06 mars 2025
/
Nr. 185/2025 Úrskurður
Hinn 6. mars 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 185/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU25010005
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 3. janúar 2025 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn karlmanns er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og brottvísa honum frá landinu. Var kæranda gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár. Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd ásamt tveimur bræðrum sínum. Fjallað er um umsóknir þeirra í úrskurðum kærunefndar nr. 186/2025 og 187/2025.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar, sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun og endurkomubanni séu uppfyllt. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi gerir kröfu um að hina kærðu ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga.
2 Málsmeðferð
Kærandi kom til landsins ásamt tveimur bræður sínum, einum fullorðnum og einum ólögráða, og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 4. júlí 2024. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum 5. júlí 2024, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og hann hefði hlotið alþjóðlega vernd þar í landi 9. október 2023. Kærandi framvísaði dvalarleyfisskírteini útgefnu af yfirvöldum í Grikklandi þar sem fram kom að hann hefði hlotið réttarstöðu flóttamanns og væri með dvalarleyfi þar í landi til 8. október 2026. Kærandi framvísaði jafnframt flóttamannavegabréfi útgefnu af grískum yfirvöldum með gildistíma til 21. janúar 2029. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 9. ágúst 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 3. janúar 2025 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi brottvísað frá landinu. Það var mat Útlendingastofnunar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur til endursendingarríkis. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst greinargerð kæranda 12. janúar 2025.
3 Greinargerð til kærunefndar
Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi dvalið í Grikklandi við erfiðar aðstæður en hann hafi ekki notið framfærslu og ekki haft atvinnu þar í landi. Kærandi hafi ekki haft í nein hús að venda og ekki notið heilbrigðisþjónustu. Kærandi hafi sætt ofbeldi og verið rændur þar í landi. Kærandi vísar til þess að hann hafi fengið þau svör frá grísku lögreglunni, er hann leitaði til hennar, að Arabar leysi sín mál án aðkomu lögreglu og handhafar framkvæmdarvalds líti þannig ekki á að þeim beri að framfylgja lögum og reglum. Kærandi tali hvorki ensku né grísku og eigi ekki fjölskyldu í Grikklandi.
Í greinargerð er vísað til greinargerðar kæranda til Útlendingastofnunar hvað vísun í lagaákvæði varðar. Móðurbróðir kæranda sé búsettur hér á landi og hann hafi því tengsl við nákominn ættingja hér á landi en engum slíkum tengslum sé til að dreifa í Grikklandi. Kærandi telji að aðstæður flóttafólks í Grikklandi uppfylli ekki kröfur um aðbúnað og alvarlegar brotalamir séu í kerfinu. Kæranda sé ókleift að aðlagast, sjá sér farborða og njóta almannaþjónustu. Kærandi hafi barn á sínu framfæri sem hafi verið synjað um aðstoð á spítala stöðu sinnar vegna auk þess sem það eigi ekki kost á menntun. Kærandi hafi orðið fyrir fordómum í Grikklandi, en hatursorðræða og glæpir viðgangist gagnvart flóttafólki. Kærandi vísar til þess fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa og engin húsnæðisúrræði séu til staðar fyrir flóttamenn auk þess sem erfitt geti verið að fá pláss í gistiskýlum vegna mikillar aðsóknar. Kærandi telur að stjórnvöldum beri að afla upplýsinga um aðstæður í Grikklandi m.a. frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og vísar til 10. gr. stjórnsýslulaga.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli undir 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi fjallar um grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement). Kærandi vísar til 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Kærandi telji að í Grikklandi sé hann í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.
Kærandi telur að endurkomubann inn á Schengen-svæðið feli í sér ósanngjarna ráðstöfun samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af málsatvikum.
4 Umsókn um alþjóðleg vernd
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda og reglugerða og tilskipana Evrópusambandsins er varða landamæraeftirlit og umsóknir um alþjóðlega vernd eftir því sem tilefni er til.
Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur ákvæði laga og stjórnvaldsfyrirmæla sem máli skipta við úrlausn umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.
4.2 Aðstæður kæranda
Kærandi er [...]ára karlmaður sem kom hingað til lands ásamt tveimur bræðrum sínum, þar af einum ólögráða. Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd í Grikklandi í ágúst 2023 og hlaut hana í október sama ár. Kærandi dvaldi í Grikklandi þar til hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 4. júlí 2024. Kærandi greindi frá því að hafa hafist við í tjaldi ásamt bræðrum sínum á landareign manns sem hafi ráðið eldri bróður hans til vinnu. Kærandi kveði að mikið sé um eiturlyfjaneytendur í Grikklandi sem hann hafi oftar en einu sinni þurft að flýja undan. Þá hafi kærandi verið rændur en gríska lögreglan hafi ekkert aðhafst í málinu. Kærandi greindi frá því að hafa farið í aðgerð á höndum og fótum þegar hann var á barnsaldri sem hann beri enn ör eftir en hann viti ekki hvers vegna hann hafi undirgengist þá aðgerð. Þá glími kærandi við þunglyndi.
Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 9. ágúst 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 3. janúar 2025 um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn bárust. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu er mál kæranda nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
4.3 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
a. umsækjandi hafi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd í öðru ríki.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi 9. október 2023 og hefur hann gilt dvalarleyfi þar í landi til 8. október 2026. Sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi telst virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Með lögum um breytingu á lögum um útlendinga nr. 68/2024 var þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga felld brott samkvæmt 5. gr. breytingarlaganna. Samkvæmt lagaskilum 14. gr. breytingarlaganna gildir umrædd breyting um meðferð umsókna sem bárust eftir gildistöku laganna. Lögin voru birt í Stjórnartíðindum 3. júlí 2024 og tóku gildi 4. júlí 2024. Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 4. júlí 2024 eða eftir gildistöku breytingarlaganna og gildir því 2. mgr. 36. gr. þágildandi laga um útlendinga ekki um umsókn kæranda. Hið sama á við um 32. gr., 32. gr. a, 32. gr. b, 32. gr. c og 32. gr. d reglugerðar um útlendinga sem felld voru úr gildi með breytingarreglugerð nr. 1069/2024.
4.4 Landaupplýsingar
Lagt hefur verið mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
- 2023 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 22. apríl 2024);
· Amnesty International Report 2022/23 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual report 2020 (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2020);
· Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 10. júlí 2024);
· Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, mars 2023);
- Freedom in the World 2023 – Greece (Freedom House, mars 2023);
· Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
· Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
· Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
- Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
· Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/);
· Upplýsingar af vefsíðu The Smile of the child (https://www.hamogelo.gr/gr/en/sos-1056/) og
· World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).
Grikkland er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá er Grikkland aðili að Evrópuráðinu og hefur fullgilt mannréttindasáttmála Evrópu. Grikkland hefur fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð og samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og barnasáttmálann. Þá er ríkið aðili að Flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna.
Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.
Samkvæmt skýrslum European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá júlí 2024 og Passerell frá nóvember 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi, sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku, hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Allir eigi rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.
Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.
Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir flóttafólk þurfa einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa almannatrygginganúmer, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt skýrslu ECRE er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.
Samkvæmt skýrslum ECRE og Passerell hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar.
Á heimasíðu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna kemur fram að til þess að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi þurfi viðkomandi að fara á næstu skattstofu og leggja fram umsókn. Umsóknareyðublaðið sé á grísku og sé bæði aðgengilegt á skattstofunum sjálfum og á rafrænu formi. Með umsókn þurfi að leggja fram frumrit og afrit af dvalarleyfi ásamt sönnun á búsetu. Varðandi útgáfu almannatrygginganúmera skuli leggja fram umsókn hjá skrifstofu almannatrygginga AMKA eða í þjónustumiðstöð borgarbúa KEP. Með umsókn skuli framvísa gildu dvalarleyfisskírteini og sönnun á búsetu. Reynsla einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi af því að sækja um almannatrygginganúmer sé mismunandi. Afgreiðsla sé í sumum tilvikum fljótvirk en í öðrum tilvikum óski yfirvöld eftir frekari gögnum. Hægt sé að fá aðstoð frá frjálsum félagasamtökum við umsóknarferlið, bæði varðandi útgáfu skatt- og almannatrygginganúmera.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá hafi borið á kvörtunum óskráðra innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd um ofbeldi við brottvísunaraðgerðir (e. pushbacks) grískra yfirvalda við landamærin. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram að grísk stjórnvöld hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, lögsækja og refsa opinberum starfsmönnum sem hafi gerst sekir um mannréttindabrot eða spillingu. Hins vegar hafi frjáls félagasamtök og alþjóðastofnanir gagnrýnt stjórnvöld fyrir skort á rannsókn og öðrum aðgerðum vegna ásakana um ofbeldi og illa meðferð lögreglu við brottvísunaraðgerðir á umsækjendum um alþjóðlega vernd frá Grikklandi. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 að 20. júlí 2022 hafi verið samþykkt lagabreyting sem hafi sett á fót sérstakt embætti innan ráðuneytisins um fólksflutninga og alþjóðlega vernd (e. Ministry of Migration and Asylum) til að hafa eftirlit með vernd mannréttinda við málsmeðferðir umsókna um alþjóðlega vernd. Með breytingunni hafi jafnframt verið innleitt verklag um að vísa kvörtunum til stofnunarinnar (e. National Transparency Authority, NTA) og þá hafi verið stofnuð sérstök nefnd innan ráðuneytisins sem hefur það hlutverk að tryggja að grundvallarréttindi séu virt og að samræmis sé gætt á milli innlendra laga og reglugerða og tilskipana Evrópusambandsins um landmæraeftirlit. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.
4.5 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið. Í 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi er að finna sambærilegt ákvæði og í 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu og Evrópudómstólsins leiðir að þrátt fyrir að ríki hafi rétt til að stjórna hverjir dvelji á landsvæði þeirra geti flutningur einstaklings til annars ríkis falið í sér brot á banni við ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þetta á við ef veruleg ástæða er til að ætla að viðkomandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð ákvæðinu.
Meðferð endursendingarríkis og aðbúnaður handhafa alþjóðlegrar verndar þar í landi þurfa að ná tilteknu alvarleikastigi til að fela í sér brot gegn banninu. Því alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda ríkisins hefur þær afleiðingar að einstaklingur, sem að öllu leyti er háður stuðningi þess, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann getur ekki mætt grundvallarþörfum sínum og grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn. Það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni verulega við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki telst ekki nægjanlegt til að teljast vanvirðandi meðferð. Þá er ríkjum ekki skylt að sjá þeim sem njóta alþjóðlegrar verndar eða dvalarleyfis fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum.
Í greinargerð byggir kærandi á því að hann hafi ekki notið framfærslu og ekki haft atvinnu í Grikklandi. Kærandi hafi ekki haft í nein hús að venda og ekki notið heilbrigðisþjónustu þar í landi. Jafnframt hafi kærandi sætt ofbeldi og verið rændur en gríska lögreglan hafi ekkert aðhafst í málinu.
Framangreindar landaupplýsingar gefa til kynna að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu í Grikklandi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikklands. Jafnframt eigi einstaklingar með alþjóðlega vernd heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þá geti kærandi leitað sér aðstoðar löggæsluyfirvalda óttist hann um öryggi sitt eða telji brotið á rétti sínum. Verður ekki talið að framangreindar aðstæður sem kærandi hefur borið fyrir sig nái því alvarleikastigi að teljast ofsóknir eða ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð þannig að til skoðunar komi að beita 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Litið hefur verið til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda í endursendingarríki með hliðsjón af aðstæðum handhafa alþjóðlegrar verndar þar í landi, sbr. gögn málsins og framangreindar landaupplýsingar. Ekkert bendir til að endursending kæranda til ríkisins sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Grikklandi, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, hefur ekki verið sýnt fram á að hann eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til endursendingarríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samkvæmt framansögðu verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
5 Brottvísun og endurkomubann
5.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar brottfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Umræddar lagabreytingar voru m.a. gerðar til að tryggja að framkvæmd brottvísana hér á landi væri í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun og endursendingum ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (brottvísunartilskipunin) sem Ísland er skuldbundið af vegna þátttöku í Schengen-samstarfinu.
5.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 6. september 2024. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi.
Kæranda var gefið færi á að andmæla mögulegri brottvísun frá Íslandi og endurkomubanni í viðtali hjá Útlendingastofnun. Kærandi kvaðst eiga frænda hér á landi og frændur í Þýskalandi, Hollandi og Grikklandi. Þá greindi kærandi frá því að brottvísun og endurkomubann væri ósanngjörn ráðstöfun. Með vísan til framkominna gagna, athugasemda kæranda og framangreindrar umfjöllunar um aðstæður kæranda í Grikklandi telst brottvísun kæranda frá Íslandi og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til 3. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal kærandi yfirgefa landið án tafar. Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laganna skal að jafnaði veita frest í 7-30 daga til sjálfviljugrar brottfarar. Með vísan til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga verður að skilja orðalagið án tafar þegar veittur er frestur til sjálfviljugrar brottfarar svo að miða verði við lágmarksfrest í 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestur kæranda til sjálfviljugrar brottfarar er því 7 dagar og tekur ákvörðun um brottvísun og endurkomubann ekki gildi yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur án tafar. Með vísan til framangreinds verður ekki fallist á varakröfu kæranda um að fallið verði frá brottvísun og endurkomubanni.
Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann er staðfest.
6 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Í greinargerð kæranda kemur fram að hann telji að stjórnvöldum beri að afla upplýsinga um aðstæður í Grikklandi m.a. frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og vísar til 10. gr. stjórnsýslulaga.
Lagt hefur verið mat á aðstæður kæranda í endursendingarríki hér að framan og þá þjónustu sem hann á rétt á þar í landi með hliðsjón af frásögn hans í viðtali og gögnum málsins. Verður ekki fallist á með kæranda að Útlendingastofnun hafi borið að rannsaka mál hans frekar og er því ekki um að ræða brot gegn 10. gr. stjórnsýslulaga.
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir Vera Dögg Guðmundsdóttir