20 febrúar 2025

/

Úrskurður nr. 141/2025


Hinn 20. febrúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 141/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24100104

Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 14. október 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. september 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt eiginkonu sinni og þremur börnum. Voru mál fjölskyldunnar unnin samhliða en um umsóknir þeirra er fjallað í úrskurði kærunefndar nr. 142/2025.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 26. október 2023 ásamt venesúelskri eiginkonu sinni og þremur börnum. Kvaðst kærandi vera að sækja um vernd vegna ástandsins í Venesúela. Hann og eiginkona hans hafi verið að vinna að mannréttindum þar í landi og kvað kærandi að þau hafi ekki getað verið þar lengur vegna ofsókna. Þau hafi leitað til kjörræðismanns í Karakas í Venesúela sem hafi bent þeim á að fara til Kólumbíu til að tala við ræðismann, en þar hafi þau ekki hitt neinn. Þá kvaðst kærandi eiga tvo ættingja hér á landi.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 7. maí 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi greindi frá því að vera fæddur og uppalinn í bænum Colón í Putumayo héraði í Kólumbíu þar sem hann hafi búið þegar hann hafi flúið heimaríki sitt árið 2006. Kærandi hafi þá farið til Venesúela hvar hann hafi búið sl. 18 ár og ekki snúið aftur til heimaríkis. Aðspurður kvaðst kærandi ekki eiga fjölskyldu í heimaríki, foreldrar hans og hálfsystir séu öll látin. Kærandi kvaðst vera frumbyggi af Inga ætt, en kvaðst ekki hafa orðið fyrir fordómum vegna þess. Hann kvaðst þó tilheyra minnihlutahópi í heimaríki vegna uppruna síns og stjórnmálaskoðana. Aðspurður kvaðst hann ekki hafa verið meðlimur stjórnmálaflokks í heimaríki en kvaðst hafa starfað fyrir samtök að nafni ONG Vida y Futuro sem aðgerðarsinni (e. social activist). Aðspurður um ástæðu flótta frá heimaríki kvað kærandi mega rekja það til starfa hans fyrir framangreind samtök sem hann hafi gengið til liðs við árið 2000. Samtökin hafi fengið það verkefni að fjarlægja kókaín plöntur af ökrum á tilteknu svæði og í staðinn gróðursetja hrísgrjónaplöntur o.fl., sem hafi fallið illa í kramið hjá skæruliðahópnum FARC á svæðinu. Framangreint hafi verið samstarfsverkefni á milli kólumbískra og bandarískra yfirvalda og hafi kærandi fengið greidd laun fyrir vinnu sína. Kærandi greindi frá því að í tvö skipti hafi framangreindur skæruliðahópur skotið í áttina að honum og samstarfsfólki hans og að sami hópur hafi myrt nokkra samstarfsfélaga hans árið 2005 og m.a. sent líkamsparta eins þeirra á vinnustaðinn. Kærandi kvaðst hafa óttast um öryggi sitt eftir þetta og því ákveðið að flýja til Venesúela. Þá greindi hann einnig frá því að skæruliðahópar stjórni Kólumbíu og að hann sé skotmark þessara aðila þar sem hann hafi áður starfað fyrir kólumbísk yfirvöld. Hann hafi til að mynda reynt að flýja aðstæður með því að fara til Pereira borgar í Risaralda héraði í Kólumbíu, en að skæruliðar geti borið kennsl á hann hvar sem er í landinu. Framangreindur skæruliðahópur hafi hvorki ofsótt né hótað kæranda eftir að hann hafi yfirgefið heimaríki sitt. Þá kvað kærandi lögregluna í heimaríki ekki geta veitt íbúum landsins vernd og kvaðst einungis óttast FARC.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 14. október 2024. Greinargerð barst kærunefnd 7. febrúar 2025 ásamt fylgiskjali.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi hafi fæðst í bænum Colón í Putumayo héraði sem sé syðst í Kólumbíu. Hann hafi yfirgefið Kólumbíu árið 2006 og búið í Venesúela síðan. Hann sé af Inga ætt og eigi enga eftirlifandi fjölskyldu í heimaríki. Kærandi sé búinn að missa öll tengsl við heimaríki sitt, en hann hafi reynt að tengjast gömlum vinum á samfélagsmiðlum árið 2024 sem hafi tjáð honum að ástandið í landinu hefði ekkert skánað og að hann væri enn í hættu. Kærandi hafi byrjað ungur að starfa fyrir samtökin Vida y Futuro í heimaríki, sem hafi stuðlað að bættum félagslegum aðstæðum íbúa á heimasvæði kæranda og hafi sú vinna verið fjármögnuð af bandarískum stjórnvöldum. Á heimasvæði kæranda hafi tveir vopnaðir hópar, annars vegar skæruliðahópurinn FARC og hins vegar AUC, barist um áhrif á svæðinu og hafi kærandi og samstarfsfélagar hans verið undir árásum og hótunum af hálfu FARC vegna vinnu framangreindra samtaka. Kærandi hafi alla tíð síðan verið eftirlýstur af FARC.

Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Kólumbíu mótmælt.

Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi búi við ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli þess að hann tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi vegna starfa hans í þágu mannréttinda og þar sem hann sé samfélagslegur leiðtogi, sbr. d- liður 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi geti ekki fært sér í nyt vernd stjórnvalda í heimaríki sínu þar sem þau séu ekki viljug til að vernda hann gegn ofsóknum skæruliðahópsins FARC, sbr. b-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi einnig til þess að hann sé frumbyggi af Inga ætt.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir varakröfu sína á því að hann eigi á hættu að láta lífið eða sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Grundvallast krafan á hinu almenna ástandi sem ríki í landinu, mannréttindabrotum sem viðgangist í landinu, sem og líkum á að kærandi verði fyrir alvarlegum skaða af völdum handahófskennds ofbeldis vegna vopnaðra átaka verði hann sendur aftur til landsins. Auk framangreinds telur kærandi innri flutning samkvæmt 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga óraunhæfan og ósanngjarnan.

Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Viðvarandi mannréttindabrot eigi sér stað í Kólumbíu og yfirvöld í landinu veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum og glæpum. Einnig vísar kærandi til bágra félagslegra aðstæðna sinna verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis þar sem eiginkona hans og börn séu venesúelskir ríkisborgarar og geti því ekki farið með honum til heimaríkis og öfugt. Muni hann eiga erfitt uppdráttar og búa við öryggisleysi.

Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi til meðferðar á ný. Kærandi telji að annmarkar séu á hinni kærðu ákvörðun og að rannsókn Útlendingastofnunar á aðstæðum hans í heimaríki hafi verið ófullnægjandi.

Til þrautaþrautaþrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi hvað varðar brottvísun og endurkomubann hans og að honum verði ekki gert að sæta slíku.

Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn leiðbeiningarskyldu 7. gr. stjórnsýslulaga, andmælareglu 13. gr. stjórnsýslulaga, rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Kærandi var aðeins spurður um aðstæður sínar í Kólumbíu, þar sem hann hefur ríkisfang, í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun. Kærandi hefur verið búsettur í Venesúela síðustu 18 ár ásamt fjölskyldu sinni og bjó síðast þar áður en hann kom hingað til lands ásamt fjölskyldu sinni. Í ljósi þess að kærandi bjó um helming ævi sinnar í Venesúela og kom hingað til lands ásamt maka sínum og börnum sem hlutu málsmeðferð á grundvelli venesúelsks ríkisfangs, hefði verið rétt að spyrja hann um hagi hans þar, sbr. m.a. 2. mgr. 28. gr. laga um útlendinga sem kveður á um að haga skuli viðtali við umsækjendur á þann hátt að sem mestar líkur séu á því að upplýsingar sem gætu haft þýðingu fyrir niðurstöðu máls hans komi fram. Hefði það því verið í samræmi við góða stjórnsýsluhætti að gefa kæranda færi á að greina frá aðstæðum sínum í Venesúela. Í viðtali við maka kæranda kemur fram greinargóð lýsing af aðstæðum fjölskyldunnar í Venesúela, auk þess sem að í greinargerðum talsmanns er fjallað ítarlega um aðstæður kæranda og maka hans bæði í Venesúela og Kólumbíu. Með vísan til þess og niðurstöðu í máli þessu, hefur framangreindur annmarki ekki áhrif á efnislega niðurstöðu málsins og er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þessari ástæðu.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun að öðru leyti sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað kólumbísku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé kólumbískur ríkisborgari.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Report on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 30. mars 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 County Reports on Human Rights Practices - Colombia (US Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2023 Report on International Human Rights Freedom: Columbia (US Department of State, 30. júní 2024);
  • ACLED Dashboard, 1. apríl 2023 – 28. október 2024;
  • ACLED Dashboard, 24. febrúar 2022 – 24. febrúar 2023;
  • Almost half of the human rights defenders killed last year were in Colombia (Guardian, 4. apríl 2023);
  • Amnesty International Report 2021/22 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Colombia (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
  • Availability and accessibility of mental health services, particularly in Bogotá, Cartagena and Barranquilla; treatment of individuals with mental illness by society and by the authorities; state protection, including recourse and complaint mechanism (Immigration and Refugee Board of Canada, 11. ágúst 2021);
  • BTI 2022 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung,23. febrúar 2022);
  • BTI 2024 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, mars 2024);
  • Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post- FARC- EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
  • Colombia (skýrsla aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (S/2021/312), 30. mars 2021);
  • Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
  • Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
  • Colombia Complex crisis (ACAPS, 9. ágúst 2021);
  • Colombia: Country Focus (EUAA, desember 2022);
  • Colombia, Cundinamarca (ACLED Dashboard, 3. mars 2023);
  • Colombia: Events of 2022 (Human Rights Watch, 2023);
  • Colombia: Events of 2023 (Human Rights Watch 2024);
  • Colombia: Fact – Finding Mission Report; Conflict Dynamics in the Post- FARC-EP Period and State Protection (mars, 2020);
  • Colombia´s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
  • Colombian activist killings hit record high in 2022: Ombudsman (Al Jazeera, 23. janúar 2023);
  • Columbia and ELN rebels extend ceasefire by six months, agree to set up fund (Reuters, 6. febrúar 2024);
  • Colombia: Urgent Updates October 2024 (WOLA, Advocacy for Human Rights in the Americas, 17. október 2024);
  • Colombia. Social Institutions and Gender Index 2023 (Organization for Economic Co-operation and Development, 26. ágúst 2024);
  • Colombia. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organization for Economic Co-operation and Development, 7. desember 2018);
  • Colombia struggles to keep social leaders safe (y News, 13. janúar 2021);
  • Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 2. janúar 2024);
  • Colombia 2020 Crime and Safety Report (US Department of State, Bureau of Diplomatic Security, 13. mars 2020);
  • Colombia Country Security Report (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 31. janúar 2024);
  • Colombia – Overview of the Education System (OECD, Education at a glance 2023);
  • Colombia/Venezuela: Border Area Abuses by Armed Groups: Killings, Disappearances, Child Recruitment, Forced Displacement (Human Rights Watch, 28. mars 2022);
  • Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);
  • Freedom in the World 2023 - Colombia (Freedom House, 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Colombia (Freedom House, 2024);
  • Foreign travel advice: Colombia (Gov.uk, síðast uppfært 9. september 2024);
  • GameChangers 2023; Unintended Consequences for Colombia’s ‘Total Peace’ (Insight Crime, 29. desember 2023);
  • Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia (BBC, 20. júní 2022);
  • How peace efforts are making a difference (or not) in Colombia (The New Humanitarian, 15. febrúar 2023);
  • Indigenous Peoples in Colombia (vefsíða IWGIA - International Work Group for Indigenous Affairs);
  • International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Colombia (UNHCR, ágúst 2023);
  • La violencia contra líderes y lideresas políticas, sociales y comunales: Diagnóstico sobre el primer semester del 2024 (Misión de Observación Electoral, 3. september 2024);
  • Latin America and the Caribbean – September 2024 (ACLED Data, 4. október 2024);
  • Latin America and the Caribbean Overview: August 2024 (ACLED, 6. september 2024);
  • Los Focos del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
  • Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communities (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
  • Mental Health ATLAS 2017. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 2018);
  • National Liberation Army (ELN) (InSight Crime, 18. júní 2024);
  • Protecting Colombia´s Most Vulnerable on the Road to Total Peace (International Crisis Group, 24. febrúar 2023);
  • Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (OHCHR, 12. júlí 2024);
  • Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (OHCHR, 14. febrúar 2024);
  • Resolution 2573(2023) (Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, 11. janúar 2023);
  • Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
  • The Example of the Inga People of Colombia (OHCHR, 2023);
  • The Situation of Women Social Leaders and Human Rights Defenders after the Peace Deal in Colombia (FOKUS, 9. febrúar 2021);
  • The State of the World´s Human Rights; Columbia 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
  • The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 23. október 2024);
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
  • United Nations Verification Mission in Colombia: Report of the Secretary – General (United Nations, 24. mars 2023);
  • Why Are Rights Activists Being Targeted in Colombia? (The Dialogue, 8. febrúar 2023);
  • World Report 2022 – Events of 2021 (Human Rights Watch, 13. janúar 2022);
  • World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report 2024 – Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
  • World Report 2025 – Events of 2024 (Human Rights Watch, 16. janúar 2025);
  • Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
  • Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska utanríkisráðuneytisins (https://www.cancilleria.gov.co/);
  • Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (https://www.colombiareports.com);
  • Upplýsingar af vefsíðu Global Organized Crime Index (https://ocindex.net/country/colombia, sótt 26. september 2024);
  • Upplýsingar af vefsíðu International Citizens Insurance (Overview of Colombia Healthcare System International Insurance, sótt 26. september 2024) og
  • Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).

Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 92% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro sé fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og heimildir bendi til þess að hann hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hafi hann heitið því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að eftirlitsaðilar hafi talið kosningarnar frjálsar og þær friðsælustu í áratugi. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að forsetinn hafi valið Francia Márquez sem varaforseta. Hún sé umhverfisverndarsinni af afró-kólumbískum uppruna og önnur konan til að gegna stöðu varaforseta.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar og ill meðferð af hálfu öryggissveita ríkisins og vopnahópa, víðtæk spilling innan ríkisstofnana, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu auk ofbeldis gegn minnihlutahópa s.s. á grundvelli uppruna, kynhneigðar og kynvitundar. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögum sem leggi refsingu við opinberri spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Ólöglegir vopnahópar beiti ofbeldi, svo sem fjárkúgunum, morðum, mannránum, pyndingum og sprengjuárásum og beiti barnahermönnum. Lögregluyfirvöld rannsaki almennt þessi brot og sæki ábyrga til saka. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir.

Af framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024, má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Narino, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia - People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta eða í Cundinamarca héraði. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að sum landsvæði, einkum svæði sem séu rík af náttúruauðlindum og svæði þar sem flutningur fíkniefna eigi sér stað, séu óörugg. Meðlimir afsprengihópa skæruliðahópa, m.a. ELN og FARC, misnoti óbreytta borgara, sérstaklega á svæðum þar sem kókaín sé ræktað. Almenn sundrung og aukning átaka hafi leitt til þess að íbúar verst útsettu svæðanna hafi neyðst til að flýja heimili sín. Í febrúar 2024 greindi skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu mannúðarmála (OCHA) frá því að um 63 þúsund manns hafi þurft að yfirgefa heimili sín og um 88 þúsund manns hafi verið innilokuð sökum hótana og vopnaðra átaka sem sé svipaður fjöldi og árið 2022.

Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 að um 6,7 milljónir íbúa í Kólumbíu séu vegalausir innanlands (e. internally displaced people), flestir vegna vopnaðra átaka í landinu. Samkvæmt lögum hafi 52 opinberar stofnanir í Kólumbíu það hlutverk að veita einstaklingum sem hafi þurft að flýja heimkynni sín aðstoð. Jafnframt séu fjöldi félaga og samtaka í samstarfi með stjórnvöldum og hafi tekið að sér að veita mannúðaraðstoð til þeirra sem hafi þurft að flytjast á brott frá heimasvæði sínu. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni fyrir seinar og ófullnægjandi aðgerðir. Þá hafi mannúðarsamtök aukið fræðslu og dreifingu hreinlætisvara, í tengslum við Covid-19 heimsfaraldurinn.

Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 31. janúar 2024 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir framangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Þó kemur fram m.a. í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að ofbeldi og glæpatíðni hafi tekið að rísa á ný frá árinu 2017. Megi meðal annars rekja hluta þess til að fyrrverandi skæruliðar hafi hafið glæpastarfsemi á ný vegna þess að þeir telji stjórnvöld ekki hafa staðið við sína hlið friðarsamningsins. Í frétt á vef fréttamiðilsins Al Jazeera frá 4. október 2022 kemur fram að kólumbísk yfirvöld og ELN hafi komist að samkomulagi um að hefja friðarviðræður á ný eftir að þeim hafi verið slitið 2018. Þá kemur fram í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að forseti landsins hafi lagt til nýjan friðarsamning við andófsmenn FARC í ágúst 2022, sem hafi verið tilefni gagnrýni frá þeim aðilum er komu að samningaviðræðum vegna friðarsamningsins árið 2016. Forsetinn hafi hafið samningaviðræður við ELN í desember 2022 og hafi það verið fyrstu viðræðurnar við samtökin síðan árið 2019. Í sama mánuði hafi ríkisstjórnin tilkynnt um sex mánaða vopnahlé við ELN, FARC andófsmenn og þrjá aðra glæpahópa. Þá hafi ELN samþykkt vopnahlé til sex mánaða sem hafi byrjað 9. ágúst 2023. Vopnahléið hafi bætt öryggi íbúa þeirra svæða þar sem ítök hópanna séu hvað mest tímabundið. Samkvæmt fréttum hafi vopnahléinu átt að ljúka 29. janúar 2024. Hinn 23. janúar 2024 hafi sjötta umræða friðarviðræðna hafist í Havana á Kúbu og vonast hafi verið til þess að ná samkomulagi um að framlengja vopnahléið auk annarra atriða sem stuðla eigi að friði í Kólumbíu. Í yfirlýsingu frá ELN, dags. 20. febrúar 2024, sögðu samtökin forseta Kólumbíu ekki hafa staðið við gefin loforð og því væru sjöttu viðræðurnar „frystar“ þangað til loforðin yrðu efnd. Hafi þetta sett friðarviðræðurnar í uppnám og óvíst hafi verið með framhaldið. Í nýlegum fréttaheimildum kemur fram að í febrúar 2024 hafi kólumbísk yfirvöld og ELN tilkynnt um framlengingu vopnahlés til sex mánaða frá 6. febrúar 2024.

Samkvæmt upplýsingum af heimasíðu sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu hafi Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna framlengt umboð verkefnis til 31. október 2023 varðandi framfylgni samningsins um uppbyggingu á dreifbýlli svæðum og málefni þjóðernishópa. Nefndinni hafi verið gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu, þ.m.t. pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC meðlima og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Í skýrslu aðalframkvæmdastjóra frá 24. mars 2023 komi fram að kólumbíska ríkisstjórnin og FARC hafi samþykkt að framlengja umboð Framkvæmdastjórnar til að fylgja eftir og hafa eftirlit með framfylgd friðarsamkomulagsins til fjögurra ára.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að fjöldi kólumbískra og alþjóðlegra mannréttindahópa starfi án takmarkana stjórnvalda, rannsaki og birti niðurstöður um mannréttindamál. Þá séu embættismenn yfirleitt samvinnuþýðir og reiðubúnir að hlusta á áhyggjur staðbundinna mannréttindasamtaka. Nokkur frjáls félagasamtök hafi fengið hótanir en ríkisstjórnin fordæmi hótanirnar og skori á dómsmálaráðherra að rannsaka þau. Í sumum tilvikum hafi aðgerðarsinnum þótt viðbrögð stjórnvalda hæg og lítil. Þá kemur fram að þótt löggjöf í landinu veiti frjálsum félagasamtökum og mannréttindabaráttufólki vernd þá sé traust til slíkrar verndar takmarkað og á síðustu árum hafi hundruð meðlima mannréttindasamtaka, fjölmiðlafólks, leiðtoga frumbyggja og annarra aðgerðarsinna staðið frammi fyrir margvíslegu ofbeldi, líflátshótunum og verið myrtir, einkum af uppreisnarmönnum eða meðlimum glæpasamtaka. Stjórnvöld hafi ekki gripið til fullnægjandi ráðstafana til að vernda þau, refsileysi sé útbreitt og ákærur og sakfellingar eigi sér sjaldnast stað.

Í skýrslu Flóttamannastofnunar frá ágúst 2023 vegna einstaklinga sem flýi Kólumbíu kemur fram að þrátt fyrir viðleitni ríkisstjórnarinnar sé staða mannréttindasinna áfram áhyggjuefni. Mannréttindaverðir verði fyrir hótunum, þvinguðum mannshvörfum, morðum, nauðungarflutningum, handahófskenndri frelsissviptingu, árásum, refsiaðgerðum og kynferðisofbeldi. Meðal fórnarlamba séu leiðtogar þjóðernissamfélaga, leiðtogar samfélagssamtaka, ungmenni, bændur, umhverfisverndarsinnar og baráttufólk fyrir landvernd. Árásir séu oft framdar inni á heimilum þeirra og oft í viðurvist barna þeirra eða fjölskyldumeðlima. Þá hafi fjölskyldumeðlimir þeirra einnig sætt árásum. Að baki árásanna séu ýmsir hópar s.s. vopnahópar sem hafi áður tilheyrt FARC og ELN og aðrir vopnahópar og glæpasamtök. Nokkrar heimildir benda til þess að morðum á mannréttindavörðum hafi fjölgað eftir undirritun friðarsamningsins frá 2016. Fjöldi tilkynntra morða sé þó mismunandi eftir heimildum. Svæðin þar sem fjöldi morða á mannréttindavörðum hafi verið flest árið 2020 séu Cauca, Antioquia og Nariño, þar sem hafi orðið veruleg aukning í fjölda fórnarlamba miðað við fyrri ár. Þau svæði þar sem flest morð voru framin á tímabilinu janúar til júní 2022 voru Cauca, Valle del Cauca, Antioquia, Putumayo og Arauca.

Í skýrslu kanadíska innflytjendaeftirlitsins kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett hafi verið á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að undirfjármögnun takmarki getu skrifstofunnar til að fylgjast með misnotkun á áhrifaríkan hátt. Umboðsmaðurinn, sem og meðlimir svæðisskrifstofu umboðsmanns, fái hótanir frá vopnuðum hópum í gegnum ýmsa miðla. Skrifstofa umboðsmanns gefi reglulega út viðvaranir fyrir svæði sem hún telji hættuleg en ríkisstjórnin bregðist hægt við tilmælum og viðvörunum. Þá veiti ríkisstofnunin National Protection Unit einstaklingum vernd sem telji sig þurfa á vernd að halda, m.a. þolendum mannréttindabrota og vopnaðra átaka. Eðli verndarinnar fari eftir áhættumati sem stofnunin framkvæmi fyrir hvern og einn einstakling. Verndin sem stofnunin veiti sé þó ekki alltaf fullnægjandi eða í samræmi við þá hættu sem viðkomandi sé í. Samkvæmt skýrslu UNHCR frá ágúst 2023 hafi sú vernd sem stjórnvöld hafi boðið mannréttindavörðum falist m.a. í því að þeir hafi verið beðnir af yfirvöldum að flytja búferlum. Af þeim sökum leiti ekki margir eftir vernd til að komast hjá því að þurfa að yfirgefa heimili sín og grípi til eigin verndarráðstafana. Dæmi um verndarráðstafanir sem yfirvöld hafi boðið mannréttindavörðum séu neyðarhnappar, skotheld vesti og farsímar. Í alvarlegustu tilfellum fái einstaklingar lífverði og brynvarða bíla.

Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu 10,5% árið 2022 og minnkaði frá árinu 2021 er það var 14,3%. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) beri ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt heimildum sé heilbrigðiskerfið í Kólumbíu með þeim bestu í heiminum og samkvæmt Alþjóða­heilbrigðismálastofnuninni er Kólumbía í 22. sæti yfir skilvirkustu heilbrigðiskerfi í heimi. Heilbrigðisþjónusta í Kólumbíu sé almennt ekki kostnaðarsöm og aðgengi ríkisborgara að heilbrigðisþjónustu almennt gott. Í Kólumbíu er opinbert sjúkratryggingarkerfi (s. Entidades Promotoras de Salud (EPS)). Umrætt sjúkratryggingakerfi sé í boði fyrir alla íbúa Kólumbíu með litlum tilkostnaði. EPS sjúkratryggingakerfið sé með þriggja þrepa greiðslukerfi sem nái yfir greiðsluþátttöku EPS vegna rannsóknarstofuprófa, myndgreininga, sérfræðiheimsókna og lyfja. Þá kemur fram í skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organization, WHO) og innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada að sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu hafi verið í gildi frá árinu 2013. Samkvæmt þeirri löggjöf sé ríkisborgurum Kólumbíu tryggt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og þurfi meirihluti fólks sem sæki þjónustu hjá geðheilbrigðissérfræðingum ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Biðtími geti verið langur en aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum sé betra í þéttbýli heldur en í dreifbýli.

Í yfirliti frá Efnahags- og framfarastofnuninni um menntamál í Kólumbíu fyrir árið 2023 og á heimasíðu World Education News+Reviews kemur fram að í landinu sé skyldubundið grunnskólanám öllum að kostnaðarlausu. Flestir skólar séu ríkisreknir og gert að fylgja lögboðnum námsskrám sem gefin séu út af menntamálaráðuneyti Kólumbíu. Það framfylgi ákveðnum gæðastöðlum menntunar.

Í skýrslu um frumbyggja af Inga ætt frá árinu 2023, sem birt var á vefsvæði skrifstofu mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, kemur fram að það búi rúmlega 25.000 einstaklingar af uppruna Inga í Kólumbíu, einkum í héruðunum Putumayo, Caquetá, Nariño, and Cauca, í 22 af 32 höfuðborgum landsins og í öðrum löndum eins og Ekvador, Panama og Venesúela. Undanfarið hafi Inga fjölskyldur einnig sótt til Bandaríkjanna vegna vopnaðra átaka. Eins og margir frumbyggjar í Kólumbíu, hefur Inga fólkið á síðustu áratugum staðið frammi fyrir alvarlegum mannréttindabrotum vegna vopnaðra átaka innanlands, eiturlyfjasmygls og eflingar og þróunar í námu- og olíuvinnslu. Árið 2017 hafi Inga fólkið stofnað frumbyggjasamtök sem séu eins konar eigið stjórnkerfi þeirra í þeim tilgangi að efla og verja grundvallarréttindi þeirra allra á landsvísu. Þá hafa þau einnig notið stuðnings innanríkisráðuneytis Kólumbíu. Einstaklingar af Inga uppruna og aðrir frumbyggjar eigi rétt á sömu stjórnarskrár- og lögvörðum réttindum og vernd og aðrir ríkisborgarar landsins.

Samkvæmt 96. gr. stjórnarskrá Kólumbíu telst hvert barn sem fætt er á erlendri grundu og á föður eða móður sem hafa kólumbískan ríkisborgararétt, vera kólumbískur ríkisborgari ef það hefur síðan búið í Kólumbíu eða verið skráð hjá kólumbískri ræðismannsskrifstofu. Kólumbískum ríkisborgurum sé heimilt að vera með tvöfaldan ríkisborgararétt. Þá geti kólumbískir ríkisborgarar sem hafa afsalað sér ríkisborgararétti sínum endurheimt hann. Jafnframt telst hver erlendur ríkisborgari sem er giftur kólumbískum ríkisborgara, og hefur lýst því yfir að vilja öðlast kólumbískan ríkisborgararétt, sem hann hefur rétt til eftir að minnsta kosti tvö ár frá því að gengið er í hjúskap, fengið ríkisborgararétt. Sama á við ef erlendur ríkisborgari á börn með kólumbískt ríkisfang. Auk þess geti ríkisborgarar annars ríkis innan Suður-Ameríku öðlast kólumbískt ríkisfang eftir að hafa dvalið í eitt ár samfleytt í Kólumbíu. Af upplýsingum af vefsvæði kólumbískra yfirvalda verður ráðið að makar ríkisborgara Kólumbíu sem búsettur sé í Kólumbíu eigi rétt á dvalarleyfi á grundvelli þeirra tengsla að tilteknum skilyrðum uppfylltum.

Samkvæmt 2. mgr. 33. gr. stjórnarskrár Venesúela, telst hver erlendur ríkisborgari sem er giftur venesúelskum ríkisborgara, og hefur lýst því yfir að vilja öðlast venesúelskan ríkisborgararétt, sem hann hefur rétt til eftir að minnsta kosti fimm ár frá því að gengið er í hjúskap, venesúelskur ríkisborgari við veitingu ríkisborgararéttar.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann eigi á hættu ofsóknir í heimaríki vegna fyrri starfa á heimasvæði hans í þágu samfélagsins. Þá vísar kærandi einnig til þess að hann sé frumbyggi af Inga ætt.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa flúið heimaríki sitt árið 2006. Kærandi hafi þá farið til Venesúela hvar hann hafi búið sl. 18 ár og ekki snúið aftur til heimaríkis. Kærandi kvaðst vera frumbyggi af Inga ætt, en kvaðst ekki hafa orðið fyrir fordómum vegna þess. Hann kvaðst þó tilheyra minnihlutahópi í heimaríki vegna uppruna síns og stjórnmálaskoðana. Aðspurður kvaðst hann ekki hafa verið meðlimur stjórnmálaflokks í heimaríki en kvaðst hafa starfað fyrir samtök að nafni ONG Vida y Futuro sem aðgerðarsinni (e. social activist). Hann hafi gengið til liðs við samtökin árið 2000. Samtökin hafi fengið það verkefni að fjarlægja kókaín plöntur af ökrum á heimasvæði kæranda og í staðinn gróðursetja hrísgrjónaplöntur o.fl., sem hafi fallið illa í kramið hjá skæruliðahópnum FARC á svæðinu. Framangreint hafi verið samstarfsverkefni á milli kólumbískra og bandarískra yfirvalda og hafi kærandi fengið greidd laun fyrir vinnu sína. Kærandi greindi frá því að í tvö skipti hafi framangreindur skæruliðahópur skotið í áttina að honum og samstarfsfélögum hans og að sami hópur hafi myrt nokkra samstarfsfélaga hans árið 2005 og m.a. sent líkamsparta eins þeirra á vinnustaðinn. Kærandi kvaðst hafa óttast um öryggi sitt eftir þetta og því ákveðið að flýja til Venesúela. Þá greindi hann einnig frá því að skæruliðahópar stjórni Kólumbíu og að hann sé skotmark þessara aðila þar sem hann hafi áður starfað fyrir kólumbísk yfirvöld. Hann hafi til að mynda reynt að flýja aðstæður með því að fara til Pereira borgar í Risaralda héraði í Kólumbíu, en að skæruliðar geti borið kennsl á hann hvar sem er í landinu. Framangreindur skæruliðahópur hafi hvorki ofsótt né hótað kæranda eftir að hann hafi yfirgefið heimaríki sitt. Þá kvað kærandi lögregluna í heimaríki ekki geta veitt íbúum landsins vernd og kvaðst einungis óttast FARC.

Við meðferð málsins lagði kærandi fram afrit af fjölda gagna um eiginkonu hans vegna starfa hennar í þágu mannréttinda í Venesúela. Auk þess lagði kærandi fram samantekt um störf hans í Kólumbíu og er innihald þeirra gagna í samræmi við frásögn kæranda í viðtali hans hjá Útlendingastofnun.

Frásögn kæranda um aðstæður og starfsemi skæruliðahópsins FARC í heimaríki fær stoð í þeim heimildum sem kærunefnd hefur skoðað. Af gögnum er ljóst að FARC hafði mikla viðveru í Putumayo héraði vegna mikillar kókaín ræktunnar í héraðinu og auðvelds aðgengis að landamærum Ekvador og Perú. Stjórnvöld í Kólumbíu hafi verið að reyna útrýma kókaín ræktuninni sem hafi fallið illa í kramið hjá FARC. Er því ekki ástæða til annars en að leggja til grundvallar frásögn kæranda um að meðlimir FARC hafi skotið að honum og samstarfsfélögum hans í tvígang við störf þeirra að fjarlægja kókaín plöntur af ökrum í Putumayo héraði. Hins vegar verður ekki lagt til grundvallar að kærandi sé sérstakt skotmark FARC enda verður af heimildum um Kólumbíu ráðið að hópurinn sé ekki lengur starfandi í þeirri mynd sem hann var árið 2006 þegar kærandi flúði heimaríki sitt. Friðarsamkomulag kólumbískra stjórnvalda við FARC sé í gildi, en afsprengihópar starfi í heimahéraði kæranda. Það er mat kærunefndar að framangreind atvik sýni ekki fram á að kærandi sé í aukinni hættu á að vera sérstakt skotmark vopnahópa í heimaríki sínu umfram almenna borgara af þeim sökum. Þá verður ekki ráðið af frásögn kæranda að árásarmennirnir eða aðrir einstaklingar tengdir þeim hafi átt í hótunum við kæranda, áreitt hann eða ofsótt í kjölfar skotárásanna. Er einkum horft til þess að um tveir áratugir séu liðnir frá framangreindum atvikum. Hvorki frásögn kæranda né gögn málsins benda til þess að kærandi eigi á hættu ofsóknir af hálfu vopnahóps snúi hann aftur til heimaríkis.

Kærandi hefur greint frá því við meðferð máls hans að hann hafi ekki gert tilraun til þess að leita aðstoðar lögreglu í heimaríki. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað, m.a. skýrslur frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 12. apríl 2021 og um stöðu mannréttinda frá árinu 2024, kemur fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Skýrslur og önnur gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Kólumbíu bera m.a. með sér að ítök glæpahópa séu á sumum svæðum sterk og löggæsla veik. Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í Kólumbíu bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum í Kólumbíu, er það mat kærunefndar að gögn um aðstæður í Kólumbíu sýni fram á að á öðrum svæðum geti kólumbísk yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna og veita borgurum sínum vernd gegn ofbeldi og glæpum, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Af heimildum um Kólumbíu verður ráðið að ítök glæpa- og vopnahópa séu ekki slík í Colin að kæranda sé ómögulegt að leita aðstoðar yfirvalda telji hann þörf á því.

Kærandi kvaðst tilheyra minnihlutahópi í heimaríki sem frumbyggi af Inga ætt, en kvaðst ekki hafa orðið fyrir fordómum vegna þess. Af heimildum má m.a. ráða að einstaklingar af Inga uppruna njóti sömu lagalegra réttinda og allur almenningur í Kólumbíu. Þrátt fyrir að Inga samfélagið upplifi einhverja mismunun og búi einkum á svæðum þar sem öryggi sé skert nái slík mismunun ekki því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst eiga þrjú börn með eiginkonu sinni sem stödd eru hér á landi. Eignkona kæranda og börn hans eru venesúelskir ríkisborgarar, en eiginkona hans afsalaði sér kólumbísku ríkisfangi sínu árið 2022. Samkvæmt b-lið 1. mgr. 96. gr. stjórnarskrár Kólumbíu eiga þeir sem fæddir eru utan Kólumbíu en eiga annað hvort foreldri sem er kólumbískur ríkisborgari og hefur verið skráður sem slíkur hjá kólumbískum yfirvöldum eða ræðismanni rétt á kólumbískum ríkisborgararétt. Þar af leiðir að börn kæranda geta sótt um kólumbískan ríkisborgararétt óski þau eftir því við þarlend stjórnvöld. Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki föður þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kæranda, viðtali við eiginkonu hans og börn og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis, hvort sem er föður eða móður. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnum kæranda til boða gjaldfrjáls menntun í Kólumbíu. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu þar í landi. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er ekkert sem bendir til þess að það fari gegn hagsmunum þeirra að fylgja föður sínum til heimaríkis hans Kólumbíu.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hann eigi á hættu að láta lífið eða sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa aftur til Kólumbíu með vísan til almenns ástands í landinu.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.

Kærandi hefur vísað til þess að hann sé í hættu í heimaríki þar sem hann sé eftirlýstur af skæruliðahópnum FARC. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Löggæsluyfirvöld hafa átt erfitt með að komast inn á svæði þar sem glæpahópar hafa völd og átök eigi sér stað, til að mynda í Tumaco og Putumayu héruðum þar sem glæpahópar hafa haft mikil ítök. Að jafnaði hafi kólumbísk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra góða stjórn á öðrum svæðum og séu þau svæði nokkuð friðsæl og örugg. Þá séu lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg í landinu. Kærandi kveðst vera fæddur og uppalinn í bænum Colón í Putumayo héraði í suðurhluta Kólumbíu. Líkt og áður greinir eru vopnahópar öflugir á heimasvæði kæranda. Skýrslur og önnur gögn benda til þess að ítök afsprengihópa skæruliðahópsins FARC séu sterk í Putumayo héraði einkum á svæðum nálægt landamærum Ekvador, þaðan sem kærandi kemur, þar sem kókaín sé ræktað þar í miklu magni. Heimildir benda þó ekki til þess að aðstæður á svæðinu séu slíkar að hver sem þar sé staddur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hann hafi ríka þörf fyrir vernd vegna erfiðra félagslegra aðstæðna í heimaríki þar sem eiginkona hans og börn geti ekki sameinast honum þar í landi. Muni hann eiga erfitt uppdráttar án viðhlítandi stuðningsnets og búa við öryggisleysi. Jafnframt telji kærandi að viðvarandi mannréttindabrot eigi sér stað í heimaríki hans og að yfirvöld í landinu veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum og glæpum.

Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki hans er það niðurstaða kærunefndar að almennar aðstæður sem bíði kæranda þar nái ekki því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Kærandi kveður sig vera við góða líkamlega og andlega heilsu. Aðspurður kvaðst hann hafa leitað á einkareknar heilbrigðisstofnanir ef hann hafi þurft á læknisþjónustu að halda. Hann hafi getað greitt fyrir þjónustuna. Þá taki hann ekki nein lyf að staðaldri. Engin heilsufarsgögn liggja fyrir í málinu. Af framburði kæranda verður ekki séð að hann glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda honum alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að foreldrar hans og hálfsystir séu öll látin og hann eigi því ekkert bakland í heimaríki. Eiginkona hans og þrjú börn séu venesúelskir ríkisborgarar og geti ekki snúið með honum aftur til heimaríkis. Fjárhagur hans hafi verið góður þar sem hann hafi verið í launuðu starfi, en hann hafi ekki átt eignir í heimaríki. Af gögnum málsins verður talið að kærandi hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Ekkert hefur komið fram sem bendir til annars en að hann sé heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Eiginkona kæranda og þrjú börn þeirra hjóna sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi á sama tíma og kærandi. Eiginkona hans og börn eru með venesúelskan ríkisborgararétt. Kærandi kvaðst hafa búið í Venesúela síðustu 18 árin. Heimildir bera með sér að fjölskyldumeðlimur kólumbísks og venesúelsks ríkisborgara geti sótt um dvalarleyfi og ríkisborgararétt í öðru hvoru landinu á þeim grundvelli að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Með vísan til framangreinds og niðurstöðu í máli kæranda, eiginkonu hans og barna í úrskurði nr. 142/2025 er það mat nefndarinnar að ekkert bendi til annars en að kærandi, eiginkona hans og börn þeirra geti sameinast í heimaríki eiginkonu hans og barna þeirra, Venesúela, eða heimaríki kæranda, Kólumbíu. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar og hagsmuna barna kæranda og eiginkonu hans og aðstæðna barna almennt í Kólumbíu í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Í Kólumbíu er menntun gjaldfrjáls til 16 ára aldurs og skólaskylda á grunnskólastigi.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 26. október 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 7. maí 2024, leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Í svörum kæranda kom fram að hann eigi vini á Spáni og að hann muni virða ákvörðun íslenskra stjórnvalda ef honum yrði ákveðin brottvísun og endurkomubann.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.


Þorsteinn Gunnarsson

Vera Dögg Guðmundsdóttir