25 apríl 2025

/

Úrskurður nr. 318/2025


Hinn 25. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 318/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24090118

Kæra [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 19. september 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari El Salvador (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 11. september 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins 20. september 2023 frá El Salvador og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 2. október 2023. Kvaðst kærandi sækja um alþjóðlega vernd vegna þess að aðilar hafi verið að reyna að hafa af honum fé í tengslum við rekstur fyrirtækis hans. Kærandi kvaðst hafa farið frá El Salvador til Kosta Ríka þar sem hann hafi dvalið í fjóra daga áður en hann hafi farið til Madríd. Kærandi hafi komið þaðan til Íslands hinn 20. september 2023. Kærandi kvaðst ekki hafa sótt um alþjóðlega vernd í öðru landi en hafa unnið í Bandaríkjunum.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 8. febrúar 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi kvaðst vera fæddur í borginni San Fransisco Menendez í Ahuachapán fylki í El Salvador og uppalinn í þorpinu Garita Palmera í sama fylki þar sem hann hafi verið búsettur áður en hann hafi yfirgefið heimaríki. Kærandi kvaðst hafa dvalið í Bandaríkjunum í níu mánuði á tímabundnu atvinnuleyfi á árinu 2022. Hann hafi starfað sem garðyrkjumaður hjá bandarísku fyrirtæki en ekki getað sótt um endurnýjun á atvinnuleyfinu þar sem fyrirtækið hafi ekki gefið honum kost á frekari atvinnu. Aðspurður um fjárhagsstöðu sína greindi kærandi frá því að greiðslukortum hans hafi verið lokað þar sem hann hafi ekki tilkynnt banka sínum að hann væri að fara úr landi og þegar starfsmenn bankans hafi séð erlendar færslur á greiðslukortum kæranda hafi þeir ákveðið að loka kortunum. Kærandi kvaðst eiga 9.000 dollara á bankareikningi og jörð ásamt húsi í heimaríki. Kærandi kvað móður sína nú búa í umræddu húsi. Kærandi kvaðst ekki vera skuldugur né hafa sætt ákæru eða hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað. Hann tilheyri ekki sérstöku þjóðarbroti í heimaríki, sé ekki aðili að stjórnmálaflokki né virkur í þágu tiltekins málsstaðar. Kærandi kvaðst geta talist tilheyra minnihlutahópi í heimaríki sem einstaklingur með húðflúr, en stjórnvöld séu að eltast við fólk með húðflúr í tengslum við aðgerðir til að stemma stigu við starfsemi glæpahópa. Aðspurður um líkamlega og andlega heilsu sína kvað kærandi sér líða vel og ekki þjást af neinum sjúkdómi. Hann fái blóðnasir hér á landi en telji það eðlilegt þar sem hann sé að aðlagast veðrinu. Aðspurður um hvaða atvik í lífi hans gerðu það að verkum að hann flúði frá El Salvador greindi kærandi frá vandamálum í heimaríki vegna glæpahópa. Hann hafi t.d. ekki getað farið í háskóla vegna hættunnar við að nota almenningssamgöngur þar sem þjófnaður af hálfu meðlima glæpahópa hafi verið hversdagslegur atburður. Kærandi hafi ákveðið að sækja um tímabundið starf hjá fyrirtæki í Bandaríkjunum árið 2022 og unnið þar í landi í níu mánuði áður en hann hafi snúið aftur til heimaríkis. Kærandi kvaðst hafa opnað trésmíðarekstur í heimaríki seinni hluta desember 2022 með tekjunum úr starfi hans í Bandaríkjunum. Um mánuði síðar, í lok janúar 2023, hafi ótilgreindir meðlimir glæpahópsins MS-13 byrjað að hóta kæranda og krafist þess að hann myndi greiða þeim svokallaða ,,leigu‘‘ (sp. renta) líkt og aðrir fyrirtækjaeigendur. Kærandi kvaðst ekki hafa leitað aðstoðar lögreglu vegna framangreinds þar sem glæpamennirnir hafi hótað að drepa einhvern úr fjölskyldu hans leitaði hann til lögreglunnar. Að sögn kæranda hafi MS-13 í raun stjórnað öllu svæðinu þar sem hann hafi verið búsettur. Kærandi hafi borgað 50 dollara á mánuði til að byrja með. Þremur mánuðum síðar hafi kærandi fengið tilkynningu um að greiðslan hafi hækkað í 100 dollara. Mánuði síðar hafi glæpahópurinn hækkað greiðsluna í 300 dollara. Kærandi kvaðst þá hafa áttað sig á að hann myndi ekki geta haldið rekstrinum áfram þyrfti hann að borga 300 dollara í hverjum mánuði. Hann hafi ekki átt annarra kosta völ en að yfirgefa El Salvador. Kærandi hafi selt allt sem hann hafi getað og safnað 3.000 dollurum til að koma til Íslands. Kærandi kvaðst hafa borgað framangreinda ,,leigu‘‘ í u.þ.b. fimm skipti, en meðlimir glæpahópsins hafi alltaf mætt á vinnustað kæranda með byssu og innheimt greiðsluna í reiðufé. Kærandi hafi haldið rekstrinum áfram þar til hann hafi yfirgefið landið og ekki látið neinn vita af fyrirhugaðri brottför hans eða að hann hygðist hætta rekstrinum þar sem meðlimir MS-13 hefðu þá getað rænt honum eða drepið hann til að stela öllu og til að fá hærri fjárhæðir. Kærandi greindi frá því að þegar meðlimir glæpahópsins hafi mætt til að innheimta næstu greiðslu hafi þeir áttað sig á því að kærandi hafi yfirgefið landið. Þeir hafi þá farið til móður kæranda til að fá símanúmer kæranda og upplýsingar um hvert hann hafi farið. Kærandi kvað þá hafa haldið áfram að koma til móður hans og hótað henni þangað til að hún hafi sagt þeim að kærandi sé á Íslandi. Aðspurður kvað kærandi meðlimi MS-13 hafa krafist greiðslu 100 dollara frá móður hans í eitt skipti. Kærandi hafi þurft að fá vin sinn í Bandaríkjunum til að senda móður sinni peninginn svo hún gæti borgað glæpahópnum. Kærandi kvað glæpahópinn hafa heimtað fleiri greiðslur frá móður hans. Hann hafi haft samband við banka sinn í heimaríki og fengið þær upplýsingar að bankinn myndi opna aftur reikninga hans 1. apríl 2024, þá gæti móðir hans notað þá 9.000 dollara sem þar séu til að greiða glæpahópnum. Kærandi kvaðst telja líf fjölskyldu hans í heimaríki í hættu borgi hann ekki glæpahópnum. Ef leitað yrði aðstoðar lögreglu myndi glæpahópurinn strax frétta af því og refsa fyrir það. Kærandi kvaðst hafa átt frænda í El Salvador sem hafi skuldað glæpahóp pening og meðlimir hópsins hafi drepið hann árið 2019. Aðspurður kvað kærandi MS-13 hafa reynt að fá hann til liðs við sig árið 2015. Þeir hafi stöðvað kæranda og sagt honum að hann þyrfti að ganga til liðs við þá, kærandi hafi neitað og sagst ekki geta gengið í hópinn af trúarlegum ástæðum. Kærandi kvað glæpahópinn bera virðingu fyrir kristinni trú og kirkjunni og því hafi þeir virt ástæðu kæranda og leyft honum að fara. Þegar sömu meðlimir glæpahópsins hafi byrjað að kúga kæranda í janúar 2023 hafi þeir þekkt hann og gefið í skyn að hefði hann gengið til liðs við þá á sínum tíma væri hann ekki í þeirri stöðu að þurfa að borga þeim nú. Kærandi kvaðst bæði óttast glæpahópa í heimaríki og yfirvöld þar í landi vegna þess að þau eltist við fólk sem sé með húðflúr, líkt og hann. Glæpahópar og yfirvöld séu tvær meginástæður þess að kærandi telji sig ekki geta snúið aftur til El Salvador. Kærandi kvaðst hafa verið stöðvaður af hermönnum í heimaríki í júní 2023. Þeir hafi látið hann setja hendur fyrir aftan bak, skoðað allt sem hann hafi verið með á sér og spurt hann af hverju hann sé með mörg húðflúr og hvort hann sé glæpamaður. Kærandi kvað hermennina hafa talað við móður hans og spurt hana hvort kærandi tilheyri glæpahópi. Móðir kæranda hafi neitað og hermennirnir leyft honum að fara en tekið mynd af skilríkjum hans. Kærandi kvaðst eiga vin sem hafi setið í fangelsi í heilt ár að ósekju á meðan yfirvöld hafi rannsakað hann og möguleg tengsl hans við glæpahópa. Kærandi kvaðst ekki geta búið annars staðar í El Salvador og verið öruggur þar sem hann eigi bara fjölskyldu á því svæði þar sem hann hafi verið búsettur. Glæpahóparnir starfi um allt land og því myndi sama sagan endurtaka sig hvert sem kærandi myndi fara. Af frásögn kæranda má ráða að hann telji sig ekki geta fengið menntun, aðstoð yfirvalda né hafa atvinnumöguleika í heimaríki.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 19. september 2024. Greinargerð barst kærunefnd 3. október 2024.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð til kærunefndar er vísað til greinargerðar kæranda til Útlendingastofnunar hvað varðar aðstæður hans í El Salvador. Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar kemur m.a. fram að kærandi hafi yfirgefið heimaríki vegna fjárkúgana og ofsókna af hendi glæpahópsins MS-13 sem fyrirtækjaeigandi. Kærandi hafi fengið hótanir og hringingar í síma sinn eftir að hann hafi yfirgefið heimaríki. Kærandi telji sig vera í minnihlutahópi í El Salvador sökum þess að vera með húðflúr og yfirvöld eltist við einstaklinga með húðflúr og setji þá í fangelsi til að rannsaka möguleg tengsl við glæpahópa.

Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar er vísað til landaskýrslna.

Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Af greinargerð til Útlendingastofnunar má ráða að kærandi byggi framangreinda kröfu á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu glæpahópsins MS-13 og yfirvalda. Kærandi byggir jafnframt á því að hann tilheyri þjóðfélagshópi sem einstaklingur með húðflúr og vísar til þess að yfirvöld hafi áreitt og handtekið aðila með húðflúr og talið þá tengjast glæpahópum í El Salvador.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Af greinargerð til Útlendingastofnunar má ráða að kærandi byggi framangreinda kröfu á því að hann eigi rétt á viðbótarvernd annars vegar með vísan til raunverulegrar og yfirvofandi hættu á ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð og/eða alvarlegs skaða af völdum árása glæpahópsins MS-13 og lögreglu í heimaríki og hins vegar með vísan til almenns ástands í El Salvador og þeirrar öldu morða sem þar hafi geisað undanfarna áratugi. Þá telur kærandi það hvorki raunhæft né sanngjarnt að ætlast til þess að hann setjist annars staðar að í heimaríki sínu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, þar sem yfirvöld í heimaríki hans séu meðal þeirra sem séu ábyrg fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem þar ríkir.

Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í greinargerð til Útlendingastofnunar byggir kærandi framangreinda kröfu á því að hann hafi ríka þörf fyrir vernd og að ástandið sem hann myndi þurfa að búa við í El Salvador nái því alvarleikastigi að það sé sanngjarnt og eðlilegt að honum verði veitt dvalarleyfi hér á landi af mannúðarástæðum.

Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað salvadorsku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé salvadorskur ríkisborgari.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í El Salvador, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2022 Country Reports on Human Rights practices: El Salvador (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights practices: El Salvador (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • BTI 2024 Country Report — El Salvador (Bertelsmann Stiftung, 2024);
  • BTI 2022 Country Report — El Salvador (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Acled. Dashboard, El Salvador (23. ágúst 2023);
  • Amnesty International Report 2023/24 – El Salvador (Amnesty International, 24. apríl 2024);
  • Amnesty International Report 2022/23 – El Salvador (Amnesty International, 28. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2021/22 – El Salvador (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Annual report on the human rights situation in 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2014);
  • Barrio 18 (InSight Crime, 11. mars 2019);
  • Concluding observations on the combined eighth and ninth periodic reports of El Salvador (United Nations Committee on the Elimination of Discrimination against Women, 9. mars 2017);
  • Country Policy and Information Note. El Salvador: Actors of protection (UK Home Office, febrúar 2021);
  • Country Policy and Information Note. El Salvador: Fear of gangs (UK Home Office, janúar 2021);
  • Country Policy and Information Note. El Salvador: Gangs (UK Home Office, desember 2022);
  • El Salvador‘s Bukele claims landslide election win (Aljazeera, 4. febrúar 2024);
  • El Salvador Deploys Security Forces to Contain Criminal Groups (Diálogo Américas, 11. janúar 2023);
  • El Salvador: Information Gathering Mission Report: Gangs in El Salvador and the Situation of Witnesses of Crime and Corruption (Immigration and Refugee Board of Canada, september 2016);
  • El Salvador: Information Gathering Mission Report: The Situation of Women Victims of Violence and of Sexual Minorities in El Salvador (Immigration and Refugee Board of Canada, september 2016);
  • El Salvador Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 7. febrúar 2025);
  • El Salvador Escalates Gang Crackdown with New Measures (InSight Crime, 4. ágúst 2023);
  • Foreign travel advice: El Salvador (The Foreign, Commonwealth & Development Office (FCDO) gov.uk), síðast uppfært 15. ágúst 2024);
  • Freedom in the World 2023 –El Salvador (Freedom House, 2023);
  • Freedom in the World 2024 – El Salvador (Freedom House, 2024);
  • Gender discrimination is plaguing El Salvador (Institute of Current World Affairs, 7. júní 2021);
  • Gang Presence in San Salvador (InSight Crime, 26. apríl 2019);
  • Gang Violence and Growing Abuses by State Security Forces (Latin America Working Group, 13. nóvember 2017);
  • Healthcare – El Salvador (vefsíða International Trade Administration, ódags., síðast skoðað 6. janúar 2024);
  • Health in the Americas: El Salvador – Country Profile (Pan American Health Organization, 23. október 2024);
  • „Too Many Soldiers“: How Bukele‘s Crackdown succeeded where others failed (InSight Crime, 6. desember 2023);
  • InSight Crime´s 2021 Homicide Round-Up (InSight Crime, 1. febrúar 2022);
  • InSight Crime´s 2022 Homicide Round-Up (InSight Crime, 8. febrúar 2023);
  • Left in the Dark: Violence Against Women and LGBTI Persons in Honduras and El Salvador (Latin America Working Group, 7. mars 2018);
  • List of issues and questions in relation to the combined eighth and ninth periodic reports of El Salvador. Replies by El Salvador (United Nations Committee on the Elimination of Discrimination against Women, 11. janúar 2017);
  • Mental Health Atlas 2020 Country Profile: El Salvador (World Health Organization, 15. apríl 2022);
  • MS13 (InSight C rime, 11. mars 2019);
  • National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex to Human Rights Council resolution 16/21 El Salvador (United Nations Human Rights Council, 20. ágúst 2019);
  • Observaciones finales sobre el sexto informe periódico de El Salvador (United Nations Economic and Social Council, 9. nóvember 2022);
  • Report of the Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (United Nations Human Rights Council, 22. ágúst 2019);
  • Report of the Special Rapporteur on extrajudicial, summary or arbitrary executions on her mission to El Salvador (United Nations Human Rights Council, 7. desember 2018);
  • Report of the Special Rapporteur on the promotion of truth, justice, reparation and guarantees of non-recurrence on his visit to El Salvador (United Nations Human Rights Council, 9. júlí 2020);
  • Salvadoran troops besiege two cities in gang crackdown (France 24, 12. október 2023);
  • Situation of human rights in El Salvador (Inter-American Commission on Human Rights, 14. október 2021);
  • Sixth periodic report submitted by El Salvador under articles 16 and 17 of the Covenant (United Nations Economic and Social Council, 2. desember 2019);
  • Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – El Salvador (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
  • Summary of Stakeholders’ submissions on El Salvador (United Nations Human Rights Council, 21. ágúst 2019);
  • The Problem With El Salvador‘s Crime numbers (fréttamiðillinn FP, 8. ágúst 2024);
  • The World Factbook: El Salvador (CIA, síðast uppfært 19. mars 2025);
  • Third periodic report submitted by El Salvador under article 19 of the Convention, due in 2013 (United Nations Committee against Torture. CAT/S/SLV/3, 17. mars 2020) og
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from El Salvador (United Nations High Commissioner for Refugees, 15. mars 2016)).

Lýðveldið El Salvador er forsetalýðveldi með um 6,6 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 85% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 24. október 1945 gerðist El Salvador aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1979. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1981 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1996. El Salvador fullgilti mannréttindasáttmála Ameríku 20. júní 1978. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að árið 2019 hafi Nayib Bukele verið kjörinn forseti El Salvador. Forsetakosningarnar og kosningar til sveitastjórnar- og þingkosningar í febrúar 2021 hafi verið taldar frjálsar samkvæmt eftirlitsaðilum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2024 kemur fram að forseti El Salvador og þingið hafi kerfisbundið veikt lýðræðislegt eftirlit og stofnanir. Í október 2023 hafi forsetinn tilkynnt að hann hygðist sækjast eftir endurkjöri árið 2024 þrátt fyrir að stjórnarskráin leggi bann við því. Í nóvember hafi honum verið veitt sex mánaða leyfi frá störfum og Claudia Rodriguez komið í hans stað. Hinn 4. febrúar 2024 var Bukele kjörinn forseti á ný með meirihluta atkvæða og tók á ný við embætti 1. júní 2024.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2024 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, þvinguð mannshvörf, ómannúðleg meðferð og refsing af hálfu öryggissveita, lífshættulegur aðbúnaður í fangelsum, víðtæk spilling, takmarkanir á tjáningar- og fjölmiðlafrelsi, skortur á rannsóknum og réttlátri málsmeðferð vegna kynbundins ofbeldis, takmarkanir á aðgengi að kynheilbrigðisþjónustu og ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum. Spilling og refsileysi sé umtalsverð í stjórnsýslunni og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi í sumum tilvikum gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot. Glæpahópar, þ.m.t. staðbundin og fjölþjóðleg glæpagengi og eiturlyfjasalar fremji morð, stundi fjárkúganir, mannrán, mansal, hótanir og aðrar ógnir og ofbeldi. Þeir beini aðgerðum gegn lögreglu, dómurum, aðilum viðskiptalífsins og meðlimum viðkvæmra hópa. Yfirvöld rannsaki og ákæri í slíkum málum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að lögreglan, undir umsjón dómsmálaráðuneytis, beri ábyrgð á að viðhalda almannaöryggi. Varnarmálaráðuneytið beri ábyrgð á þjóðaröryggi. Þó svo að stjórnarskrá ríkisins aðskilji hernaðaraðgerðir og öryggisaðgerðir í þágu almannaöryggis, hafi forseti heimild til að beita herafla í undantekningartilvikum, þegar önnur úrræði hafi verið fullreynd. Í skýrslu sama aðila frá árinu 2023 kemur fram að 27. mars 2022 hafi þingið lýst yfir undantekningarástandi (e. state of exception) vegna stórfelldrar aukningar morða sem framin hafi verið af meðlimum glæpagengja 25. til 27. mars s.á. Á meðan það ástand sé í gildi hafi herlið landsins heimild til að handtaka alla þá sem grunaðir séu um að tilheyra glæpagengi eða styðja gengi. Heimilt sé að takmarka ýmis almenn réttindi grunaðra, svo sem til þess að gæta rannsóknarhagsmuna á fyrstu stigum rannsóknar og takmarka samskipti grunaðra. Þessi yfirlýsing hafi verið endurnýjuð mánaðarlega síðan og samkvæmt skýrslunni frá árinu 2024 hafi hún enn verið í gildi í desember 2023. Fréttir um El Salvador m.a. á síðu Insight Crime og Amnesty International, benda til þess að yfirlýsingin hafi verið endurnýjuð í 33 skipti út árið 2024. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að fjölmargar tilkynningar um handahófskenndar handtökur og óréttláta málsmeðferð fyrir dómstólum og dauðsföll fanga, hafi fylgt þessum aðgerðum. Mannréttindasamtök hafi tekið við yfir 3.000 kvörtunum vegna ásakana um ýmis brot gegn frelsissviptum, þ. á m. um handahófskenndar handtökur, að handteknir hafi ekki fengið að vita ástæðu fyrir handtöku eða hafa samband við fjölskyldumeðlimi í tengslum við aðgerðir stjórnvalda. Lögin kveði á um réttinn til réttlátrar og opinberrar málsmeðferðar, en undantekningarákvæðið geti frestað hluta þessara réttinda, svo sem réttinum til að fá tafarlaust upplýsingar um sakarefni og önnur réttindi. Stjórnvöld hafi haldið því fram að þau hafi gagnagrunn með meira en 76 þúsund gengjameðlimum og að þeir sem hafi verið handteknir hafi verið á þeim lista eða að trúverðugar ábendingar hafi leitt til gruns um að viðkomandi væri gengjameðlimur. Á fyrstu mánuðum, þar sem ákvæðinu um undantekningarástand hafi verið beitt, hafi lögregla og herinn farið inn í fátæk hverfi og framkvæmt fjöldahandtökur. Fréttamiðlar og mannréttindasamtök hafi sakað öryggissveitir um að handtaka einstaklinga fyrir gengjaaðild á veikum grunni, s.s. fyrir að vera með húðflúr eða fyrir að vera „grunsamlegir í útliti“.

Í framangreindri skýrslu kemur fram að 3. júní s.á. hafi framkvæmdastjórn Mannréttindanefndar Ameríku (e. Inter American Commission on Human Rights) áréttað fyrir stjórnvöldum mikilvægi alþjóðlegra skuldbindinga til að tryggja framfylgd réttarfarsreglna, réttláta málsmeðferð og aðgengi einstaklinga að raunhæfu úrræði til að leita réttar síns sem séu ófrávíkjanleg samkvæmt alþjóðlegum mannréttindalögum. Lögin kveði á um réttinn til réttlátrar og opinberrar málsmeðferðar og undantekningarákvæði sem salvadorsk stjórnvöld hafi beitt afnemi hluta þessara réttinda. Nefndin hafi fordæmt þá framkvæmd að halda réttarhöld fyrir allt að 500 einstaklinga samtímis, án þess að heimila stefndu að flytja sín mál.

Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu Freedom House frá 2024má ráða að ofbeldi og áreitni, oft í tengslum við skipulagða glæpastarfsemi, sé alvarlegt vandamál í El Salvador. Þar kemur fram að víðtæk spilling grafi undan lýðræði og réttarríkinu á meðan framkvæmdarvaldið hafi aukið umsvif sín. Yfirvöld haldi uppi hörðum og hervæddum viðbrögðum í baráttu við glæpahópa landsins, sem hafi leitt til handahófskenndra drápa, fjöldahandtaka og annarrar misnotkunar á valdi. Þá eigi virkir samfélagsrýnar og fjölmiðlar á hættu áreiti og ofbeldi í tengslum við umfjöllun um spillingu eða gagnrýni á aðgerðir og aðferðir stjórnvalda. Í júlí 2023 hafi fjöldi þeirra sem höfðu verið handteknir í tengslum við aðgerðir stjórnvalda numið meira en 70 þúsund manns. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að dregið hafi verulega úr morðum í landinu en þau hafi farið úr 366 fyrri helming ársins 2022 í 32 fyrri helming ársins 2023 eða um 2,4 á hverja tíu þúsund einstaklinga. Þessar tölur séu þó umdeildar en ljóst sé þó að dregið hafi verulega úr morðum af hálfu glæpasamtaka í landinu.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2024 kemur fram að glæpastarfsemi sé megin ástæða innri flótta Í El Salvador. Þar kemur fram að nýjustu tölur um einstaklinga á innri flótta í El Salvador séu frá 2022 og þá hafi um 52 þúsund verið á innri flótta í landinu vegna átaka glæpagengja og um 4.600 einstaklingar í viðbót vegna hitabeltisstormsins Júlíu.

Í skýrslum Bertelsmann Stiftung frá árunum 2022 og 2024 kemur fram að á undanförnum árum hafi salvadorsk stjórnvöld lagt áherslu á að efla ungmenni og tækifæri þeirra, fyrst og fremst með því að bæta opinbera menntakerfið og möguleika á starfsþjálfun. Hefur læsi aukist jafnt og þétt og læsi sé yfir 90%. Þá hafi hlutfall kvenna aukist á öllum menntastigum. Konur séu nokkru fleiri en karlar á háskólastigi. Félagsleg og efnahagsleg staða hafi þó áhrif á tækifæri salvadorskra ríkisborgara til menntunar. Tæplega 95% allra barna á grunnskólastigi stundi nám, 71,7% sæki framhaldsskólamenntun og aðeins 29,5% menntun á háskólastigi. Í skýrslunni kemur fram að margt ungt fólk þurfi að vinna og íbúar á landsbyggðinni standi höllum fæti í því sambandi. Í skýrslunni kemur fram að eitt helsta samfélagsmein í landinu sé að þrátt fyrir lækkaða morðtíðni sé hún enn há meðal ungmenna í þéttbýli og ungs fólks í glæpagengjum. Börn sjái aðild að slíkum hópum sem síðasta úrræði, njóti þau ekki stuðnings frá fjölskyldu, aðgangs að menntun eða atvinnu eða tækifæri til að vera samþykkt í samfélaginu. Ofbeldi gegn börnum sé bannað með lögum og viðurlög við slíkum brotum geti verið frá sviptingu forsjár í allt að 26 ára fangelsisrefsingu.

Á vefsíðu International Trade Administration kemur fram að í El Salvador séu u.þ.b. 30 starfandi einkasjúkrahús og yfir 116 einkareknar heilsugæslustöðvar í þremur helstu borgum landsins, þ.e. San Salvador, Santa Ana og San Miguel. Samanlagt séu um 485 opinberar heilbrigðisstofnanir sem starfi í landinu og einn herspítali. Í skýrslu Bertelsmann Stiftung frá 2024 kemur fram að félagslegt kerfi sé til staðar í landinu en aðgengi sé takmarkað fyrir suma hópa. Ríkisstyrktar sjúkratryggingar séu skyldubundnar fyrir alla skráða launþega. Í september 2022 hafi 32,5% starfandi íbúa verið skráðir í sjúkratryggingakerfið og 31,6% af heildarfjölda íbúa landsins. Þeir sem falli ekki þar undir s.s. sjálfstætt starfandi einstaklingar verði að reiða sig á einkareknar heilsugæslustöðvar eða gjaldfrjáls almenn sjúkrahús, sem séu yfirleitt fullnægjandi fyrir minniháttar heilsufarsvanda en oft séu biðtímar töluverðir eftir aðgerðum, ef undan er skilin bráðaheilbrigðisþjónusta. Heilbrigðisstofnanir á vegum hins opinbera séu aðgengilegar og ókeypis fyrir alla borgara landsins, þar á meðal geðheilbrigðisþjónusta. Í landinu sé að finna tvö geðsjúkrahús og fjórtán heilsugæslustöðvar og geðdeildir á sjúkrahúsum sem séu flestar staðsettar í höfuðborg landsins San Salvador.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu glæpahópsins MS-13 vegna fyrri hótana og fjárkúgana og af hálfu yfirvalda á grundvelli þess að hann tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi sem einstaklingur með húðflúr.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa yfirgefið El Salvador vegna hótana og fjárkúgana af hálfu meðlima glæpahópsins MS-13. Kærandi kvaðst fyrst hafa verið krafinn um greiðslu sem fyrirtækjaeigandi í janúar 2023 af framangreindum glæpahópi sem hafi síðan innheimt greiðslu frá kæranda mánaðarlega næstu fimm mánuði. Gjaldið hafi hækkað úr 50 dollurum í 100 dollara þremur mánuðum síðar og loks hækkað í 300 dollara. Kærandi hafi þá ákveðið að flýja heimaríki þar sem hann hafi ekki getað haldið rekstri sínum áfram og staðið undir slíkum greiðslum. Eftir að kærandi hafi yfirgefið heimaríki hafi meðlimir MS-13 krafið móður hans um greiðslu 100 dollara og kvaðst kærandi hafa útvegað móður sinni peninginn sem hún hafi síðan greitt til glæpahópsins. Kærandi kvað framangreindan glæpahóp hafa myrt frænda hans árið 2019 vegna þess að frændi hans hafi skuldað hópnum peninga. Kærandi telji líf fjölskyldumeðlima sinna í hættu í El Salvador hætti hann að greiða glæpahópnum peninga.

Við meðferð málsins lagði kærandi fram ýmis gögn, m.a. skjáskot af samskiptum annars vegar við móður hans og hins vegar við ótilgreindan aðila á tilteknu samskiptaforriti. Þar sem aðeins er um skjáskot að ræða er ekki hægt að fullyrða hver hafi sent skilaboðin eða hver hafi móttekið þau. Í samskiptunum kemur fram að móðir kæranda hafi sent honum skilaboð um að meðlimir glæpahóps hafi leitað til hennar eftir að kærandi hafi yfirgefið heimaríki og krafist greiðslu frá henni. Þá hafi ótilgreindur aðili ítrekað reynt að ná sambandi við kæranda á sama samskiptaforriti og hótað honum. Af skjáskotunum má ráða að samskipti kæranda og móður hans hafi átt sér stað dagana 10. og 14. nóvember 2023 og að ótilgreindur aðili hafi ítrekað reynt að ná sambandi við kæranda og hótað honum á tímabilinu 1. nóvember til 3. desember 2023.

Með vísan til landaupplýsinga, frásagnar kæranda og framlagðra gagna er ekki ástæða til að draga í efa að kærandi hafi orðið fyrir hótunum af hálfu ótilgreindra meðlima MS-13 og beittur fjárkúgun af hálfu sömu aðila. Þá er ekki unnt að útiloka að frændi kæranda hafi verið myrtur af meðlimum MS-13 vegna skuldar við hópinn.

Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað, m.a. í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um stöðu mannréttinda frá árinu 2024, kemur fram að lögregluyfirvöld í El Salvador séu virk og veiti þegnum sínum vernd. Skýrslur og önnur gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í El Salvador bera m.a. með sér að stjórnvöld hafi virkjað svokallað „undantekningarástand“ til að bregðast við glæpum og ofbeldi í landinu. Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í El Salvador bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum í El Salvador, er það mat kærunefndar að salvadorsk yfirvöld geti almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna. Heimildir benda enn fremur ekki til þess að ítök og áhrif glæpa- eða skæruliðahópa séu slík í Ahuachapán að ómögulegt sé fyrir kæranda að leita aðstoðar yfirvalda telji hann þörf á því. Kærandi kvað fjölskyldumeðlimi sína búa á sama stað og hann hafi verið búsettur áður en hann hafi flúið til Íslands og verður af frásögn hans eða gögnum málsins ekki ráðið að kærandi eða fjölskylda hans hafi orðið fyrir nokkru áreiti glæpahópa í kjölfar framangreindra hótana í nóvember og desember 2023. Þá er það mat kærunefndar að af frásögn kæranda verði ekki ráðið að hann eða fjölskylda hans hafi verið eða séu sérstök skotmörk glæpahópa í heimaríki umfram aðra fyrirtækjaeigendur þar í landi. Jafnframt verður ekki talið að hann geti ekki leitað aðstoðar yfirvalda af þeim sökum. Hefur kærandi ekki sýnt fram á að stjórnvöld í El Salvador geti ekki eða vilji ekki veita honum vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi hefur því raunhæfan möguleika á því að leita sér ásjár stjórnvalda þar í landi, ef hann telur sig þurfa á aðstoð þeirra að halda.

Kærandi ber fyrir sig að hann eigi á hættu ofsóknir í heimaríki af hálfu yfirvalda sem einstaklingur með húðflúr og vísar til átaks stjórnvalda gegn starfsemi glæpahópa þar sem fulltrúar yfirvalda hafi sérstök afskipti af einstaklingum með húðflúr til að kanna möguleg tengsl við glæpahópa. Kærandi kvaðst hafa verið stöðvaður í júní 2023 af ótilgreindum hermönnum sem hafi spurt hann um húðflúr hans og síðar sleppt honum eftir að móðir hans hafi staðfest að kærandi hafi engin tengsl við glæpahópa. Kærandi kvaðst óttast að framangreindur atburður muni gerast aftur í framtíðinni og hann mögulega fangelsaður til langs tíma á meðan rannsókn stjórnvalda standi yfir. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðgerðir stjórnvalda til að sporna gegn starfsemi glæpahópa, landaupplýsinga og frásagnar kæranda telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi hafi upplifað afskipti af hálfu hermanna í heimaríki eitt skipti í júní 2023. Þá er ekki hægt að útiloka að framangreind afskipti hafi átt sér stað vegna þess að kærandi sé með húðflúr. Af gögnum um heimaríki kæranda er ljóst að lögreglan og her landsins hafi rúmar heimildir til að handtaka fólk vegna grunsemda um tengsl við glæpahópa og að réttindi handtekinna sæti að einhverju leyti takmörkunum. Að mati kærunefndar bendir frásögn kæranda, gögn málsins og sú staðreynd að kærandi hafi verið látinn laus stuttu eftir að hann hafi verið stöðvaður þó ekki til þess að kæranda stafi sérstök hætta af öryggisaðgerðum stjórnvalda.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hann óttist ofbeldi af hálfu glæpahópa í heimaríki og að ástandið almennt í El Salvador ásamt persónulegum aðstæðum hans nái því alvarleikastigi að það falli undir verndarsvið 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í El Salvador sé víða ótryggt og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu glæpa- og skæruliðahópa. Að jafnaði hafi salvadorsk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra þó góða stjórn á svæðum í El Salvador. Þá séu lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg í landinu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsettur í Garita Palmera sem er sveitarfélag í fylkinu Ahuachapán. Samkvæmt landaheimildum er Ahuachapán staðsett í vesturhluta El Salvador. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar á heimasvæði kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærandi hefur tengsl við eða í El Salvador almennt. Að virtum framburði kæranda, gögnum málsins og landaupplýsingum um ástandið í Ahuachapán er það mat kærunefndar að kærandi eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði honum gert að snúa aftur til El Salvador.

Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður hans leiði til þess að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi hann til baka.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 2. október 2023. Kærandi hefur því ekki fengið niðurstöðu í máli sínu innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita honum dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.

Að mati kærunefndar uppfyllir kærandi skilyrði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram vegabréf. Verður því ekki talið að vafi leiki á því hver kærandi sé, sbr. b-lið 2. mgr. 74. gr. laganna. Þá er það mat kærunefndar að ákvæði a- til d-liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um kröfur kæranda skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest hvað varðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi skv. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest hvað varðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir stofnunina að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

The decision of the Directorate of Immigration regarding the appellant’s application for international protection is affirmed. The Directorate is instructed to issue the appellant a residence permit based on Article 74(2) of the Act on Foreigners.


Þorsteinn Gunnarsson

Valgerður María Sigurðardóttir