27 mars 2025

/

Úrskurður nr. 271/2025


Hinn 27. mars 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 271/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24080149

Kæra […]

á ákvörðun Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 26. ágúst 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. ágúst 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 13. ágúst 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun sem ferðamaður til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 16 daga dvöl frá 23. ágúst til 7. september 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Kína. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. ágúst 2024. Hinn 26. ágúst 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í kæru til kærunefndar kemur fram að kærandi ætli sér að ferðast til Íslands í gegnum Danmörku þar sem bróðir hans sé búsettur þar í landi og kærandi ætli að ferðast um Ísland með honum. Kærandi kveður ferðaáætlun sína vel unna. Kærandi kveður bókuð flug hafa verið gerð með kínversku viðmóti og væru afbókanleg fyrir sveigjanleika. Einnig greinir kærandi frá því að hægt sé að afbóka hótelgistingu þar sem hann vilji gera ráð fyrir því að geta skipt um gististað með stuttum fyrirvara. Kærandi kveðst vinna í samstarfi við aðra í verkefnamiðuðu fyrirtæki og því fari greiðslur fyrir viss verkefni í gegnum persónulegan bankareikning kæranda sem skýri umfangsmiklar færslur á bankareikningi hans.

Kærandi lagði fram ýmis fylgigögn við meðferð málsins á kærustigi m.a. flugbókanir, yfirlit yfir stöðu bankareiknings, hótelbókanir, vottorð frá vinnuveitanda og starfsleyfi fyrirtækis.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 12, þ.e. að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar og rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að ekki hafi verið hægt að staðfesta flug og hótelbókanir, umsækjandi hafi ekki lagt fram ferðaáætlun eða hótelbókanir með gildum bókunarnúmerum. Þar með væri rökstudd ástæða til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð hafi verið fram. Að auki hafi bankayfirlit, staðfesting á atvinnu og atvinnuleyfi sem lögð voru fram verið ófullnægjandi. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Með umsókn um vegabréfsáritun ber að leggja fram tiltekin fylgigögn, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, en nauðsynleg fylgigögn í tilviki kæranda eru tilgreind í gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands í Peking. Í gögnum málsins liggur fyrir að við meðferð umsóknar kæranda hjá sendiráði Íslands í Peking hafi kærandi verið upplýstur um að gögn er vörðuðu flugbókun, hótelbókun, upplýsingar um framfærslu, vottorð frá atvinnurekanda og starfsleyfi atvinnurekanda væru ófullnægjandi. Var kæranda gefið tækifæri til að bregðast við sem kærandi hafi ekki gert. Kærandi hefur lagt fram nýja hótelbókun, starfsleyfi, vottun frá atvinnurekanda, upplýsingar um framfærslu, ferðaáætlun og nýja flugbókun með bókunarnúmeri á kærustigi. Það ferðatímabil sem kærandi sótti um vegabréfsáritun fyrir er hins vegar liðið þegar úrskurður þessi er kveðinn upp. Forsendur hinnar kærðu ákvörðunar hvað þetta varðar byggjast á efnislegum skilyrðum sem ættu ekki að hafa íþyngjandi áhrif á réttarstöðu kæranda hafi hann áform um að sækja um vegabréfsáritun til ferðalaga inn á Schengen-svæðið að nýju eða koma hingað til lands í framtíðinni, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar nr. 25/2022, dags. 9. maí 2022. Telst kærandi því ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að lagt sé mat á þau gögn sem lögð hafa verið fram á kærustigi. Er kæranda þess í stað leiðbeint um að sækja um vegabréfsáritun að nýju.

Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar og því hafi verið rökstudd ástæða til að draga í efa að fylgiskjöl sem kærandi lagði fram væru ósvikin eða að innihald þeirra hafi verið rétt, sbr. ii. tölul. a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja réttmæti upplýsinga sem kærandi hafi veitt, sbr. d-lið 6. mgr. og 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest. Kæranda er leiðbeint um að hann geti sótt um vegabréfsáritun að nýju.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður