30 apríl 2025

/

Mál nr. 40/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 40/2025

Miðvikudaginn 30. apríl 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 20. janúar 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. janúar 2025, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á bið.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 28. desember 2024. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 17. janúar 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til þess að hann ætti ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn yrðu bætur ekki greiddar fyrr en sá tími væri liðinn.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 20. janúar 2025. Með erindi til Vinnumálastofnunar, dags. 21. janúar 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 21. febrúar 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 25. febrúar 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda 26. febrúar 2025 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa þurft að sæta biðtíma vegna greiðslu atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun vegna tekna sem hann hafi aflað í tímabundnu hlutastafi á árinu 2023. Hann hafi unnið óreglulega tíma í maí 2023 og fengið greidd laun 1. júní 2023 að fjárhæð 105.249 kr. Honum hafi verið tilkynnt í framhaldinu að ekki yrði af áframhaldandi ráðningu hans hjá fyrirtækinu. Kærandi kveðst hafa unnið sér inn frekari tekjur á tímabilinu en þann 3. júlí 2023 hafi hann fengið greiddar 68.446 kr.

Kærandi kveðst hafa misskilið ferli Vinnumálastofnunar um tilkynningu launa og gert mistök með því að gefa launin ekki upp við stofnunina. Hann sjái eftir þessum mistökum en þetta hafi verið í fyrsta skipti sem hann sé í sambærilegri stöðu. Með vísan til íþyngjandi áhrif slíks biðtíma óski kærandi eftir endurskoðun ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Í athugasemdum kæranda kemur fram að kærandi mótmæli ekki fyrri ákvörðun Vinnumálastofnunar en varðandi seinni ákvörðun Vinnumálastofnunar taki hann fram að svo virðist sem hún hafi verið byggð á rangri tilkynningu um að kærandi hafi sagt upp starfi sínu í maí 2023. Hann hafi sagt hlutastarfi sínu hjá B upp í apríl 2022 og fengið greidd laun í maí 2022. Varðandi greiðslu launa í maí 2023 taki kærandi fram að hann hafi fengið greitt orlof frá B sem hann hafi ekki vitað að honum bæri að tilkynna. Þá hafi hann fengið greidd laun fyrir reynslutíma hjá C en hafi ekki hafið störf þar í kjölfarið.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að upphaf málsins megi rekja til ákvarðana Vinnumálastofnunar þann 13. mars og 18. september 2023 þar sem kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og síðar á grundvelli 1. mgr. 59. gr. sömu laga. Bótaréttur kæranda hafi með framangreindum ákvörðunum verið felldur niður í tvo mánuði og svo þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna.

Kærandi hafi sótt síðast um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 28. desember 2024. Með erindi, dags. 17. janúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Með vísan til ótekinna viðurlaga hans yrðu bætur hins vegar ekki greiddar fyrr en að 1,87 mánuðum liðnum. Þessi ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. janúar 2025, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 20. janúar 2025.

Í kæru greini kærandi frá því að viðurlög þau sem hann hafi verið beittur megi rekja til mannlegra mistaka sinna. Kærandi óski eftir að eftirstöðvar biðtími verði tekin til endurskoðunar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Mál þetta varði í grunninn ákvarðanir Vinnumálastofnunar frá 13. mars 2023 og 18. september 2023. Kærufrestur vegna þeirra ákvarðana hafi verið liðinn þegar kæra hafi borist úrskurðarnefndinni þann 20. janúar 2025, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Eftir standi ákvörðun Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta eftirstöðvum viðurlaga sinna þegar hann hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta þann 28. desember 2024.

Kæranda hafi þann 13. mars 2023 verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sökum þess að starfslok hans hjá D hafi ekki verið metin gild. Fyrir liggi að kærandi hafi sjálfur sagt upp störfum í umræddu starfi. Þá hafi kæranda þann 18. september 2023 verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga, þar sem hann hafi ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi vinnu sína samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta í maí og júní 2023.

Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé meðal annars kveðið á um að sá sem hafi sætt viðurlögum skv. 57.-59. gr. eða biðtíma skv. 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum. Ákvörðun um viðurlög á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi því leitt til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga hans samkvæmt 1. mgr. 61. gr. þar sem hann hafi ekki unnið sér inn réttindi til nýs bótatímabils skv. 29. gr. laganna. Heildarviðurlagatími hans hafi því verið fimm mánuðir.

Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um nokkur tilvik þar sem biðtími eða viðurlög samkvæmt lögunum falli niður eða frestist. Þannig sé meðal annars kveðið á um í 3. mgr. 58. gr. að taki hinn tryggði starfi sem ekki sé hluti af vinnumarkaðsaðgerðum meðan á viðurlagatíma skv. 1. mgr. standi falli viðurlögin niður eftir að hinn tryggði hafi starfað í a.m.k. hálfan mánuð áður en hann sæki aftur um atvinnuleysisbætur. Ekki sé fyrir hendi heimild í lögum til að fella niður biðtíma vegna starfa atvinnuleitanda í þeim tilfellum sem viðkomandi hafi þurft að sæta ítrekuðum viðurlögum. Í 4. mgr. 61. gr. sé hins vegar kveðið á um að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil skv. 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Kærandi hafi ekki unnið sér inn réttindi til nýs bótatímabils. Þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hafi hann átt eftir að taka út tæpa tvo mánuði af útistandandi biðtíma sínum. Hann hafi því fyrst getað átt rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta þegar sá biðtími hafi verið liðinn.

Vinnumálastofnun telji að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og að eftirstöðvar biðtíma hans skuli halda áfram að líða frá síðasta umsóknardegi kæranda þann 28. desember 2024.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið.

Með ákvörðunum Vinnumálastofnunar frá 13. mars 2023 og 18. september 2023 var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo og þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. og síðar 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hefur óskað eftir að seinni viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar verði felld niður þar sem hún sé óréttmæt.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Ljóst er að sá frestur var liðinn þegar kærandi lagði fram kæru hjá nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Þar sem kæra í máli þessu barst meira en ári eftir að viðurlagaákvörðun frá 18. september 2023 var tilkynnt kæranda er þeim þætti málsins vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Kærandi sótti á ný um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 28. desember 2024. Umsókn hans var samþykkt 17. janúar 2025 en tekið var fram að bætur yrðu ekki greiddar fyrr en ótekinn biðtími frá fyrri umsókn væri liðinn.

Í 5. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Í 29. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um að sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standi yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þá segir í 31. gr. laga nr. 54/2006 að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sæki að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.   

Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki, þegar umsókn hans barst Vinnumálastofnun þann 28. desember 2024, starfað í 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafði því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laga nr. 54/2006 og því hélt allur ótekinn biðtími vegna eldri viðurlaga samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. september 2023, áfram að líða þegar hann skráði sig atvinnulausan að nýju 28. desember 2024.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. janúar 2025, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til A, á bið, er staðfest. Þeim þætti málsins er snýr að ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. september 2023, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir