23 apríl 2025
/
Nr. 319/2025 Úrskurður
Hinn 23. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 319/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24120024
Kæra […]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 4. desember 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 26. nóvember 2024, um frávísun frá Íslandi.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c- og d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í skýrslu lögreglu, dags. 27. nóvember 2024, kemur fram að kærandi hafi við almennt eftirlit lögreglu verið óljós um tilgang dvalar hér á landi. Kærandi hafi því verið færður í viðtalsherbergi hjá lögreglu á Keflavíkurflugvelli þar sem hann hafi verið spurður nánar út í tilgang dvalar sinnar á Íslandi auk tengsla við landið. Kærandi hafi greint frá því að vera kominn til landsins sem ferðamaður og ætla að dvelja á landinu í þrjá daga. Kærandi hafi ekki verið búinn að bóka flugfarmiða frá landinu. Kærandi greindi frá því að vera kominn til landsins sem ferðamaður og til að hitta kærustu sína og hafi framvísað boðsbréfi frá henni. Við skoðun lögreglu kom í ljós að konan væri 39 ára en kærandi hafi greint frá því að hún væri 22 ára. Kærandi greindi frá því að hafa kynnst umræddri konu á tilteknum samfélagsmiðli fyrir sex mánuðum síðan. Við skoðun lögreglu á samtali þeirra í spjallborði samfélagsmiðilsins hafi samtalið hafist degi áður en kærandi hafi komið til landsins. Lögregla hafi hringt í umrædda konu, sem hafi ekki svarað símanum. Kærandi hafi greint frá því að ætla að dvelja á tilteknu gistiheimili og framvísað bókun fyrir dagana 26. til 29. nóvember 2024. Lögregla hafi staðfest bókunina. Kærandi hafi greint frá því að ekki væri rými fyrir hann til að dvelja hjá umræddri konu. Kærandi hafi haft í hyggju að ferðast um fótgangandi og með strætisvagni og hafi framvísað 1.490 evrum í reiðufé.
Lögregla taldi að þar sem kærandi væri ekki með bókaðan flugfarmiða úr landi væri ekki hægt að slá því föstu að hann myndi ekki dvelja hér umfram 90 daga og þar af leiðandi var það mat lögreglunnar að kærandi hefði ekki næga fjármuni til framfærslu. Samkvæmt framangreindu var það mat lögreglunnar að tengsl kæranda við umrædda konu væru ekki raunveruleg. Samkvæmt framangreindu taldi lögregla að heimilt væri að frávísa kæranda á grundvelli c- og d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Að því loknu var keyptur flugfarmiði frá landinu fyrir kæranda.
Kærandi kærði ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 4. desember 2024. Í samræmi við 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga og 1. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga var kæranda skipaður talsmaður með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 5. febrúar 2025. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust kærunefnd 20. desember 2024. Frekari upplýsingar bárust frá lögreglu 11. apríl 2025. Talsmaður kæranda lagði fram greinargerð vegna málsins 19. desember 2024.
III. Málsástæður og rök kæranda
Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Í ljósi niðurstöðu málsins verður greinargerð kæranda ekki reifuð nánar.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvæði 11. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um leiðbeiningarskyldu stjórnvalda. Í 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga kemur fram að í máli er varðar frávísun, brottvísun eða afturköllun leyfis skal útlendingi þegar í upphafi máls leiðbeint um réttindi sín og meðferð málsins á tungumáli sem ætla má með sanngirni að hann geti skilið. Samkvæmt a-lið ákvæðisins skal útlendingi m.a. leiðbeint um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns eða annars fulltrúa á eigin kostnað við meðferð máls.
Í frumskýrslu lögreglu kemur ekki fram hvort kæranda hafi verið leiðbeint um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns í upphafi máls. Kærunefnd aflaði upplýsinga frá lögreglu 26. mars 2025 um það hvort kæranda hafi verið leiðbeint um framangreindan rétt sinn. Af upplýsingum frá lögreglu, sem bárust kærunefnd 11. apríl 2025, má ráða að kæranda hafi ekki verið leiðbeint um þann rétt sinn í upphafi máls.
Ákvæði 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um fortakslausa skyldu íslenskra stjórnvalda til að hafa frumkvæði að því að leiðbeina útlendingi við upphaf máls um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns eða annars fulltrúa á eigin kostnað. Samkvæmt framangreindu var kæranda ekki leiðbeint um þann rétt sinn í samræmi við 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga og kann að vera að sá annmarki hafi haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Er því óhjákvæmilegt að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi.
Úrskurðarorð
Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum er felld úr gildi.
The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is vacated.
Valgerður
María Sigurðardóttir Vera
Dögg Guðmundsdóttir