23 apríl 2025
/
Nr. 313/2025 Úrskurður
Hinn 23. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 313/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24110122
Kæra […]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 19. nóvember 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 19 nóvember 2024, um frávísun frá Íslandi.
Kærandi krefst þess að ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum, þess efnis að neita honum um inngöngu inn í landið og vísa honum frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og ákvarða honum tilkynningarskyldu á Keflavíkurflugvelli á grundvelli c-liðar 1. mgr. 114. gr. laga um útlendinga verði felld úr gildi.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í skýrslu lögreglu, dags. 20. nóvember 2024, kemur fram að kærandi hafi verið færður í viðtalsherbergi hjá lögreglu á Keflavíkurflugvelli þar sem hann hafi verið spurður nánar út í tilgang dvalar sinnar á Íslandi auk tengsla við landið. Við uppflettingu í kerfum lögreglu hafi komið fram að kærandi væri skráður aukaaðili í tilteknum málum í kerfum lögreglunnar og hann hafi áður verið í of langri dvöl á Íslandi. Kærandi hafi áður komið til Íslands 12. febrúar 2021 og farið frá landinu 19. ágúst 2021 og hafi þar með dvalið í 189 daga á landinu. Þá hafi hann komið aftur 29. júlí 2022 og farið frá landinu 17. desember 2022 og þar með dvalið í 132 daga hér á landi. Í þriðja sinn hafi kærandi komið til Íslands 15. júlí 2023 og farið frá landinu 13. október 2023 og hafi þar með dvalið 91 dag á landinu. Þá hafi kærandi verið í of langri dvöl á Schengen-svæðinu frá 19. janúar 2024 og til 19. apríl 2024 eða í 92 daga. Kærandi kvaðst vera kominn til lands til að taka því rólega og fara á skemmtanalífið í miðbæ Reykjavíkur. Kærandi kvaðst ekki þekkja neinn hér á landi en hann hafi komið hingað einu sinni áður. Kærandi hafi svo breytt framburði sínum og greint frá því að hafa komið tvisvar sinnum áður. Svo hafi hann aftur breytt framburði sínum og kveðist hafa komið þrisvar sinnum áður til landsins. Kærandi hafi komið til landsins síðast fyrir um tíu mánuðum og þá verið á Selfossi og Akranesi. Hann hafi ferðast milli staða með strætó. Kærandi hafi framvísað 1.280 evrum í reiðufé og greint frá því að vera með hótelgistingu. Lögregla hafi staðfest bókun kæranda á viðkomandi hóteli og hafi þá komið fram að kærandi ætti bókaða gistingu sem væri ekki búið að greiða fyrir. Í fyrri málum í kerfum lögreglunnar sem voru skráð á kæranda kom fram að kærandi hafi í eitt sinn komið með skilríki á lögreglustöðina við Hverfisgötu fyrir félaga sinn. Í öðru máli hafi kærandi verið stöðvaður á tiltekinni bifreið og greint frá því að vera kominn til landsins sem ferðamaður. Í þriðja málinu var kæranda frávísað frá landinu vegna ófullnægjandi skýringa um tilgang dvalar.
Lögregla taldi heimilt að frávísa kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga þar sem frásögn kæranda hafi verið ótrúverðug, hann hafi greint frá því að þekkja engan hér á landi en eigi samt vini samkvæmt skráningum í kerfum lögreglunnar. Þá hafi kærandi reynt að villa um fyrir lögreglunni og verið margsaga um hversu oft hann hafi komið til landsins. Kæranda var kynntur réttur sinn til að hafa samband við lögmann á eigin kostnað, hafa samband við sendiráð sitt eða hjálparsamtök í samræmi við 11. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt kynntur réttur sinn til að njóta aðstoðar túlks en hann hafi talið sig ekki þurfa á túlk að halda.
Kærandi kærði ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 19. nóvember 2024. Í samræmi við 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga og 1. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga var kæranda skipaður talsmaður með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 12 desember 2024. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust kærunefnd 13. desember 2024. Talsmaður kæranda lagði fram greinargerð og fylgigögn vegna málsins 3. desember 2024.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda er rakið að hann sé albanskur ríkisborgari og hafi heimild til dvalar hér á landi án vegabréfsáritunar í 90 daga. Kærandi hafi komið hingað til lands sem ferðamaður og lögregla hafi haft afskipti af kæranda. Hann hafi greint frá því að ætla að skoða Sky Lagoon og fara í miðbæ Reykjavíkur, skoða Skógarfoss og náttúru Íslands. Að auki hafi hann sýnt lögreglu flugmiða sinn frá Íslandi til Tirana, dags. 22. nóvember 2024, og hótelbókun fyrir dagana 19. til 22. nóvember 2024. Þrátt fyrir skýringar kæranda á fyrirhugaðri ferð sinni hafi honum verið birt ákvörðun um frávísun. Með ákvörðuninni komi fram athugasemdir um að kærandi hafi ekki sýnt fram á tilgang dvalar og eigi sögu um of langa dvöl á landinu.
Kærandi byggir kröfu sína á því að hann hafi gefið upp tilgang dvalar sem sé lögmætur í skilningi c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að lögregla hafi farið umfram lögbundna heimild sína með því að meina honum um landgöngu sökum óljóss tilgangs þegar hann hafi framvísað fullnægjandi gögnum um fyrirhugað ferðalag sitt til Íslands. Kærandi telji ljóst að hann uppfylli skilyrði c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga við komu til landsins og hin kærða ákvörðun sé því ólögmæt.
Kærandi telur gögn sem hann hafi lagt fram ekki hafa verið rannsökuð nánar af lögreglu. Kærandi hafi reynt að koma á framfæri að hann væri með brottfararmiða og bókaða gistingu hér á landi. Kærandi telur lögreglu ekki hafa séð til þess að mál hans væri nægjanlega upplýst áður en ákvörðun hafi verið tekin, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Þá telur kærandi að ákvörðunin í máli hans hafi ekki verið nægjanlega skýr og hafi skort rökstuðning, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga. Auk þessa hafi lögregla brotið gegn leiðbeiningarskyldu með því að leiðbeina ekki um hvaða gögnum lögregla væri að óska eftir, samkvæmt 7. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi hafi jafnframt ekki notið andmælaréttar, sbr. 12. og 13. gr. stjórnsýslulaga.
Kærandi telur að aðgerðir lögreglu hafi farið umfram meðalhóf og ómálefnalegt og ólögmætt að krefjast svo umfangsmikilla skýringa á tilgangi dvalar hans. Með þessu hafi lögregla brotið gegn jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga. Þá gerir kærandi athugasemdir við vinnubrögð lögreglunnar varðandi skuldaviðurkenningu hans. Kærandi heldur því fram að honum hafi verið gefnar þær leiðbeiningar að greiða skuldina við næstu komu sína til Íslands.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi, sem ekki þarf vegabréfsáritun til landgöngu, heimilt að dveljast hér á landi í 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu telst jafngilda dvöl hér á landi. Kærandi er ríkisborgari Albaníu og þarf því ekki vegabréfsáritun til landgöngu hér á landi, enda sé hann handhafi vegabréfs með lífkennum.
Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 19. nóvember 2024, byggir á c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt ákvæðinu er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a. laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt a-j-lið 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða. Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í skýrslu lögreglu, dags. 20. nóvember 2024, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að vera kominn til landsins sem ferðamaður, hann hygðist slaka á og fara á skemmtanalífið í miðbæ Reykjavíkur. Hann hafi greint frá því að þekkja engan á Íslandi en samkvæmt málum í kerfum lögreglunnar þekki hann einstaklinga hér á landi. Þá hafi framburður kæranda um það hve oft hann hafi komið til landsins verið misvísandi. Kærandi hafi framvísað 1.280 evrum í reiðufé auk þess að vera með bókun á hótelgistingu sem þó væri ógreidd.
Við uppflettingu í kerfum lögreglu kom, líkt og áður er rakið, fram að kærandi hafi dvalið hér á landi umfram þann tíma sem honum er leyfilegt að dvelja hér oftar en einu sinni auk þess sem hann væri skráður aukaaðili í tilteknum málum í kerfum lögreglunnar. Samkvæmt lögreglu hafi kærandi komið til Íslands 12. febrúar 2021 og farið frá landinu 19. ágúst 2021 og hafi þar með dvalið í 189 daga á landinu. Þá hafi hann komið aftur 29. júlí 2022 og farið frá landinu 17. desember 2022 og þar með dvalið í 132 daga hér á landi. Í þriðja sinn hafi kærandi komið til Íslands 15. júlí 2023 og farið frá landinu 13. október 2023 og hafi þar með dvalið 91 dag á landinu. Þá hafi kærandi verið í of langri dvöl á Schengen-svæðinu frá 19. janúar 2024 og til 19. apríl 2024 eða í 92 daga.
Af framangreindu leiðir að kærandi hefur í þrígang dvalið hér á landi umfram þann tíma sem honum er heimilt. Að teknu tilliti til þessa er ekki gerð athugasemd við að lögregla hafi gert ríkar kröfur til þess að kærandi legði fram gögn til að sýna fram á tilgang dvalar sinnar og tekið frásögn hans með fyrirvara. Við meðferð þessa máls lagði kærandi ekki fram ferðabókanir né hafði hann greitt fyrir bókun á hótelgistingu hér á landi. Framburður kæranda um fyrri dvöl hans hér á landi var í ósamræmi við fyrirliggjandi gögn málsins. Framangreint rýrir trúverðugleika frásagnar kæranda um tilgang dvalar hans hér á landi.
Með vísan til þessa verður staðfest sú niðurstaða hinnar kærðu ákvörðunar að kærandi hafi ekki getað leitt líkur að þeim tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvöl sinni hér á landi og að skilyrði c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga hafi verið uppfyllt.
Í greinargerð kæranda eru gerðar athugasemdir við málsmeðferð lögreglustjórans á Suðurnesjum og telur kærandi að brotið hafi verið gegn 12. gr. laga um útlendinga og 7., 10., 11., 13. gr. stjórnsýslulaga. Ekki er ástæða til þess að gera athugasemdir við þessi atriði í málsmeðferð lögreglu í máli kæranda.
Að öllu framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga staðfest.
Tilkynningarskylda hjá lögreglu
Í málatilbúnaði kæranda er gerð krafa þess efnis að felld verði úr gildi ákvörðun lögreglu um að gera kæranda að sæta tilkynningarskyldu eða halda sig á ákveðnum stað á grundvelli 15. gr. laga um landamæri nr. 136/2022, sbr. g-lið 1. mgr. 114. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið mælir fyrir um heimild til þess að skylda útlending til að sinna reglulegri tilkynningarskyldu um veru sína hér á landi eða að dveljast á ákveðnum stað. Ákvæði g-liðar tilgreinir að ráðstöfunin sé gerð þegar útlendingur uppfyllir ekki skilyrði fyrir komu til landsins eða vafi leikur á því hvort útlendingur uppfylli skilyrði fyrir komu til landsins. Ráðstöfunin sem kærandi undirritaði vísaði einnig til 3. mgr. 114. gr. laga um útlendinga en ákvæðið mælir fyrir um rétt útlendings til fá skorið úr því fyrir dómstólum hvort skilyrði fyrir ákvörðun skv. 1. mgr. séu til staðar og hvort grundvöllur sé fyrir að framfylgja ákvörðuninni. Um slíka meðferð máls vísast til XV. kafla laga um meðferð sakamála. Samkvæmt framansögðu er endurskoðun á ákvörðunum lögreglu sem teknar eru á grundvelli 114. gr. laga um útlendinga á höndum dómstóla en ekki kærunefndar útlendingamála. Verður þeim hluta málsins því vísað frá kærunefnd.
Athugasemdir við störf lögreglu
Hin kærða ákvörðun fjallar um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðuninni kemur fram að kæranda væri vísað frá landinu á þeim lagagrundvelli sem hér hefur verið fjallað um að framan. Að öðru leyti kom ekki fram í ákvörðuninni hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirrar niðurstöðu eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvörðunarinnar að undanskildum þeim athugasemdum sem koma fram í ákvörðuninni um að kærandi hefði dvalið ólöglega áður hér á landi og að tilgangur dvalar væri ótrúverðugur. Verður því að líta svo á að hin kærða ákvörðun hafi ekki verið rökstudd í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þá var kæranda ekki leiðbeint um heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga til að fá slíkan rökstuðning. Að þessu leyti var hin kærða ákvörðun ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga þar sem mælt er fyrir um leiðbeiningar sem veita skal aðila máls þegar birt er ákvörðun án rökstuðnings.
Úrskurðarorð
Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum er staðfest.
The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir Vera Dögg Guðmundsdóttir