18 febrúar 2025

/

Úrskurður nr. 144/2025


Hinn 18. febrúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 144/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24070228

Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 30. júlí 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. júlí 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 23. júlí 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir átta daga dvöl frá 14. til 21. ágúst 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. júlí 2024. Hinn 30. júlí 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kvaðst kærandi hafa, við meðferð umsóknar hans um vegabréfsáritun, lagt fram flugbókun í samræmi við leiðbeiningar í gátlista sendiráðs Íslands í Lundúnum. Þar komi fram að framlagðir flugmiðar sem fylgi umsókn þurfi ekki að vera greiddir eða staðfestir.

Kærandi lagði ekki fram ný gögn á kærustigi.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 12, þ.e. að rökstudd ástæða sé til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau séu ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að upphaflega hafi kærandi lagt fram flugbókun sem ekki hafi verið hægt að staðfesta. Þegar hann hafi verið beðinn um að leggja fram bókun með gildu bókunarnúmeri hafi kærandi aftur lagt fram sömu bókun. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Kærandi byggir á því að í gátlista sendiráðs Íslands í Lundúnum komi fram að framlagðir flugmiðar sem fylgi umsókn þurfi ekki að vera greiddir eða staðfestir. Gátlistinn er á meðal gagna málsins og þar segir í fimmta lið að miðarnir þurfi ekki að vera greiddir, aðeins þurfi að leggja fram flugbókunina. Fimmti liðurinn ber yfirskriftina Proof of transportation á ensku, eða sönnun á ferðamáta á íslensku. Af eðli máls leiðir að flugbókun þarf að vera hægt að staðfesta til þess að sönnur hafi verið færðar á ferðamáta, sbr. einnig 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, sbr. 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að fylgiskjöl sem kærandi lagði fram séu ósvikin eða að innihald þeirra hafi verið rétt, sbr. b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja réttmæti upplýsinga sem hann hafði veitt, sbr. 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest. Kæranda er leiðbeint um að hann geti sótt um vegabréfsáritun að nýju.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður