12 febrúar 2025

/

Úrskurður nr. 118/2025


Hinn 12. febrúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 118/2025

í stjórnsýslumálum nr. KNU 24090096 og KNU24090097

Kæra [...] þeirra á ákvörðunum Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 13. september 2024 kærðu […], fd. […] (hér eftir M), […], fd. […] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 30. ágúst 2024, um að synja þeim og barni þeirra, […], fd. […] (hér eftir A) ríkisborgara Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og barn þeirra eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 12. október 2023. Kváðust kærendur hafa flúið heimaríki vegna ofsókna glæpagengis. M hafi starfað sem lögreglumaður frá árinu 2014 og orðið fyrir ofsóknum í kjölfar þess að hann hafi haft afskipti af meðlimum glæpagengis vegna skyldustarfa sinna. M hafi m.a. verið barinn og skotið hafi verið á heimili hans. Þessu til staðfestingar hafi M lagt fram lögregluskýrslur þar sem hann hafi tilkynnt um atvikin.

Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 23. apríl 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Kærendur kváðust vera fædd og uppalin í Valencia í Carabobo fylki í Venesúela þar sem þau hafi jafnframt búið áður en þau hafi flúið land ásamt barni sínu í október 2023. M kvaðst hafa starfað sem lögreglumaður hjá PNB (s. Policía Nacional Bolivariana)og Kstarfað sem afgreiðslukona í matvöruverslun.

Aðalástæðu flótta frá heimaríki kváðu kærendur vera ofsóknir af hálfu Colectívos glæpahóps. M hafi starfað sem lögreglumaður og verið á vakt 15. ágúst 2023 og sinnt eftirliti með götum borgarinnar ásamt samstarfsmanni. M hafi stöðvað tvo grunsamlega einstaklinga við akstur og við skoðun á ökutæki þeirra hafi hann fundið margar tegundir ólöglegra skotvopna. M hafi í kjölfarið handtekið viðkomandi einstaklinga og lagt hald á skotvopnin. Annar aðilanna hafi þá hótað M og tekið fram að því fylgdu afleiðingar að handtaka meðlimi Colectívos. M hafi hringt í yfirmann sinn og sagt honum frá hótuninni en yfirmaðurinn hafi skipað M að fara með einstaklingana á lögreglustöðina. M hafi fylgt fyrirmælum yfirmanns síns, skilað mönnunum á lögreglustöðina og þar með lokið vakt sinni 15. ágúst 2023. Eftir að M hafi verið kominn heim hafi hann fengið símtal frá yfirmanni sínum sem kvaðst hafa verið skipað af yfirvöldum að láta mennina lausa. M kvað yfirmann sinn jafnframt hafa tekið fram að hann ætli ekki að axla neina ábyrgð á gjörðum þessara einstaklinga eftir að þeir yrðu látnir lausir. M kvaðst ekki hafa haft miklar áhyggjur af því að einstaklingarnir yrðu látnir lausir, enda vanur alls konar hótunum í starfi sínu. Daginn eftir, 16. ágúst 2023, hafi M verið að horfa á sjónvarpið ásamt eiginkonu og barni þegar hann hafi heyrt skothljóð við heimili hans. Kærendur hafi brugðist fljótt við og farið með barnið í bakgarð hússins og hafi þau heyrt glæpamennina hóta M lífláti. Í kjölfarið hafi M farið með K og A á heimili nágranna. Þá hafi M heyrt að glæpamennirnir hafi komist inn á heimili hans og þeir hafi brotið glugga og lagt allt heimilið í rúst. Eftir að glæpamennirnir hafi yfirgefið heimili hans hafi M hringt í yfirmann sinn og óskað eftir aðstoð en fengið þau svör að það væru engir lögreglumenn á svæðinu og hann þyrfti að leysa úr vandanum sjálfur. M hafi í kjölfarið haft samband við samstarfsmenn sína sem hafi komið til aðstoðar um tveimur klukkustundum síðar. Samstarfsmenn hans hafi aðstoðað hann við að týna saman persónulega muni. M hafi morguninn eftir farið á lögreglustöðina og lagt fram kæru. Eftir að M hafi lagt fram kæru hafi hann mætt til vinnu á ný en verið færður til í starfi og fengið að starfa innandyra. Þá hafi M jafnframt flutt með fjölskyldu sína til ömmu K. Aðspurður hvort samstarfsmaður hans sem hafi aðstoðað hann við handtökuna hafi jafnframt fengið hótanir eða orðið fyrir áreiti glæpagengisins kvaðst M ekki vita til þess.

Hinn 1. september 2023, hafi kærandi verið fyrir utan heimili ömmu K þegar tveir menn hafi mætt á mótorhjóli og haft í hótunum við hann. Mennirnir hafi síðan lamið hann, hent honum í götuna og haldið áfram að berja hann. M kvað aðra íbúa hverfisins hafa staðið stjarfir af ótta og horft á. K greindi frá því að þegar hún hafi séð hvað væri að gerast hafi hún hlaupið í áttina að þeim en einn glæpamannanna hafi rifið í hár hennar og hrint henni í götuna. M kvað báða mennina hafa tekið upp skotvopn og miðað að höfði K og A. Annar mannanna hafi þá skotið úr vopninu upp í loftið. M kvaðst á þessu augnabliki hafa haldið að hann myndi aldrei sjá dóttur sína aftur en þá hafi lögreglubíll mætt á vettvang og í kjölfarið hafi hafist skotbardagi á milli mannanna og lögreglunnar. Glæpamönnunum hafi tekist að lokum að flýja vettvang. M kvaðst hafa fengið aðstoð frá lögreglunni sem hafi flutt hann á næsta sjúkrahús. M kvaðst þá hafa lagt fram aðra kæru gegn glæpamönnunum. M kvað glæpamennina að baki árásunum ekki hafa verið þá sömu og hann hafi handtekið 15. ágúst 2023. Hafi kærendur á þessum tímapunkti áttað sig á því að þau væru hvergi óhult í heimaríki. Kvað M öll rifbein sín hafa skaðast og hann átt erfitt með að hreyfa sig. Þá hafi hann verið óþekkjanlegur vegna mikillar bólgu í andliti og líkaminn allur verið blár og marinn. M kvaðst hafa fengið læknisvottorð þar sem fram hafi komið að hann hafi verið óvinnufær sökum líkamlegra áverka í kjölfar árásarinnar. Hafi K því farið með lögreglubúning og lögregluskírteini M á lögreglustöðina og í kjölfarið hafi kærendur flúið með A til Anzoategui fylkis til frænku M. Þau hafi þá flakkað á milli húsa í Anzoategui fylki á meðan þau hafi beðið eftir því að geta flúið land.

M kvað þetta ekki hafa verið í fyrsta skiptið sem hann hafi fengið hótanir frá meðlimum Colectívos. M greindi frá því að árið 2017 hafi kærandi stöðvað bíl sem hafi verið fullur af skotvopnum, en þá hafi hann verið með yfirmann með í för sem hafi fengið símhringingu frá yfirvöldum um að láta mennina lausa. Aðspurður kvað hann hótanirnar og áreitið aðeins hafa farið fram í persónu en ekki með smáskilaboðum eða símhringingum. Aðspurð kvaðst K aldrei sjálf hafa fengið hótanir eða verið áreitt af glæpahópnum. Kærendur kváðust ekki hafa fengið neina aðstoð frá yfirvöldum eða lögreglunni þrátt fyrir að hafa lagt fram kæru í tvígang.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barns kærenda kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við barnið með vísan til ungs aldurs þess og framburðar foreldra þess.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kærendum og barni þeirra synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Barni kærenda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 13. september 2024 og kærunefnd barst sameiginleg greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 27. september 2024, 8. október 2024, 24. október 2024 og 27. janúar 2025. Með tölvubréfi, dags. 3. febrúar 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kærendum. Kærunefnd bárust frekari upplýsingar frá kærendum með tölvubréfi, dags. 5. febrúar 2025. Þá óskaði kærunefnd með tölvubréfi, dags. 6. febrúar 2025, eftir frekari upplýsingum við spurningum nefndarinnar frá kærendum. Kærunefnd bárust svör kærenda með tölvubréfi, dags. 10. febrúar 2025.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Hvað varðar málavexti og aðstæður kærenda er í greinargerð vísað til fyrirliggjandi gagna málsins. Í greinargerð kærenda kemur fram að M hafi starfað innan lögreglunnar áður en hann hafi lagt á flótta frá heimaríki og hafi orðið fyrir ofsóknum af hálfu Colectívos eftir að hann hafi handtekið meðlimi þeirra og lagt hald á bíl sem hafi verið fullur af ólöglegum skotvopnum. Vísa kærendur til skýrslu Landinfo þar sem fram kemur að Colectívos sé skilgreint sem sameiginlegt heiti vopnahópa starfandi í Venesúela með stuðningi við ríkisstjórnina. Samtökin samanstandi af hópum sem kunni að vera allt að 100 mismunandi flokkar og séu staðsettir um allt land. Þá er vísað til þess að fram komi í skýrslu útgefinni af EASO árið 2020 að ríkisstarfsmenn sem ekki séu samvinnufúsir yfirvöldum og sýni ekki ríkisstjórn landsins stuðning séu sérstakt skotmark yfirvalda og vopnahópa þeirra, Colectívos. Til sé fjöldi frétta sem sýni fram á að lögreglumenn séu sérstakt skotmark Colectívos þegar störf þeirra hindri starfsemi glæpahópanna. Til að mynda hafi að minnsta kosti 53 lögreglufulltrúar verið myrtir í Venesúela árið 2022 samkvæmt frjálsa fjölmiðlinum Effect Cocuyo.

Í greinargerð kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. Í hinni kærðu ákvörðun virðist stofnunin ekki efast um frásögn kærenda, en þó komist stofnunin að þeirri niðurstöðu að M hafi ekki sýnt fram á að hann sé sérstakt skotmark glæpahópa í heimaríki. Árétta kærendur að mat á trúverðugleika sé ólögfest mat stjórnvalda. Kærendur gera alvarlega athugasemd við mat Útlendingastofnunar hvað varðar framlagðar lögregluskýrslur. Ómálefnalegt sé að meta hvert og eitt skjal í tómarúmi. Byggja kærendur á að hinar kærðu ákvarðanir samræmist ekki rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar.

Þá vísa kærendur til þess að börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd og sé stjórnvöldum skylt að hafa það sem sé börnum fyrir bestu að leiðarljósi þegar þau taki ákvarðanir um málefni þeirra, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003, og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Þá beri samkvæmt 1. mgr. 22. gr. sama samnings að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu flóttamanns fái viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta þau réttindi sem við eiga og kveðið er á um í samningnum og öðrum alþjóðlegum löggerningum á sviði mannréttinda- og mannúðarmála. Ef litið sé til hagsmuna barns kærenda hér á landi til samanburðar við Venesúela sé auðséð að öryggi hennar, velferð og félagslegum þroska hennar sé betur borgið hér og það myndi ganga þvert gegn hagsmunum hennar að dvelja í Venesúela.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og barni þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja í fyrsta lagi á ástæðuríkum ótta við ofsóknir á grundvelli aðildar að þjóðfélagshópi sem fórnarlömb glæpahóps. Kærendur hafi fengið líflátshótanir og orðið fyrir ofsóknum af hálfu liðsmanna Colectívos. Einungis tilviljun hafi ráðið því að ekki hafi orðið mannfall við báðar þær árásir sem kærendur hafi greint frá. Framburður kærenda hafi verið nákvæmur, skýr og einsleitur auk þess sé hann studdur fjölda gagna. Lífi og frelsi kærenda hafi verið ógnað vegna aðgerða M sem lögreglumanns gegn liðsmönnum Colectívos. Staðreyndin sé sú að Colectívos starfi gjarnan í samstarfi við, eða hið minnsta undir verndarvæng ríkisstjórnar Maduro forseta. Í öðru lagi tilheyri M sérstökum þjóðfélagshópi sem liðhlaupi úr lögreglunni, en slíkir aðilar séu sérstakt skotmark þarlendra stjórnvalda. Kærendur vísa til þess að með greinargerð til kærunefndar hafi þau lagt fram bréf sem hafi nýlega borist til M frá ráðuneyti alþýðuvalds fyrir innanríkistengsl, réttlæti og frið (sp. Ministerio del Poder Popular para Relaciones Interiores, Justicia y Paz). Í bréfinu komi fram að M sé sakaður um að hafa yfirgefið lögregluna og liggi refsiábyrgð við því. M telji ljóst að hann sé talinn stjórnarandstæðingur og föðurlandssvikari fyrir að hafa yfirgefið starf sitt í lögreglunni og heimaríki sitt. Kærendur tilheyri í þriðja lagi þjóðfélagshópi einstaklinga í Venesúela sem hafa yfirgefið landið. Vísa kærendur til þeirrar óvissu sem ríkt hafi um venesúelska ríkisborgara sem hafi verið endursendir til Venesúela 15. nóvember 2023. Benda fréttaumfjallanir til þess að venesúelskir ríkisborgarar sem snúi aftur eftir flótta séu skráðir sérstaklega og geti átt von á að vera sakaðir um föðurlandsvik. Fréttir fjölmiðla frá Venesúela hermi að fólkið hafi verið í varðhaldi í allt að 48 klukkustundir í slæmum aðstæðum. Loks hermi fréttir að fólki hafi verið gert að játa á sig landráð. Þá sé af upplýsingum á vef dómsmálaráðuneytisins gert ráð fyrir að þeir sem muni snúa til baka í framtíðinni muni hljóta sömu meðferð. Kærendur byggja á því að öll málsatvik í heild, með hliðsjón af almennu ástandi í Venesúela geri ótta þeirra ástæðuríkan.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og barni þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Varakröfu sinni til stuðnings vísa kærendur m.a. til þeirra málsástæðna sem raktar hafa verið í aðalkröfu. Kærendur hafi greint frá ástæðum sem benda sterklega til þess að þau hafi og eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í Venesúela, einkum í ljósi athafnaleysis ríkisins á að veita þeim vernd sem helgast af tengslum þarlendra stjórnvalda við Colectívos.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og barni þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Fyrir liggi að réttarkerfi í heimaríki kærenda sé að hruni komið, mannréttindabrot séu þar ríkjandi og yfirvöld veiti þegnum þess ekki viðhlítandi vernd gegn ofbeldi eða glæpum. Um þetta vísa kærendur til aðal- og varakröfu kærenda og málsástæðna. Hvað félagslegar aðstæður varðar vísa kærendur til þess að M sé menntaður lögreglumaður og eigi því ekki afturkvæmt í það starf. Kærendur séu ótvírætt í erfiðri félagslegri stöðu, enda sé þeim ekki stætt að stunda atvinnu í landinu þegar aðstæður eru slíkar að þau þurfi að fela sig frá Colectívos sem séu með djúp tengsl við þarlend stjórnvöld. Fyrir liggi umtalsvert af upplýsingum sem benda eindregið til bágrar félagslegrar stöðu þeirra sem verða fyrir ofsóknum Colectívos í Venesúela.

Með endursendingu kærenda og barns þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við töku ákvörðunar Útlendingastofnunar. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar sem leiði til þess að fella verði ákvörðunina úr gildi. Til viðbótar telur kærandi að trúverðugleikamat Útlendingastofnunar sé annmörkum háð sem og meðferð heimilda.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

5.3 Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og barn sitt. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og barn þeirra hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og barn þeirra séu venesúelskir ríkisborgarar.

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 18. janúar 2025);
  • UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);.
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezeula (Britannica, síðast uppfært 26. janúar 2025);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 23. janúar 2025);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
  • Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
  • World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025.

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Emundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.

Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða álitnum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðarsinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahóps myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.

Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en  undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskir ríkisborgarar aðstoð við sjálfviljugar heimför til Venesúela á árinu 2024. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja kröfur sínar um alþjóðlega vernd á því að þau óttist ofsóknir glæpahóps í heimaríki sínu. Þá byggja kærendur á að M tilheyri sérstökum þjóðfélagshópi sem liðhlaupi úr lögreglunni auk þess sem kærendur tilheyri þjóðfélagshópi einstaklinga í Venesúela sem hafa yfirgefið landið.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kváðu kærendur aðalsástæðu flótta þeirra frá heimaríki hafa verið ofsóknir af hálfu Colectívos glæpahóps. M hafi starfað sem lögreglumaður hjá PNB og verið við störf 15. ágúst 2023 ásamt samstarfsmanni, þegar hann hafi stöðvað tvo einstaklinga við akstur og lagt hald á ólögleg skotvopn sem þeir höfðu í fórum sér. Á meðan M hafi handtekið viðkomandi aðila hafi annar aðilinn hótað M og tekið fram að því fylgdu afleiðingar að handtaka meðlimi Colectívos. Þann sama dag hafi einstaklingarnir verið látnir lausir að beiðni yfirvalda. Daginn eftir, 16. ágúst 2023, hafi kærendur heyrt skothljóð við heimili þeirra og neyðst til að flýja heimili sitt um bakdyr og leita sér skjóls hjá nágrönnum. Hafi kærendur heyrt að glæpamennirnir hafi komist inn á heimili þeirra og heyrt þá brjóta glugga og leggja heimilið í rúst. Þá kvaðst M hafa heyrt mennina kalla hann uppljóstrara og að þeir ætluðu að drepa hann. M hafi hringt í yfirmann sinn og óskað eftir aðstoð en fengið þau svör að engir lögreglumenn væru á svæðinu og M þyrfti að leysa úr þessum vanda sjálfur. M hafi þá haft samband við samstarfsmenn sína sem hafi komið og aðstoðað hann við að tína saman persónulega muni. M hafi morguninn eftir farið á lögreglustöðina og lagt fram kæru. M hafi síðan flúið með fjölskyldu sína á heimili ömmu K í leit að öryggi. Hinn 1. september 2023, hafi kærandi verið fyrir utan heimili ömmu K þegar tveir menn hafi mætt á mótorhjóli, kallað hann uppljóstrara og spurt hann hvort hann héldi að þeir hefðu gleymt honum. Mennirnir hafi barið hann og hent honum í götuna. K greindi frá því að þegar hún hafi séð hvað væri að gerast hafi hún hlaupið í áttina að þeim en einn glæpamannanna hafi rifið í hár hennar og hrint henni í götuna. M kvað báða mennina hafa tekið upp skotvopn og miðað að höfði K og A. Annar mannanna hafi þá skotið úr vopninu upp í loftið en þá hafi lögreglubíll mætt á vettvang og í kjölfarið hafi mennirnir skotið í átt að lögreglumönnunum sem hafi skotið til baka. Glæpamönnunum hafi að lokum tekist að flýja vettvang. Kvaðst M hafa fengið aðstoð frá lögreglumönnunum sem hafi flutt hann á næsta sjúkrahús. Þá kvaðst M hafa lagt fram kæru gegn glæpamönnunum. M kvaðst hafa verið illa útleikinn eftir árásina og fengið vottorð þar sem fram hafi komið að hann væri óvinnufær sökum líkamlegra áverka. K hafi skilað inn lögreglubúningi og lögregluskírteini M á lögreglustöðina og í kjölfarið hafi M flúið með fjölskyldu sína til Anzoategui fylkis til frænku M. Þau hafi flakkað á milli húsa í Anzoategui fylki þangað til þau hafi flúið heimaríki rúmum mánuði síðar. Aðspurð kvaðst K sjálf aldrei hafa fengið hótanir eða verið áreitt af glæpahópnum.

Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.

Í greinargerð kærenda er byggt á því að M tilheyri sérstökum þjóðfélagshópi sem liðhlaupi úr lögreglunni. Fram kemur að slíkir aðilar séu sérstakt skotmark þarlendra stjórnvalda. Þá er í greinargerð byggt á því að kærendur hafi sætt ofsóknum af hálfu glæpasamtakanna Colectívos sem starfi með stjórnvöldum og lögreglu í Venesúela. Lögreglan hafi ekki getu eða vilja til að veita vernd gegn slíkum hópum. M hafi starfað sem lögreglumaður sem starfi ekki með slíkum hópum og tilheyri því sérstökum þjóðfélagshópi í aukinni hættu á ofsóknum.

Samhliða greinargerð til kærunefndar lögðu kærendur fram skjal frá PNB dags. 11. janúar 2024. Ofarlega á skjalinu er efni skjalsins tilgreint sem opnun sakamáls. Vísað er til þess að M hafi fengið tvær boðanir um að mæta til vinnu, fyrst 10. nóvember 2023 og síðar 4. janúar 2024. Þá kemur fram að 10. janúar 2024 hafi ICAP falið yfirmanni í PNB ásamt þremur embættismönnum að vitja heimili kærenda. Embættismennirnir hafi komið að yfirgefnu heimili kærenda en hitt fyrir nágranna sem hafi sagt þeim að nokkrum dögum áður hafi verið ráðist á M og því hafi hann yfirgefið heimili sitt og landið. Nokkrum klukkustundum síðar hafi mennirnir hitt fyrir ættingja M sem hafi staðfest upplýsingarnar um það að hann hafi yfirgefið landið af ótta við hefndaraðgerðir gegn fjölskyldu sinni. Fram kemur að af þeim sökum hafi verið opnað sakamál á hendur M á grundvelli þess að hann hafi yfirgefið starf sitt og þurfi því að sæta lagalegum viðurlögum vegna vanefnda á skyldum sínum að þjóna landinu og væri ráðuneyti hins opinbera (s. Ministerio Publico) falin rannsókn málsins.

Við meðferð málanna hjá kærunefnd lögðu kærendur fram afrit tveggja bréfa sem af yfirheiti þeirra má ætla að eigi að stafa frá ráðuneyti alþýðuvalds fyrir innanríkistengsl, réttlæti og frið (s. Ministerio del Poder Popular para Relaciones Interiores, Justicia y Paz), dags. 10. nóvember 2023 og 4. janúar 2024. Í bréfunum er M beðinn um að upplýsa um ástæðu þess að hann hafi ekki uppfyllt starfskyldur sínar og útskýra fjarveru sína frá starfi. Í fyrra bréfinu er M gefinn frestur til 15. nóvember 2023 til að gefa sig fram. Í síðara bréfinu er M gefinn frestur til 9. janúar til að gefa sig fram, ellegar myndi lögreglan neyðast til að hefja rannsókn á því hvers vegna hann hafi horfið frá starfi en því geti fylgt viðurlög. Þá lögðu kærendur fram afrit skjals sem ætla má að eigi að stafa frá embætti ríkissaksóknara Bólivaríska lýðveldisins Venesúela, dags. 13. janúar 2024.

Með tölvubréfi, dags. 3. febrúar 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kærendum hvað varðar framangreind bréf frá ráðuneytinu, dags. 10. nóvember 2023 og 4. janúar 2024. Kærunefnd bárust frekari upplýsingar frá kærendum með tölvubréfi, dags. 5. febrúar 2025. Aðspurð hvers vegna kærendur hafi ekki greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafin væri rannsókn á hendur M á grundvelli þess að hann hafi yfirgefið starf sitt með ólögmætum hætti, kváðust kærendur ekki hafa haft vitund um það á þeim tímapunkti. Fram kemur að í ágúst 2024, þegar nágranni kærenda hafi farið inn á heimili kærenda í þeim erindum að taka myndir af ástandi hússins, hafi hann tekið eftir fyrra bréfinu sem hafi verið skilið eftir á yfirgefnu heimili þeirra. Eftir að kærendur hafi fengið fregnir af því hafi þau beðið ættingja um að fara á skrifstofu ICAP PNB og spyrjast fyrir um málið. Það hafi ekki verið fyrr en þá sem kærendur hafi fengið fregnir af því að hafin væri rannsókn á hendur M á grundvelli þess að hann hafi yfirgefið starf sitt með ólögmætum hætti. Þá kemur fram að afrit af bréfunum hafi verið send kærendum með tölvubréfi í október 2024 og janúar 2025. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að K hafi skilað lögregluskírteini og lögreglubúningi M til lögreglunnar áður en þau hafi lagt á flótta. Aðspurð hvenær það hafi verið kváðu kærendur K hafa skilað framangreindu ásamt læknisvottorði að beiðni PNB 7. september 2023. Kváðu kærendur M hafa unnið síðustu vakt sína fyrir PNB 28. ágúst 2023. Aðspurð að hvaða leyti M hafi hætt störfum með ólögmætum hætti kváðust kærendur hafa flúið land á meðan M hafi verið í veikindaleyfi og hann hafi ekki hætt störfum formlega sökum ótta við að vera stimplaður föðurlandsvikari.

Með tölvubréfi, dags. 6. febrúar 2025, óskaði kærunefnd eftir ítarlegri svörum við fyrri spurningum kærunefndar. Svörin bárust kærunefnd með tölvubréfi, dags. 10. febrúar 2025. Af fyrri svörum kærenda var að mati nefndarinnar ekki skýrt hver það hafi verið sem hafi móttekið framangreind gögn fyrir hönd M og hver hafi sent kærendum gögnin. Kváðu kærendur að bréf það sem nágranni þeirra hafi fundið á heimili þeirra í ágúst 2024, dags. 10. nóvember 2023, hafi verið illa farið og nánast ólesanlegt. Hafi móðir og bróðir M því í kjölfarið farið með bréfið á skrifstofu ICAP PNB. Kváðu kærendur móður og bróður M þá fyrst hafa fengið fregnir af því að hafin væri rannsókn á hendur M og hafi móðir M lagt fram beiðni á skrifstofu ICAP um afrit af bréfunum. Kváðu kærendur bróður M hafa sent þeim bréfin í tölvubréfum. Lögðu kærendur fram skjáskot af tölvubréfum sem þau kveða vera frá bróður M. Kærendur kváðu bróður M hafa sent þeim bréfin með eftirfarandi hætti; skjal frá PNB, dags. 11. janúar 2024, um opnun sakamáls sent M 13. september 2024; bréf frá ráðuneyti alþýðuvalds, dags. 10. nóvember 2023, sent M 8. október 2024; skjal frá embætti ríkissaksóknara, dags. 13. janúar 2024, sent M 23. október 2024; bréf frá ráðuneyti alþýðuvalds, dags. 4. janúar 2024, sent M 6. janúar 2024. Aðspurð hvers vegna kærendur hafi ekki byggt á því að hafin væri rannsókn á hendur M áður en Útlendingastofnun hafi tekið ákvörðun í málum þeirra 30. ágúst 2024, kváðust kærendur hafa fengið fregnir af rannsókninni í ágúst 2024 en ekki fengið fyrstu haldbæra sönnun fyrir því fyrr en 13. september 2024. Aðspurð hvers vegna það komi fram á skjali, dags. 11. janúar 2024, að við vitjun á heimili kærenda hafi rannsóknarmennirnir hitt fyrir nágranna sem hafi sagt þeim að nokkrum dögum áður hafi verið ráðist á M, kváðust kærendur hafa yfirgefið heimili sitt 17. ágúst 2023, flúið land í október 2023 og málið á hendur M verið opnað 11. janúar 2024. Hafi kærendur því ekki verið í Venesúela í janúar 2024. Á haus bréfa frá ráðuneyti alþýðuvalds, dags. 10. nóvember 2023 og 4. janúar 2024, má finna ritvillu á orðinu „Ministerio“ og er nafn embættisins „Misnisterio del Poder Popular para Relaciones Interiores, Justicia y Paz“ og voru kærendur beðin um skýringu á framangreindu. Kváðu kærendur enga ritvillu að sjá í haus skjalsins. Þá má jafnframt sjá ritvillu efst á skjali frá ríkissaksóknara, dags. 13. janúar 2024, á orðinu „Circunscricpcion“ og er nafn embættisins „Circuncripcion Judical de la Valencia Estado Carabobo con Competencia en Delitos Graves“. Kváðu kærendur enga ritvillu að sjá á orðinu „Circuncripcion“ en það væri réttur ritháttur á orðinu í Venesúela. Samkvæmt opinberum vefsíðum í Venesúela er réttur ritháttur orðsins „Circunscripcion“ þegar það er heiti á lögsöguumdæmi Valencia í Carabobo fylki vegna alvarlegra glæpa.

Að mati kærunefndar rýrir það verulega trúverðugleika skjalanna þriggja að finna megi stafsetningarvillu í texta í haus skjalanna sem tilgreinir hvaðan skjölin séu komin. Þá lítur kærunefnd jafnframt til þess að afrit skjala, dags. 10. nóvember 2023 og 4. janúar eru afar óskýr og stimpill nánast ólesanlegur. Hafa skjölin því lítið sönnunargildi í málinu. Þá benda heimildir um Venesúela ekki til þess að almennir lögreglumenn sem yfirgefi störf sín eigi á hættu að sæta áreiti eða annarri meðferð sem nái því marki að teljast ofsóknir snúi þeir aftur til heimaríkis.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kváðust kærendur ekki vera aðilar að stjórnmálaflokki eða virk í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki. Þá er ekkert í gögnum málsins sem gefa til kynna að kærendur séu álitnir sérstakir andstæðingar stjórnvalda í heimaríki. Þá horfir kærunefnd til þess að í vegabréfi kærenda má sjá útstimplun frá Simon Bolivar flugvellinum 10. október 2023. Gefur það til kynna að kærendur hafi getað farið með löglegum hætti úr landinu án þess að vera stöðvuð af yfirvöldum og ber það ekki með sé að þau séu undir sérstöku eftirliti stjórnvalda í heimaríki sínu.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram afrit af tveimur lögregluskýrslum, dagsettum 17. ágúst 2023 og 2. september 2023. Lögregluskýrslurnar bera með sér að vera framburðarskýrslur M hjá CICPC rannsóknarlögreglunni. Í fyrri lögregluskýrslunni kemur fram að fjórir vopnaðir ótilgreindir aðilar hafi mætt fyrir utan heimili M á svörtu ökutæki af gerðinni Chevrolet. Þá kemur fram að aðilarnir hafi skotið nokkrum skotum að heimili kærenda en M hafi talið atvikið hafa tengst skyldustörfum hans hjá lögreglunni. Í seinni lögregluskýrslunni kemur fram að M hafi verið staddur fyrir utan dvalarstað sinn þegar tveir ótilgreindir aðilar á rauðu mótorhjóli hafi komið að honum og án þess að segja orð, byrjað að berja hann og hent honum í götuna. Annar mannanna hafi síðan dregið upp skotvopn og byrjað að skjóta úr því upp í loftið en á þeim tímapunkti hafi lögreglubíll mætt á staðinn og hinir ótilgreindu aðilar flúið á ökutæki sínu. Að mati kærunefndar er nokkuð ósamræmi á milli frásagnar kærenda í viðtali og í framangreindum kærum. Þar sem um er að ræða framburðarskýrslur hafa þær takmarkað sönnunargildi fyrir málatilbúnað kærenda að öðru leyti en að þau hafi leitað til lögreglu í heimaríki. Þá lögðu kærendur m.a. fram ódagsetta yfirlýsingu frá einstaklingi sem kveðst hafa verið samstarfsmaður M hjá lögreglunni, ásamt afriti af prófskírteini einstaklingsins úr lögregluskóla og afriti af persónuskilríki hans. Í yfirlýsingunni kemur fram að einstaklingurinn hafi verið með M á vakt 15. ágúst 2023. Lýsir einstaklingurinn atburðarrásinni þegar þeir hafi handtekið menn sem kváðust tilheyra glæpahópi. Þá kemur fram að M hafi orðið fyrir árásum og ofbeldi af hálfu glæpamanna í kjölfar handtökunnar. Kærendur lögðu jafnframt fram afrit af vitnisburði nágranna sinna þar sem m.a. kemur fram að M hafi þurft að flytja vegna vandamála í starfi sem hafi stofnað honum og fjölskyldu hans í hættu. Samhliða vitnisburði nágranna lögðu kærendur fram afrit persónuskilríkja þeirra sem undirrituðu vitnisburðinn. Um er að ræða einhliða frásagnir samstarfsmanns og nágranna kærenda sem hafa af þeim sökum takmarkað sönnunargildi hvað varðar þá aðila sem að baki árásunum hafi staðið og ástæðu þeirra.

Að mati kærunefndar er margt í framburði kærenda sem dregur úr trúverðugleika þeirra hvað varðar alvarleika þeirrar árásar sem M á að hafa orðið fyrir af hendi meðlima Colectívos 1. september 2023. Þó að framangreind lögregluskýrsla, dags. 2. september 2023, styðji frásögn M að hluta, þá er að mati kærunefndar ákveðið ósamræmi á milli frásagnar M í viðtali hjá Útlendingastofnun og í umræddri skýrslu. Lítur kærunefnd m.a. til þess að í viðtali hjá Útlendingastofnun kvað M glæpamennina hafa hótað sér og ráðist á sig sökum þess að M væri uppljóstrari en í lögregluskýrslu tekur M sérstaklega fram að glæpamennirnir hafi ráðist á sig án þess að segja orð. Þá má greina nokkuð ósamræmi á milli frásagnar M og K í viðtölum hjá Útlendingastofnun hvað varðar hvort A hafi jafnframt verið fórnarlamb árásarinnar. Í viðtali kvað M glæpamennina hafa miðað skotvopnum sínum að höfði K og A áður en annar þeirra hafi beint skotvopni sínu upp í loft og hafið að skjóta úr því. K kvað A hafa verið í skólanum á meðan árásinni hafi staðið. Þá greinir M frá því í viðtali að eftir að fjölskyldan hafi falið sig í garði nágrannans og árásarmennirnir hafi verið farnir úr húsi þeirra hafi hann strax náð í símann sinn og hringt í yfirmann sinn og síðar samstarfsmenn sína. Í viðtali sínu greindi K frá því að M hafi hringt í yfirmann sinn og samstarfsmenn sína en síðar í sama viðtali greindi hún frá því að M hafi týnt síma sínum. M hafi skilið hann eftir í húsinu þeirra þegar árásarmennirnir hafi ráðist þar inn og þeir hafi tekið hann, M hafi ekki fengið síma sinn aftur.

Við meðferð máls hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram sakavottorð M. Sakavottorðið er dagsett 28. ágúst 2023 og er sérstaklega stílað á íslensk stjórnvöld. Af viðtölum kærenda verður ekki ráðið að kærendur hafi verið farin að ákveða flótta fyrr en eftir atvikið 1. september 2023. Með tölvupósti, dags. 3. febrúar 2025, voru kærendur beðin um að leggja fram skýringu á því af hverju þau hafi orðið sér út um sakavottorð sem sérstaklega sé stílað á íslensk stjórnvöld, áður en þau hafi ákveðið að leggja á flótta. Kváðust kærendur hafa sótt rafrænt um sakavottorð eftir fyrsta atvikið 16. ágúst 2023. Kærendur kváðust ekki hafa notið verndar lögreglu í kjölfar atviksins og hafi því strax farið að huga að því að útvega sér nauðsynleg skjöl og pappíra. Kærendur kváðu sakavottorðið sérstaklega stílað á íslensk stjórnvöld vegna þess að Ísland hafi verið öruggasta landið sem þau gátu sótt um alþjóðlega vernd í. Í kjölfar síðara atviksins, 1. september 2023, hafi kærendur orðið sér út um flugmiða og flúið heimaríki eins fljótt og unnt var.

Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga í efa að M hafi starfað sem lögreglumaður fyrir PNB í heimaríki. Þá er með vísan til landaupplýsinga og frásagnar kærenda að mati kærunefndar ekki tilefni til að draga í efa að M hafi sætt áreiti í heimaríki af hálfu meðlima Colectívos, m.a. vegna skyldustarfa hans sem lögreglumaður fyrir PNB. Við meðferð málsins lögðu kærendur fram ljósmyndir sem virðast vera teknar af CICPC lögreglunni þar sem bent er með ör á skemmd á múrsteinshúsi ásamt tveimur skemmdum á hurð. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga í efa að skemmdirnar sem sjást á framangreindum myndum séu eftir skot úr skotvopni en af myndunum verður hins vegar ekki ráðið að um sé að ræða hús kærenda Þá lögðu kærendur fram tvær ódagsettar ljósmyndir sem þau kveða sýna skemmdir á heimili þeirra í kjölfar innbrotsins. Á myndunum má m.a. sjá húsgögn á hvolfi, pappíra á gólfi og illa farna hurð. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst M ekki geta lagt fram nein gögn sem renni stoðum undir að það hús sem sjáist á umræddum myndum sé raunverulega heimili kærenda. Að mati kærunefndar hafa kærendur því ekki sýnt fram á að brotist hafi verið inn á heimili þeirra, brotið glugga og heimili þeirra lagt í rúst. Í viðtali hjá Útlendingastofnun lýsti M því að öll rifbein sín hafi skaðast og hann hafi átt erfitt með að hreyfa sig. Þá hafi hann verið óþekkjanlegur vegna mikillar bólgu í andliti og líkaminn allur verið blár og marinn. Við meðferð málsins lögðu kærendur fram afrit af beiðni lögreglustjóra til sálfræðings um að framkvæma sálfræðimat á M, dags. 2. september 2023. Þá lögðu kærendur fram afrit af beiðni lögreglustjóra til réttarmeinafræðideildar um að framkvæma áverkaskoðun á M, dags. 2. september 2023. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lögðu kærendur fram sjúkraskýrslu, dags. 2. september 2023. Í skýrslunni kemur fram að kærandi hafi sóst eftir heilbrigðisaðstoð á bráðamóttöku spítalans. Við skoðun hafi sést áverkar á síðu M. Þá hafi læknirinn farið fram á að M færi í segulómun á heila. Þá greindi M frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa fengið læknisvottorð þar sem fram hafi komið að hann hafi verið óvinnufær vegna líkamlegra áverka í kjölfar árásarinnar. Kærendur hafa ekki lagt fram nein gögn sem styðja framangreint. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi hafi orðið fyrir líkamsárás af einhverjum toga af hendi ótilgreindra aðila í september 2023. Að mati kærunefndar hafa kærendur á hinn bóginn ekki sýnt fram á að rekja megi innbrot á heimili þeirra og líkamsárásina til skyldustarfa M sem lögreglumanns eða að þeir aðilar sem að baki þeim hafi staðið hafi slík tengsl við yfirvöld að þeim sé ómögulegt að leita aðstoðar þeirra.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hafa starfað sem lögreglumaður í heimaríki frá 2014 til september 2023. M kvað hótanir hafa fylgt því að starfa sem lögreglumaður en kvað oftast enga eftirmála hafa fylgt hótununum. Verður ekki annað ráðið en að búseta kærenda í landinu hafi að mestu leyti verið án vandkvæða. Kærunefnd hefur litið til landaupplýsinga í heimaríki kærenda sem benda til þess að vopnaðir glæpahópar séu starfræktir í heimaríki þeirra sem stundi glæpi á við fjárkúgun, eiturlyfjasmygl og mannrán. Venesúelsk stjórnvöld hafi ráðist í aðgerðir til að sporna við starfsemi glæpahópa í landinu. Bera heimildir ekki með sér að venesúelska ríkið geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð glæpahópa sem fellur undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laganna. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kærenda sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi.

Í greinargerð vísa kærendur til þeirrar óvissu sem hafi ríkt um venesúelska ríkisborgara sem hafi verið endursendir til Venesúela 15. nóvember 2023. Fram kemur að fréttaumfjallanir bendi til þess að venesúelskir ríkisborgarar sem snúi aftur eftir flótta séu skráðir sérstaklega og geti átt von á að vera sakaðir um föðurlandsvik. Fréttir fjölmiðla frá Venesúela hermi að fólkið hafi verið í varðhaldi í allt að 48 klukkustundir í slæmum aðstæðum. Loks hermi fréttir að fólk hafi verið gert að játa á sig landráð. Þá sé af upplýsingum á vef dómsmálaráðuneytisins gert ráð fyrir að þeir sem muni snúa til baka í framtíðinni muni hljóta sömu meðferð. Kærunefnd bendir á að samkvæmt framangreindum heimildum um endursendingar almennt til Venesúela verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúi til baka eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnsins var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Barn það sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og nýtur barnið stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur A til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að A muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska A er það barninu fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og A í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja kröfu sína um viðbótarvernd á því að þau eigi í hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í heimaríki, einkum í ljósi athafnaleysis ríkisins á að veita þeim vernd sem helgast af tengslum þarlendra stjórnvalda við glæpasamtökin Colectívos.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims beitt Venesúela viðskiptaþvingunum sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar ný afstaðinna forsetakosninga séu harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barns þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barns þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í Valencia í Carabobo fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Carabobo fylki staðsett í norðvesturhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur og barn þeirra hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur og barn þeirra eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barns þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur og barn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barns þeirra og aðstæður í heimaríki þeirra, benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera við góða andlega og líkamlega heilsu. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði M fram afrit af læknisskýrslu, dags. 2. september 2023. Í skýrslunni kemur fram að kærandi hafi sóst eftir heilbrigðisaðstoð á bráðamóttöku spítalans. Við skoðun hafi sést áverkar á síðu M. Þá hafi læknirinn farið fram á að M færi í segulómun á heila. Í viðtali greindi K frá því að vera við góða andlega og líkamlega heilsu en kvaðst hafa fundið fyrir streitu í heimaríki. Kærendur kváðu A hafa fæðst með galla í þvagblöðru og hafi þurft að dvelja á sjúkrahúsi í mánuð eftir fæðingu. M kvað A hafa þurft á mikilli aðhlynningu að halda eftir fæðingu vegna gallans. Þá kvað M lækna jafnframt hafa greint A með kviðslit við fæðingu sem M kvað lækni hafa talið að myndi lagast af sjálfu sér. Eftir að A hafi útskrifast af sjúkrahúsi kvaðst M hafa fengið fyrirmæli um að fara með A í reglulegar skoðanir hjá lækni vegna þvagblöðrunnar, en M kvaðst ekki hafa fylgt fyrirmælunum eftir. Í dag sé A laus við gallann í þvagblöðrunni. Kærendur hafi þó tekið eftir því eftir að þau komu hingað til lands að A pissi oft undir á nóttunni. Hafi kærendur því farið með A til læknis sem hafi greint A með nýrnasteina en kærendur kváðu lækninn hafa talið þvagvandamálið skýrast af andlegum ástæðum. Læknirinn hafi ekki talið að A væri með kviðslit og kvaðst M því ekki vita hvort þeir verkir sem A hafi fundið fyrir hafi stafað af nýrnasteinum eða einhverju öðru. Kærendur kváðust hafa verið vel tryggð vegna starfs M sem lögreglumanns og hafi því nýtt sér heilbrigðisþjónustu sér að kostnaðarlausu. Þá greindi K jafnframt frá því að hafa notið sjúkratryggingar vegna vinnu sinnar.

Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þau eða barn þeirra glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur eða barn þeirra þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærendur og barn þeirra hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau eða barn þeirra hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa átt einbýlishús í heimaríki. M hafi starfað sem lögreglumaður, K hafi starfað sem afgreiðslukona í matvöruverslun og A hafi gengið í skóla. Laun kærenda hafi dugað fyrir mat og öðrum nauðsynjavörum. Af gögnum málsins verður talið að kærendur hafi getað framfleytt sér og barni sínu í heimaríki og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau séu heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og A við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barns kærenda og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barnsins í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barns þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða barn þeirra hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og barni þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 12. október 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kærenda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að þau eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barns þeirra. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barns þeirra þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barns þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og barni þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærendur kváðu ósanngjarnt að brottvísa þeim og ákvarða þeim endurkomubann á Schengen-svæðið. Kváðu kærendur líf þeirra verða í hættu yrði þeim gert að fara aftur til heimaríkis.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og barns þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barns þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.


Þorsteinn Gunnarsson

Vera Dögg Guðmundsdóttir