04 apríl 2025
/
Úrskurður nr. 294/2025
Hinn 4. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 294/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24090085
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. september 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. ágúst 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 8. október 2023. Kvaðst kærandi sækja um alþjóðlega vernd vegna ofsókna og eineltis sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki vegna samkynhneigðar sinnar og vegna efnahagsástands þar í landi. Vegna samkynhneigðar sinnar hafi hann engra réttinda notið í Venesúela. Þá kvaðst kærandi glíma við óútskýrð yfirlið og vera með útbrot sem þyrfti að skoða.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 27. júní 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi kvaðst hafa verið búsettur í íbúð í Karakas áður en hann fór frá heimaríki, hann hafi ekki greitt leigu og ekki verið í vinnu áður en hann fór frá heimaríki. Kvaðst kærandi hvorki hafa þegið aðstoð frá yfirvöldum né hjálparsamtökum en hann hafi getað framfleytt sér með aðstoð systur sinnar og þáverandi kærasta. Kærandi kvaðst ekki vera aðili að stjórnmálaflokki eða virkur í þágu tiltekins málstaðar þar í landi. Kærandi kvaðst tilheyra hinsegin samfélaginu og tilheyra minnihlutahópi í Venesúela á grundvelli kynhneigðar sinnar. Kvaðst kærandi vera virkur innan hinsegin samfélagsins í Venesúela en kæmi þó ekki undir nafni. Þá kvaðst kærandi vita um stofnanir sem berjist fyrir réttindum samkynhneigðra í heimaríki en stjórnvöld loki þeim alltaf. Kvaðst kærandi einnig tilheyra minnihlutahópi í heimaríki á þeim grunni að hann væri efnalítill einstaklingur úr lægri stétt ásamt því að háttsemi hans og hreimur væri frábrugðin þeim sem kæmu frá höfuðborginni og hann hafi fundið fyrir mismunun vegna þess. Þá lýsti kærandi heilsufarsvandamálum sínum og móður sinnar í heimaríki. Aðspurður kvað kærandi kynhneigð sína hafa valdið sér vandræðum í heimaríki, m.a. í vinnunni. Þá hafi samskipti við fjölskyldu hans orðið erfiðari þegar hann byrjaði með þáverandi kærasta sínum og einstaklingar úr nærsamfélagi hans lent í útistöðum við kæranda og fjölskyldu hans. Kvaðst kærandi aðeins hafa sagt einum vini sínum í Venesúela frá kynhneigð sinni en hann hafi ekki greint fjölskyldu sinni frá kynhneigð sinni vegna viðhorfs fjölskyldunnar gagnvart samkynhneigðum einstaklingum og af efnahagslegum ástæðum. Kvað kærandi að fjölskyldan hefði neitað að aðstoða sig hefðu þau verið meðvituð um kynhneigð hans.
Aðspurður um hvaða atvik í lífi kæranda gerðu það að verkum að hann hafi yfirgefið heimaríki greindi kærandi frá því að vegna efnahagslegra ástæðna hafi líffræðileg móðir hans ekki getað hugsað um hann og því gefið hann og systur hans til konu sem hafi getað séð um þau. Kjörmóður sína, hér eftir móðir kæranda, kvað kærandi hafa flutt frá þeim árið 2008 og skilið kæranda og systur hans eftir hjá hópi fólks í bænum með tengsl við móður kæranda. Kærandi kvað fólkið hafa komið illa fram við sig og systur sína og ástæðu þess kvað hann vera að þau hafi vitað að kærandi og systir hans væru ættleidd en kærandi hafi á þeim tímapunkti ekki haft vitneskju um það. Að sögn kæranda hafi einn maður í hópnum misnotað hann frá því að hann var átta ára þar til að kærandi varð tólf ára. Kvað kærandi manninn hafa ógnað sér og tjáð honum að ef hann myndi ekki gera það sem maðurinn vildi myndi hann skera tunguna úr kæranda og systur hans. Kvað hann manninn í eitt sinn hafa hótað að drepa móður kæranda, hafa sagt kæranda að hann væri ættleiddur og að móðir hans væri með krabbamein. Kvaðst kærandi þannig hafa komist að því að þau systkinin væru ættleidd en móður sína kvað kærandi aldrei hafa sagt þeim það. Kvaðst kærandi ekki hafa sagt móður sinni frá framangreindum hótunum og ofbeldi af hálfu mannsins af ótta við að hann myndi drepa móður kæranda þegar hún kæmi í heimsókn. Kvað kærandi að árið 2018 hafi hann flutt ásamt systur sinni til móður þeirra en þau hafi ekki fengið vinnu heldur hafi þau selt kökur á götum úti til þess að hjálpa móður þeirra, sem hafi þá tjáð þeim að hún væri með krabbamein. Þann pening sem þau þénuðu af kökusölunni kvað kærandi hafa farið í að kaupa lyf fyrir hana og þau hafi þurft að kaupa lyfin erlendis frá. Á endanum hafi þau ekki haft nægan pening til þess að greiða fyrir lyfin. Kvaðst kærandi hafa farið til höfuðborgarinnar árið 2020 til þess að reyna að bæta aðstæður þeirra, vinna og læra en árið 2022 hafi hann hætt námi til þess að geta unnið tvær vinnur til þess að styðja móður sína fjárhagslega. Kvað kærandi að hann hafi kynnst kærasta sínum í mars á sama ári en þeir hafi farið leynt með samband sitt. Kvaðst kærandi hafa starfað við afgreiðslustarf í apóteki árið 2022 en apótekið hafi ítrekað verið rænt og skort hafi öryggisgæslu. Kærandi greindi sérstaklega frá tveimur ránum sem hann kvað hafa orðið 9. og 16. júlí 2022. Í fyrra skiptið hafi kona rænt apótekið, hún hafi ráðist á og ógnað lífi kæranda og samstarfsfólks hans með athæfi sínu. Í síðara skiptið, hafi eldri maður rænt apótekið og lamið kæranda og samstarfsfólk hans með göngustaf sínum. Yfirmanninn kvað kærandi hafa tjáð sér að starfsfólkið þyrfti að sjá um þetta en þeir sem hafi rænt apótekið hafi hótað kæranda og samstarfsfólki hans þegar þau mættust á götum úti. Eftir ránin hafi kærandi upplifað að líf hans væri í stöðugri hættu. Kærandi kvað kærasta sinn á þessum tíma oft hafa komið með mat til hans í vinnunna og þeir hafi haldið sambandi sínu leyndu en þegar samstarfsfólk kæranda hafi komist að því að maðurinn væri kærasti hans hafi þeir brugðist ókvæða við og útilokað hann. Kærandi kvaðst hafa leitað til yfirmanns síns sem hafi tjáð kæranda að þetta væri vegna þess að þeir samþykki ekki samkynhneigt fólk á vinnustaðnum. Kvaðst kærandi þá hafa reynt að láta lítið fyrir sér fara en yfirmaður hans og samstarfsfólk hafi stöðugt gert grín að honum. Kvað kærandi yfirmann sinn hafa kallað sig á fund og tjáð kæranda að samkynhneigð hans væri vandamál. Kæranda hafi verið sagt upp störfum í apótekinu vegna kynhneigðar sinnar og hann í kjölfarið verið atvinnulaus. Kærandi hafi beðið yfirmann sinn um skjöl sem staðfesti ástæðu uppsagnarinnar en engin fengið heldur hafi yfirmaðurinn afhent kæranda meðmælabréf. Eftir uppsögnina hafi kærandi farið í atvinnuviðtal á öðrum stað og verið spurður hvort hann væri samkynhneigður en þegar hann hafi svarað því játandi hafi honum verið tjáð að samkynhneigðir væru ekki ráðnir til vinnu á þeim stað.
Þá kvaðst kærandi hafa búið hjá fjölskyldu sinni árið 2023 því hann hafi ekki átt eigið heimili. Þegar kærasti hans hafi komið í heimsókn og þeir talað saman á göngum hússins hafi fólk í húsinu gefið þeim hornauga. Kvað kærandi að í eitt skipti þegar þeir hafi leiðst á ganginum hafi hópur manna hreytt í þá fúkyrðum. Kvaðst kærandi ekki hafa tilkynnt áreitið til lögreglunnar heldur hafi hann verið hræddur þar sem faðir eins gerandans væri lögreglumaður. Kvaðst kærandi einnig á þessum tíma hafa verið áreittur á tilgreindum samfélagsmiðli en kærandi viti ekki hver hafi verið á bakvið það. Taldi kærandi áreitið stafa frá einum þeirra sem ráðist hefði á sig en hann hafi verið hræddur þar sem faðir eins þeirra væri lögreglumaður og hann hafi því ekki tilkynnt áreitið til lögreglunnar. Kvað kærandi að dag einn, þegar hann kom heim, hafi hópur fjögurra manna beðið eftir honum við heimili hans og þegar hann hafi ætlað að fara inn hafi þeir ráðist að honum með fúkyrðum og þegar hann hafi tjáð mönnunum að hann vildi komast heim til sín hafi þeir ráðist á hann. Kvað kærandi að um hafi verið að ræða fjóra menn og að hann hafi ekki sagt fjölskyldu sinni frá ástæðum árásarinnar þegar hann var spurður. Fjölskylduna kvað kærandi hafa ráðlagt sér að leita til lögreglunnar en kærandi hafi ekki viljað gera það því einn mannanna hafi starfað hjá lögreglunni. Mennina kvað kærandi hafa hótað að ef kærandi leitaði til lögreglunnar myndu þeir hefna sín og ráðast enn harðar að kæranda. Kvað kærandi að frá þessum degi hafi aðstæður orðið verri og fúkyrði verið kölluð að honum hvert sem hann fór. Aðspurður kvað kærandi að tveir þessara manna væru á svipuðum aldri og hann og væru einnig búsettir í byggingunni, einn þeirra kvað kærandi stanslaust hafa ráðist að sér og í eitt sinn hafi hann hrækt í andlit kæranda og sagt honum að faðir sinn væri lögreglumaður. Kvað kærandi íbúa fjölbýlishússins hafa haldið fund nokkrum dögum síðar og ákveðið að þau vildu ekki hafa samkynhneigðan mann í byggingunni. Kærandi hafi samþykkt að fara og fengið fimmtán daga til þess. Kvaðst kærandi þá hafa flutt í húsnæði móður sinnar og kærasti hans hafi heimsótt hann þangað en sagan hafi endurtekið sig. Þegar fólk þar hafi komist að því að þeir væru í sambandi hafi fólkið byrjað að ráðast að kæranda persónulega, henda steinum í hús hans að nóttu til og eigandi húsnæðisins sagt kæranda að fara.
Kærandi kvaðst hafa reynt að leita sér aðstoðar hjá stofnun í Venesúela en hann hafi enga aðstoð fengið. Hann kvaðst einnig hafa leitað til vinar síns sem sinni sjálfboðaliðastarfi en sá hafi tjáð kæranda að þau gætu ekki aðstoðað. Kvaðst hann hafa flutt til kærasta síns og kærastinn hafi viljað yfirgefa Venesúela. Kvaðst kærandi hafa átt erfitt uppdráttar og ákveðið að fremja sjálfsvíg en hann hafi oft reynt að enda líf sitt. Kvað hann kærasta sinn og nágranna hafa bjargað sér en kærandi hafi ekki verið á góðum stað andlega. Kærasti hans hafi komið til Íslands á undan honum en slitnað hafi upp úr sambandi þeirra. Aðspurður um hvað kærandi telji að gerist snúi hann aftur til Venesúela kvaðst kærandi telja að hann muni ekki hafa fjárhagslegt öryggi því hann geti ekki orðið sér úti um atvinnu í heimaríki vegna kynhneigðar sinnar. Kærandi myndi þurfa að fara aftur í felur sem hefði slæm áhrif á andlega heilsu hans. Kærandi telji siga vera í hættu á að verða fyrir mismunun alls staðar í Venesúela sem samkynhneigður maður og geti því hvergi annars staðar búið í heimaríki.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 12. september 2024. Greinargerð barst kærunefnd 26. september 2024. Samdægurs barst kærunefnd tilkynning um nýjan talsmann kæranda. Viðbótargreinargerð barst 4. október 2024 ásamt viðbótargögnum. Viðbótargögn bárust kærunefnd 30. október 2024, 3. desember 2024 og 31. mars 2025.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.
Um einstaklingsbundnar aðstæður vísar kærandi til fyrirliggjandi gagna máls. Í greinargerðum kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt. Í viðbótargreinargerð til kærunefndar, dags. 4. október 2024, vísar kærandi í fyrsta lagi til þess að í hinni kærðu ákvörðun hafi mál kæranda ekki verið rannsakað með það fyrir augum að kærandi hafi endurtekið orðið fyrir hatursglæpum í Venesúela. Kærandi hafi gefið nákvæmar og stöðugar lýsingar á nokkrum tilvikum hatursglæpa í efnisviðtali og ekki hafi verið dregið úr trúverðugleika kæranda um hatursglæpi eða lýsingum hans um athafnaleysi lögreglu. Telur kærandi framangreint benda til annmarka á rannsókn máls hans á fyrra stjórnsýslustigi, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi í öðru lagi til þess að jafnræðisregla 11. gr. stjórnsýslulaga hafi verið brotin en niðurstöðu Útlendingastofnunar og þær sönnunarkröfur sem lagðar séu á hann samræmist ekki fyrri úrskurðarframkvæmd kærunefndar útlendingamála. Vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar, nr. 526/2023 frá 27. september 2023 varðandi framangreint en þar hafi samkynhneigðum karlmanni frá Venesúela verið veitt mannúðarleyfi vegna kynhneigðar og félagslegra aðstæðna. Í úrskurðinum komi fram að þó kærandi í málinu hafi ekki lagt fram gögn sem styðji við frásögn hans af áreiti í Venesúela telji nefndin að upplýsingar um heimaríki kæranda bendi til þess að kærandi myndi eiga á hættu mismunun sökum kynhneigðar. Byggir kærandi á því að í sínu máli hafi hann aftur á móti lagt fram gögn sem renni stoðum undir hatursglæpi gegn honum og sé einnig látinn bera þungann af því að hafa ekki aflað gagna sem sanni uppsögn hans. Vísar kærandi einnig til þess að sú óraunhæfa krafa sé lögð á kæranda að hann hafi átt að leita til lögreglu og sú krafa sé í ósamræmi við framkvæmd sambærilegra mála og þeirrar meginreglu flóttamannaréttar að umsækjandi skuli njóta vafans. Vísar kærandi til þess að hlutlægar landaupplýsingar styðji frásögn kæranda umfram þau gögn sem hann hafi lagt til. Í þriðja lagi vísar kærandi til þess að þar sem Útlendingastofnun viðurkenni að ekki sé tilefni til að draga það í efa að kærandi hafi orðið fyrir mismunun og fordómum verði kærandi að njóta vafans um það. Uppsögn kæranda sé aðeins einn liður í röð ofsókna og samansafns mismununar sem kalli á að fallast verði á kröfur í máli kæranda, eða í hið minnsta erfiðar félagslegar aðstæður samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi í fjórða lagi til þess að Útlendingastofnun hafi ítrekað vísað til þess að hann hafi þurft að leita til lögreglu vegna árása á grundvelli kynhneigðar sinnar en með því sé stofnunin að gera þá kröfu til kæranda, sem leynt fari með kynhneigð sína í heimaríki, að hann tilkynni um líkamsárásir og uppljóstri um kynhneigð sína. Mótmælir kærandi þeirri forsendu ákvörðunarinnar og byggir á því að slík opinberun gagnvart lögreglufulltrúum hafi leitt til mismununar og fordóma í garð þolenda.
Í viðbótargreinargerð til kærunefndar, dags. 4. október 2024, er vísað til þess að kærandi sé andsnúinn stjórnvöldum í Venesúela og hafi að undanförnu verið virkur í hagsmunabaráttu Venesúelabúa, m.a. með því að sækja og skipuleggja mótmæli á vegum hópsins Venezolanos en Islandiasos. Kærandi hafi verið viðstaddur mótmæli hópsins 17. og 28. ágúst 2024 sem hafi borist í venesúelska fjölmiðla. Kæranda og fleirum hafi þannig verið sjónvarpað í beinni útsendingu á sjónvarpsrásinni Venezolana de Televisión í sjónvarpsþætti innanríkis-, friðar- og dómsmálaráðherra Venesúela. Þar segi umræddur ráðherra að þátttakendur styðji hryðjuverkamenn. Jafnframt hafi sá sem unnið hafi sjónvarpsefnið talið þá einstaklinga sem birtast á myndinni, sem bendi til þess að rýnt hafi verið í myndina. Einnig gefi vinnsla sjónvarpsefnisins sterklega til kynna að leitað hafi verið eftir myndefninu með einhverjum leiðum, t.d. með því að þræða samfélagsmiðla Venezolanos en Islandiasos og því sé líklegt að venesúelsk stjórnvöld hafi komist að tengingu kæranda við hópinn. Þá vísar kærandi til þess að í nýrri skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna sé sérstaklega minnst á myndbirtingar ráðherrans af stjórnarandstæðingum í umræddum þætti. Byggir kærandi einnig á því að myndbirting stjórnarandstæðinga í framangreindum sjónvarpsþætti hafi leitt til þess að kærandi sé útsettari en aðrir fyrir árásum, hótunum, handtöku og öðrum refsingum. Áréttar kærandi jafnframt kröfugerð sína sem kom fram í greinargerð dags. 26. september 2024.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hann búi við ástæðuríkan ótta við ofsóknir í Venesúela vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshóp með vísan til kynhneigðar hans. Kærandi sé samkynhneigður og hafi upplifað líkamlegt ofbeldi, mismunun og áreiti vegna þess. Kærandi byggir á því að birting myndefnisins úr sjónvarpsþætti innanríkis-, friðar- og dómsmálaráðherra Venesúela og þátttaka kæranda í mótmælum gegn venesúelskum stjórnvöldum veiti honum rétt til verndar á grundvelli ákvæðisins. Ásakanir í garð kæranda um hryðjuverk, tilvonandi þvingunaraðgerðir í Venesúela og takmörkun á borgaralegum réttindum séu mörkuð af stjórnmálaskoðunum kæranda, sbr. e-liður 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga og meintar athafnir kæranda heyri undir sérlögsögu herdómstóls sem þverbrjóti gegn réttindum sakborninga, sbr. b-, c- og d-lið 2. mgr. 38. gr. laganna.
Til vara krefst kærandi þess að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggir kærandi á því að hann uppfylli skilyrði viðbótarverndar bæði vegna almennra aðstæðna í Venesúela og vegna persónulegrar stöðu sinnar sem samkynhneigður karlmaður, en hann hafi upplifað gróft ofbeldi, mismunun og ítrekað áreiti vegna kynhneigðar sinnar. Kærandi byggir einnig á því að birting myndefnisins úr sjónvarpsþætti innanríkis-, friðar- og dómsmálaráðherra Venesúela og þátttaka hans í mótmælum gegn venesúelskum stjórnvöldum veiti honum rétt til verndar á grundvelli ákvæðisins en auknar líkur séu á að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu vegna stjórnmálaskoðana.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi glími við heilsufarsvandamál, oft líði yfir hann vegna vandamála í hjartanu ásamt því að kærandi hafi glímt við kviðslit og svefnleysi. Vísar kærandi einnig til veikinda móður sinnar og slæmrar meðferðar sem hún hafi fengið á sjúkrahúsi. Bæði kæranda og móður hans hafi verið vísað frá sjúkrahúsi í [...] í alvarlegu ástandi án þess að fá nauðsynlega þjónustu. Atburðirnir hafi leitt til þess að móðir kæranda hafi látið lífið og fyrrnefnd veikindi kæranda hafi versnað eftir það. Þá óttist kærandi að hann geti ekki nálgast þá meðferð sem hann þarfnist vegna veikinda sinna í Venesúela. Byggir kærandi einnig á því að birting myndefnisins úr sjónvarpsþætti innanríkis-, friðar- og dómsmálaráðherra Venesúela og þátttaka kæranda í mótmælum gegn venesúelskum stjórnvöldum veiti honum rétt til verndar á grundvelli ákvæðisins en almennar og félagslegar aðstæður kæranda í Venesúela hafi breyst til hins verra þar sem kærandi hafi nýlega verið auðkenndur sem stjórnarandstæðingur og stuðningsmaður hryðjuverkasamtaka fyrir framan venesúelsku þjóðina.
Kærandi telur brýnt að endurtaka mat á endursendingu hans til heimaríkis, sbr. 42. gr. laga um útlendinga og samsvarandi þjóðréttarlegar skuldbindingar.
Með viðbótargögnum, sem bárust kærunefnd 3. desember 2024, lagði kærandi fram tvö fylgiskjöl. Kærandi greinir frá því að fylgiskjölin séu annars vegar fyrirköll í sakamáli nafngreinds einstaklings sem hafi verið brottvísað frá Íslandi í október 2024. Viðkomandi hafi verið forsprakki mótmælendahópsins en sæti nú sakamálarannsókn hjá lögreglunni CICPC í Venesúela vegna gruns um hryðjuverk og föðurlandssvik. Hins vegar sé um að ræða fyrirkall sem hafi borist á heimili fjölskyldumeðlima nafngreinds mótmælenda í Venesúela en mótmælandinn sé staddur á Íslandi. Kærandi telji framangreind gögn styðja fyrri sjónarmið í viðbótargreinargerð sinni um að mótmælendur hafi vakið athygli stjórnvalda á samfélagsmiðlum og í venesúelskri sjónvarpsútsendingu. Huglægur ótti kæranda vegna stöðu sinna sem stjórnarandstæðingur og mótmælanda sé því orðin ástæðuríkari.
Hinn 31. mars 2025 lagði kærandi fram afrit af hjúskaparvottorði til kærunefndar þar sem fram kemur að 27. mars 2025 hafi hann gengið í hjónaband við nafngreindan mann.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn rannsóknar- og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelsku vegabréfi. Að því virtu var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé venesúelskur ríkisborgari.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 25. mars 2025);
- UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);.
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezeula (Britannica, síðast uppfært 30. mars 2025);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 27. mars 2025);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
- Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
- World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025.
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Emundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða álitnum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðarsinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahóps myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.
Í skýrslu EASO, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að sambönd einstaklinga af sama kyni séu ekki refsiverð í Venesúela. Stjórnarskrá Venesúela leggi bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar. Þrátt fyrir það verði LGBTQI+ einstaklingar fyrir mismunun, þ. á m. á atvinnu- og leigumarkaði sem og í mennta- og heilbrigðiskerfinu. Þeir hópar sem verði aðallega fyrir ofbeldi og mismunun séu trans- og intersex einstaklingar. LGBTQI+ einstaklingar verði ekki fyrir kerfisbundnu ofbeldi af hálfu yfirvalda en lögreglumenn hafi meinað þeim um aðgang að opinberum stöðum og notfært sér lagalegt tómarúm til að áreita og beita slíka einstaklinga ofbeldi. Í skýrslu kanadíska flóttamanna- og innflytjendaráðsins frá 2021 kemur fram að LGBTQI+ einstaklingar geti lagt fram kvartanir vegna mismununar og brota gegn þeim en ekkert kerfi hafi verið til staðar til að taka við kvörtunum og leysa úr þeim með fullnægjandi hætti. Þá veigri einstaklingar sem verði fyrir ofbeldi vegna kynhneigðar sinnar sér við því að leita sér aðstoðar vegna vantrausts í garð lögregluyfirvalda. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að í maí 2022 hafi verið sett á fót sérstök skrifstofa sem ætlað sé að rannsaka brot á réttindum LGBTQI+ hópsins. Í fyrrnefndri skýrslu EASO kemur fram að hagsmunasamtök berjist fyrir réttindum LGBTQI+ einstaklinga í Venesúela. Í skýrslu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá 8. ágúst 2023 kemur fram að gefnar hafi verið út leiðbeiningar til að stuðla að því að LBGTQI+ einstaklingar hljóti vernd og aðstoð í mannúðaraðgerðum. Leiðbeiningarnar feli í sér leiðsögn til mannúðarsamtaka, embættismanna, stofnana Sameinuðu þjóðanna og frjálsra félagasamtaka í landinu um hvernig veita eigi LBGTQI+ einstaklingum viðeigandi þjónustu og stuðning án mismununar. Í ávarpi mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að í mars 2023 hafi hæstiréttur Venesúela ógilt ákvæði í lögum landsins um herrétt (e. The Code of Military Justice) sem lagði refsingu við samkynja samböndum innan hersins. Þá hvatti Türk stjórnvöld í Venesúela til þess að vinna áfram að því að bæta réttindi LGBTI+ samfélagsins í landinu.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.
Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.
Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskir ríkisborgarar aðstoð við sjálfviljugar heimför til Venesúela á árinu 2024. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hann eigi á hættu ofsóknir í heimaríki vegna kynhneigðar sinnar og hafi orðið fyrir hatursglæpum og fordómum í heimaríki vegna þess. Kærandi byggir einnig á því að eiga á hættu ofsóknir í heimaríki sem stjórnarandstæðingur í kjölfar birtingar myndefnis af mótmælum á Íslandi í sjónvarpsþætti innanríkis-, friðar- og dómsmálaráðherra Venesúela.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann skilgreini sig sem samkynhneigðan einstakling. Hann hafi starfað við afgreiðslu í apóteki árið 2022 og kynnst þáverandi kærasta sínum í mars á sama ári. Þeir hafi haldið sambandi sínu leyndu en kærastinn hafi oft komið með mat í vinnuna til kæranda. Þegar samstarfsmenn hans hafi komist að því að um væri að ræða kærasta hans hafi þeir brugðist ókvæða við og útilokað hann. Bæði samstarfsmenn og yfirmaður kæranda hafi ítrekað gert grín að honum í kjölfarið og þá hafi yfirmaðurinn kallað kæranda á fund og tjáð honum að samkynhneigð hans væri vandamál. Kæranda hafi verið sagt upp störfum í apótekinu 9. september 2022, að sögn kæranda hafi ástæða uppsagnarinnar verið kynhneigð hans. Kærandi hafi farið í starfsviðtal á öðrum stað og verið spurður hvort hann væri samkynneigður, sem kærandi hafi svarað játandi. Þá hafi honum verið tjáð að samkynhneigðir einstaklingar yrðu ekki ráðnir í vinnu á þeim stað. Árið 2023 hafi kærandi verið búsettur hjá fjölskyldu sinni og kærasti hans heimsótt hann þangað en þeir hafi verið litnir hornauga þegar þeir áttu samræður á göngum hússins og eitt sinn hafi menn hreytt í þá fúkyrðum þegar þeir leiddust á ganginum. Dag einn hafi fjórir menn hreytt í kæranda ókvæðisorðum þegar hann kom heim og þegar hann hafi tjáð þeim að hann vildi bara komast heim hafi mennirnir ráðist á kæranda. Fjölskylda kæranda hafi spurt hann um ástæðu árásarinnar og hvatt hann til þess að leita til lögreglunnar en kærandi hafi ekki sagt fjölskyldu sinni frá ástæðunni og ekki leitað til lögreglunnar vegna þess að einn mannanna starfaði fyrir lögregluna. Þeir hafi jafnframt hótað kæranda að ef hann myndi leita til lögreglunnar myndu þeir hefna sín og ráðast enn harðar að kæranda. Eftir þetta hafi hlutirnir versnað og ókvæði verið kölluð að kæranda hvert sem hann fór. Tveir árásarmennirnir hafi verið á svipuðum aldri og kærandi og búsettir í byggingunni. Annar þeirra hafi stanslaust ráðist að kæranda, í eitt sinn hafi hann hrækt í andlit kæranda og sagt honum að faðir sinn væri lögreglumaður. Einnig hafi kærandi á þessum tíma verið áreittur á tilgreindum samfélagsmiðli og hann telji áreitið hafa stafað frá einum þeirra sem hafi ráðist á kæranda. Áreitið hafi hann ekki tilkynnt til lögreglunnar vegna þess að faðir eins þeirra væri lögreglumaður. Þá greindi kærandi frá því að íbúar fjölbýlishússins þar sem hann bjó hjá fjölskyldu sinni hafi haldið fund og komist að þeirri niðurstöðu að kærandi þyrfti að yfirgefa húsnæðið vegna kynhneigðar hans og kærandi hafi fengið fimmtán daga frest til þess að yfirgefa húsnæði. Hann hafi farið aftur í húsnæði móður sinnar en leigusalinn þar hafi síðan sagt kæranda að hann þyrfti að yfirgefa húsnæðið vegna kynhneigðar sinnar. Í eitt sinn hafi steinum verið kastað inn um glugga hússins, kærandi hafi reynt að stöðva þá en verið var um sig þar sem mennirnir hafi verið átta talsins. Lýsti kærandi því einnig að hafa leitað til stofnunar í Venesúela sem hafi bent honum á að leita til lögreglunnar og hafi því ekki getað hjálpað kæranda að halda húsnæði sínu. Þá hafi kærandi leitað til vinar síns sem sinni sjálfboðaliðastarfi en hann hafi tjáð kæranda að þau gætu ekki aðstoðað.
Kærandi hefur lagt fram ýmis gögn til stuðnings framangreindri frásögn, einkum ódagsettar ljósmyndir. Á framlögðum myndum má m.a. sjá blóðugan fingur, mynd af kæranda með blóð á nefi og myndir af skurði á höfði kæranda. Umræddar myndir staðfesta ekki ástæðu þeirra meiðsla sem þar sjást og eru, líkt og áður sagði, ódagsettar. Myndirnar hafa samkvæmt framangreindu takmarkað vægi fyrir mál kæranda.
Ekki er ástæða til að draga frásögn kæranda í efa. Frásögn kæranda og gögn málsins bera þó ekki með sér að framangreind atvik hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið bera með sér að samkynhneigðir eigi á hættu að verða fyrir félagslegri mismunun í Venesúela en ekki sé um kerfisbundnar ofsóknir að ræða. Lög banni mismunun á þeim grundvelli auk þess sem starfandi séu í landinu ýmis frjáls félagasamtök sem berjist fyrir réttindum LGBTQI+ einstaklinga. Þá bendi nýlegar aðgerðir stjórnvalda og nýlegur dómur hæstaréttar landsins til þess að stjórnvöld vinni að því að bæta stöðu þessara einstaklinga í landinu. Verður ekki talið að sú mismunun eða áreiti sem LGBTQI+ einstaklingar kunni að eiga á hættu nái því alvarleikastigi að fela í sér ofsóknir eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laganna.
Kærandi hefur greint frá því að hann hafi ekki leitað til lögreglu í heimaríki vegna þess að einn árásarmannanna og faðir eins árásarmannanna hafi starfað fyrir lögregluna. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kæranda sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Venesúela hafa stjórnvöld þar í landi brugðist við spillingu innan raða lögreglumanna og geta þeir einstaklingar sem verða fyrir brotum af hendi lögreglu meðal annars leitað til ríkislögreglunnar (s. Policía Nacional Bolivariana) eða þolendaaðstoðar hjá innanríkisráðuneytinu (s. Ministerio Público). Þegar litið er til þess að kærandi kvað um afmarkaðan hóp lögreglumanna að ræða og þess sem að framan greinir um aðgerðir yfirvalda verður því talið að kærandi geti leitað aðstoðar lögreglu telji hann þess þörf jafnvel þótt hann kunni að hafa orðið fyrir áreiti eða hótunum um áreiti af hálfu einstakra lögreglumanna. Lítur kærunefnd einnig til þess að frásögn kæranda ber með sér, að lögreglumaður hafi sýnt vilja til að aðstoða kæranda en ekki getað það vegna skorts á upplýsingum um þá sem staðið hafi að baki árásinni.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi einnig frá því að apótekið sem hann starfaði fyrir árið 2022 hafi ítrekað verið rænt og skort hafi öryggisgæslu. Lýsti kærandi sérstaklega tveimur ránum sem að hans sögn hafi annars vegar átt sér stað 9. júlí 2022, en þá hafi kona ráðist á kæranda og ógnað lífi hans og annars starfsfólks við ránið. Lýsti kærandi hins vegar ráni sem hafi átt sér stað 16. júlí 2022 þegar eldri maður hafi lamið kæranda og annað starfsfólk með stafnum sínum. Kæranda og öðru starfsfólki hafi jafnframt verið ógnað af gerendunum ef þau mættu þeim á götu úti. Með vísan til þeirra heimilda sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í Venesúela telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga frásögn kæranda í efa. Rán þau og hótanir sem kærandi hefur greint frá virðast þó hafa verið einangruð og óskyld atvik sem ekki hafi beinst að persónu kæranda. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að framangreind atvik hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann væri hvorki aðili að stjórnmálaflokki né virkur í þágu tiltekins málstaðar þar í landi, hann væri virkur innan hinsegin samfélagsins í Venesúela en kæmi þó ekki undir nafni. Í greinargerð kæranda er vísað til þess að kærandi sé andsnúinn stjórnvöldum í Venesúela og hann hafi verið viðstaddur mótmæli á Íslandi en myndefni af mótmælunum hafi borist í venesúelska fjölmiðla í sjónvarpsþætti innanríkis-, friðar- og dómsmálaráðherra Venesúela. Kærandi hefur við meðferð málsins lagt fram myndband úr sjónvarpsþætti innanríkisráðherra Venesúela. Byggir kærandi á að myndefnið bendi til þess að sá sem hafi unnið það hafi farið yfir myndefnið og borið kennsl á ákveðna einstaklinga sem mætt hafi á mótmælin, þar á meðal kæranda. Því sé í reynd líklegt að venesúelsk stjórnvöld hafi komist að tengingu kæranda við hópinn Venezolanos en Islandiasos og að myndbirting stjórnarandstæðinga í framangreindum sjónvarpsþætti hafi leitt til þess að kærandi sé útsettari en aðrir fyrir árásum, hótunum, handtöku og öðrum refsingum. Þá vísar kærandi til þess að í nýrri skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna sé sérstaklega minnst á myndbirtingar ráðherrans af stjórnarandstæðingum í umræddum þætti.
Kærunefnd hefur horft á tilvísaðan þátt innanríkisráðherra og kynnt sér efni hans. Í þættinum er fjallað um mótmæli víðsvegar um heiminn og stutt myndbrot eða stutt birting mynda sýndar af mótmælendum. Þátturinn ber það ekki með sér að verið sé að úthúða mótmælendum sem stuðningsmönnum hryðjuverkamanna heldur sé verið að benda á það hve fáir hafi mætt á þau mótmæli sem sýnt hafi verið frá í þættinum og virðist lítið úr þeim gert. Í þættinum eru mótmælendur ekki nafngreindir og ekki hvatt til sérstakra aðgerða gagnvart þeim eintaklingum er þar birtast. Þá kemur ekkert fram í þættinum sem bendir til þess að umræddir aðilar séu í sérstakri hættu á ofsóknum yfirvalda í Venesúela frekar en aðrir þeir þúsundir mótmælenda sem mótmælt hafa ríkjandi stjórnvöldum í landinu síðastliðin ár. Í greinargerð kæranda, dags. 4. október 2024, kemur fram að í nýrri skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 17. september 2024 sé sérstaklega minnst á myndbirtingar ráðherrans af stjónarandstæðingum í umræddum þætti. Vísar kærunefnd til þess að í umræddri skýrslu er umfjöllun umsjónvarpsþáttinn í sambandi við svokallaða Tuntun aðgerð stjórnvalda í Venesúela og tengist ekki umræddum myndbirtingum frá mótmælum á Íslandi. Þá er jafnframt vísað til skýrslu Amnesty International frá árinu 2022 þar sem fjallað er um atburði frá árinu 2020 þar sem fram komi að fylgni sé milli birtinga í sjónvarpsþættinum og handtaka í kjölfarið. Í skýrslunni kemur fram að á tímabilinu 2019 til 2021 hafi verið fylgni milli myndbirtinga í fjölmiðlum og handtaka og gæsluvarðhalds í Venesúela. Samkvæmt skýrslunni taki niðurstöður rannsóknar sem hún byggi á þeim einstaklingum sem setið höfðu í gæsluvarðhaldi á fyrrnefndum árum og leiddi í ljós að um 65% þeirra höfðu á einhverjum tímapunkti verið teknir fyrir í fyrrnefndum sjónvarpsþætti ráðherra. Framangreind rannsókn og niðurstöður hennar staðfesta þó ekki að allur sá fjöldi einstaklinga sem kemur fyrir í þættinum eigi í beinni hættu á að verða handteknir af þeim sökum eða eigi á hættu ofsóknir stjórnvalda í Venesúela. Þá hefur kærandi lagt fram afrit af skjölum sem hann kveður vera fyrirköll CICPC lögreglunnar í Venesúela til tveggja nafngreindra einstaklinga. Kærunefnd lítur til þess að framangreindar boðanir í skýrslutökur hjá lögreglunni beinast ekki gegn kæranda og hann hafi ekki fengið slíkar boðanir sjálfur. Verður því ekki fallist á það með kæranda að framlögð gögn styðji við þá málsástæðu hans að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu stjórnvalda eða annara aðila í heimaríki á grundvelli stjórnmálaskoðana hans.
Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu stjórnvalda vegna stjórnmálaskoðana í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Horfir kærunefnd einnig til þess að kærandi fékk útgefið venesúelskt vegabréf 4. apríl 2023 og má í því sjá útstimplun frá Simon Bolivar flugvellinum 6. október 2023. Gefur það til kynna að kærandi hafi getað farið með löglegum hætti úr landinu án þess að vera stöðvaður af yfirvöldum og ber það ekki með sé að hann sé undir sérstöku eftirliti stjórnvalda í heimaríki.
Kærandi hefur greint frá erfiðum efnahagslegum aðstæðum sínum. Efnahagslegar aðstæður teljast almennt ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ekkert i gögnum málsins bendir til þess að annað eigi við í máli kæranda.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína um viðbótarvernd á því að ástandið almennt í Venesúela auk persónulegrar stöðu kæranda sem samkynhneigður karlmaður nái því alvarleikastigi að það falli undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar ný afstaðinna forsetakosninga séu harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kæranda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar og áhrif jafnræðisreglunnar.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsettur í Karakas í Venesúela. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum, m.a. skýrslu Landinfo frá árinu 2023, eru almennar aðstæður í höfuðborginni mun betri en á strjálbýlli stöðum í landinu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, kemur fram að ríkislögreglan sé aðallega við störf í höfuðborginni og nágrenni hennar. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir í heimafylki kæranda eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvað kærandi að oft líði yfir hann og hann hafi tvisvar verið lagður inn á spítala í heimaríki vegna yfirliða og hjartavandamála. Kvað kærandi að það hefði verið mjög dýrt að leita til einkarekinna lækna og hann hafi því leitað til lækna á vegum ríkisins en hann hafi þurft að bíða í marga mánuði. Kvaðst hann hafa verið í rannsóknum vegna hjartans á spítalanum auk þess sem kærandi hafi verið greindur með naflaslit (e. umbilical hernia) og væri í þörf fyrir skurðaðgerð vegna þess. Kærandi kvaðst hafa gengist undir rannsóknir á spítala og aðgerð í heimaríki en hann hafi sjálfur þurft að útvega það sem þurfti fyrir aðgerðina og hann hafi getað keypt nauðsynlegan búnað með launum sínum. Kvaðst hann hafa fengið sýkingu í sárið en að spítalinn hafi synjað honum um frekari meðferð. Kærandi kvað andlega heilsu sína fara batnandi eftir komuna hingað til lands en hann hafi orðið fyrir mörgum áföllum og ítrekað reynt að taka eigið líf.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram samskiptaseðil frá Göngudeild sóttvarna, dags. 17. október 2023 til 20. mars 2024. Þar kemur m.a. fram kærandi fái verk fyrir hjartað u.þ.b. mánaðarlega sem leiði niður vinstri handlegg, hann hafi byrjað að fá verkinn fyrir um fjórum árum síðan. Þegar verkurinn kæmi stífni kærandi, missi sjón og síðan meðvitund sem vari í um tvær mínútur en hann verði síðan mjög þreyttur og þurfi einn til einn og hálfan dag til að jafna sig. Ómskoðun á hjarta hafi verið eðlileg og kærandi væri á bið eftir að komast í Holter greiningu með hjartalínuriti á Landspítalanum. Í desember árið 2023 hafi komið í ljós tveggja til þriggja sentímetra naflakviðslit. Kærandi lagði einnig fram ódagsettar myndir, sem m.a. sýni aðstæður á heilbrigðisstofnun í heimaríki, myndir af áverkum hans og myndir af konu á spítalanum. Framangreindar myndir eru ódagsettar og af þeim verður hvorki ráðið hvar né hvenær þær voru teknar og hafa þær því takmarkað sönnunargildi fyrir mál kæranda. Af umræddum myndum er ekki hægt að leggja mat á gæði þeirrar heilbrigðisþjónustu sem kærandi hafi fengið í Venesúela. Samhliða framangreindu lagði kærandi fram fréttagreinar um ástand heilbrigðisþjónustu í Venesúela, annars vegar frétt, dags. 10. mars 2024, þar sem fram kemur að heilbrigðisstarfsmenn í Venesúela hvetji ríkisstjórnina til þess að útvega spítölum nauðsynlegan búnað og lyf, til þess að tryggja viðunandi umönnun sjúklinga. Hins vegar fréttaumfjöllun, dags. 5. apríl 2024, þar sem fram kemur að í Venesúela séu aðeins fjórar af hverjum tíu skurðstofum starfræktar og sjúklingar verði að að koma með nauðsynlegan búnað á skurðstofur vegna skorts á þeim.
Kærandi lagði fram frekari gögn við meðferð málsins hjá kærunefnd, m.a. gögn úr sjúkraskrá Landspítalans, dags. 17. október 2023 til 25. október 2024. Fram kemur að kærandi hafi komið á Landspítalann eftir yfirlið heima hjá sér og kærandi telji sig hafa farið í krampa, hann væri almennt hraustur. Grunur um krampa í Venesúela hafi aldrei verið staðfestur af lækni. Ekki væri líklegt að um hafi verið að ræða krampa en líklegt að um hafi verið að ræða kvíðakast. Kærandi tæki engin lyf að staðaldri og væri almennt hraustur. Kærandi hafi verið útskrifaður með almennar ráðleggingar um eftirfylgd hjá heimilislækni eftir þörfum. Lagði kærandi einnig fram bréf frá Samtökunum ´78, dags. 11. júlí 2024, um að kærandi hafi verið í virkri ráðgjöf hjá samtökunum.
Samkvæmt landaupplýsingum eru innviðir heilbrigðiskerfisins í Venesúela veikburða og skortur á heilbrigðisvörum og lyfjum þar í landi. Stjórnvöld hafi stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki. Samkvæmt skýrslu Landinfo frá árinu 2023 hefur Venesúela glímt við lyfjaskort á undanförnum árum en aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Þá sé aðgengi að lyfjum fyrir þá sem geti greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum. Frásögn kæranda og framlögð gögn bera með sér að kærandi hafi haft aðgang að heilbrigðisþjónustu í Venesúela vegna fyrrnefndra heilsufarskvilla.
Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærandi hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Árétta ber að meðferð telst ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Vegna stöðu kæranda sem samkynhneigðs einstaklings bendir kærunefnd á að alþjóðlegar skýrslur um stöðu LGBTQI+ einstaklinga í Venesúela bera með sér að þeir einstaklingar eigi á hættu að verða fyrir mismunun, þ. á m. á atvinnu- og leigumarkaði sem og í mennta- og heilbrigðiskerfinu. LGBTI+ einstaklingar verði þó ekki fyrir kerfisbundnu ofbeldi af hálfu yfirvalda en dæmi séu um að lögreglumenn hafi meinað þeim um aðgang að opinberum stöðum og notfært sér lagalegt tómarúm til að áreita og beita slíka einstaklinga ofbeldi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að í maí 2022 hafi verið sett á fót sérstök skrifstofa sem ætlað sé að rannsaka brot á réttindum LGBTI+ einstaklinga og þá kemur fram í skýrslu EASO að hagsmunasamtök berjist fyrir réttindum LGBTI+ einstaklinga í Venesúela. Benda heimildir ekki til þess að LBGTI+ einstaklingar verði fyrir kerfisbundnu ofbeldi eða mismunun þar í landi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa unnið við afgreiðslu í apóteki í heimaríki á árunum 2020 til 2022 en þá hafi honum verið sagt upp störfum og í kjölfarið verið atvinnulaus. Kærandi hafi fengið aðstoð við framfærslu frá systur sinni og þáverandi maka sínum, búið í húsnæði á vegum fjölskyldu sinnar og hafi ekki greitt leigu. Kærandi kvaðst ekki hafa þegið eða leitað eftir aðstoð frá stjórnvöldum eða öðrum mannúðarsamtökum. Kærandi er ungur að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi sé almennt heilsuhraustur og vinnufær. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Vegna tilvísunar kæranda til úrskurðar kærunefndar nr. 526/2023 vísar kærunefnd til þess að atvik þess máls eru ekki sambærileg máli kæranda sem hér er til meðferðar. Í framangreindu máli var um að ræða HIV smitaðan einstakling og mat nefndin það svo að erfitt væri að nálgast nauðsynleg lyf og meðferð í heimaríki. Þá naut kærandi ekki stuðnings fjölskyldu sinnar í heimaríki og hafði orðið fyrir ofbeldi af þeirra hálfu. Þegar einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og upplýsingar um heimaríki hans voru virtar í heild var það niðurstaða nefndarinnar að hann hefði ríka þörf á vernd vegna heilsufars og erfiðra félagslegra aðstæðna hans í heimaríki.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 8. október 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að kærandi eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst ekki eiga fjölskyldu eða vini innan Schengen-svæðisins og hann teldi það ósanngjarnt ef honum yrði ákvörðuð brottvísun og endurkomubann á Schengen-svæðið. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði kærandi fram afrit af hjónavígsluvottorði útgefnu af Þjóðskrá þar sem fram kemur að hann hafi gengið í hjónaband með nafngreindum manni 27. mars 2025.
Að mati kærunefndar felur brottvísun kæranda, með hliðsjón af málsatvikum og tengslum kæranda við landið, ekki í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart honum eða maka hans. Við það mat er litið til tímalengdar hjúskapar þeirra. Með vísan til framangreinds telur kærunefnd að gögn málsins bendi ekki til þess að kærandi hafi myndað fjölskyldutengsl hér á landi sem leiði til þess að skilyrði 3. mgr. 102. gr. séu uppfyllt. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn. Auk þess er áritunarfrelsi í gildi fyrir ríkisborgara Venesúela og því getur kærandi heimsótt maka sinn hér á landi á þeim grundvelli á meðan umsókn hans um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar þeirra er til vinnslu hjá íslenskum stjórnvöldum.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.
Vera Dögg Guðmundsdóttir