30 apríl 2025

/

Mál nr. 189/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 189/2025

Miðvikudaginn 30. apríl 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 25. mars 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun á árinu 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. apríl 2023, var kæranda tilkynnt bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki mætt í boðað viðtal. Sú ákvörðun var staðfest með úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála 29. júní 2023, sbr. mál nr. 234/2023. Með erindi 4. júlí 2023 var kæranda tilkynnt að hann hefði fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir maímánuð 2023 þrátt fyrir framangreind viðurlög. Því hefði myndast skuld við Vinnumálastofnun. Með erindi, dags. 28. júlí 2023, fór kærandi fram á að skuldin yrði felld niður þar sem hann væri kominn í vinnu. Beiðni kæranda var synjað með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. ágúst 2023. Kærandi fór fram á rökstuðning fyrir þeirri ákvörðun og var hann veittur með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 28. ágúst 2023. Þann 7. febrúar 2025 var kæranda tilkynnt að ógreidd krafa vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta hefði verið áframsend til frekari meðferðar hjá Innheimtumiðstöð.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. mars 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 26. mars 2025, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna kærunnar. Umbeðin gögn bárust 8. apríl 2025.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála greinir kærandi frá því að Vinnumálastofnun hafi sent honum bréf seint á föstudegi 7. febrúar sl. um skuld sem hafi verið stofnuð. Á mánudegi hafi kærandi fengið reikninginn í heimabanka sinn með eindaga þann sama dag. Kærandi hafi spurst fyrir um málið hjá Vinnumálastofnun en ekki fengið svar fyrr en seint og síðar meir. Kæranda þyki vinnubrögð Vinnumálastofnunar í málinu athugaverð og því geti hann ekki að öðru komist en að tilkoma skuldarinnar kunni að vera að einhverju leyti röng. Einnig þyki kæranda að svo há skuld án nokkurra samskipta yfir langan tíma sem komi svo fljótt og með hótunum um til dæmis aðför ógni velferð hans. Kærandi óski því eftir að mál hans verði kannað betur.

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna maímánaðar 2023.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. ágúst 2023, var kæranda tilkynnt að beiðni hans um niðurfellingu skuldar við stofnunina vegna maímánaðar 2023 hefði verið synjað. Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. mars 2025. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þess að kæra í máli þessu barst meira en ári eftir að ákvörðun var tilkynnt kæranda er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir