18 mars 2025

/

Úrskurður nr. 226/2025


Hinn 18. mars 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 226/2025

í stjórnsýslumálum nr. KNU23080036, KNU23080037 og KNU23080042

Kæra [...] þeirra auk […]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Dagana 10. og 11. ágúst 2023 kærðu […], fd. […] (hér eftir M), […], fd. […] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela og Sýrlands og uppkominn sonur þeirra, […], fd. […] (hér eftir A), ríkisborgari Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 31. júlí 2023, um að synja þeim og ólögráða börnum M og K, […], fd. […] (hér eftir B) og […], fd. […] (hér eftir C), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og B og C eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu komu K og A til landsins frá Venesúela og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn M og K, B og C, 6. október 2022. Kváðust K og A sækja um vernd hér á landi vegna ástandsins í Venesúela þar sem þau teldu sig ekki vera örugg. Mikið sé um glæpi og spillingu og ekki auðvelt að lifa sómasamlegu lífi þar sem þau hafi sífellt verið kúguð. K kvað eiginmann sinn, M, hafa orðið eftir í Venesúela þar sem hann hafi ekki átt vegabréf en hún vonist til þess að hann geti komið síðar til landsins. K og M hafi átt hús í Venesúela sem þau hafi selt til að fjármagna ferðina til Íslands. K, A, B og C séu við góða heilsu.

M kom til landsins frá Venesúela og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 23. apríl 2023. Kvaðst M sækja um vernd hér á landi þar sem fjölskylda hans sé búsett hér. M hafi starfað við sölumennsku í Venesúela og sé við góða heilsu.

K og A komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 5. janúar 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. K kvaðst vera fædd í Sýrlandi og hafa verið búsett þar til 11 ára aldurs en þá hafi hún flutt til Venesúela. K og A kváðust hafa búið í Barquisimeto í Lara fylki í leiguíbúð ásamt M og ólögráða börnum M og K áður en K, A og börnin hafi yfirgefið Venesúela. K kvaðst hafa unnið við úthringingar og sölumennsku í hlutastarfi og hafa rekið lítið fyrirtæki með M við sölu matvara. Aðspurð greindi K frá því að það hafi verið barátta á hverjum degi að lifa af í heimaríki, hún og M hafi þurft að loka verslun sinni eftir að öllum vörunum í versluninni hafi verið rænt. Í kjölfarið hafi M farið til Ekvador og reynt að vinna þar en það hafi gengið illa vegna fordóma í garð Venesúelabúa þar í landi. Þá hafi M komið aftur til Venesúela og kærendur ákveðið að yfirgefa landið. K kvaðst vera við góða líkamlega og andlega heilsu. K og börn hennar og M hafi einungis þurft að leita læknisaðstoðar í Venesúela vegna minniháttar meiðsla en K greindi frá því að systir hennar hafi fætt barn stuttu áður en kærendur hafi yfirgefið heimaríki. Barnið hafi fengið öndunarfærasýkingu og látist fjórum dögum síðar vegna skorts á aðbúnaði á spítalanum. Aðspurð kvaðst K ekki vera aðili að stjórnmálaflokki, ekki tilheyra minnihlutahópi eða vera virk í þágu tiltekins málsstaðar í Venesúela. Hún kvaðst þó vona að landið myndi aftur verða eins og það hafi verið þegar hún hafi flutt þangað 11 ára gömul. Aðspurð um hvaða atvik í lífi hennar gerðu það að verkum að hún hafi yfirgefið Venesúela greindi K frá ýmsum atvikum sem hafi átt sér stað eftir útbreiðslu mótmæla árið 2017. K kvað sig og fjölskyldu sína hafa verið hrædda við að fara út úr húsi á þessum tíma vegna óöryggis í landinu. K greindi frá því að það hafi verið mikið áfall fyrir hana og fjölskylduna þegar M hafi verið skotinn í höndina af tveimur aðilum sem hafi ruðst inn í bíl M og rænt hann árið 2017. Þá hafi A verið rændur og byssu beint að honum en þegar K hafi farið til lögreglunnar til að leggja fram kæru vegna atviksins hafi lögreglan tjáð henni að hún þyrfti að borga þeim til að fá hjálp þeirra. K greindi jafnframt frá því að brotist hafi verið inn í skóla C og hlutum stolið þaðan. Þá hafi K eitt sinn verið stödd á einni stærstu götu Barquisimeto borgar þegar ótilgreindur aðili hafi beint byssu að baki hennar og heimtað að fá símann hennar og skartgrip. K hafi látið hann fá framangreinda hluti og þegar aðilinn hafi verið farinn á brott hafi K tilkynnt nálægum lögreglumönnum að hún hafi verið rænd. Lögreglan hafi á endanum fundið síma K í fórum ótilgreindrar sölustúlku og K fengið hann aftur. Hún hafi hins vegar ekki getað kært atvikið þar sem umrædd stúlka hafi borgað lögreglunni fyrir að halda nafni hennar leyndu. K greindi jafnframt frá því að í annað skipti hafi hún verið á leið út af markaði þegar ótilgreindur maður hafi reynt að hrifsa veski hennar og hrint henni með þeim afleiðingum að hún hafi meiðst í andliti. K kvað hins vegar að dauði nýfædds systurbarns hennar hafi gert útslagið þar sem barnið hafi fæðst heilbrigt en engu að síður dáið fáeinum dögum síðar. K kvaðst óttast að verða fórnarlamb glæpa í Venesúela, að veikjast eða slasast og þurfa á læknisaðstoð að halda og að börn hennar og M muni ekki fá þá menntun sem þau eigi skilið í heimaríki. Hún telji sig ekki geta treyst á aðstoð eða vernd yfirvalda þar sem yfirvöld taki peninga af fólki. K greindi þá frá því að hún og fjölskylda hennar hafi verið að fylgjast með mótmælum fyrir utan heimili fjölskyldunnar árið 2017. Fjölskyldan hafi verið inni á heimilinu og fylgst með út um gluggann og séð lögregluna skjóta í átt að mótmælendunum. Lögreglan hafi séð þau vera að fylgjast með og kastað gassprengju inn í hús þeirra.

A kvaðst vera fæddur og uppalinn í Barquisimeto í Lara fylki í Venesúela. Hann hafi starfað í bakaríi og á grænmetismarkaði í tvo mánuði áður en hann hafi yfirgefið heimaríki, en þar áður hafi hann verið í skóla. A kvaðst hafa fengið um 80 dollara í mánaðarlaun að meðaltali og haft efni á mat og annarri nauðsynjavöru. A kvaðst vera líkamlega hraustur og aðspurður um andlega heilsu sína kvað hann sér líða vel núna en að dauðsfall litla frænda hans hafi haft mikil áhrif á hann. A kvaðst ekki vera aðili að stjórnmálaflokki, tilheyra minnihlutahópi eða vera virkur í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki. Aðspurður um hvaða atvik í lífi hans hafi gert það að verkum að hann flúði frá Venesúela kvað A það hafa verið vegna óöryggis og glæpa sem hann hafi orðið fyrir þar í landi. A greindi frá því að árið 2017 hafi alda mótmæla hafist í Venesúela og mótmæli m.a. átt sér stað fyrir utan heimili fjölskyldu hans. Lögreglan hafi barist gegn mótmælendum og varpað gassprengjum að nálægum húsum þar sem fólk hafi verið að fylgjast með mótmælunum. Fjölskylda A hafi opnað lítið fyrirtæki árið 2018 sem þau hafi þurft að loka ári síðar eftir að brotist hafi verið inn í verslun þeirra nótt eina og öllum vörum stolið og þau ekki haft efni á að kaupa nýjar vörur. A kvað föður sinn, M, hafa flutt til Ekvador árið 2019 vegna ástandsins í heimaríki en ekki getað dvalið þar lengi sökum mismununar þar í landi gagnvart fólki frá Venesúela. A hafi byrjað að vinna árið 2020 til að hjálpa við rekstur heimilisins. Árið 2021 hafi A verið að afgreiða ótilgreindan mann í verslun þegar maðurinn hafi beint byssu að honum og hótað að skjóta hann ef hann myndi ekki afhenda manninum síma sinn. A kvaðst hafa leitað til lögreglunnar til að kæra framangreint atvik en lögreglumaðurinn sem hafi séð um skýrslutökuna hafi viljað fá peninga og því hafi A ekki fengið síma sinn aftur. A kvaðst ekki hafa farið einn út úr húsi í u.þ.b. mánuð eftir framangreint atvik vegna óöryggis. A kvaðst hafa flutt til borgarinnar Los Teques í Miranda fylki í júní 2022 og unnið í bakaríi. Einn daginn þegar hann hafi verið í sendiferð fyrir vinnuna hafi menn á tveimur mótorhjólum stöðvað upp við hann, beint að honum byssu og heimtað að fá síma hans afhentan, sem A kvaðst hafa gert. A hafi snúið aftur heim til Barquisimeto eftir tveggja mánaða dvöl í Los Teques. Stuttu síðar hafi litli frændi hans fæðst með sýkingu og látist vegna skorts á aðbúnaði á spítalanum. A kvað umrætt atvik hafa gert útslagið varðandi ákvörðun kærenda um að flytja. Þau hafi ákveðið að flýja Venesúela ekki einungis vegna þess að líf þeirra hafi verið í hættu þar heldur einnig vegna þess að þar hafi ekki verið hægt að fá nauðsynlega heilbrigðisaðstoð ef eitthvað myndi koma fyrir þau.

M mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun 26. júní 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá ástæðum flótta síns. M kvaðst vera fæddur og uppalinn í Sýrlandi þar sem hann hafi m.a. aflað sér bakkalárgráðu og starfað við hin ýmsu störf en flutt til Venesúela árið 1995. M kvaðst hafa dvalið í Ekvador á árunum 2018 til 2019 þar sem hann hafi starfað á veitingastað en hvorki verið með atvinnu- né dvalarleyfi. Aðspurður kvaðst M eiga fjölskyldu í Venesúela, m.a. uppkominn son úr fyrra sambandi. M kvaðst hafa selt hús sitt til að fjármagna ferðina til Íslands og kvaðst hafa verið búsettur í eigin íbúð í Barquisimeto áður en hann hafi yfirgefið heimaríki. Af frásögn M má ráða að K, A, B og C hafi verið búsett ásamt honum í íbúðinni áður en þau hafi yfirgefið Venesúela á undan honum. Aðspurður kvað M börn þeirra hafa gengið í skóla í heimaríki en aðstæður í skólanum hafi farið versnandi með árunum, m.a. vegna þjófnaðar og fjarveru kennara og nemenda. Kennararnir hafi ekki fengið greitt frá stjórnvöldum og því hafi íbúar í nágrenninu tekið höndum saman og borgað kennurunum. M kvaðst hafa átt lítið bakarí í heimaríki þar sem hann seldi einnig unnar kjötvörur áður en hann hafi yfirgefið Venesúela. Hann hafi verið með um 1.800-1.900 dollara að meðaltali í mánaðartekjur og átt fyrir mat og annarri nauðsynjavöru. Aðspurður kvaðst M vera við góða líkamlega heilsu en hafa meitt sig í bakinu og væri með verki vegna þess. M kvað andlega heilsu sína vera eðlilega en eiga erfitt með svefn. Hann hafi þurft að leita heilbrigðisaðstoðar í Venesúela um 12 árum áður þegar hann hafi þurft að gangast undir skurðaðgerð. M kvaðst ekki taka nein lyf að staðaldri. M kvaðst tilheyra sérstökum þjóðfélagshópi í Venesúela sem einstaklingur af arabískum uppruna og tilheyra minnihlutahópi þar í landi af þeim sökum. M hafi orðið fyrir mismunun sökum uppruna síns þar sem það sé algengur misskilningur í Venesúela að einstaklingar af arabískum uppruna séu efnaðir. M kvaðst ekki vera aðili að stjórnmálaflokki eða vera virkur í þágu tiltekins málsstaðar í Venesúela. M sé Drúsi en kvaðst ekki telja sig tilheyra minnihlutahópi í Venesúela sökum trúar sinnar. Aðspurður um hvaða atvik í lífi hans gerðu það að verkum að hann flúði frá Venesúela kvað M það hafa verið vegna óöryggis, skorts á heilbrigðisþjónustu og lélegs menntakerfis þar í landi. M greindi frá því að bíl hans hafi verið rænt og hann skotinn í höndina árið 2008 af ótilgreindum einstaklingum. Af frásögn M má ráða að hann hafi beðið lögregluna um að fara með sig á sjúkrahús vegna skotsársins en lögreglan hafi ekki verið með bíl og M hafi því þurft að taka leigubíl á einkaspítala þar sem hann hafi gengist undir skurðaðgerð á hendinni. M greindi frá því að bíl hans og síma hafi verið rænt á ótilgreindum tíma og hann hafi hringt í síma sinn og samið við þjófana um að skila bílnum hans aftur gegn greiðslu. Þá hafi verið brotist inn í verslun hans og öllum vörum stolið árið 2017. M greindi jafnframt frá því að hafa verið heima hjá tengdaföður sínum eitt sinn árið 2022. Hann hafi verið inni í húsinu en K og frændfólk M verið fyrir utan húsið þegar þrír einstaklingar á mótorhjólum hafi komið og einn þeirra beint byssu að höfði K, farið með hana inn í húsið og neytt M til að afhenda þeim alla þá hluti sem hann hafi verið með á sér, sem hann hafi gert. M kvaðst telja að þau rán sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki hafi beinst að honum persónulega þar sem glæpamenn hafi talið hann eiga mikinn pening vegna þess að hann hafi átt fínan bíl og eigið fyrirtæki. Þá greindi M frá því að hafa verið hræddur um að eitthvað myndi koma fyrir börn sín og K í hvert sinn sem þau hafi farið í skólann og því hafi hann beðið í skólanum fyrsta og síðasta hálftíma hvers skóladags af ótta við að eitthvað kæmi fyrir þau þar.

B og C mættu til viðtals hjá Útlendingastofnun 11. janúar 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og túlki. B og C kváðust hafa búið með foreldrum sínum, M og K, og bróður sínum, A, í heimaríki. B og C kváðust hafa sótt nám í grunnskóla og að foreldrar þeirra hafi alltaf haft áhyggjur af því að eitthvað myndi koma fyrir þau í skólanum. B kvað kennarana í skólanum hafa verið metnaðarlitla og að skólinn hafi oft verið lokaður eða án rafmagns eða vatns. B kvaðst ekki hafa gert neitt utan skólans nema horfa á sjónvarpið þar sem ekkert annað hafi verið í boði. B kvaðst hafa æft fótbolta, bæði í Venesúela og á Íslandi, og að það væri hans helsta áhugamál. C kvað helstu áhugamál sín vera að teikna, mála og hjóla. Aðspurð um hvernig þeim hafi liðið í Venesúela greindi C frá því að henni hafi liðið illa þar sem hún hafi ekki getað farið út á svalir heima hjá sér eða út úr húsi án þess að eiga á hættu að einhver myndi skjóta að henni eða ræna af henni síma eða öðrum hlutum. C kvaðst einungis hafa getað hitt vinkonu sína utan skólans heima hjá sér eða heima hjá vinkonu sinni. B og C kváðust bæði vera heilsuhraust, þau hafi hvorki þurft né getað farið til læknis í heimaríki. Aðspurð hvort það hafi verið nóg til að borða heima hjá þeim í Venesúela kváðu B og C alltaf hafa fengið mat að borða, stundum hafi verið minna til en þau hafi alltaf fengið mat. B og C greindu frá því að M hafi verið með lítinn rekstur í heimaríki sem hafi síðar þurft að loka vegna innbrots og þjófnaðar. B kvað M því hafa unnið óreglulega við ýmis sölustörf og K hafi verið heimavinnandi. B og C kváðu fjölskylduna hafa yfirgefið Venesúela vegna óöryggis og skorts á framtíðarmöguleikum. B kvað M hafa lent í ráni á leið sinni heim úr vinnunni og hafa verið skotinn í höndina í kjölfarið. Þá greindi B frá því að hafa verið á leið heim úr bakaríi ásamt vini sínum þegar hann hafi séð annan strák ræna ótilgreindum manni. B kvaðst hafa byrjað að hlaupa í burtu þegar hann hafi séð framangreint atvik. B hafi verið ánægður þegar hann hafi heyrt að fjölskyldan væri að yfirgefa Venesúela en kvaðst þó hafa verið leiður yfir því að þurfa að yfirgefa þá fáu vini sem hann hafi átt þar í landi. Hann kvaðst vera ánægður að búa loksins í landi þar sem hann sé öruggur, en fólk í Venesúela, bæði börn og fullorðnir, eigi á hættu að verða fyrir ráni fyrir það eitt að eiga síma.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kærendum og börnum M og K synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Börnum M og K var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 10. og 11. ágúst 2023 og kærunefnd bárust greinargerðir kærenda ásamt fylgiskjölum 23. og 25. ágúst 2023. Þá bárust viðbótarathugasemdir M 22. nóvember 2023.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.

Í greinargerðum er aðstæðum kærenda lýst. Þar kemur m.a. fram að A hafi, á síðari stigum meðferðar máls hans, tjáð talsmanni sínum að hann hafi orðið fyrir hótunum og ofbeldi af hálfu lögreglumanns og félaga hans eftir að hafa lent í árekstri árið 2021 við aðra bifreið með þeim afleiðingum að ökumaður hinnar bifreiðarinnar hafi látið lífið. Ökumaðurinn hafi verið bróðir lögreglumanns í hverfi kærenda sem hafi kennt A um andlát bróður síns. A hafi ekki greint frá umræddu atviki í viðtali af ótta við að verða álitinn glæpamaður. Ofsóknir lögreglumannsins gagnvart A hafi haft áhrif á alla fjölskylduna og þau hafi upplifað sig í hættu sökum þessa og yfirgefið heimaríki. Þá hafi mótmæli átt sér stað í hverfi kærenda og lögreglan m.a. kastað gassprengju inn á heimili þeirra. Kærendur hafi verið rænd af ótilgreindum meðlimum glæpahópa í nokkur skipti, þeim hótað og vopnum beint að þeim. M hafi verið skotinn með byssu í höndina árið 2008 þegar bíl hans hafi verið stolið. Hann hafi borgað lausnarfé til að fá bílinn til baka þar sem þjófarnir hafi hótað að skjóta hann og fjölskyldu hans ef hann myndi ekki borga. Þá hafi rán verið framið í bakaríi M árið 2017 þar sem öllum vörum hafi verið stolið og hann þurft að loka fyrirtækinu þar sem fjárhagslega tjónið hafi verið of mikið til að hefja rekstur að nýju. Frænda M hafi verið rænt og hann myrtur af skipulögðum glæpahópi í janúar 2020 eftir hópurinn hefði krafið fjölskyldu frændans um lausnargjald sem ekki fékkst greitt. M hafi síðast verið rændur árið 2022, þegar hann og K hafi verið í heimsókn hjá föður K. Ótilgreindir glæpamenn hafi beint byssu að höfði K og þvingað M til að láta af hendi allt sem hann hafi verið með á sér. Þá hafi barn systur K látist árið 2022 fjórum dögum eftir fæðingu vegna skorts á aðbúnaði á spítalanum.

Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og börnum M og K verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Af greinargerðum kærenda má ráða að kærendur byggja framangreinda kröfu á því að þau eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum af hálfu aðila sem nefndir séu í a – c-liðum 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Þá óttast kærendur hið slæma ástand sem ríki í Venesúela. Byggja K og A á því að A hafi orðið fyrir ofsóknum af hálfu ótilgreinds lögreglumanns og annarra lögreglumanna eftir að hafa lent í árekstri við aðra bifreið þar sem ökumaður bifreiðarinnar, bróðir umrædds lögreglumanns, hafi látið lífið. Byggir K jafnframt á því að hún og fjölskylda hennar hafi orðið fyrir ofsóknum og áreiti sökum arabísks uppruna síns og m.a. verið útsett skotmörk glæpahópa sökum þessa. M byggir kröfu sína um alþjóðlega vernd á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við að verða fyrir ofsóknum í Venesúela á grundvelli þess að vera Drúsi og Arabi af sýrlenskum uppruna og á grundvelli aðildar að sérstökum þjóðfélagshópi sem einstaklingur í verslunarrekstri. M byggir á því að samtvinnun framangreindra tveggja þátta geri hann að sérstöku skotmarki. Hann hafi ítrekað orðið fyrir ránum, m.a. í verslun hans, og hafi ástæðu til að ætla að þjóðerni hans hafi gert hann sérstaklega útsettan fyrir slíkum glæpum þar sem fólk telji að einstaklingar af arabískum uppruna í Venesúela eigi meiri peninga en aðrir.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og börnum M og K verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggja kærendur á því að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þeim gert að snúa aftur til Venesúela. Kærendur vísa til þess að ástandið í heimaríki hafi ekki breyst til hins betra undanfarin misseri og að fólk búi þar almennt við slæmar aðstæður, ofsóknir og ofríki stjórnvalda. M byggir kröfu sína um viðbótarvernd á því að hið almenna ástand í Venesúela bitni harðar á honum og fjölskyldu hans en öðrum borgurum vegna sérstakra aðstæðna þeirra. Framangreindu til stuðnings vísar M til þjóðernis síns og stöðu sinnar sem einstaklings í verslunarrekstri, hann sé þriggja barna faðir, atvinnulaus og í sérstakri þörf á heilbrigðisþjónustu sökum astma og brjóstverks. Þá byggir M á því að hann hafi haft réttmætar væntingar til þess að hljóta sambærilega úrlausn á máli sínu og í úrskurðum kærunefndar nr. 206/2023 og 231/2022 og að framkvæmd Útlendingastofnunar í málum umsækjenda frá Venesúela stæði óhögguð. Þá telja kærendur það hvorki raunhæft né sanngjarnt að ætlast til þess að þau setjist annars staðar að í heimaríki sínu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, þar sem yfirvöld í heimaríki þeirra séu meðal þeirra sem séu ábyrg fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem þar ríkir og vísa máli sínu til stuðnings í úrskurð kærunefndar nr. 231/2022.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og börnum M og K verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Af greinargerðum kærenda má ráða að kærendur byggja framangreinda kröfu á því að þau uppfylli skilyrði til að fá dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til alvarlegra aðstæðna og erfiðra félagslegra aðstæðna í heimaríki. K og A hafi ekki möguleika á að framfleyta sér sjálf í heimaríki, A sé eignalaus, ómenntaður og án atvinnu. Þá sé aðgengi að heilbrigðisaðstoð, menntun og atvinnumöguleikar almennt slæmir í Venesúela, einkum vegna þess að skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki, heilbrigðisstofnanir séu fjársveltar og aðrar nauðsynlegar grunnstoðir ríkisins byggðar á veikum grunni. M standi frammi fyrir skertum aðgangi að heilbrigðisþjónustu, sem hann sé í þörf fyrir vegna brjóstverkja og astma, og börn hans og K standi frammi fyrir skertum aðgangi að menntun. Þá standi M frammi fyrir félagslegum aðstæðum í Venesúela sem séu ólíkar og lakari aðstæðum almennra borgara þar í landi. Sé það einkum vegna þess að hann sé af minnihlutaþjóðerni, atvinnulaus, með lítið bakland og hafi selt hús sitt til að fjármagna flótta fjölskyldunnar frá Venesúela. Þá sé M enn útsettari fyrir ofbeldi og mismunun þar í landi sem arabi.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefst M þess þá að brottvísun og endurkomubann til tveggja ára samkvæmt 101. gr. laga um útlendinga verði fellt úr gildi. Byggir M framangreinda kröfu á því að um ósanngjarna ráðstöfun sé að ræða í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga þar sem hann eigi tvo systursyni hér á landi með dvalarleyfi.

M krefst þess þá að leyst verði úr máli hans með hliðsjón af þeirri óvissu sem ríki um hagi útlendinga sem endursendir hafi verið til Venesúela 15. nóvember 2023.

Með endursendingu kærenda og barna M og K til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

5.3 Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og B og C. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Við meðferð málsins hafa M og K greint frá því að vera einnig ríkisborgarar Sýrlands. Lagði Útlendingastofnun til grundvallar að M og K væru venesúelskir og sýrlenskir ríkisborgarar. Kærunefnd telur ekki tilefni til að draga framangreint í efa og leggur til grundvallar við úrlausn málsins að M og K séu með ríkisfang bæði í Venesúela og Sýrlandi.

Þar sem kærendur eru ríkisborgarar Venesúela og eins og aðstæðum er háttað í máli þessu telur kærunefnd aðeins þörf á að fjalla um aðstæður kærenda í Venesúela, sbr. 2. mgr. A. liðar 1. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 19. febrúar 2025);
  • UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);.
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezeula (Britannica, síðast uppfært 4. mars 2025);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 26. febrúar 2025);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
  • Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
  • World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025.

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Emundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.

Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða álitnum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðarsinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahóps myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.

Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020, kemur fram að einstaklingar af arabískum uppruna í Venesúela séu um 1,6 milljón og eigi aðallega rætur sínar að rekja til Sýrlands og Líbanon. Þá kemur fram að heimildir bendi til þess að venesúelskir ríkisborgarar af arabískum uppruna fái ekki að neinu leyti öðruvísi meðferð en aðrir í samfélaginu og tilheyri öllum stéttum samfélagsins. Talið sé að 100 til 150 þúsund íbúar Venesúela séu múslimar eða 0,3 til 0,5 prósent af íbúum landsins. Af þeim séu sjía múslimar í minnihluta.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.

Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskir ríkisborgarar aðstoð við sjálfviljugar heimför til Venesúela á árinu 2024. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

M og K og börn þeirra byggja á því að þau tilheyri þjóðfélagshópi sem einstaklingar af arabískum uppruna, Drúsar og M sem einstaklingur í verslunarrekstri. Þau búi því við ástæðuríkan ótta við ofsóknir og séu útsettari fyrir ofsóknum á þeim grundvelli. K og A byggja jafnframt á því að A hafi orðið fyrir ofsóknum í Venesúela af hálfu lögreglumanns og því séu A og fjölskylda hans í hættu í heimaríki.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kváðust kærendur ekki vera aðilar að stjórnmálaflokki, virk í þágu tiltekins málsstaðar, M greindi frá því að tilheyra minnihlutahópi í heimaríki vegna arabísks uppruna síns. Kærendur greindu hins vegar frá því að mótmæli hafi átt sér stað í nágrenni við heimili þeirra árið 2017. Kærendur hafi fylgst með mótmælunum frá heimilinu og orðið vitni að valdbeitingu lögreglunnar í garð mótmælenda. Þá hafi lögreglan kastað gassprengjum að nærliggjandi heimilum, m.a. inn til kærenda. Í greinargerðum K og A til kærunefndar er byggt á því að A hafi orðið fyrir hótunum og áreiti lögreglumanns og vinnufélaga hans í kjölfar dauða bróður lögreglumannsins. Í greinargerð A kemur fram að árið 2021 hafi A keyrt á bifreið sem hafi komið akandi í áttina að honum. A hafi verið að keyra yfir á grænu ljósi en hin bifreiðin hafi keyrt yfir á rauðu ljósi. Ökumaður bifreiðarinnar sem A keyrði á hafi látið lífið, en hann hafi verið bróðir lögreglumanns í hverfinu og í kjölfarið hafi lögreglumaðurinn kennt A um dauða bróður síns. Vert er að taka fram að ekki var byggt á framangreindri málsástæðu í málum A og K fyrr en á kærustigi og kom hún því ekki til úrlausnar í ákvörðunum Útlendingastofnunar.

Máli sínu til stuðnings lögðu kærendur fram tvö myndbönd sem að sögn kærenda sýni frá mótmælum fyrir framan hús kærenda árið 2017. Myndböndin bera með sér að vera tekið af svölum byggingar af aðstæðum við nálæg gatnamót. Myndböndin gefa til kynna að fjöldi lögreglumanna á mótorhjólum sé að bregðast við aðstæðum úti á götu, mögulega vegna ágreinings við almenning, og er ekki hægt að útiloka að vopnum hafi verið beitt þar sem sjá má reyk og heyra má hvelli. Myndböndin bera ekki með sér að lögreglan hafi afskipti af þeim einstaklingum sem standa úti á svölum byggingarinnar eða að gassprengjum hafi verið kastað í átt til framangreindra einstaklinga. Að mati kærunefndar renna framlögð myndbönd stoðum undir fullyrðingar kærenda um aðgerðir lögreglunnar í nágrenni við heimili þeirra, mögulega vegna mótmæla. Frásagnir kærenda bera ekki með sér að þau hafi komið að starfsemi stjórnmálaflokka eða tekið þátt í mótmælum. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að kærendur eigi ekki frekar á hættu að verða fyrir áreiti en aðrir einstaklingar í heimaríki þeirra sem séu mótfallnir stjórnvöldum. Að mati kærunefndar benda gögn málsins og frásagnir kærenda samkvæmt framangreindu ekki til þess að þau eigi á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis.

Af viðtali við M hjá Útlendingastofnun og greinargerðum M og K má ráða að þau telji sig tilheyra sérstökum þjóðfélagshópi í Venesúela sökum arabísks uppruna síns og trúarskoðana þar sem þau séu Drúsar. M kvaðst hafa upplifað mismunun í Venesúela sökum uppruna síns þar sem fólk líti á hann sem auðvelt skotmark þar sem það telji hann efnaðan og því hafi hann orðið fyrir ítrekuðum ránum. Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020, kemur fram að einstaklingar af arabískum uppruna í Venesúela séu um 1,6 milljón og eigi aðallega rætur sínar að rekja til Sýrlands og Líbanon. Þá kemur fram að heimildir bendi til þess að venesúelskir ríkisborgarar af arabískum uppruna fái ekki að neinu leyti öðruvísi meðferð en aðrir í samfélaginu og tilheyra öllum stéttum samfélagsins. Þá kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Stjórnarskráin leggi einnig sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Framangreindar heimildir benda til þess að almennt umburðarlyndi ríki gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Aðstæður kærenda vegna uppruna þeirra eru ekki þess eðlis að þær eigi undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Ekki er ástæða til að draga í efa að A hafi verið áreittur að einhverju leyti af ótilgreindum lögreglumönnum í hverfinu og honum mögulega hótað vegna ásakana tiltekins lögreglumanns um ábyrgð A á dauða bróður hans. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Venesúela hafa stjórnvöld þar í landi brugðist við spillingu innan raða lögreglumanna og geta þeir einstaklingar sem verða fyrir brotum af hendi lögreglu, svo sem fjárkúgunum, meðal annars leitað til ríkislögreglunnar (Policía Nacional Bolivariana) eða þolendaaðstoðar hjá almenningsráðuneytinu (Ministerio Público). Þær aðgerðir benda ekki til þess að venesúelska ríkið geti ekki eða vilji ekki veita vernd í skilningi c-liðar 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir. Framangreind háttsemi nær ekki því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Við það mat er m.a. litið til þess að áreiti og hótanir lögreglumanna í garð A geti aðeins hafa átt sér stað á afmörkuðu tímabili frá því að áreksturinn átti sér stað árið 2021 og þar til A hafi yfirgefið heimaríki í byrjun október 2022. Af greinargerð A til kærunefndar má ekki ráða að honum hafi borist frekari hótanir af hálfu umrædds lögreglumanns eftir að kærendur hafi yfirgefið Venesúela og ekki verður ráðið af frásögn M að honum hafi borist hótanir lögreglumannsins eða tengdra aðila eftir að A yfirgaf landið. Þá er til þess að líta að í gögnum málsins liggur fyrir venesúelskt vegabréf A, útgefið 19. janúar 2022. Í vegabréfinu má sjá útstimpil af Simón Bolívar International flugvellinum, dags. 4. október 2022. Gefur það til kynna að A hafi getað sótt um vegabréf og farið með löglegum hætti úr landinu án þess að vera stöðvaður af yfirvöldum. Auk þess lagði A fram afrit sakavottorð síns sem gefið er út 18. ágúst 2023 til handa íslenskum stjórnvöldum. Að mati kærunefndar gefur framangreint ekki til kynna að A sé undir sérstöku eftirliti hjá stjórnvöldum eða starfsmanna á vegum yfirvalda í heimaríki sínu.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kváðust M, K og A ítrekað hafa orðið fyrir vopnuðum ránum í heimaríki af hálfu ótilgreindra glæpamanna. M kvaðst hafa verið skotinn með byssu í höndina þegar bíl hans hafi verið rænt árið 2008. M hafi síðar þurft að greiða glæpamönnunum til að fá bílinn aftur. M kvaðst hafa leitað aðstoðar lögreglu en lögreglan ekki veitt honum aðstoð við að komast á spítala og M hafi af þeim sökum ekki lagt fram kæru vegna atviksins. M greindi frá því að ótilgreindir glæpamenn hafi stolið öllum vörum úr bakaríi hans árið 2017. Hann hafi þurft að hætta rekstri þar sem hann hafi ekki haft efni á að kaupa nýjar vörur. M kvaðst síðast hafa verið rændur árið 2022, þegar hann og K voru í heimsókn hjá föður K. K greindi frá því að hafa verið rænd úti á götu af ótilgreindum manni sem hafi miðað byssu að baki hennar og krafist þess að fá hringinn hennar og símann hennar. K hafi látið framangreinda hluti af hendi og í kjölfar atviksins hafi hún leitað til lögreglumanna sem voru skammt frá. Lögreglan hafi á endanum fundið síma hennar en hún hafi ekki getað lagt fram formlega kæru þar sem einstaklingurinn sem hafi verið með síma hennar hafi borgað lögreglunni fyrir að halda nafni sínu leyndu. Í eitt skipti sem K kvaðst hafi verið á markaði hafi ótilgreindur maður reynt að taka veski hennar, hrint henni og hún meiðst í andliti.

A kvaðst hafa orðið fyrir tveimur ránum þar sem honum hafi verið ógnað með byssu. Í fyrra skiptið hafi A verið að afgreiða í verslun í Barquisimeto árið 2021 og tekið upp síma sinn til að leggja saman heildarupphæð reiknings viðskiptavinar þegar sá hafi beint byssu að A og hótað að skjóta hann léti hann manninn ekki fá símann. A hafi verið rændur í borginni Los Teques sumarið 2022 meðan hann hafi verið í sendiferð fyrir vinnuveitenda sinn. Í fyrra skiptið hafi A leitað til lögreglunnar en lögreglan neitað að gera nokkuð í málinu án þess að fá greiðslu fyrir. Í kjölfar viðtals M hjá Útlendingastofnun greindi hann talsmanni sínum frá því að nafngreindur frændi hans, sem hafi verið af arabískum uppruna og einnig í verslunarrekstri, hafi verið myrtur af glæpahópi í janúar 2020. Glæpahópurinn hafi krafið fjölskyldu frænda M um lausnargjald sem fjölskyldan hafi ekki getað greitt og því hafi frændi M verið tekinn af lífi.

Við meðferð málsins hafa kærendur lagt fram ýmis gögn, m.a. ódagsetta ljósmynd sem að sögn M sýnir ör á hendi hans eftir byssukúlu í kjölfar skotárásar árið 2008. Er framlögð ljósmynd til þess fallin að styðja frásögn M um að hafa hlotið áverka á hendi.

Með vísan til landaupplýsinga, framlagðra gagna og frásagna kærenda er ekki ástæða til að draga í efa að kærendur hafi orðið fyrir ránum, M hafi verið skotinn í höndina og að frændi M hafi verið myrtur af ótilgreindum glæpahópi. Þau atvik sem kærendur greina frá virðast þó hafa verið óskyld atvik sem hafi ekki beinst að persónum þeirra og hafi ekki haft frekari afleiðingar fyrir þau. Þá eru rúmlega 16 ár liðin frá því að M hafi verið skotinn í höndina og að framangreind atvik virðast frekar tengjast almennu óöryggi í Venesúela en persónum kærenda. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kærenda sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, komist að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Geta kærendur því leitað til lögreglu telji þau ástæðu til þess.

Kærendur hafa greint frá erfiðum efnahagslegum aðstæðum í heimaríki. Efnahagslegar aðstæður teljast almennt ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ekkert i gögnum málsins bendir til þess að annað eigi við í máli kærenda.

Kærendur greindu frá því að óttast það að verða send aftur til heimaríkis og vísar M til þess að ríkisborgarar Venesúela sem hafi snúið aftur til landsins 15. nóvember 2023 hafi m.a. verið frelsissviptir og yfirheyrðir. Samkvæmt framangreindum heimildum um endursendingar almennt til Venesúela verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúi til baka eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda, viðtölum við börnin og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnum M og K til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis þeirra.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barna M og K í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og börn M og K uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja kröfur sínar um viðbótarvernd á því að ástandið almennt í Venesúela auk persónulegra aðstæðna kærenda nái því alvarleikastigi að það falli undir verndarsvið 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur telja B og C ekki njóta öryggis í heimaríki auk þess að velferð þeirra sé þar stefnt í hættu. Kærendur vísa til þess að almennt óöryggi ríki í Venesúela og börnin, B og C, hafi þar eytt mestum tíma innan dyra heimilisins af öryggisástæðum.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar ný afstaðinna forsetakosninga séu harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kærenda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar, réttmætar væntingar og áhrif jafnræðisreglunnar.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barna M og K er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna M og K leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í Barquisimeto borg í Lara fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Lara fylkið í norðvesturhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur og börn M og K hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur og börn M og K eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna M og K séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og börn M og K uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur og börn M og K eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Ef um er að ræða barn skal miðað við 16 mánuði. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.

K og A sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn M og K 6. október 2022 og M sótti um alþjóðlega vernd 23. apríl 2023. Kærendur og börn M og K hafa því ekki fengið niðurstöðu í málum sínum innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita þeim dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.

Kærendur og börn M og K uppfylla skilyrði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við meðferð mála sinna hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram vegabréf fyrir sig og börn M og K. Verður því ekki talið að vafi leiki á því hverjir kærendur og börn M og K eru, sbr. b-lið 2. mgr. 74. gr. laganna. Ákvæði a- til d-liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi því ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Að öllu framangreindu virtu ber að veita kærendum og börnum M og K dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um kröfur kærenda og barna M og K skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar hvað varðar umsóknir kærenda og barna M og K um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum og börnum M og K dvalarleyfi skv. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar hvað varðar umsóknir kærenda og barna M og K um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir stofnunina að veita kærendum og börnum M og K dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

The decisions of the Directorate of Immigration regarding the appellants and M and K’s children’s applications for international protection are affirmed. The Directorate is instructed to issue the appellants and M and K’s children residence permits based on Article 74(2) of the Act on Foreigners.


Valgerður María Sigurðardóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir