07 apríl 2025
/
Úrskurður nr. 300/2025
Hinn 7. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 300/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24090011-12
Kæra [...]og [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 2. september 2024 kærðu [...] fd. [...] (hér eftir M) og [...] fd. [...] (hér eftir K), ríkisborgarar Indlands (hér eftir kærendur), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 29. ágúst 2024, um að synja þeim um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að kærendur krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og fallist verði á beiðni þeirra um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 22. ágúst 2024 óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 22 daga dvöl frá 21. september til 12. október 2024 sem ferðamenn. Umsókn kærenda var lögð fram í Bretlandi. Umsókn kærenda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. ágúst 2024. Hinn 2. september 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í kæru kveður M að honum hafi verið ókleift að útskýra ferðaáætlun í símtali við utanríkisþjónustuna, þar sem M hafi ekki átt von á símtali auk þess sem hann hafi ekki viljað gefa upp of nákvæmar upplýsingar í síma til aðila sem hann hafi ekki vitað hver væri. Því hafi M reynt að greina ekki frá of miklu varðandi ferðaáætlun kærenda í símtalinu. Kærendur hafi lent í því eitt sinn að svikahrappar hafi hringt í þau í nafni breskra stjórnvalda og beðið þau um að inna af hendi rafræna greiðslu. Með tölvubréfi til kærunefndar 4. september 2025 lögðu kærendur fram þá viðbótarskýringu að M hafi á sama tíma og hann fékk símtal frá utanríkisþjónustunni sinnt vinnusímtali sem gæti hafa valdið skertri athygli gagnvart spurningum og svörum varðandi ferðaáætlun.
Kærendur lögðu fram ferðaáætlun á kærustigi.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. reglugerðarinnar Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu..
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Meðferð umsókna kærenda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðunum í máli kærenda er merkt annars vegar í reit 10 hjá K og hins vegar í reiti 10 og 11 hjá M, þ.e. að upplýsingarnar sem veittar hafi verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar; og rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun væru áreiðanlegar. Ákvörðununum fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að flugbókanir þeirra hafi verið afbókaðar og lýsing M á ferðaáætlun hafi þótt óáreiðanleg. Vafi væri uppi um það hvort kærendur hygðust ferðast til Íslands í reynd. Þar sem kærendur uppfylltu þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir yrðu ekki gefnar út áritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kærendum jafnframt leiðbeint um að þau gætu óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kærenda.
Flugbókun og gögn sem tengjast henni eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 5. tölul. gátlista með vegabréfsumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni í London, þar sem kærendur lögðu umsóknir sínar fram. Samkvæmt dagbókarfærslu í málaskrá Útlendingastofnunar voru flugbókanir kærenda kannaðar og kom í ljós að þær hefðu verið afbókaðar 24. ágúst 2024. Kærendur hafa ekki bætt úr framangreindum annmarka á kærustigi. Þegar af þeirri ástæðu verða hinar kærðu ákvarðanir um að synja kærendum um vegabréfsáritun til landsins staðfestar.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður