernd í fjóra mánuði og hann undirritað ákveðin gögn um að lögreglan ætti að veita honum vernd. Verndin hafi falist í því að lögreglumenn ættu að fylgja M ef hann færi að sinna tilteknum félagslegum verkefnum, fylgjast með stöðum sem hann heimsótti oftast, passa upp á staðina þar sem hann yrði í meiri hættu og vera tiltækir ef hann þyrfti á þeim að halda. Lögreglan hafi óskað eftir því að bæjarstjórnin héldi fund um öryggisástand M. Hinn 27. júní 2023, hafi deild ráðuneytisstjóra og önnur embætti m.a. herinn, lögreglan í Cauca fylki, landvarðadeild og umboðsmaður, verið beðin um að veita M vernd. M hafi haldið áfram í félagsstörfum í Cauca og Valle Del Cauca fylkjum. Hinn 12. september 2023 á leið til […] borgar frá […], hafi M verið á ferð á mótorhjólinu sínu og þá hafi birst stór hvítur bíll. Bíllinn hafi byrjað að elta M og hann hafi aukið hraða mótorhjólsins og bíllinn hafi fylgt. Bíllinn hafi komið nálægt M og þvingað hann út af veginum. M hafi slasast og mótorhjólið eyðilagst. Fjöldi bifreiða hafi stoppað og aðstoðað M og hvíta bílnum verið ekið á brott. M hafi fengið aðhlynningu á sjúkrahúsi við alvarlegum áverkum og árásin hafi haft áhrif á andlega heilsu hans. Aðspurður kvað M árás hvíta bílsins hafa beinst að honum persónulega, hann hafi verið búinn að fá líflátshótun og vegna eðli starfs hans sem samfélagsleiðtogi. M greindi frá því að bíllinn hafi elt hann í um eina mínútu og að hann vissi ekki hverjir þetta hafi verið en þeir hafi verið að reyna drepa hann. M hafi verið að starfa á svæðinu og það hafi verið búið að drepa samstarfsfélaga hans sem hafi verið í sama starfi. M hafi verið búinn að fá símtal og leita sér aðstoðar og þá hafi hann orðið fyrir árás. M svaraði því neitandi að um handahófskennda árás gæti verið ræða vegna forsögu hans. Fyrir árásina hafi saksóknari verið búinn að óska eftir vernd frá æðsta embætti sem veiti vernd í Kólumbíu fyrir M, en þeir hafi ekki verið nægilega fljótir að bregðast við og að svara. Hinn 21. september 2023 hafi M farið í eitt viðtal vegna áhættumats en það hafi átt að taka um þrjá mánuði að fá svar við þeirri beiðni og líf hans þá þegar í hættu. M hafi kært árásina til embættis saksóknara. M hafi ekki getað mætt og kært en gert það um leið og hann hafi verið laus af sjúkrahúsinu. Síðar í viðtalinu kvað M þetta hafa verið fyrstu kæru sem hann hafi lagt fram en eftir ítrekaðar spurningar um það greindi hann frá því að þetta hafi verið önnur kæra hans, M hafi fyrst kært eftir líflátshótun árið 2023. M greindi frá því að hafa verið að sinna félagsstörfum á tilteknum stað í heimafylki hans þegar bíll hafi verið sprengdur af skæruliðum og annar bíll hafi verið sprengdur í návígi við skóla barna kærenda. Eftir bílslysið hafi M farið í felur en börnin hafi haldið áfram að fara í skóla. Þá hafi þau tekið eftir grunsamlegum bílum að elta þau. Þá hafi verið sótt um vernd hjá lögreglunni í Jamandi í Cauca fylki. Lögreglan hafi ekki gert neitt og hafi mismunað M vegna húðlitar. M hafi ekki enn fengið svar frá ríkinu vegna umsóknar um vernd og því hafi kærendur byrjað að leita að landi þar sem þau gætu fengið vernd. Samstarfsmenn M hafi minnst á Ísland við þau sem öruggt ríki. M greindi frá því að í september 2023 hafi ráðherra í sama stjórnmálaflokki og hann verið myrtur. Í desember 2023, eftir að kærendur voru komnir til Ísland, hafi sveitastjórinn í […] héraði verið myrtur. M greindi frá því að hann hafi verið myrtur rétt áður en kosningar hafi átt að fara fram. M greindi frá því að hafa unnið í kosningaframboði þess sem hafi síðar unnið kosningarnar, sem áttu sér stað 29. október 2023, og verið í góðu sambandi við hann. M hafi unnið fyrir bæjarfélagið [...] í átta ár og tilheyri sama stjórnmálaflokki og framangreindir einstaklingar. M greindi frá því að vera með mikið af áverkum eftir árásina í september 2023 og hafi verið greindur með [...] og [...] í júní 2023 vegna atburða í Kólumbíu. M hafi verið í ýmiskonar rannsóknum í heimaríki vegna [...] og hafi hitt sálfræðing í heimaríki eftir spítala innlögn vegna [...] í júní 2023. Eftir árásina í september hafi M verið með opið sár á hendinni, illa tognaður í hendinni og með áverka á fæti. Þá hafi M fengið martraðir vegna árása. Nú sé M með [...] og undir eftirliti til að sjá hvernig það þróist. M greindi frá því að börnum hans liði illa og að A hafi lent í mismunun hér á landi vegna húðlitar. Börnin séu ekki með neina sjúkdóma. Í síðara viðtali greindi M frá því að á tímabilinu 2019 til 2021 hafi hann starfað að byggingu sjúkrahúss. Verkefnið hafi verið stórt í sniðum og hann hafi starfað sem félagsráðgjafi, tengill við almenning á svæðinu um stöðu verkefnisins og farið með umsjón með starfsfólki. Vopnaðir glæpahópar hafi stolið miklu af efni og fjármunum í tengslum við verkefnið. M hafi verið ábyrgur fyrir að kæra lögbrot til stjórnvalda. Lögreglan hafi náð að stöðva árás á byggingu sem hafi verið fyrirætluð. M greindi frá því að hafa ekki lent í neinum vandræðum sjálfur í tengslum við þetta starf en hann hafi verið í viðkvæmri stöðu og starfsmenn hans hafi lent í vopnuðum ránum. Þá greindi kærandi frá því að í apríl 2021 hafi verið stærstu mótmæli í sögu Kólumbíu gegn ríkisstjórninni. Margir nemar hafi tekið þátt í mótmælum og verið drepnir af yfirvöldum. M hafi tekið þátt í mótmælum sem miðlari mannréttinda. M hafi síðar aðstoðað í verkefni sem sett hafi verið á fót fyrir einstaklinga sem hafi misst ástvini í mótmælunum. Þetta hafi verið byrjunin, eftir þetta hafi hann fengið líflátshótanir. M kvaðst hafa verið mjög virkur á samfélagsmiðlum varðandi efnahagsmál og stjórnmál í samfélaginu sem aðgerðarsinni og samfélagslegur leiðtogi. M hafi opinberlega farið að gagnrýna ríkið árið 2013. M greindi frá því að hann teldi það vera glæpahópa sem tengist yfirvöldum sem hafi hótað honum. Glæpahópar sem gætu verið í samstarfi við stjórnvöld, af því að í mótmælum árið 2021 hafi það verið lögreglan og stjórnvöld á móti almenningi. Aðspurður greindi M frá því að hafa fengið símtöl frá óþekktum númerum sem hann hafi ekki svarað á milli líflátshótananna árin 2022 og 2023. M greindi frá því að lögregluvernd sem honum hafi verið ákvörðuð hafi verið ábótavant og hann hafi ekki fengið þá fylgd sem honum hafi verið lofað, lögreglan hafi stundum verið á stöðum sem hann átti að vera og sjaldan fylgst með honum. M útskýrði að hann hafi einungis verið með vernd hjá lögreglu í heimafylki sínu. M gaf þær skýringar að það hafi verið sótt um vernd í Cauca og í Jamandi, og hann hafi verið með vernd á þessum tveimur stöðum, […] og […] í Cauca fylki. Óskað hafi verið eftir vernd frá öðrum embættum og M hafi beðið lengi eftir svari og hafi á endanum fengið neitun. M hafi farið í áhættumat 21. september 2023 og það hafi átt að taka þrjá mánuði, en nokkrum dögum síðar hafi honum verið neitað um verndina. Honum hafi verið tilkynnt um neitunina símleiðis þegar hann hringdi fimm til átta dögum eftir matið og fengið upplýsingar um að hann gæti ekki fengið vernd að svo stöddu. M greindi annars vegar frá því að honum hafi verið neitað um vernd á þessum tímapunkti vegna tímans sem þeir hafi þurft að taka sér og hins vegar að hann teldi ekki vera neina vinnslu í gangi um að veita honum vernd eftir þetta símtal. M gaf ekki skýringar á því af hverju hann hafi ekki minnst á hann hafi fengið neitun á umsókn um vernd í fyrra viðtali sínu hjá Útlendingastofnun. M greindi frá því að börn hans hafi hætt að mæta í skólann í september 2023 þar sem einhverjir skrítnir bílar hafi verið að elta fjölskylduna. M hafi fundist honum hafa verið veitt eftirför eftir símtalið árið 2023. M kvað fjölskylduna ekki hafa lent í frekara áreiti eftir árásina og ekkert ofbeldi hafi átt sér stað á milli maí og september 2023. M greindi frá því að barn hans í heimaríki hafi þurft að skipta um skóla, en hún búi nú þar sem hún sé ekki útsett fyrir hættu. M kvaðst óttast vopnaða glæpahópa og yfirvöld í heimaríki. M kvað móður sína oft hafa þurft að gista annars staðar þar sem margir ókunnugir komi og spyrji eftir M. M kvaðst enn sinna starfi sínu sem félagsleiðtogi frá Íslandi rafrænt.
Í fyrra viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að tilheyra stjórnmálaflokknum Liberal. K hafi mætt á viðburði á vegum flokksins en eftir að hún hafi eignast börn hafi hún minnkað þátttöku í stjórnmálastarfinu. K greindi frá því að vera menntaður sjúkraþjálfari og hafa verið virk í félagsstarfi í heimaríki. Hún hafi starfað fyrir félagasamtök sem hafi sinnt heilbrigðisþjónustu fyrir viðkvæma hópa í dreifbýli uppi í fjöllum. Þetta hafi verið verkefni í samvinnu við sveitarfélög og sjúkrahús og bæjarfélög hafi styrkt starfið. K hafi fengið greitt fyrir störf sín hjá samtökunum. K kvaðst aldrei hafa lent í vandræðum vegna starfs síns hjá samtökunum. K eigi og reki fjölskylduveitingastað í heimaríki sem fjölskyldumeðlimur stýri á meðan K sé hér. K greindi frá því að hún og börnin séu við góða líkamlega heilsu. K hafi verið mjög buguð yfir því að yfirgefa heimili sitt svona skyndilega og hafi fengið útbrot en nú sé hún rólegri og betri af útbrotum. M kvað A líða mjög illa og vilji snúa til baka út af atvikum sem hafi hent hann á Íslandi. B hafi minna farið út fyrir heimilið og það sé í lagi með hana. K greindi frá því að heilbrigðiskerfið í Kólumbíu hafi verið slæmt og þau hafi því fengið heilbrigðisþjónustu á einkareknum sjúkrahúsum. Kærendur hafi verið með heilsutryggingu í gegnum störf sín og verið aðilar að sjúkratryggingakerfinu EPS í heimaríki. K greindi frá því að hún hafi verið fórnarlamb vopnaðra átaka. Þegar K hafi verið 10 ára gömul hafi móðir hennar verið skotin af vopnuðum skæruliðahóp. Móðir hennar hafi verið tvö ár að jafna sig og fjölskyldan hafi verið í felum á meðan. K kvað árás á móður hennar hafa verið óheppni, og að þau ekki hafa verið sérstök skotmörk hópsins. Þá hafi hún og fjölskylda hennar lent í nauðungarflutningum vegna vopnaðra átaka eftir þetta. Fjölskyldan hafi loks getað verið róleg þegar að einstaklingurinn sem hafi skotið móður K hafi verið drepinn. Þá greindi K frá því að M sé félagsleiðtogi og hann berjist fyrir mannréttindum. Vegna þess hafi fjölskyldan oft þurft að flytja. Í september 2023 hafi M lent í árás, bifreið hafi ýtt honum út af veginum. Fjölskyldan hafi fram að því búið við stöðugar hótanir. K viti ekki hverjir það hafi verið sem hafi ráðist á M. M hafi verið með martraðir og svefnleysi vegna fyrri hótana og K hafi fengið tíma hjá sálfræðingi fyrir M. M hafi verið komin í krísu og endað á spítala og gengið til sálfræðings eftir það. Þá hafi þau farið til ríkissaksóknara og lagt fram kæru. Einnig hafi samstarfsmaður M, ráðherra, verið drepinn um tveimur til þremur vikum eftir árás á M. M hafi tekið þátt í friðarviðræðum á milli glæpahópa ásamt ráðherranum. Fjölskyldan hafi flutt á öruggara svæði til fjölskyldu K, en hótanir hafi haldið áfram ítrekað. Þá hafi fleiri atvik hent í kringum þau t.d. bílsprengja í kringum skóla barnanna. Eftir sprengjurnar hafi kærendur farið að leita eftir öruggara landi til að búa í og ákveðið að Ísland yrði áfangastaðurinn. Eftir að þau hafi búið á Íslandi í einn og hálfan mánuð hafi yfirmaður M verið myrtur. Hann hafi verið bæjarstjóri og verið með þrjá öryggisverði með sér en hafi samt verið myrtur. Fimm aðrir einstaklingar hafi einnig verið drepnir í september 2023 fyrir kosningarnar, einstaklingar sem hafi tengst ráðherranum. Aðspurð greindi K frá því að vita ekki nákvæmlega hversu lengi þau hafi verið að fá hótanir, kannski hefði M ekki sagt henni frá öllu. En árið 2021 hafi verið mótmæli gegn ríkisstjórninni þar sem margir félagslegir leiðtogar hafi verið myrtir af ríkisstjórninni. M hafi þurft að stíga fram til að tryggja öryggi þeirra sem hafi ekki fengið að mótmæla. Frá árinu 2021 hafi þetta ástand byrjað hjá þeim og M fengið hótanir og hringingar. Það hafi verið hringt úr óþekktum númerum en svo hafi verið hringt úr tilteknu númeri sem M hafi skráð í kæru til lögreglu. K kvaðst ekki vita hverjir það hafi verið sem hafi verið að hóta M, en það sé mikið af glæpahópum á svæðinu. Þá hafi M fengið hótanir í síma í maí 2023 sem hafi verið síðasta hótun sem hún viti til að hann hafi fengið. K greindi frá því að M hafi haft á tilfinningu að verið væri að elta hann eftir símtalið í maí 2023 og því hafi þau flutt. Þau hafi kært hótunina sem M barst í maí 2023 í júní sama ár. Aðspurð um hvort þau hafi fengið einhverja vernd, greindi K frá því að M hafi þurft að tilkynna lögreglunni um ef hann færi að vinna í […]. Svo hafi M lent í árás í september sama ár, lögreglan hafi ekki verndað þau nægilega.
Í seinna viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að þegar þau hafi flutt til fjölskyldumeðlima þeirra í júlí 2023 en í kjölfarið hafi þau haft á tilfinningunni að verið væri að elta þau. Eftir það hafi árásin á M átt sér stað. Þá hafi gerst hræðileg atvik í kringum þau sem hafi ýtt undir hræðslu þeirra, s.s. bílasprengjur en K kvaðst ekki vita það hvort þær hafi beinst að þeim sérstaklega. Þá kvaðst K ekki geta vita það hvort að árásin á M hafi tengst honum persónulega, en að þau hafi talið það í ljósi annarra atburða sem hafi verið að gerast í kringum þau. Kærendur hafi hætt að senda börnin sín í skólann í september 2023. Aðspurð um hvort að kærendur hafi flutt þegar þau hafi tekið eftir því að verið væri að elta þau, svaraði K neitandi. Þau hafi flutt til […] þegar M hafi tekið þátt í félagslegum mótmælum. Eftir fyrstu hótun, í maí 2023, hafi þau flutt til fjölskyldu K. M hafi fundist hann vera eltur frá 13. maí 2023, þau hafi flutt í júlí sama ár. Kærendur hafi haft það á tilfinningu að þau væru elt stöðugt fram til loka september mánaðar árið 2023. K greindi aðspurð frá því að hún hafi ekki lent í því að vera elt heldur hafi M upplifað það. M hafi verið með vernd lögreglu en þeir hafi ekki verið að sinna því starfi, hann hafi kannski fengið vernd í einhver tvö skipti. K hafi ekki vitað frá hverjum M hafi átt að fá þessa vernd og hún vissi ekki hvort það hafi verið einhver vinnsla í gangi til að veita M frekari vernd. M hafi lagt fram kæru hjá ríkissaksóknara í maí og aftur eftir árás í septembermánuði. K kvaðst viss um að það hafi verið í maí því þau hafi nýtt það til að slíta húsaleigusamningi sínum. K hafi farið til ríkissaksóknara og fengið tölvupóstfang fyrir M til að vera í sambandi við þá. M hafi sent kæru í tölvupósti og hann hafi fengið staðfestingar tölvupóst nokkrum dögum síðar. K kvaðst óttast ofbeldi almennt gegn henni og fjölskyldu hennar. Í heimaríki geti hvaða einstaklingur eða glæpahópur gert þeim mein. K greindi frá því að fjölskylda hennar sé í hættu í heimaríki vegna almenns ástands og vegna mála kærenda.
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barna kærenda kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við þau með vísan til ungs aldurs þeirra og framburðar foreldra þeirra.
Kærendur lögðu fram fjölda gagna við meðferð máls síns hjá Útlendingastofnun. Kærendur lögðu m.a. fram afrit af staðfestingu á árás á móður K árið 2003, útskriftarskírteinum M, staðfestingum á námi M, staðfestingum á störfum M, ljósmyndum af M í kröfugöngu, við störf hans og störf við kosningabaráttu borgarstjóra [...], samningum M við sveitarfélagið […] um verkefni, kærum til ríkissaksóknara, beiðni um vernd fyrir M, leiðbeiningum um vernd til M frá lögreglu, leigusamningi kærenda, heilbrigðisgögnum, sálfræðivottorðum, tengla á fréttir og Facebook síðu M og myndband vegna átaks gegn ofbeldi í ágúst 2021 sem M hafi skipulagt. Kærendur lögðu fram frekari gögn hjá kærunefnd. Kærendur lögðu m.a. fram afrit af útskriftarskírteinum M, skjáskot vegna stöðu kæru M hjá yfirvöldum í Kólumbíu, beiðni um áhættumat fyrir M í kjölfar kæru, grein sem M hafi skrifað og myndbandsbrot úr frétt þar sem M kemur fram.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum og börnum þeirra synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Börnum kærenda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 14. nóvember 2024. Kærunefnd barst ekki greinargerð kæranda innan gefins frests. Með tölvubréfi, dags. 17. janúar 2025, bauð kærunefnd kærendum að skila inn greinargerð. Með tölvubréfi, dags. 21. janúar 2025, barst kærunefnd greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kærenda lýst. Þar kemur m.a. fram að M hafi fæðst í […] og uppalinn í […] í Cauca fylki í Kólumbíu. K hafi fæðst í […] og alist upp í […] í Cauca héraði. Vegna vandamála tengdum starfi M og hótana sem honum hafi borist hafi fjölskyldan þurft að flýja á milli staða innan Kólumbíu. M hafi búið í […] frá því að hann hafi gifst eiginkonu sinni. Í janúar 2022 hafi fjölskyldan flutt til […] í Cauca fylki. Í janúar 2023 hafi fjölskyldan flutt til […] sem tilheyri fylkinu Valle del Cauca og flutt milli tveggja staða í Jamundi þar til þau hafi flúið heimaríki. M tilheyri sérstöku þjóðarbroti í Kólumbíu, afró-kólumbísku, og sé því í minnihluta í heimaríki. M hafi starfað með fjölmörgum frjálsum félagasamtökum sem berjist fyrir bættum mannréttindum í landinu, sérstaklega fyrir þjóðarbrot hans. Frá árinu 2013 hafi M starfað sem aðgerðarsinni og leiðtogi fyrir bættum mannréttindum á margvíslegan máta og nýtt sér menntun sína sem félagsráðgjafi og sérfræðingur í mannréttindum við það starf sitt. Jafnvel í launuðum störfum sínum hafi M tekið að sér ábyrgð og unnið störf sem hafi gert hann útsettari fyrir hótunum og ofbeldi, þannig hafi hann oft verið í erfiðum aðstæðum. Þá hafi M tilheyrt stjórnmálaflokknum […]sem sé tengdur Partido Liberal Colombiano (PLC). Framangreind störf hans hafi leitt til hótana, fyrst árið 2022 og aftur í maí 2023. Í þessi skipti hafi M fengið símtöl frá sama einstaklingi sem hafi hótað honum lífláti og að gera fjölskyldu hans mein ef hann hætti ekki störfum sínum. M hafi kært þessar hótanir og hafi átt að fá vernd en sú vernd hafi verið ófullnægjandi. M hafi orðið fyrir árás í september 2023 þegar að hvít bifreið hafi elt hann og þvingað hann út af veginum. M hafi fengið áverka og þurft að leita sér læknishjálpar. Í kjölfar framangreinds hafi M tekið eftir því að hann hafi verið eltur og vegna annars ofbeldis á heimasvæði M hafi kærendur ákveðið að leggja á flótta frá landinu. M hafi reynt til þrautar að fá vernd í heimaríki til þess eins að verða fyrir fordómum frá lögreglu vegna uppruna síns og því verið í hættu. Ofsóknir hafi haft áhrif á andlega heilsu M og nú sé hann með [...]. K tilheyri minnihluta í heimaríki sem afró-kólumbísk. K hafi sinnt félags- og stjórnmálastörfum en aðalstarf hennar hafi verið á veitingastað fjölskyldunnar. M hafi verið fórnarlamb átaka í heimaríki. Þegar hún hafi verið 10 ára hafi móðir hennar orðið fyrir skotárás og fjölskyldan þurft að flytja nauðungarflutningum. Í seinni tíð og vegna starfa M hafi fjölskyldan neyðst til að flytja oft innan landsins og loks tekið þá ákvörðun að yfirgefa heimaríki sitt. Allt þetta hafi lagst þungt á K sem hafi ekki viljað að börn hennar gengju í gegnum það sama og hún hafi gert sem barn.
Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Kólumbíu mótmælt. Aðstæður séu afar erfiðar í Kólumbíu þrátt fyrir friðarsamkomulagið á milli stjórnvalda og FARC árið 2016 og vopnuð átök eigi sér enn stað í Kólumbíu. Fylkin Cauca og Valle del Cauca virðast koma einna verst út þegar fjallað sé um öryggistilvik á vefsíðu ACLED eða skýrslum Rauða krossins. Morð- og glæpatíðni sé afar há í Kólumbíu og virðast stjórnvöld bera þar nokkra ábyrgð. Ofbeldið hafi stigmagnast og vopnaðir hópar tekið yfirráð á mörgum svæðum í landinu. Heimildir fjalla um ofbeldi, mismunun og þvingaða flutninga fólks af afró-kólumbískum uppruna. Þrátt fyrir að einstaklingar af afró-kólumbískum uppruna eigi lagalegt tilkall til allra stjórnarskrárbundinna og lagalegra réttinda og verndar þá búi þeir við mismunun, mikla fátækt, atvinnuleysi sem og félagslega útilokun, m.a. frá heilbrigðisþjónustu, og eigi frekar á hættu á að verða fyrir ofbeldi í Kólumbíu. Þá sé staða þeirra sem berjist fyrir mannréttindum minnihlutahópa, sérstaklega afró-kólumbískum minnihluta landsins, slæm. Kærendur benda sérstaklega á tilteknar landaheimildir varðandi stöðu þeirra sem einstaklinga af afró-kólumbískum uppruna og vegna starfa M. Fólk af afró-kólumbískum uppruna sæti gríðarlegu áreiti, mismunun og fordómum. Mikil hætta fylgi því að starfa að félagslegum umbótum og auknum mannréttindum íbúa og minnihlutahópa. Cauca fylki sé sérstaklega hættulegt fyrir einstaklinga eins og M.
Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. Kærendur hafi lagt fram töluvert magn gagna til stuðnings frásögnum sínum og ekki sé að sjá annað en að Útlendingastofnun leggi þær til grundvallar í heild en komist að þeirri niðurstöðu að staða kærenda nái ekki tilskildum alvarleikaþröskuldi. Kærendur mótmæla því í ljósi þeirra heimilda sem þau hafi reifað í greinargerðinni.
Kærendur telja að Útlendingastofnun hafi ekki gætt að rannsóknarskyldu sinni í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga og ekki tryggt að nauðsynleg gögn og vottorð lægju fyrir svo meta mætti stöðu M m.t.t. 1. mgr. 25. gr. lag um útlendinga og persónubundinnar stöðu M sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þar sem Útlendingastofnun hafi virt að vettugi framangreinda lögbundna skyldu verði að leggja til grundvallar að M sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og hann falli undir skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þá telja kærendur að Útlendingastofnun hafi virt að vettugi það hagsmunamat sem fram þurfi að fara um réttindi barna kærenda. Börn kærenda hafi ekki fengið sjálfstætt mat á umsóknum sínum heldur verið látin fylgja kærendum eins og hver annar farangur. Ekkert efnislegt mat hafi farið fram í ákvörðunum barna kærenda og þá sé að finna kafla um lok þjónustu í þeim þó að í lögum komi fram að ekki megi fella niður réttindi barna, foreldra og umsjónarmanna þeirra. Þá sé það mat sem sé í ákvörðunum kærenda hvað varðar börn þeirra takmarkað og gallað. Kærunefnd geti ekki bætt út þessum alvarlegu annmörkum á kærustigi. Hér verði börnin að njóta vafans enda öryggi þeirra í húfi. Þá sé nauðsynlegt að meta stöðu barnanna út frá uppruna þeirra og hvernig staða jaðarsettra barna sé í Kólumbíu almennt. Að mati kærenda hafi Útlendingastofnun vanmetið stöðu fjölskyldunnar, bæði stöðu þeirra sem einstaklinga af afró-kólumbískum uppruna sem og stöðu þeirra vegna starfa M. Þá gagnrýna kærendur niðurstöður í ákvörðunum Útlendingastofnunar og telja þær órökstuddar og matið sé gerræðislegt. Kærendur hafi áhyggjur af túlkun í viðtölum þeirra og þeirri staðreynd að þau gátu ekki staðreynt endurritun viðtala sinna.
Kærendur byggja á því að það sem barni sé fyrir bestu skuli alltaf vera í forgangi þegar teknar séu ákvarðanir um málefni þess, sbr. m.a. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þessi regla sé ítrekuð í lögum um útlendinga, reglugerð um útlendinga og í alþjóðlegum skuldbindingum Íslands. Grundvallarreglan um það sem sé barni fyrir bestu skuli þannig ávallt höfð að leiðarljósi og meta þurfi þá hagsmuni sérstaklega og sjálfstætt. Það mat þurfi að fara fram áður en ákveðið sé í hvaða landi eining fjölskyldunnar skuli tryggð. Við mat á hagsmunum barnsins sé eðlilegt að meta aðstæður þess í þeim löndum þar sem búseta þess sé möguleg, þar sem það hefur eða getur haft vegna umsóknar um alþjóðlega vernd löglegan rétt til dvalar. Í tilfelli barna kærenda sé það Ísland og Kólumbía. Þá sé rétt að velja þann kost þar sem hag barnsins sé best borgið. Mikilvægt sé að búa kærendum aðstæður sem geri þeim kleift að veita börnum sínum umönnun og öryggi sem þau þarfnist og eigi rétt á. Brottvísun barna kærenda þjóni ekki hagsmunum þeirra. Í Kólumbíu bíði þeirra ekkert nema öryggisleysi, óvissa, fátækt og skortur.
Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og börnum þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur telja sig í fyrsta lagi vera flóttafólk vegna uppruna síns og vegna ágangs og ofsókna glæpahópa sem hafi hótað þeim og beitt þau ofbeldi vegna starfa M. Frásagnir kærenda hafi verið skýrar og afar trúverðugar þó þær hafi ekki verið jafn markvissar og þau hafi kosið. Þau telji gott samræmi vera í báðum frásögnum þeirra og á milli þeirra. Leggja verði til grundvallar að þau séu af afró-kólumbískum uppruna og þess vegna í minnihlutahópi í heimaríki sem sæti kerfibundinni mismunun og fordómum. Þá verði að leggja til grundvallar að þau hafi bæði unnið að samfélagslegum málefnum í Kólumbíu, starf M hafi haft meiri og verri afleiðingar og að hann teljist leiðtogi og áberandi mannréttindafrömuður, að M hafi fengið hótanir í maí 2023 og á árinu 2022, hann hafi kært þær hótanir og ríkissaksóknari hafi metið þær trúverðugar. Því hafi lögreglu verið leiðbeint að veita þeim vernd, þau hafi orðið fyrir árásum og áreiti, m.a. í september 2023, hafi flutt ítrekað og ekki fengið viðunandi vernd lögreglunnar. Kærendur óttist vopnaða glæpahópa í Kólumbíu og yfirvöld hafi ekki vilja til að vernda þau. Frásagnir kærenda séu studdar gögnum sem sýni að stjórnvöld í heimaríki hafi tekið hótanirnar alvarlega þó yfirvöld hafi ekki veitt M vernd, mögulega vegna uppruna hans. Raunhæf ástæða sé til að ætla að kærendur sæti auknum ofsóknum, dauða, ofbeldi, áreiti, hótunum og mismunun snúi þau til baka til heimaríkis. Ofsóknir sem þau hafi orðið fyrir séu skýlaus og alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, á grundvelli uppruna þeirra, stjórnmálskoðana og stöðu sem samfélagslegir og stjórnmálalegir leiðtogar og það séu vopnaðir glæpahópar og stjórnvöld sem standi að ofsóknunum. Þá verði að líta til samsafns allra þeirra þátta sem geri stöðu kærenda vonlausa í Kólumbíu. Kærendur séu utan heimalands af ástæðuríkum ótta við að vera ofsótt á grundvelli kynþáttar, tilteknum þjóðfélagshópi og stjórnmálaskoðana þeirra sem og samsafns athafna og geti ekki fært sér í nyt vernd stjórnvalda í heimaríki.
Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og börnum þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja á alvarlegu ástandi mannréttinda í Kólumbíu og persónulegum aðstæðum sínum og telja sig falla undir skilgreiningu viðbótarverndar. Kærendur og börn þeirra eigi í raunverulegri hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, vegna hinnar gríðarlegu óaldar og víðtæku mannréttindabrota sem viðgangist almennt í landinu, verði þau send aftur til heimaríkis sem og raunhæfrar hættu á að þau verði fyrir alvarlegum skaða af hálfu handahófskennds ofbeldis vegna vopnaðra átaka glæpahópa og stjórnvalda í landinu. Kærendur vísa til landaheimilda máli sínu til stuðnings. Kærunefnd verði að líta til uppruna kærenda, kyns K og B, aldurs barnanna, starfa og ofsókna sem kærendur hafi orðið fyrir.
Kærendur telja það óraunhæft og ósanngjarnt að ætla þeim að setjast að annars staðar í Kólumbíu.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja á því að aðstæður þeirra falli undir ríka þörf fyrir vernd og að á grundvelli mannúðarsjónarmiða og þau eigi rétt á vernd hér á landi. Í Kólumbíu ríki mannréttinda- og mannúðarkrísa. Hættuástand ríki í Kólumbíu vegna fjölmargra vopnaðra hópa sem og getuleysis stjórnvalda. Að mati kærenda nái aðstæður í Kólumbíu því alvarleikastigi sem krafist sé í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur myndu eiga afar erfitt uppdráttar í heimaríki vegna öryggisleysis og hins almenna ástands og vegna kyns K og B.
Með endursendingu kærenda og barna þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
Kærendur telja ákvörðun um brottvísun og endurkomubanni til Íslands ósanngjarna gagnvart sér. Þau geti einna helst leitað verndar í Evrópu. Fari það gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga og réttmætisreglu íslensks stjórnsýsluréttar ætli stjórnvöld að nýta sér neyð þeirra til að gera þau að fordæmi sínu svo þau nái því markmiði að fækka umsóknum um alþjóðlega vernd. Með hliðsjón af málsatvikum, telja kærendur að þeim skuli ekki ákveðin brottvísun og endurkomubann.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.
Kærendur gera ýmsar athugasemdir við málsmeðferð og mat Útlendingastofnunar á trúverðugleika kærenda, stöðu þeirra í heimaríki og heimildum um Kólumbíu. Auk þess gera þau athugasemd við túlkun í viðtölum þeirra og að þau hafi ekki getað yfirfarið endurrit í lok viðtals. Kærunefnd bendir á að kærendum gafst kostur á að koma á framfæri öllum sínum málsástæðum í ítarlegum viðtölum hjá Útlendingastofnun, með framlagningu gagna og greinargerð talsmanns. Í viðtali var þeim auk þess leiðbeint um að hefðu þau einhverjar athugasemdir varðandi túlkun viðtalsins hefðu þau tækifæri til þess að koma að athugasemdum í viðtali. Ekki voru bókaðar athugasemdir varðandi túlkun eða skilning kærenda í viðtölunum. Jafnframt voru endurrit viðtalanna send talsmanni kærenda og gafst kærendum færi á að koma að athugasemdum vegna þeirra í greinargerð til Útlendingastofnunar. Þá höfðu kærendur tækifæri til að leggja fram frekari gögn við meðferð málsins hjá kærunefnd.
Kærendur gera athugasemdir við að skort hafi á ítarlega umfjöllun um einstaklingsbundnar aðstæður barnanna í hinum kærðu ákvörðunum og sjálfstætt mat á umsóknum þeirra. Í viðtali hjá Útlendingastofnun voru kærendur spurð um aðstæður barna þeirra í Kólumbíu og hvernig aðstæður þeirra yrðu yrði þeim gert að snúa aftur til Kólumbíu og var ákvörðun stofnunarinnar sú að kærendur og börn þeirra væru ekki flóttamenn, sbr. 37. gr. laga um útlendinga. Auk þess var í hinni kærðu ákvörðun fjallað almennt um stöðu almennings í Kólumbíu auk þess sem fjallað var sérstaklega um stöðu einstaklinga af afró-kólumbískum uppruna og stöðu barna. Ekki verður séð að ástæða hafi verið til að grípa til frekari rannsókna vegna aðstæðna barnanna A og B í landinu og er ekki ástæða til að gera athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar í málinu hvað þetta varðar.
Kærendur hafa gert athugasemdir við að Útlendingastofnun hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni og hafi ekki tryggt að nauðsynleg gögn og vottorð lægju fyrir svo meta mætti stöðu M með tilliti til 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga og persónubundinnar stöðu hans sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í viðtali hjá Útlendingastofnun voru kærendur minntir á að þeim bæri að leggja fram gögn sem styðji við umsókn þeirra um alþjóðlega vernd. Í 43. gr. a í reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 greinir að þegar stjórnvöld taka ákvörðun um veitingu og útgáfu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga skuli taka mið af fyrirliggjandi gögnum, þar á meðal læknisvottorðum og öðrum læknisfræðilegum gögnum. Umsækjandi um alþjóðlega vernd beri sjálfur ábyrgð á því að afla slíkra gagna og leggja fram við meðferð málsins hjá stjórnvöldum. Það er því á ábyrgð kærenda að leggja fram heilsufarsgögn hjá stjórnvöldum í tengslum við umsókn sína um alþjóðlega vernd.
Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og framkvæmt sjálfstætt mat á öllum þáttum málsins. Með vísan til alls framangreinds og þess að kærunefnd hefur komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun er ekki ástæða til að gera athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir eða ógilda þær á grundvelli málsmeðferðar annmarka.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
5.3 Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað kólumbískum vegabréfum fyrir sig og börn sín. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og börn þeirra hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og börn þeirra séu kólumbískir ríkisborgarar.
5.4 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Report on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 30. mars 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 County Reports on Human Rights Practices - Colombia (US Department of State, 22. apríl 2024);
- 2023 Report on International Human Rights Freedom: Columbia (US Department of State, 30. júní 2024);
- 3 Factors Driving Child Recruitment in the Colombian Conflict (InSight Crime, 20. nóvember 2023);
- ACLED Dashboard, 1. apríl 2023 – 28. október 2024;
- ACLED Dashboard, 24. febrúar 2022 – 24. febrúar 2023;
- Almost half of the human rights defenders killed last year were in Colombia (Guardian, 4. apríl 2023);
- Amnesty International Report 2021/22 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
- Amnesty International Report 2022/23 – Colombia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
- Availability and accessibility of mental health services, particularly in Bogotá, Cartagena and Barranquilla; treatment of individuals with mental illness by society and by the authorities; state protection, including recourse and complaint mechanism (Immigration and Refugee Board of Canada, 11. ágúst 2021);
- BTI 2022 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- BTI 2024 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, mars 2024);
- Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post- FARC- EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
- Colombia (skýrsla aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (S/2021/312), 30. mars 2021);
- Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
- Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
- Colombia Complex crisis (ACAPS, 9. ágúst 2021);
- Colombia: Country Focus (EUAA, desember 2022);
- Colombia, Cundinamarca (ACLED Dashboard, 3. mars 2023);
- Colombia: Events of 2022 (Human Rights Watch, 2023);
- Colombia: Events of 2023 (Human Rights Watch 2024);
- Colombia: Fact – Finding Mission Report; Conflict Dynamics in the Post- FARC-EP Period and State Protection (mars, 2020);
- Colombia´s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
- Colombian activist killings hit record high in 2022: Ombudsman (Al Jazeera, 23. janúar 2023);
- Columbia and ELN rebels extend ceasefire by six months, agree to set up fund (Reuters, 6. febrúar 2024);
- Colombia: Urgent Updates October 2024 (WOLA, Advocacy for Human Rights in the Americas, 17. október 2024);
- Colombia. Social Institutions and Gender Index 2023 (Organization for Economic Co-operation and Development, 26. ágúst 2024);
- Colombia. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organization for Economic Co-operation and Development, 7. desember 2018);
- Colombia struggles to keep social leaders safe (y News, 13. janúar 2021);
- Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 2. janúar 2024);
- Colombia 2020 Crime and Safety Report (US Department of State, Bureau of Diplomatic Security, 13. mars 2020);
- Colombia Country Security Report (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 31. janúar 2024);
- Colombia – Overview of the Education System (OECD, Education at a glance 2023);
- Colombia/Venezuela: Border Area Abuses by Armed Groups: Killings, Disappearances, Child Recruitment, Forced Displacement (Human Rights Watch, 28. mars 2022);
- Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);
- Freedom in the World 2023 - Colombia (Freedom House, 2023);
- Freedom in the World 2024 – Colombia (Freedom House, 2024);
- Foreign travel advice: Colombia (Gov.uk, síðast uppfært 9. september 2024);
- GameChangers 2023; Unintended Consequences for Colombia’s ‘Total Peace’ (Insight Crime, 29. desember 2023);
- Gender-based violence (GBV), particularly domestic and sexual violence; impact of COVID-19; state protection and support services available, including psychological services, particularly in Bogotá, Santiago de Cali and Medellín (2020- July 2022) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. ágúst 2022);
- Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia (BBC, 20. júní 2022);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Colombia (UNHCR, ágúst 2023);
- La violencia contra líderes y lideresas políticas, sociales y comunales: Diagnóstico sobre el primer semester del 2024 (Misión de Observación Electoral, 3. september 2024);
- Latin America and the Caribbean – September 2024 (Acled Data, 4. október 2024);
- Latin America and the Caribbean Overview: August 2024 (ACLED, 6. September 2024);
- Los Focos del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
- Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communities (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
- Mental Health ATLAS 2017. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 2018);
- National Liberation Army (ELN) (InSight Crime, 18. júní 2024);
- Protecting Colombia´s Most Vulnerable on the Road to Total Peace (International Crisis Group, 24. febrúar 2023);
- Public Statement by Chair of Working Group on Children and Armed Conflict (Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, 9. september 2024);
- Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (Office of the United Nations High Commissions for Human Rights, 12. júlí 2024);
- Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (Office of the United Nations High Commissions for Human Rights, 14. febrúar 2024);
- Resolution 2573(2023) (Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, 11. janúar 2023);
- Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
- The Situation of Women Social Leaders and Human Rights Defenders after the Peace Deal in Colombia (FOKUS, 9. febrúar 2021);
- The State of the World´s Human Rights; Columbia 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
- The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 23. október 2024);
- How peace efforts are making a difference (or not) in Colombia (The New Humanitarian, 15. febrúar 2023);
- UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
- United Nations Verification Mission in Colombia: Report of the Secretary – General (United Nations, 24. mars 2023);
- Why Are Rights Activists Being Targeted in Colombia? (The Dialogue, 8. febrúar 2023);
- World Report 2022 – Events of 2021 (Human Rights Watch, 13. janúar 2022);
- World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
- Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
- Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com);
- Upplýsingar af vefsíðu Global Organized Crime Index (https://ocindex.net/country/colombia, sótt 26. september 2024);
- Upplýsingar af vefsíðu International Citizens Insurance (Overview of Colombia Healthcare System International Insurance, sótt 26. september 2024) og
- Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).
Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 92% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro sé fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og heimildir bendi til þess að hann hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hafi hann heitið því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að eftirlitsaðilar hafi talið kosningarnar frjálsar og þær friðsælustu í áratugi. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að forsetinn hafi valið Francia Márquez sem varaforseta. Hún sé umhverfisverndarsinni af Afró-kólumbískum uppruna og önnur konan til að gegna stöðu varaforseta.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar og ill meðferð af hálfu öryggissveita ríkisins og vopnahópa, víðtæk spilling innan ríkisstofnana, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu auk ofbeldis gegn minnihlutahópa s.s. á grundvelli uppruna, kynhneigðar og kynvitundar. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögum sem leggi refsingu við opinberri spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Ólöglegir vopnahópar beiti ofbeldi, svo sem fjárkúgunum, morðum, mannránum, pyndingum og sprengjuárásum og beiti barnahermönnum. Lögregluyfirvöld rannsaki almennt þessi brot og sæki ábyrga til saka. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir.
Af framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024, má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Narino, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta eða í Cundinamarca héraði. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að sum landsvæði, einkum svæði sem séu rík af náttúruauðlindum og svæði þar sem flutningur fíkniefna eigi sér stað, séu óörugg. Meðlimir afsprengihópa skæruliðahópa, m.a. ELN og FARC, misnoti óbreytta borgara, sérstaklega á svæðum þar sem kókaín sé ræktað. Almenn sundrung og aukning átaka hafi leitt til þess að íbúar verst útsettu svæðanna hafi neyðst til að flýja heimili sín. Í febrúar 2024 greindi skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu mannúðarmála (OCHA) frá því að um 63 þúsund manns hafi þurft að yfirgefa heimili sín og um 88 þúsund manns hafi verið innilokuð sökum hótana og vopnaðra átaka sem sé svipaður fjöldi og árið 2022.
Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 að um 6,7 milljónir íbúa í Kólumbíu séu vegalausir innanlands (e. internally displaced people), flestir vegna vopnaðra átaka í landinu. Samkvæmt lögum hafi 52 opinberar stofnanir í Kólumbíu það hlutverk að veita einstaklingum sem hafi þurft að flýja heimkynni sín aðstoð. Jafnframt séu fjöldi félaga og samtaka í samstarfi með stjórnvöldum og hafi tekið að sér að veita mannúðaraðstoð til þeirra sem hafi þurft að flytjast á brott frá heimasvæði sínu. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni fyrir seinar og ófullnægjandi aðgerðir. Þá hafi mannúðarsamtök aukið fræðslu og dreifingu hreinlætisvara, í tengslum við Covid-19 heimsfaraldurinn.
Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 31. janúar 2024 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir framangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Þó kemur fram m.a. í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að ofbeldi og glæpatíðni hafi tekið að rísa á ný frá árinu 2017. Megi meðal annars rekja hluta þess til að fyrrverandi skæruliðar hafi hafið glæpastarfsemi á ný vegna þess að þeir telji stjórnvöld ekki hafa staðið við sína hlið friðarsamningsins. Í frétt á vef fréttamiðilsins Al Jazeera frá 4. október 2022 kemur fram að kólumbísk yfirvöld og ELN hafi komist að samkomulagi um að hefja friðarviðræður á ný eftir að þeim hafi verið slitið 2018. Þá kemur fram í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að forseti landsins hafi lagt til nýjan friðarsamning við andófsmenn FARC í ágúst 2022, sem hafi verið tilefni gagnrýni frá þeim aðilum er komu að samningaviðræðum vegna friðarsamningsins árið 2016. Forsetinn hafi hafið samningaviðræður við ELN í desember 2022 og hafi það verið fyrstu viðræðurnar við samtökin síðan árið 2019. Í sama mánuði hafi ríkisstjórnin tilkynnt um sex mánaða vopnahlé við ELN, FARC andófsmenn og þrjá aðra glæpahópa. Þá hafi ELN samþykkt vopnahlé til sex mánaða sem hafi byrjað 9. ágúst 2023. Vopnahléið hafi bætt öryggi íbúa þeirra svæða þar sem ítök hópanna séu hvað mest tímabundið. Samkvæmt fréttum hafi vopnahléinu átt að ljúka 29. janúar 2024. Hinn 23. janúar 2024 hafi sjötta umræða friðarviðræðna hafist í Havana á Kúbu og vonast hafi verið til þess að ná samkomulagi um að framlengja vopnahléið auk annarra atriða sem stuðla eigi að friði í Kólumbíu. Í yfirlýsingu frá ELN, dags. 20. febrúar 2024, sögðu samtökin forseta Kólumbíu ekki hafa staðið við gefin loforð og því væru sjöttu viðræðurnar „frystar“ þangað til loforðin yrðu efnd. Hafi þetta sett friðarviðræðurnar í uppnám og óvíst hafi verið með framhaldið. Í nýlegum fréttaheimildum kemur fram að í febrúar 2024 hafi kólumbísk yfirvöld og ELN tilkynnt um framlengingu vopnahlés til sex mánaða frá 6. febrúar 2024.
Samkvæmt upplýsingum af síðu InSight Crime um ELN hafi þau upphaflega verið stofnuð á sjöunda áratugnum sem þjóðernishreyfing undir áhrifum frá kúbversku byltingunni og séu samtökin síðasti stóri uppreisnarhópurinn í Kólumbíu. Samtökin séu með starfsemi bæði í Kólumbíu og Venesúela og hafi stundað í mannrán, fjárkúganir, ólöglega námuvinnslu og fíkniefnaviðskipti. Hin síðari ár hafi hópurinn eflst og stækkað yfirráðasvæði sín m.a. inn fyrir landamæri Venesúela. Þrátt fyrir að friðarviðræður við kólumbísk stjórnvöld hafi mjakast áfram séu innri klofningur og andstaða við afvopnun innan samtakanna gríðarleg áskorun. ELN hafi aukið starfsemi sína á svæðum þar sem kólumbísk stjórnvöld séu veikari fyrir auk þess að vinna í samstarfi við venesúelsk stjórnvöld innan landamæra Venesúela. Þá hafi samtökin starfsemi víða í Kólumbíu en séu öflugust í fylkjunum Chocó, Norte de Santander og Arauca.
Samkvæmt upplýsingum af heimasíðu sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu hafi Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna framlengt umboð verkefnis til 31. október 2023 varðandi framfylgni samningsins um uppbyggingu á dreifbýlli svæðum og málefni þjóðernishópa. Nefndinni hafi verið gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu, þ.m.t. pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC meðlima og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Í skýrslu aðalframkvæmdastjóra frá 24. mars 2023 komi fram að kólumbíska ríkisstjórnin og FARC hafi samþykkt að framlengja umboð Framkvæmdastjórnar til að fylgja eftir og hafa eftirlit með framfylgd friðarsamkomulagsins til fjögurra ára.
Af samantekt gagna um þvingaða nýliðun barna í glæpagengi og skæruliðahópa í Kólumbíu m.a. vefsíðu InSight Crime, og Sameinuðu þjóðanna má ráða að þrátt fyrir friðarumleitanir kólumbískra stjórnvalda við stærstu vopnahópa landsins FARC og ELN þá sé mikilvægt að efla varnir gegn nýliðun barna. Frá árinu 1962 hafi tæplega 17 þúsund börn verið þvinguð til þess að ganga til liðs við vopnaða hópa í landinu. Einkum sé um að ræða börn á aldrinum 12 – 17 ára, börn af frumbyggjaættum og afrískum uppruna auk barna flóttamanna og innflytjenda. Hafi flest þeirra verið þvinguð til að ganga til liðs við ELN og FARC. Þau svæði sem nýliðun hafi verið mest séu svæði þar sem ítök glæpahópa eru mikil, s.s. í Antioquia, Cauca, Chocó, Narino og Valle del Cauca og almennt ástand því oft á tíðum bágt. Nýliðun barna hafi náð ákveðnu hámarki snemma á 20. áratugnum og frá þeim tíma hafi dregið úr henni en þó hafi komið upp ár þar sem toppar í nýliðun hafi verið skráðir. Helstu þættir sem ýti undir slíka nýliðun séu einkum tengd tilvikum þegar glæpahópar séu að efla starfsemi eða hafi misst mannskap vegna átaka eða aðgerða stjórnvalda, vegna aukinnar samkeppni á milli glæpahópa og vegna átaka um yfirráð yfir ákveðnum svæðum. Þá séu vísbendingar uppi um það að yfirstandandi friðarviðræður ýti undir þvingaða nýliðun þar sem ELN vilji efla starfsemi sína sigli friðarviðræðurnar í strand.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að fjöldi kólumbískra og alþjóðlegra mannréttindahópa starfi án takmarkana stjórnvalda, rannsaki og birti niðurstöður um mannréttindamál. Þá séu embættismenn yfirleitt samvinnuþýðir og reiðubúnir að hlusta á áhyggjur staðbundinna mannréttindasamtaka. Nokkur frjáls félagasamtök hafi fengið hótanir en ríkisstjórnin fordæmi hótanirnar og skori á dómsmálaráðherra að rannsaka þau. Í sumum tilvikum hafi aðgerðarsinnum þótt viðbrögð stjórnvalda hæg og lítil. Þá kemur fram að þótt löggjöf í landinu veiti frjálsum félagasamtökum og mannréttindabaráttufólki vernd þá sé traust til slíkrar verndar takmarkað og á síðustu árum hafi hundruð meðlima mannréttindasamtaka, fjölmiðlafólks, leiðtoga frumbyggja og annarra aðgerðarsinna staðið frammi fyrir margvíslegu ofbeldi, líflátshótunum og verið myrtir, einkum af uppreisnarmönnum eða meðlimum glæpasamtaka. Stjórnvöld hafi ekki gripið til fullnægjandi ráðstafana til að vernda þau, refsileysi sé útbreitt og ákærur og sakfellingar eigi sér sjaldnast stað.
Í skýrslu Flóttamannastofnunar frá ágúst 2023 vegna einstaklinga sem flýi Kólumbíu kemur fram að þrátt fyrir viðleitni ríkisstjórnarinnar sé staða mannréttindasinna áfram áhyggjuefni. Mannréttindaverðir verði fyrir hótunum, þvinguðum mannshvörfum, morðum, nauðungarflutningum, handahófskenndri frelsissviptingu, árásum, refsiaðgerðum og kynferðisofbeldi. Meðal fórnarlamba séu leiðtogar þjóðernissamfélaga, leiðtogar samfélagssamtaka, ungmenni, bændur, umhverfisverndarsinnar og baráttufólk fyrir landvernd. Árásir séu oft framdar inni á heimilum þeirra og oft í viðurvist barna þeirra eða fjölskyldumeðlima. Þá hafi fjölskyldumeðlimir þeirra einnig sætt árásum. Að baki árásanna séu ýmsir hópar s.s. vopnahópar sem hafi áður tilheyrt FARC og ELN og aðrir vopnahópar og glæpasamtök. Nokkrar heimildir benda til þess að morðum á mannréttindavörðum hafi fjölgað eftir undirritun friðarsamningsins frá 2016. Fjöldi tilkynntra morða sé þó mismunandi eftir heimildum. Svæðin þar sem fjöldi morða á mannréttindavörðum hafi verið flest árið 2020 séu Cauca, Antioquia og Nariño, þar sem varð veruleg aukning í fjölda fórnarlamba miðað við fyrri ár. Þau svæði þar sem flest morð voru framin á tímabilinu janúar til júní 2022 voru Cauca, Valle del Cauca, Antioquia, Putumayo og Arauca.
Í skýrslu kanadíska innflytjendaeftirlitsins kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett hafi verið á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að undirfjármögnun takmarki getu skrifstofunnar til að fylgjast með misnotkun á áhrifaríkan hátt. Umboðsmaðurinn, sem og meðlimir svæðisskrifstofu umboðsmanns, fái hótanir frá vopnuðum hópum í gegnum ýmsa miðla. Skrifstofa umboðsmanns gefi reglulega út viðvaranir fyrir svæði sem hún telji hættuleg en ríkisstjórnin bregðist hægt við tilmælum og viðvörunum. Þá veiti ríkisstofnunin National Protection Unit einstaklingum vernd sem telji sig þurfa á vernd að halda, m.a. þolendum mannréttindabrota og vopnaðra átaka. Eðli verndarinnar fari eftir áhættumati sem stofnunin framkvæmi fyrir hvern og einn einstakling. Verndin sem stofnunin veiti sé þó ekki alltaf fullnægjandi eða í samræmi við þá hættu sem viðkomandi sé í. Samkvæmt skýrslu UNHCR frá ágúst 2023 hafi sú vernd sem stjórnvöld hafi boðið mannréttindavörðum falist m.a. í því að þeir hafi verið beðnir af yfirvöldum að flytja búferlum. Af þeim sökum leiti ekki margir eftir vernd til að komast hjá því að þurfa að yfirgefa heimili sín og grípi til eigin verndarráðstafana. Dæmi um verndarráðstafanir sem yfirvöld hafi boðið mannréttindavörðum séu neyðarhnappar, skotheld vesti og farsímar. Í alvarlegustu tilfellum fái einstaklingar lífverði og brynvarða bíla.
Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu 10,5% árið 2022 og minnkaði frá árinu 2021 er það var 14,3%. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) beri ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt heimildum sé heilbrigðiskerfið í Kólumbíu með þeim bestu í heiminum og samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni er Kólumbía í 22. sæti yfir skilvirkustu heilbrigðiskerfi í heimi. Heilbrigðisþjónusta í Kólumbíu sé almennt ekki kostnaðarsöm og aðgengi ríkisborgara að heilbrigðisþjónustu almennt gott. Í Kólumbíu er opinbert sjúkratryggingarkerfi (s. Entidades Promotoras de Salud (EPS)). Umrætt sjúkratryggingakerfi sé í boði fyrir alla íbúa Kólumbíu með litlum tilkostnaði. EPS sjúkratryggingakerfið sé með þriggja þrepa greiðslukerfi sem nái yfir greiðsluþátttöku EPS vegna rannsóknarstofuprófa, myndgreininga, sérfræðiheimsókna og lyfja. Þá kemur fram í skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organization, WHO) og innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada að sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu hafi verið í gildi frá árinu 2013. Samkvæmt þeirri löggjöf sé ríkisborgurum Kólumbíu tryggt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og þurfi meirihluti fólks sem sæki þjónustu hjá geðheilbrigðissérfræðingum ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Biðtími geti verið langur en aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum sé betra í þéttbýli heldur en í dreifbýli.
Í framangreindum heimildum, m.a. skýrslu UNHCR frá 2023, skýrslu EUAA frá desember 2022 og bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2024, kemur fram að það búi um 4,6 milljónir einstaklinga af afró-kólumbískum uppruna í Kólumbíu, einkum í fylkjunum Chocó, Valle del Cauca, Cauca, Narino, Antioquia, Bolívar og Cesar. Einstaklingar af afró-kólumbískum uppruna eigi rétt á sömu stjórnarskrár- og lögvörðum réttindum og vernd og aðrir ríkisborgarar landsins. Afró-kólumbíska samfélagið upplifi þó mismunun, fátækt, atvinnuleysi og takmarkað aðgengi að þjónustu, s.s. heilbrigðisþjónustu. Árið 2023 hafi verið áætlað að um 1,4 milljónir einstaklinga af afró-kólumbískum uppruna hafi verið í viðkvæmri stöðu. Þrátt fyrir að friðarsamkomulag hafi falið í sér sérstakan fókus á minnihlutahópa, þ. á m. einstaklinga af afró-kólumbískum uppruna, séu þeir enn berskjaldaðri fyrir átökum og telji um 12,8% einstaklinga sem hafi skráð sig í gagnagrunn um fórnarlömb átaka. Aukið ofbeldi hafi einkum átt sér stað á svæðum nærri Kyrrahafinu vegna eiturlyfjasmygls og deilna á milli vopnaðra glæpahópa um yfirráð. Ógn við einstaklinga af afró-kólumbískum uppruna tengist einkum ólöglegri námustarfsemi, eiturlyfjasmygli og ólöglegri ræktun. Ofbeldi gegn einstaklingum af afró-kólumbískum uppruna eigi sér einkum stað þar starfsemi glæpahópa og ólögleg starfsemi sé mikil auk takmarkaðrar viðveru stjórnvalda. Einstaklingar af afró-kólumbískum uppruna hafi verið fórnarlömb áreitis, ógnunar, morða og ofbeldis. Árið 2023, hafi yfirvöld sett sér stefnu til að stuðla að auknu jafnrétti einstaklinga af afró-kólumbískum uppruna miðað við stefnur fyrri ríkisstjórna. Varaforseti Kólumbíu hafi t.a.m. sett stefnu til að innleiða kafla um minnihluta í friðarsamkomulaginu, sem styðja eigi við einstaklinga af afró-kólumbískum uppruna og stofnuð hafi verið sérstök deild innan jafnréttisráðuneytisins um málefni afró-kólumbískra samfélaga. Að mati UNHCR geti einstaklinga af afró-kólumbískum uppruna þurft á alþjóðlegri vernd að halda en skoða þurfi aðstæður í hverju máli fyrir sig.
Í skýrslu kanadísku innflytjendastofnunarinnar kemur fram að kynbundið ofbeldi sé útbreitt í Kólumbíu. Ofbeldi gegn konum og nauðganir, þ. á m. nauðganir í hjónaböndum, séu vandamál í landinu. Í skýrslunni kemur fram að ofbeldi gegn konum hafi aukist í Covid 19-heimsfaraldinum en að löggjöf í landinu kveði á um jafnrétti kvenna. Í skýrslu Freedom House kemur fram að um 20% þingsæta í hverri þingdeild séu skipuð konum og varaforseti Kólumbíu sé kona. Löggjafinn hafi um árabil hunsað réttindi kvenna en árið 2021 hafi lög verið samþykkt sem ætlað sé m.a. að bæta félagslegar og efnahagslegar aðstæður kvenna. Í framangreindum skýrslum kemur fram að kólumbísk stjórnvöld hafi fullgilt alla gildandi alþjóðasamninga er lúti að mannréttindum og réttindum kvenna og ríkið hafi náð þýðingarmiklum framförum í þróun löggjafar sem styðji jafnrétti kynjanna og mannréttindi kvenna. Sem dæmi um það hafi lög verið sett árið 2014 til að bæta aðgengi þolenda kynferðisofbeldis að réttvísi. Mismunun og ofbeldi gagnvart konum og refsileysi gerenda í slíkum málum sé þó vandamál í ríkinu. Konur verði fyrir kynbundnu ofbeldi, m.a. kynferðisofbeldi, í tengslum við átök tengd glæpastarfsemi og baráttu stjórnvalda við glæpahópa í landinu. Kólumbísk lög leggi skyldu á kólumbísk stjórnvöld að veita þolendum heimilisofbeldis tafarlausa vernd gegn frekara ofbeldi, hvort sem það sé líkamlegt eða andlegt. Þá kveði kólumbísk lög á um 21 til 50 ára fangelsisvist fyrir kynbundin morð á konum (e. femicide) sem sé talsvert þyngri refsing en við morðum af öðrum ástæðum, sem varði að lágmarki 13 ára fangelsisvist. Í skýrslu fulltrúa aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um kynferðislegt ofbeldi í Kólumbíu kemur m.a. fram að stofnun um velferð fjölskyldunnar (s. Instituto Colombiano de Bienestar Familiar) sé starfrækt í landinu. Stofnunin vinni að alhliða velferð barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra og reki svæðisbundnar fjölskyldumiðstöðvar í öllum borgum landsins. Skrifstofa umboðsmanns standi auk þess vörð um mannréttindi bæði þolenda og gerenda þegar um ofbeldi sé að ræða, m.a. með því að veita einstaklingum ráðgjöf og aðstoð. Í skýrslunni kemur fram að starfræktar séu neyðarlínur, þar sé hægt að tilkynna kynbundið ofbeldi. Samkvæmt skýrslu samtakanna Freedom House frá 2023 standi konur frammi fyrir mismunun á vinnumarkaði og verði fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustöðum. Stjórnlagadómstóll Kólumbíu hafi áréttað skyldu fyrirtækja til að bregðast við og refsa fyrir kynbundið ofbeldi á vinnustað. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að lög leggi bann við hvers kyns áreitni á vinnustað og mæli jafnframt fyrir um eins til þriggja ára fangelsisvist fyrir slík brot.
Í yfirliti frá Efnahags- og framfarstofnuninni um menntamál í Kólumbíu fyrir árið 2023 og á heimasíðu World Education News+Reviews kemur fram að í landinu sé skyldubundið grunnskólanám öllum að kostnaðarlausu. Flestir skólar séu ríkisreknir og gert að fylgja lögboðnum námsskrám sem gefin séu út af menntamálaráðuneyti Kólumbíu. Það framfylgi ákveðnum gæðastöðlum menntunar.
5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að vera í hættu í heimaríki vegna mismununar á grundvelli afró-kólumbísks uppruna síns. Þá byggja kærendur á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna ofsókna í tengslum við störf M sem mannréttindasinni og samfélagsleiðtogi.
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að vera af afró-kólumbískum minnihluta. M greindi m.a. frá því að tilheyra fimm nafngreindum mannréttindasamtökum, sem hafi verið þekkt á heimasvæði hans, þar sem hann hafi starfað frá árinu 2013 sem leiðbeinandi um réttindi fólks og til að tryggja að mannréttindi þeirra séu virt. M greindi frá því að hafa starfað sem friðarstjóri og félagsráðgjafi fyrir sveitarfélagið […] í átta ár og hafi verið umsjónarmaður verkefnis um að berjast gegn fátækt. Þá hafi M starfað fyrir nafngreind fyrirtæki í byggingariðnaði og hafi kynnt kosti byggingarverkefna fyrir samfélaginu á árunum 2019-2021. Árið 2021 hafi farið fram stærstu mótmæli í Kólumbíu á móti sitjandi ríkisstjórn. M hafi á þeim tíma starfað að verkefni fyrir einstaklinga sem misst höfðu ástvini í mótmælunum. Í tengslum við þau störf hafi honum borist líflátshótanir. Frá árinu 2013 hafi M verið virkur á samfélagsmiðlum að mótmæla yfirvöldum. Þá greindi M frá því að vera aðili að stjórnmálahreyfingunni […]sem sé studd af stjórnmálaflokknum Partido Liberal Colombiano, hlutverk M hafi verið að kenna pólitískt efni og leiðbeina. M greindi frá því að hafa útskrifast sem félagsráðgjafi árið 2015, vera með diplóma gráður og stunda frekara nám á sama sviði. Þá hafi hann útskrifast sem sérfræðingur í mannréttindafræðslu og þess vegna tekið þátt í starfi mannréttindasamtaka og í ríkisáætlunum um að fræða um mannréttindi og tryggja að þau séu virt. M greindi frá því að hafa fengið líflátshótanir í síma árið 2022 og 13. maí 2023. Þá hafi hann orðið fyrir árás 12. september 2023 þegar að hvítur bíll hafi þvingað hann út af veginum þegar hann hafi verið að keyra á mótorhjólinu sínu. Hinn 6. júní 2023 hafi kærandi lagt fram kæru hjá saksóknara vegna seinni líflátshótunarinnar og saksóknari skipað lögreglu að veita honum vernd í fjóra mánuði. Þá hafi verið óskað eftir frekari vernd frá fjölmörgum embættum m.a. hernum, lögreglunni í Cauca fylki, landvarðadeild og umboðsmanni. M hafi orðið fyrir mismunun þegar hann hafi óskað eftir vernd í Jamundi lögregluumdæmi. Kærandi hafi lagt fram aðra kæru í tölvupósti hjá saksóknara vegna atviksins þar sem hann hafi verið keyrður út af veginum. M greindi frá því að bílsprenging orðið nálægt þar sem hann hafi sinnt störfum sínum og önnur hjá skóla barnanna. M greindi frá því að hafa haft á tilfinningunni að sér hafi verið veitt eftirför eftir símtalið í maí 2023 og að kærendum og börnum hafi verið veitt eftirför eftir árásina í september 2023. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að tilheyra stjórnmálaflokknum Liberal, hafa mætt á viðburði á vegum flokksins en hafi minnkað þátttöku sína eftir að hún hafi eignast börnin. K sé sjúkraþjálfari og hafi tekið þátt í starfi félagasamtaka sem hafi veitt heilbrigðisþjónustu fyrir viðkvæma hópa í dreifbýli í samvinnu við sveitarfélög og sjúkrahúsin. K kvaðst ekki hafa lent í neinum atvikum vegna þessara starfa sinna. Þá hafi K rekið fjölskylduveitingastað í heimaríki. Þegar K hafi verið tíu ára hafi hún verið fórnarlamb vopnaðra átaka þegar að móðir hennar hafi verið skotin af vopnuðum skæruliðahóp og fjölskyldan þurft að flytjast nauðungarflutningum. K greindi frá því að M væri samfélagsleiðtogi sem berjist fyrir mannréttindum. Í september 2023 hafi M lent í árás þegar hann bifreið hafi þvingað hann út af veginum, eftir að þau hafi lifað undir stöðugum hótunum. Hótanir hafi haldið áfram ítrekað og bílsprengja hafi verið sprengd í nágrenni skóla barnanna. K greindi frá því að samstarfsmaður M, ráðherra, hafi verið drepinn og að M hafi starfað með honum að friðarviðræðum á milli glæpahópa. K greindi frá því að þegar þau hafi flutt til fjölskyldumeðlima í júlí eða ágúst hafi þau haft á tilfinningunni að þeim hafi verið veitt eftirför en að M hafi haft á tilfinningunni að honum hafi verið veitt eftirför eftir lífláthótun í síma í maí 2023. K kvaðst ekki vita af hverju M hafi átt að fá lögregluvernd og hún hafi ekki vitað hvort umsókn um að veita M frekari vernd hafi verið í gangi eða að honum hafi verið neitað um vernd hjá einhverjum embættum í heimaríki. .
Kærunefnd telur ýmislegt í frásögnum kærenda draga úr trúverðugleika þeirra, einkum hvað varðar störf M, ástæður þess að M sé í hættu vegna starfa hans og aðstæður í kringum meint áreiti glæpahópa gegn M. Þá er ýmislegt í frásögnum kærenda sem fær ekki stoð í framlögðum gögnum þeirra. M greindi frá því að hafa starfað sem friðarstjóri og félagsráðgjafi hjá sveitarfélaginu […] í átta ár. Af framlögðum gögnum, m.a. samningum við sveitarfélagið og kæru til saksóknara verður hins vegar ráðið að M hafi starfað sem verktaki í sérstökum verkefnum fyrir sveitarfélagið en ekki í föstu starfi. Þá greindi M annars vegar frá því að hann telji það vera glæpahópa sem starfi með yfirvöldum sem hafi áreitt hann, beitt hann ofbeldi og sem honum standi ógn af. M hafi verið virkur á samfélagsmiðlum við að gagnrýna yfirvöld frá 2013. M greinir hins vegar frá því að hafa starfað fyrir yfirvöld í heimaríki líkt og áður greinir, í sveitarfélagi í heimafylki sínu, hann hafi tekið þátt í að innleiða ríkisáætlun um mannréttindi og að hann hafi verið meðlimur stjórnmálaflokks sem sé við völd á heimasvæði hans og sem sé studdur af einum stærsta og elsta stjórnmálaflokki í Kólumbíu. Dregur framangreint misræmi úr trúverðugleika frásagnar kærenda um ástæður meintra ofsókna á hendur M og hverjir það séu sem hafi verið að áreita hann og beita ofbeldi. K greindi frá því að M hafi verið að starfa að friðarsamkomulagi milli glæpahópa ásamt ráðherra, samstarfsmanni M, úr sama stjórnmálaflokki sem hafi verið myrtur í september 2023. M greindi hins vegar hvorki frá því að hafa starfað náið með ráðherranum né að hann hafi starfað að friðarsamkomulagi á milli glæpahópa í heimaríki. Í ljósi þess hversu veigamikið atriði framangreint er dregur það verulega úr trúverðugleika frásagnar kærenda að einungis K hafi greint frá þessu í viðtali sínu. M greindi frá því að hann hafi lagt fram kæru vegna síðara símtals með líflátshótunum 6. júní 2023. K greindi hins vegar frá því að M hafi annars vegar kært símahótanir í júní 2023 en í síðara viðtali hjá Útlendingastofnun breytir hún frásögn sinni og sagði þau hafa kært í maí 2023 og kvaðst vera viss um tímasetningu þar sem þau hafi nýtt þetta til að slíta íbúðarleigusamning sínum. Af framlögðum gögnum verður ráðið að þau hafi slitið leigusamningnum í júní 2023. K greindi frá því að þau hafi lifað undir stöðugum hótunum frá mótmælum árið 2021 þar til að M hafi lent í árás í september 2023 og ofsóknir hafi haldið áfram ítrekað þrátt fyrir að þau hafi flutt. Síðar í viðtali greinir K frá því að síðasta hótun sem M hafi fengið hafi verið í maí 2023. M greindi hins vegar frá því að hafa fengið líflátshótanir í tveimur símtölum, fyrst árið 2022 og aðra í maí 2023, og að þessar hótanir hafi tengst þátttöku hans í mótmælum árið 2021. M greindi frá því að hafa einungis fengið þessar tvær hótanir, en á milli hótana árið 2022 og 2023 hafi honum borist símtöl úr leyninúmerum og hann ekki svarað. Kæra til saksóknara sem kærendur lögðu fram við meðferð máls síns hjá Útlendingastofnun ber annars vegar með sér að M hafi fengið endurteknar hótanir frá mótmælum 2021 og hins vegar að M hafi fengið þrjú símtöl, allt úr leyninúmerum. Þá greindi K frá því að þau hafi haft þá tilfinningu að þeim væri veitt eftirför í júlí og ágúst 2023 þegar þau hafi flutt til fjölskyldumeðlima hennar og að M hafi haft á tilfinningu að honum væri veitt eftirför eftir símtalið í maí 2023. Þetta hafi verið stöðugt og varað fram til loka september mánaðar. Síðar greindi K frá því að það hafi einungis verið M sem hafi verið eltur en ekki hún. M greindi hins vegar frá því að þau hafi tekið eftir grunsamlegum bifreiðum að elta fjölskylduna eftir árásina í september 2023 og að þau hafi tekið eftir þessu í tvö skipti. Þá greindi M frá því að hafa tekið eftir bifreiðum að elta hann eftir líflátshótun í maí 2023. Framangreint misræmi dregur enn fremur úr trúverðugleika frásagna kærenda um umfang hótana þeirra sem M á að hafa borist og þess áreitis sem kærendur kveðast hafa orðið fyrir. M greindi frá því að 27. júní 2023 hafi verið sótt um frekari vernd fyrir hann vegna starfa hans. M greindi frá því að það hafi verið óskað eftir aukinni vernd fyrir hann áður en hann hafi lent í árásinni í september 2023 og hann hafi þá bara verið búinn að fá eitt viðtal til að skoða og kanna hættuástandið. M greindi hins vegar síðar frá því að viðtalið hafi farið fram 21. september 2023, eftir að árásin hafi farið fram. M greindi annars vegar frá því að hann hafi þurft að hætta að fara út og vera í felum eftir árásina 12. september 2023 og hins vegar að eftir viðtalið 21. september 2023 hafi hann þurft að halda áfram félagsstörfum sínum og vinnunni. Þá greindi M frá því að það hafi átt að taka þrjá mánuði að fá svör við því hvort veitt yrði vernd eftir viðtalið. Í síðara viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að honum hafi verið neitað um vernd sem hann hafi óskað eftir. M greindi frá því að hann hafi hringt til að spyrjast fyrir um verndina fimm til átta dögum eftir viðtalið, þrátt fyrir að það hafi átt að taka þrjá mánuði að fá svör. Í símtalinu hafi hann fengið þau svör að ekki væri hægt að veita vernd að svo stöddu. M greindi þá annars vegar frá því að honum hafi verið neitað um vernd í símtalinu vegna þess að það hafi þurft meiri tíma til að meta hvort honum yrði veitt vernd og hins vegar að efni þessa símtals sýndi að það væri ekki í gangi nein vinna við að veita honum vernd. Kærandi greindi frá því að sótt hafi verið um vernd fyrir hann hjá fjölmörgum stofnunum m.a. hernum, umboðsmanni, landvarðliðinu og lögreglunni. Kærendur hafa ekki lagt fram nein gögn sem styðja þá frásögn kæranda að sótt hafi verið um aukna vernd fyrir M hjá framangreindum stofnunum í Kólumbíu. Framangreint misræmi og skortur á framlögðum gögnum dregur verulega úr trúverðugleika frásagna kærenda um umfang verndar sem M greindi frá að hafa átt að fá í kjölfar árásar og líflátshótana í síma vegna starfa hans. M lagði fram gögn um að hann hafi gert samning við sveitarfélagið [...] um tiltekin verkefni. Í höfði skjalanna eru skjölin dagsett 3. mars 2021 en dagsetning í texta skjala sem birtist fyrir ofan undirskriftir eru annars vegar 28. desember 2022 og hins vegar 19. apríl 2023. Þá virðist blaðsíðutal skjalanna ekki vera i samræmi við efni og lengd skjalanna. Framangreint misræmi dregur úr sönnunargildi framangreindra gagna.
Með vísan til framangreindra landaupplýsinga og framlagðra gagna telur kærunefnd þó ekki ástæðu til að útiloka að M hafi tekið þátt í mannréttindastörfum og samfélagslegum verkefnum á heimasvæði sínu og að hann hafi starfað að tilteknum verkefnum fyrir sveitarfélagið […]. Einnig verður lagt til grundvallar að kærendur séu af afró-kólumbískum uppruna og að M hafi stundað það háskólanám sem hann hefur greint frá.
Lagt verður til grundvallar að K hafi verið þolandi vopnaðra átaka þegar hún hafi verið tíu ára og fjölskylda hennar hafi flutt nauðungarflutningum. Af framburði K má ráða að árásin hafi verið tilviljanakennd og ekki verið beint persónulega að móður hennar. Þá er til þess að líta að framangreindir atburðir áttu sér stað fyrir fjölmörgum árum og K greindi ekki frá því að hún hafi sætt einhverjum hótunum eða öðru áreiti henni tengdri síðan.
Þá er ekki ástæða til að efast um að M og K hafi verið aðilar að stjórnmálahreyfingum í heimaríki sínu. M greindi frá því að vera meðlimur stjórnmálahreyfingarinnar […]sem hafi notið stuðnings stjórnmálaflokksins Partido Liberal Colombiano og hafa verið pólitískur leiðtogi. Frásögn M ber hins vegar með sér að hann hafi einkum verið að kenna stjórnmálatengt efni og veita leiðbeiningar og aðstoðað við kosningabaráttu nýs sveitastjóra […] en hafi ekki verið einn af forystumönnum stjórnmálahreyfingarinnar. K kvaðst ekki hafa lent í neinum vandræðum í tengslum við starf hennar fyrir félagasamtök í Kólumbíu og greindi ekki frá neinu áreiti, hótunum eða ofbeldi sem tengdust aðild hennar að stjórnmálahreyfingunni Liberal. Þá er til þess að líta að stjórnmálaflokkurinn sem styður stjórnmálahreyfingu þá sem M kvaðst vera í og flokkur sem K kvaðst vera í, er elsti og einn stærsti stjórnmálaflokkur í Kólumbíu og hefur tekið þátt í stjórnarsamstarfi í landinu þar til í janúar 2025 þegar flokkurinn sjálfur dró sig út úr samstarfi við stjórnarflokkanna. Verður því ekki lagt til grundvallar að þau hafi sætt eða eigi á hættu að sæta ofsóknum af hálfu yfirvalda í heimaríki á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna.
Kærendur kváðust tilheyra minnihlutahópi í heimaríki sem einstaklingar af afró-kólumbískum uppruna. M hafi sætt mismunun af hálfu lögreglu í Jamundi í Valle de Cauca fylki vegna húðlitar síns. Af heimildum má m.a. ráða að einstaklingar af afró-kólumbískum uppruna njóti sömu lagalegra réttinda og allur almenningur í Kólumbíu. Þrátt fyrir að afró-kólumbíska samfélagi upplifi einhverja mismunun og búi einkum á svæðum þar sem öryggi sé skert nái slík mismunun ekki því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Af frásögnum kærenda má ráða að þau hafi verið í launuðum störfum, rekið veitingastað, haft greitt aðgengi að menntun fyrir sig og börn sín, kærendur hafi haft heilsutryggingu í störfum sínum og getað leitað eftir læknisþjónustu á einkareknum sjúkrahúsum fyrir sig og börn sín. Af frásögn M og framlögðum gögnum má ráða að hann hafi getað lagt fram kæru hjá saksóknara, fengið skipaða vernd og veitta vernd hjá lögreglu í [...] og starfað fyrir stjórnvöld á heimasvæði sínu. Af framangreindu verður ráðið að kærendur og börn þeirra hafi ekki orðið fyrir mismunun á grundvelli uppruna síns sem talist getur til ofsókna.
Kærendur bera fyrir sig að K og B séu í hættu í heimaríki á grundvelli kyns síns. Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið bera með sér að konur geti orðið fyrir kynbundu ofbeldi, m.a. kynferðisofbeldi, í tengslum við átök tengd glæpastarfsemi og baráttu stjórnvalda við glæpahópa í landinu. Þá kemur fram að árið 2014 hafi verið sett lög til að bæta aðgengi þolenda kynferðisofbeldis að réttvísi. Skrifstofa umboðsmanns standi vörð um mannréttindi bæði þolenda og geranda þegar um kynbundið ofbeldi sé að ræða m.a. með því að veita einstaklingum ráðgjöf og aðstoð. Neyðarlínur séu starfræktar þar sem hægt sé að tilkynna kynbundið ofbeldi. Í ljósi framangreinds trúverðugleikamats verði ekki lagt til grundvallar að K og B séu í annarri eða verri stöðu en aðrar konur á svæðinu og séu ekki í sérstakri hættu á að sæta áreiti eða meðferð á grundvelli kyns síns sem nái því marki að teljast ofsóknir. Er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér að yfirvöld í Kólumbíu geti almennt veitt vernd gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi eða áreiti, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreinds verður gengið út frá því að K og B standi til boða vernd og aðstoð yfirvalda vegna áreitis telji hún þörf á slíku.
Þrátt fyrir framangreint misræmi í frásögn kærenda verður lagt til grundvallar að uppruni M og störf hans fyrir fimm nafngreind mannréttindasamtök, sjálfboðaliðastörf við eflingu samfélaga og störf að samfélagslegum verkefnum á vegum sveitarfélaga á svæðinu felli hann undir sérstakan þjóðfélagshóp. Framlögð gögn M um að honum hafi verið veitt tímabundin vernd vegna hótana sem honum hafi borist styðja við frásögn hans af því að hann hafi sætt hótunum vegna þeirra starfa. Með vísan til framangreindra landaupplýsinga er að mati kærunefndar ekki hægt að útiloka að M hafi sætt og eigi á hættu að sæta meðferð af hálfu glæpahópa á heimasvæði sínu, Cauca, sem falli undir 37. gr. laga um útlendinga. Af heimildum um Kólumbíu má ráða að glæpatíðni í landinu hafi aukist á ný árið 2024 eftir að hafa lækkað árið á undan. Samningaviðræður á milli yfirvalda og aðgerðir stjórnvalda gegn glæpahópum hafi að einhverju leyti dregið úr átökum síðari hluta ársins 2024 nema í heimahéraði kærenda sem sé það svæði landsins þar sem ofbeldi sé mest og glæpahóparnir Gulf Clan, ELN og EMC keppi um yfirráð. Þrátt fyrir að í heimaríki kærenda sé löggæsla almennt vönduð og skilvirk þá séu svæði þar sem viðvera glæpahópa er slík að yfirvöld verða ekki talin hafa fulla stjórn þar og geti ekki sinnt löggæsluhlutverki sínu gagnvart almennum borgurum sem skyldi. Af framangreindu virtu er það mat kærunefndar að aðstæður á heimasvæði kærenda séu slíkar að kærendur og börn þeirra geti ekki snúið aftur þangað án þess að eiga á hættu meðferð af hálfu glæpahópa sem fellur undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, og að yfirvöld í Kólumbíu geti ekki veitt kærendum og börnum þeirra vernd gegn þeim ofsóknum, sbr. c-liður 4. mgr. 38. gr. sömu laga, á því svæði.
Mat á möguleika á flutningi innanlands
Í 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga segir að ef útlendingur getur fengið raunverulega vernd í öðrum landshluta heimalands síns en hann flúði frá, viðkomandi getur ferðast þangað á öruggan og löglegan hátt og hægt er með sanngirni að ætlast til þess af viðkomandi að hann setjist að á því svæði getur verið að 1. og 2. mgr. eigi ekki við í þeim tilvikum og hann teljist ekki flóttamaður. Niðurstaða um hvort útlendingur geti fengið raunverulega vernd í öðrum hluta heimalands skuli byggð á einstaklingsbundnu mati á persónulegum aðstæðum útlendingsins og þeim aðstæðum sem séu í því landi. Við mat á því hvort hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að útlendingur setjist að á því svæði sem talið er öruggt samkvæmt ákvæði þessu skuli tekið tillit til ýmissa þátta, svo sem aldurs, kyns, heilsu, fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar sem og möguleika viðkomandi útlendings á vinnu eða menntun. Við mat samkvæmt ákvæðinu skuli m.a. höfð hliðsjón af leiðbeiningum flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Guidelines on International Protection: „Internal Flight or Relocation Alternative“ within the Context of Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relating to the Status of Refugees, frá 23. júlí 2003).
Í leiðbeiningum, sem varða möguleika á flutningi innanlands þegar einstaklingur hefur flúið heimaríki af ástæðuríkum ótta við ofsóknir, er lagt til grundvallar að mat á því hvort möguleiki sé á að einstaklingur geti flust búferlum til annars svæðis í heimaríki sé tvíþætt. Annars vegar verði að kanna hvort flutningur innanlands sé raunhæft úrræði. Að því er mál kærenda varðar kemur í þessu sambandi einkum til athugunar hvort það svæði sem lagt er til að þau flytjist til sé aðgengilegt á öruggan og löglegan hátt og hvort flutningur þeirra þangað skapi hættu á að kærendur og börn þeirra verði fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða. Hins vegar beri að kanna hvort viðkomandi geti, með hliðsjón af aðstæðum í heimaríki sínu, lifað tiltölulega eðlilegu lífi án þess að standa frammi fyrir óþarfa erfiðleikum. Við þann þátt matsins verður m.a. að horfa til persónulegra aðstæðna viðkomandi, t.a.m. félags- og efnahagslegra aðstæðna á því svæði sem lagt er til. Í leiðbeiningunum segir m.a. um síðastnefnt atriði að það sé ósanngjarnt að ætlast til þess að lífsviðurværi einstaklings verði lægra en það sem talist geti viðunandi eða að viðkomandi búi við eymd.
Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í Kólumbíu bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum í Kólumbíu, m.a. í heimahéraði kærenda, er það mat kærunefndar að gögnin sýni fram á að á öruggari svæðum, s.s. Bógóta, geti kólumbísk yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna. Að jafnaði hafi kólumbísk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra góða stjórn á þeim svæðum og séu þau svæði nokkuð friðsæl og örugg. Þá séu lögregluyfirvöld í landinu að öllu jöfnu öflug og fagleg. Verður ekki talið að aðstæður á öruggari svæðum Kólumbíu séu slíkar að hver sem þar er staddur eigi á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.
Nokkrir alþjóðlegir flugvellir eru utan átakasvæða í landinu. Kærendur og börn þeirra eru handhafar kólumbískra vegabréfa og ekki verður annað séð en að öruggari svæði séu þeim aðgengileg á öruggan og löglegan hátt.
Kærunefnd telur að þegar litið er til möguleikans á innri flutningi megi m.a. líta til umfjöllunar Flóttamannastofnunar um innri flutning í Kólumbíu frá ágúst 2023, þar sem rakið er að líta verði til þess hversu miklar líkur séu á að viðkomandi verði eltur uppi af glæpahópi á þann stað sem hann flytur innanlands. Eins og fram hefur komið kveða kærendur að ofsóknir glæpahópsins hafi beinst að M vegna mannréttinda- og samfélagsstarfa hans, vegna uppruna hans og aðildar að stjórnmálahreyfingu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur litið til tíðkast slíkt í heimaríki kæranda ásamt annarri glæpastarfsemi, sérstaklega á svæðum þar sem ítök glæpahópa eru sterk. Þá hafi lögreglan ekki burði til að vernda aðila á svæðum þar sem glæpahópar séu mest áberandi og ekki nægur mannskapur eða bolmagn til að sinna löggæslu. Líkt og komið hefur fram var það mat kærunefndar að kærendur og börn þeirra geti ekki notið verndar yfirvalda á heimasvæði sínu. Að mati kærunefndar verður hins vegar ekki annað leitt af gögnum málsins en að þær ofsóknir sem kærendur kveðast eiga á hættu að verða fyrir séu að mestu staðbundnar við heimasvæði þeirra, þar sem glæpahópar hafi sterk ítök, og þar sem mannréttindasamtök sem M hafi verið aðili að séu þekkt. Þá telur kærunefnd að verði kærendur fyrir áreiti af hálfu meðlima glæpahópa í Bógóta þá geti þau leitað til lögreglu eftir aðstoð og vernd. Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að flutningur innanlands komi til álita í máli kærenda og barna þeirra.
Að uppfylltu fyrra skilyrði við mat á möguleika á flutningi innanlands verður því næst að taka afstöðu til þess hvort unnt sé, með hliðsjón af einstaklingsbundnum aðstæðum kærenda og aðstæðum í heimaríki þeirra, að ætlast með sanngirni til þess að kærendur og börn þeirra setjist að á öðru svæði í Kólumbíu. Af gögnum málsins verður ekki annað ráðið en að kærendur séu við ágæta heilsu og vinnufær. M hafi stundað fjölmörg störf og stundað háskólanám í fjölmörgum fögum, þá hafi K starfað við sjálfboðastörf og rekið veitingahús og fjárhagur þeirra verið stöðugur. Allir landsmenn hafa aðgang að almannatrygginga- og velferðarkerfi auk þess sem íbúum landsins er tryggður aðgangur að heilbrigðisþjónustu og börn kærenda hafi aðgang að gjaldfrjálsri menntun í heimaríki. Kærunefnd telur líkur standa til þess að kærendur hafi atvinnutækifæri í heimaríki og ættu ekki að eiga í teljandi erfiðleikum með að aðlagast á nýjum stað innan landsins. Jafnvel þótt kærendur kveði fjölskyldur sínar vera búsettar á svæði sem kærendur geti ekki snúið aftur til lítur kærunefnd til þess að kærendur eru fæddir og uppaldir í landinu auk þess sem þau hafa búið og starfað þar nánast alla tíð. Er það mat kærunefndar að ekki hafi verið gert líklegt að staða kærenda og barna þeirra sé verri en annarra einstaklinga í sambærilegri stöðu, s.s. vegna uppruna þeirra, að því marki að það hafi áhrif á möguleika þeirra til flutnings innanlands.
Er það mat kærunefndar að hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að kærendur og börn þeirra setjist að annars staðar í Kólumbíu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að skilyrði 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um flutning innanlands séu uppfyllt og teljist kærendur því ekki flóttamenn. Þá falla aðstæður kærenda að öðru leyti ekki undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærendur og börn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga kærendur og börn þeirra ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í Kólumbíu telur kærunefnd að þrátt fyrir að ótryggt ástand ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kærenda, geti þau og börn þeirra sest að annars staðar, t.d. í Bógóta, sem sé öruggt svæði. Telur kærunefnd að almennar aðstæður kærenda og barna þeirra séu ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli erfiðra almennra aðstæðna.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hann hafi komið til Íslands með mikið af líkamlegum áverkum eftir árás í september 2023 og hann hafi verið greindur með [...] og [...]. M greindi frá því að eftir árás hafi hann fengið margskonar læknisþjónustu í heimaríki. Þá hafi hann verið í rannsóknum vegna [...]. M kvaðst nú þjást af [...] en ekki vera með neina sjúkdóma. M kvaðst hafa farið í rannsóknir í Kólumbíu. M kvað andlega heilsu sína ekki vera góða og hann hafi verið greindur með kvíða í Kólumbíu í júní 2023. M hafi verið lagður inn á spítala þar sem hann hafi fengið [...] vegna líflátshótananna, hann hafi fengið lyf og haldið áfram að ganga til sálfræðings. Útbrot hafi versnað og blóðþrýstingur hækkað. M sé ekki á neinum lyfjum við kvíða núna. M greindi frá því að börn hans hafi þjáðst af veikindum út af þessu öllu, hafi verið ofsahrædd og vaknað á nóttunni með martraðir. Börnin hafi ekki verið greind með kvíða. A hafi lent í mismunun hér á landi vegna húðlitar. Börnin séu ekki með neina sjúkdóma. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að vera við góða líkamlega heilsu. K kvaðst hafa verið buguð á því að hafa þurft að yfirgefa heimili sitt, hafi fengið útbrot og sofið lítið, en nú sé hún rólegri. K greindi frá því að börnin séu heilsuhraust. K greindi frá því að A líði illa og vilji snúa aftur til heimaríkis út af atvikum sem hafi hent hann á Íslandi. B hafi lítið farið fyrir utan heimilið og það sé í lagi með hana. Börnin séu ekki með neina sjúkdóma. Börnin hafi þurft að sækja læknisþjónustu í heimaríki, en þar sem heilbrigðiskerfið í Kólumbíu sé ekki skilvirkt hafi þau þurft að leita þjónustu hjá einkareknum sjúkrahúsum. K greindi frá því að kærendur hafi borgað heilsutryggingu í gegnum vinnu sína og hafi verið aðilar að sjúkratryggingakerfinu í heimaríki.
Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þau eða börn þeirra glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur eða börn þeirra þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærendur og börn þeirra hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki, m.a. sálfræðiaðstoðar, og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau og börn þeirra muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau eða börn þeirra hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera samfélagsleiðtogi og baráttumaður fyrir mannréttindum og hafa starfað sem slíkur á ýmsum vettvangi. Þá hafi hann lokið ýmsu háskólanámi. M hafi getað framfleytt sér í heimaríki og hann eigi dóttur, foreldra, ömmu og frændfólk í heimaríki. M greindi frá því að börn hans hafi verið í skóla í heimaríki. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að tilheyra minnihlutahópi einstaklinga af afró-kólumbískum uppruna, vera menntaður sjúkraþjálfari og hafa starfað með félagasamtökum við að veita heilbrigðisþjónustu til viðkvæmra hópa í dreifbýli. Aðalstarf hennar hafi verið að reka fjölskylduveitingastað. K greindi frá því að börn kærenda hafi gengið í einkarekinn skóla í heimaríki. K kvaðst geta framfleytt sér í Kólumbíu. K kvaðst skulda fjölskyldumeðlimum og bankanum en ekki mjög mikið. K greindi frá því að eiga foreldra, frænkur, frænda og tengdaforeldra í heimaríki.
Kærendur hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér og börnum sínum í heimaríki. Kærendur og börn þeirra hafa haft greitt aðgengi að námi. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærendur sé heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og barna þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kærenda og aðstæðna barna almennt í Kólumbíu í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Í Kólumbíu er gjaldfrjáls menntun og þau hafa aðgengi að heilbrigðisþjónustu í heimaríki. Hvorki almennar aðstæður í Kólumbíu né einstaklingsbundnar aðstæður barnanna í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barna þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða börn þeirra hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 8. október 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barna þeirra. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barna þeirra þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barna þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Í greinargerð kærenda er því haldið fram að beiting brottvísunar og endurkomubanns gangi gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og réttmætisreglu stjórnsýsluréttar. Kærendur telji að með hliðsjón af málsatvikum, það að kærendur hafi leitað til Íslands í neyð sinni og að umsóknir þeirra hafi ekki verið bersýnilega tilhæfulausar séu skilyrði 3. mgr. 102 gr. laga um útlendinga uppfyllt.
Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og börnum þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærendur kváðust ekki hafa nein tengsl við Ísland eða önnur ríki á Schengen-svæðinu. M teldi brottvísun og endurkomubann vera ósanngjarnar ráðstafanir vegna þess að hann yrði settur í hættu í heimaríki. K kvað brottvísun og endurkomubann ekki vera ósanngjarnar ráðstafanir.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um málsatvik, aðstæður kærenda og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og barna þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn. Verður því ekki talið að sú ráðstöfun brjóti gegn meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barna þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir