29 apríl 2025
/
Úrskurður nr. 349/2025
Hinn 29. apríl 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 349/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24090008
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 2. september 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. ágúst 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 9. ágúst 2024 óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 9 daga dvöl frá 2. til 10. október 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Kína. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. ágúst 2024. Hinn 2. september 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda. Hinn 4. apríl 2025 sendi kærunefnd kæranda tölvubréf þar sem skilja mátti af kæru að gleymst hafi að hengja rafrænt eintak af viðskiptaleyfi vinnuveitanda við kæruna. Kæranda var gefinn sólarhringur til að bregðast við því en engin svör bárust kærunefnd.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í kæru vísar kærandi til bréfs sem hann lagði fram með umsókn sinni. Í kærunni kemur fram að fyrirtækið sem kærandi vinni hjá sé í ríkiseigu og því sé meðferð skjala á borð við viðskiptaleyfi afar ströng. Ekki séu veitt afrit af viðskiptaleyfi til starfsmanna sem hyggist ferðast í einkaerindum sem ferðamenn til útlanda. Aðeins væru veittar staðfestingar á atvinnu. Kærandi hafi því ekki getað lagt fram afrit af viðskiptaleyfi vinnustaðar síns. Kærandi kvaðst með kæru sinni hafa lagt fram rafrænt eintak af viðskiptaleyfi vinnuveitanda síns en slíkt eintak fylgdi ekki kærunni í reynd. Þá kvað kærandi símtal frá utanríkisþjónustunni hafa verið hafnað af forriti í síma sínum sem hafnaði ónæðissímtölum. Kærandi hafi hringt til baka en enginn hafi svarað.
Á kærustigi lagði kærandi ekki fram ný gögn þrátt fyrir yfirlýsingu um annað.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Umsækjendur um samræmda vegabréfsáritun skulu m.a. framvísa skjölum sem gefa til kynna að þeir hafi nægt fé sér til framfærslu, bæði á meðan á fyrirhugaðri dvöl standi og til þess að snúa aftur til uppruna- eða búsetulands síns eða til gegnumferðar um þriðja ríki, sbr. c-lið 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Til að kanna hvort skilyrðum sem talin eru upp m.a. í 1. mgr. 14. gr. er fullnægt, er yfirvöldum sem hafa umsókn um vegabréfsáritun til meðferðar heimilt að óska eftir gögnum sem talin eru upp í skrá í viðauka 2, sem eru ekki tæmandi talin. Yfirvaldinu er jafnframt heimilt að óska eftir öðrum gögnum ef þurfa þykir.
Í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 2, þ.e. að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að afrit af viðskiptaleyfi vinnuveitanda hafi vantað og að kærandi hafi ekki svarað símtölum frá utanríkisþjónustunni. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Gögn er varða atvinnu eða reglulega innkomu eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 8. tölul. gátlista með vegabréfsumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni í Kína, þar sem kærandi lagði umsókn sína fram. Á gátlistanum kemur fram að launþegar þurfi að leggja fram viðskiptaleyfi vinnuveitanda síns. Kærandi hefur ekki lagt fram viðskiptaleyfi vinnuveitanda síns.
Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki fært sönnur á að hann sé í aðstöðu til að útvega nægt framfærslufé á löglegan hátt, hvorki á meðan á fyrirhugaðri dvöl stæði né til þess að snúa aftur til uppruna- eða búsetulands, sbr. iv. tölul. a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 1. málsl. 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Hafi þannig ekki verið sýnt fram á að kærandi hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stæði og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins, sbr. c-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 2. málsl. 8. mgr. 20. gr laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður