26 mars 2025
/
Úrskurður nr. 261/2025
Hinn 26. mars 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 261/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24100041
Kæra […]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 4. október 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 21. september 2024, um frávísun frá Íslandi.
Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi kom til Íslands 21. september 2024, með flugi frá Róm, Ítalíu. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 21. september 2024, var kæranda vísað frá landinu.
Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í skýrslu lögreglu, dags. 21. september 2024, kemur fram að kærandi hafi við almennt eftirlit lögreglu verið óljós um tilgang dvalar hér á landi. Kærandi hafi því verið færður í viðtalsherbergi hjá lögreglu á Keflavíkurflugvelli þar sem hann hafi verið spurður nánar út í tilgang dvalar sinnar á Íslandi auk tengsla við landið. Kærandi hafi greint frá því að ætla að dvelja á landinu í tvo daga og eiga bókað flug til Berlínar 23. september 2024. Kærandi hafi framvísað bókun á gistiheimili frá 21. til 22. september 2024. Hann hafi framvísað 1.305 bandaríkjadölum og 180 evrum auk tiltekinni upphæð á greiðslukortareikningi. Um fyrstu ferð kæranda hingað til lands væri að ræða og hann þekki engan hér á landi. Lögregla hafi staðfest bæði flugmiða kæranda frá landinu og bókun á gistiheimili. Kærandi hafi greint frá því að ætla að fræðast um tækni og nýsköpun í landbúnaði hér á landi og nýta þá þekkingu í Nígeríu. Kærandi hafi ekki getað svarað því hvar eða hvert hann myndi fara til að öðlast framangreinda þekkingu en hann ætli að ræða það nánar við nafngreindan ferðafélaga sinn. Þá kvað hann ferðafélaga sinn hafa undir höndum bókun á bílaleigubíl.
Lögregla hafi jafnframt rætt við fyrrgreindan ferðafélaga kæranda en frásögn hans af ferðalagi þeirra hafi ekki verið í samræmi við frásögn kæranda. Hann hafi greint frá því að ætla að skoða Gullna hringinn og kvaðst ekki vera búinn að leigja bílaleigubíl. Þegar svör hans voru borin undir kæranda hafi kærandi greint frá því að vera kominn til landsins til að skoða Gullna hringinn en gæti ekki lýst nánar hvað hringurinn fæli í sér annað en að skoða staði og fossa. Lögregla mat frásögn kæranda um tilgang dvalar ótrúverðugan og að ósamræmi hafi verið í frásögn hans um tilgang dvalar sinnar hér á landi auk þess sem framburður hans hafi ekki verið í samræmi við framburð ferðafélaga hans. Kærandi hafi ekki getað gert grein fyrir ferðaáætlunum sínum. Samkvæmt framangreindu taldi lögregla að heimilt væri að frávísa kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Að því loknu keypti kærandi sér flugmiða frá landinu.
Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 4. október 2024. Í samræmi við 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga og 1. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga var kæranda skipaður talsmaður með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 27. febrúar 2025. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust kærunefnd 11. nóvember 2024. Frekari upplýsingar bárust frá lögreglu 17. mars 2025. Talsmaður kæranda lagði ekki fram greinargerð vegna málsins.
III. Málsástæður og rök kæranda
Kærandi lagði ekki fram greinargerð við meðferð málsins hjá kærunefnd.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvæði 11. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um leiðbeiningarskyldu stjórnvalda. Í 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga kemur fram að í máli er varðar frávísun, brottvísun eða afturköllun leyfis skal útlendingi þegar í upphafi máls leiðbeint um réttindi sín og meðferð málsins á tungumáli sem ætla má með sanngirni að hann geti skilið. Samkvæmt a-lið ákvæðisins skal útlendingi m.a. leiðbeint um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns eða annars fulltrúa á eigin kostnað við meðferð máls.
Í frumskýrslu lögreglu kemur ekki fram hvort kæranda hafi verið leiðbeint um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns í upphafi máls. Kærunefnd aflaði upplýsinga frá lögreglu 12. mars 2025 um það hvort kæranda hafi verið leiðbeint um framangreindan rétt sinn. Af upplýsingum frá lögreglu, sem bárust kærunefnd 17. mars 2025, má ráða að kæranda hafi ekki verið leiðbeint um þann rétt sinn í upphafi máls.
Ákvæði 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um fortakslausa skyldu íslenskra stjórnvalda til að hafa frumkvæði að því að leiðbeina útlendingi við upphaf máls um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns eða annars fulltrúa á eigin kostnað. Samkvæmt framangreindu var kæranda ekki leiðbeint um þann rétt sinn í samræmi við 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga og kann að vera að sá annmarki hafi haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Er því óhjákvæmilegt að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi.
Úrskurðarorð
Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum er felld úr gildi.
The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is vacated.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir