27 mars 2025

/

Úrskurður nr. 273/2025


Hinn 27. mars 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 273/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24080150

Kæra […]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 23. ágúst 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Bangladesh, (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. ágúst 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 14. ágúst 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir sex daga dvöl frá 5. til 10. september 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. ágúst 2024. Hinn 23. ágúst 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í kæru til kærunefndar fer kærandi fram á að synjun á umsókn hans um vegabréfsáritun til Íslands verði endurskoðuð. Kærandi kveðst hafa bókað og staðfest flug frá Íslandi til London og bíði þess að umsókn hans um vegabréfsáritun sé staðfest áður en hann bókar flug til ermasundseyjarinnar […] þar sem hann er búsettur. Kveðst kærandi eiga að mæta til vinnu daginn eftir heimkomu sína eða 11. september 2024. Kærandi kveður vanþekkingu sína á staðháttum á Íslandi stafa af því að hann hafi aldrei heimsótt landið og sé það ástæða þess að hann hyggi á ferð til Íslands til þess að kynnast menningu, náttúrufegurð og sögulegum kennileitum.

Kærandi lagði ekki fram ný fylgigögn á kærustigi.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Bangladesh, þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 11, þ.e. að upplýsingar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar og rökstudd ástæða er til að draga í efa yfirlýsingar varðandi áreiðanleika fylgiskjala sem lögð eru fram og ferðaáætlun kæranda. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að ekki hafi tekist að staðfesta flugbókun, umsækjandi sýndi skort á þekkingu varðandi ferð hans og Ísland sem áfangastað. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Samkvæmt dagbókarfærslu í málaskrá Útlendingastofnunar var símaviðtal tekið við kæranda 16. ágúst 2024 af því tilefni að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar þóttu ekki áreiðanlegar. Í endurriti af umræddu viðtali, sem og dagbókarfærslu sem skráð var eftir viðtalið, kemur m.a. fram að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti getað gert grein fyrir tilgangi ferðar sinnar t.d. hvað hann áætlaði að gera á Íslandi, hvernig hann ætlaði að ferðast á milli staða, hvaða staði hann ætlaði að heimsækja, hvar hann áætlaði að gista, með hvaða flugfélagi hann ætlaði að ferðast til landsins sem og hver væri höfuðborg Íslands.

Gögn sem sýna fram á fullgilda flugbókun eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 1. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands í Bretlandi. Úr framangreindum annmarka hefur ekki verið bætt á kærustigi enda hefur kærandi ekki lagt fram ný gögn á kærustigi. Þegar að því sögðu verður ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar og rökstudd ástæða er til að draga í efa yfirlýsingar varðandi tilgang ferðar kæranda til Íslands sé áreiðanlegur, sbr. ii tölul. a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja réttmæti upplýsinga sem kærandi hafði veitt, sbr. d-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður