23 apríl 2025

/

Nr. 315/2025 Úrskurður

Hinn 23. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 315/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24120143

Kæra […]

I.          Málsatvik

Með ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 14. desember 2024, var konu að nafni […], ríkisborgara Eþíópíu (hér eftir kærandi), vísað frá landinu á grundvelli c- og d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála 30. desember 2024. Með ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 24. janúar 2025, var ákvörðun lögreglunnar, dags. 14. desember 2024, afturkölluð. Kærandi var upplýst af kærunefnd með tölvubréfi, dags. 26. mars 2025, um að lögregla hefði afturkallað framangreinda ákvörðun í máli kæranda. Þá var óskað eftir svörum frá kæranda hvort hún hefði í hyggju að afturkalla kæru sína í ljósi þeirra upplýsinga. Erindið var ítrekað með tölvubréfi kærunefndar, dags. 7. apríl 2025. Ekkert svar barst frá kæranda.

II.         Málsástæður og rök kæranda

Í ljósi niðurstöðu kærunefndar verða athugasemdir kæranda ekki raktar.

III.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Líkt og að framan er rakið var ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum, um frávísun kæranda á grundvelli c- og d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga afturkölluð hinn 24. janúar 2025. Með hliðsjón af því hefur kærandi ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins.

Kæru kæranda er því vísað frá kærunefnd.


Úrskurðarorð

Kæru kæranda er vísað frá.

The applicant’s appeal is dismissed.

Valgerður María Sigurðardóttir                                                                 Vera Dögg Guðmundsdóttir