21 febrúar 2025
/
Úrskurður nr. 166/2025
Hinn 21. febrúar 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 166/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24070208
Kæra [...]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 24. júlí 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. júlí 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn til sendiráðs Íslands í Peking, dags. 2. júlí 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 10 daga dvöl frá 28. september 2024 til 7. október 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. júlí 2024. Hinn 24. júlí 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda. Kærandi sendi kærunefnd tölvubréf, dags. 31. júlí, 6. og 8. ágúst 2024 til að fylgja kæru sinni eftir.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í kæru kveðst kærandi ætla að ferðast til Íslands með þremur vinum sínum og þau hafi gert ítarlega ferðaáætlun. Upphaflega hafi kærandi treyst á ferðaskrifstofu til að skipuleggja ferðina fyrir sig en ferðaskrifstofan hafi skilað ónákvæmri ferðaáætlun. Með hjálp vina sinna hafi kærandi gert nýja og skýrari ferðaáætlun.
Kærandi lagði á kærustigi fram nýja flugbókun dags. 24. júlí 2024, ásamt nýjum hótelbókunum, nýrri ferðaáætlun og nýju bankayfirliti.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 11, þ.e. að upplýsingarnar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar; og að rökstudd ástæða sé til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlunina séu áreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að ekki hafi verið hægt að staðfesta flugbókanir. Kærandi hafi í viðtali verið óupplýst um ferðaáætlun og gefið óáreiðanleg svör við spurningum. Vafi leiki á því að kærandi hygðist ferðast til Íslands. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
Samkvæmt dagbókarfærslu í málaskrá Útlendingastofnunar var símaviðtal tekið við kæranda 11. júlí 2024 af því tilefni að ekki hafi verið hægt að staðfesta flugbókun auk þess sem skort hafi upp á framlagðar upplýsingar tengdum atvinnu kæranda. Í endurriti af umræddu viðtali, sem og dagbókarfærslu sem skráð var eftir viðtalið, kemur m.a. fram að kæranda hafi kynnst Íslandi í gegnum samfélagsmiðla og langi að ferðast hingað til að sjá norðurljósin. Hún hafi hins vegar ekki getað gert grein fyrir ítarlegri ferðaáætlun sinni, að öðru leyti en því að hana langi að sjá gullna hringinn og að hún myndi notast við leigubíla og rútur til að ferðast um. Sagðist kærandi líklega muni ferðast ein. Kærandi hafi áður ferðast til Suður-Kóreu árið 2019 en engar ferðaupplýsingar fundust til staðfestingar á því. Framlagt vegabréf kæranda væri fyrsta útgefna vegabréf til handa hennar.
Ferðaáætlun og gögn sem tengjast henni eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 5., 6. og 7. tölul. gátlista með vegabréfsumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni í Kína, þar sem kærandi lagði fram umsókn sína. Í kæru kemur fram að kærandi hafi ætlað að ferðast til Íslands með þremur vinum sínum og að þau hafi gert ítarlega ferðaáætlun. Upphaflega hafi kærandi treyst á ferðaskrifstofu til að skipuleggja ferðina fyrir sig en ferðaskrifstofan hafi skilað ónákvæmri ferðaáætlun. Með hjálp vina sinna hafi kærandi gert nýja og skýrari ferðaáætlun. Kærandi lagði á kærustigi fram nýja flugbókun dags. 24. júlí 2024, ásamt nýjum hótelbókunum, nýrri ferðaáætlun og nýju bankayfirliti. Þær skýringar sem kærandi hefur lagt fram við meðferð kærumáls hennar eru ekki til þess fallnar að draga úr vafa um ferðaáætlun hennar. Í endurriti viðtals við kæranda hafði hún afar takmarkaða þekkingu á Íslandi og gat ekki gert grein fyrir framlagðri ferðaáætlun sinni nema að afar takmörkuðu leyti. Til samræmis við 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir verður að gera þá kröfu til umsækjenda að þeir hafi þekkingu á framlagðri ferðaáætlun og geti gert grein fyrir henni í viðtali. Úr framangreindum annmarka verður ekki bætt á kærustigi með framlagningu nýrrar ferðaáætlunar. Þegar að því sögðu verður hin kærða ákvörðun staðfest. Er kæranda leiðbeint um að sækja um vegabréfsáritun að nýju.
Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki getað fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar og að, sbr. ii. tölul. 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi kærandi þannig ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar og að ástæða hafi verið til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. d-lið 6. mgr. og 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður