17 febrúar 2025
/
Úrskurður nr. 136/2025
Hinn 17. febrúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 136/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24080021 og KNU24080025
Kæra [...] og [...]
á ákvörðun Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 2. ágúst 2024 kærðu [...], fd. [...], og [...], fd. [...], ríkisborgarar Srí Lanka (hér eftir kærendur), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 31. júlí 2024, um að synja þeim um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að kærendur krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og fallist verði á beiðnir þeirra um vegabréfsáritanir til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsóknum, dags. 29. júlí 2024, óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir níu daga dvöl frá 4. september til 12. september 2024. Umsóknir kærenda voru lagðar fram í Bretlandi. Umsóknum kærenda var synjað með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 31. júlí 2024. Hinn 2. ágúst 2024 bárust kærunefnd kærur frá kærendum.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í kæru eru ástæður synjana á umsóknum kærenda um vegabréfsáritun upptaldar og útskýringar gefnar varðandi hverja þeirra. Fram kemur að kærendur séu með staðfesta flugbókun hjá nafngreindu flugfélagi, sbr. uppgefið bókunarnúmer. Kærendur séu einnig með gilda ferðasjúkratryggingu. Kærendur séu bæði með örugga atvinnu í Bretlandi og hyggist snúa aftur þangað að ferðalaginu til Íslands loknu. Hvorugt þeirra hafi hug á að dvelja umfram heimilaðan tíma á Íslandi. Kærendur hafi bæði fengið útgefna Schengen-áritun áður, til að heimsækja Frakkland, en þá dvöldu þau á Schengen-svæðinu í viku.
Kærendur lögðu fram afrit af nýrri sameiginlegri flugbókun á kærustigi. Afritið er dagsett 2. ágúst 2024 en hinar kærðu ákvarðanir voru teknar 31. júlí 2024. Verður því litið svo á að um nýja flugbókun sé að ræða þótt um sé að ræða sömu flugleggi og flugnúmer. Kærendur lögðu einnig fram afrit kvittunar í tölvupósti fyrir kaupum á ferðasjúkratryggingu, dags. 25. júlí 2024. Þar kemur fram hvað kærendur hafi greitt fyrir trygginguna tilgreinda fjárhæð. Afrit kvittunarinnar er dagsett 2. ágúst 2024.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Sri Lanka þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10, 12 og 16, þ.e. að upplýsingarnar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar; rökstudd ástæða er til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð eru fram, þ.e. hvort þau séu ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra; og kærendur hafi ekki fært sönnur á að þau séu handhafar viðeigandi og gildrar sjúkratryggingar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að ekki hafi verði hægt að staðfesta flugbókun. Bókunarnúmer flugs hafi ekki verið gilt. Einnig væri skynsamlegur vafi á áreiðanleika og sannleiksgildi framlagðrar ferðasjúkratryggingar. Uppfylltu kærendur þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kærendum jafnframt leiðbeint um að þau gætu óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kærenda.
Meðferð umsókna kærenda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
Líkt og að framan greinir lögðu kærendur fram flugbókun á kærustigi með sama bókunarnúmeri og lagt hafði verið fram hjá Útlendingastofnun ásamt vefslóð til að staðfesta flug hjá SAS. Kærunefnd gat ekki staðfest flugið. Þegar af þeirri ástæðu verður ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.
Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki getað fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar og að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að fylgiskjöl sem kærendur lögðu fram séu ósvikin eða að innihald þeirra hafi verið rétt, sbr. ii. tölul. og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi kærendur þannig ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar og að ástæða hafi verið til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kærenda hingað til lands og réttmæti upplýsinga sem þau höfðu veitt, sbr. d-lið 6. mgr. og 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verða hinar kærðu ákvarðanir um að synja kærendum um vegabréfsáritun til landsins því staðfestar. Kærendum er leiðbeint um að þau geti sótt um vegabréfsáritun að nýju.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður