30 apríl 2025

/

Mál nr. 49/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 49/2025

Miðvikudaginn 30. apríl 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 22. janúar 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. janúar 2025, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á bið.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 19. desember 2024. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 14. janúar 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til þess að hann ætti ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn yrðu bætur ekki greiddar fyrr en að þeim tíma liðnum.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. janúar 2025. Með bréfum til kæranda, dags. 3. og 5. febrúar 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir afriti af hinni kærðu ákvörðun. Með erindi til Vinnumálastofnunar, dags. 12. febrúar 2025, var óskað eftir afriti af ákvörðun stofnunarinnar vegna kærunnar. Beiðnin var ítrekuð 19. febrúar og 4. mars 2025. Gögn bárust 4. mars 2025. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Beiðnin var ítrekuð 26. mars 2025. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 27. mars 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. apríl 2025. Athugasemdir bárust ekki.

 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því í kæru að hann óski eftir endurskoðun á ákvörðun Vinnumálastofnunar um frestun greiðslna atvinnuleysisbóta til hans vegna ótekins biðtíma frá júní 2024. Hann hafi síðan þá verið í vinnu í fjóra mánuði. Kærandi telji að refsingin ætti að falla niður og að hann ætti að fá greiddar atvinnuleysisbætur.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að upphaf málsins megi rekja til ákvarðana Vinnumálastofnunar þann 21. apríl 2024 og 2. júlí 2024 en kærandi hafi verið skráður atvinnulaus á þeim tíma. Með ákvörðunum Vinnumálastofnunar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Bótaréttur kæranda hafi með framangreindum ákvörðunum verið felldur niður í tvo mánuði og svo þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna. Þann 20. júlí 2024 hafi kærandi verið afskráður af atvinnuleysisskrá þar sem hann hafi hafið störf á nýjum vinnustað.

Kærandi hafi sótt aftur um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 19. desember 2024. Með erindi, dags. 14. janúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Með vísan til ótekinna viðurlaga yrðu bætur hins vegar ekki greiddar fyrr en að 2,39 mánuðum liðnum.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. [14]. janúar 2025, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 22. janúar 2025. Í kæru fari kærandi fram á að hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Í því samhengi bendi kærandi á að hann hafi nú þegar unnið á Íslandi síðan honum hafi síðast verið gert að sæta viðurlögum. Kærandi óski eftir að ákvörðun um eftirstöðvar biðtíma verði tekin til skoðunar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Mál þetta varði í grunninn ákvarðanir Vinnumálastofnunar frá 21. apríl [2023] og 2. júlí 2024. Kærufrestur vegna þeirra ákvarðana hafi verið liðinn þegar kæra hafi borist úrskurðarnefndinni þann 22. janúar 2025, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Eftir standi sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta eftirstöðvum viðurlaga sinna þegar hann hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta þann 19. desember 2024.

Kæranda hafi þann 21. apríl 2023 verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund og hafi ekki haft gildar skýringar á fjarveru sinni. Þá hafi kæranda þann 2. júlí 2024 verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. þar sem hann hafi ekki mætt á boðaðan fund þann 20. júní 2024.

Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé meðal annars kveðið á um að sá sem hafi sætt viðurlögum skv. 57.-59. gr. eða biðtíma skv. 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum. Ákvörðun um viðurlög á grundvelli 1. mgr. [58.] gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi því leitt til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga kæranda samkvæmt 1. mgr. 61. gr., þar sem hann hafi ekki unnið sér inn réttindi til nýs bótatímabils skv. 29. gr. laganna. Heildarviðurlagatími hans hafi því verið fimm mánuðir.

Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um nokkur tilvik þar sem biðtími eða viðurlög samkvæmt lögunum falli niður eða frestist. Þannig sé meðal annars kveðið á um í 3. mgr. 58. gr. að taki hinn tryggði starfi sem ekki sé hluti af vinnumarkaðsaðgerðum meðan á viðurlagatíma skv. 1. mgr. standi falli viðurlögin niður eftir að hinn tryggði hafi starfað í a.m.k. hálfan mánuð áður en hann sæki aftur um atvinnuleysisbætur, enda hafi hann sagt starfinu lausu eða misst það af gildum ástæðum. Ekki sé fyrir hendi heimild í lögum til að fella niður biðtíma vegna starfa atvinnuleitanda í þeim tilfellum sem viðkomandi hafi þurft að sæta ítrekuðum viðurlögum. Í 4. mgr. 61. gr. sé hins vegar kveðið á um að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil skv. 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Kærandi hafi ekki unnið sér inn réttindi til nýs bótatímabils þegar hann hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga þann 19. desember 2024, enda hafi ekki verið meira en 24 mánuðir liðnir frá því að hann hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur.

Þegar kærandi hafi sótt aftur um atvinnuleysisbætur hafi enn verið tæpir tveir mánuðir eftir af útistandandi biðtíma hans. Hann hafi því fyrst getað átt rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta þegar biðtími hans hafi verið liðinn.

Vinnumálastofnun telji að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og að eftirstöðvar biðtíma hans skuli halda áfram að líða frá síðasta umsóknardegi kæranda þann 19. desember 2024.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið.

Með ákvörðunum Vinnumálastofnunar frá 21. apríl 2023 og 2. júlí 2024 var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo og þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og síðar 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna.

Kærandi sótti á ný um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 19. desember 2024. Umsókn hans var samþykkt 14. janúar 2025 en tekið var fram að bætur yrðu ekki greiddar fyrr en ótekinn biðtími frá fyrri umsókn væri liðinn.

Í 5. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Í 29. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um að sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standi yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þá segir í 31. gr. laga nr. 54/2006 að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sæki að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.   

Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki, þegar umsókn hans barst Vinnumálastofnun þann 19. desember 2024, starfað í 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafði því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laga nr. 54/2006 og því hélt allur ótekinn biðtími vegna eldri viðurlaga samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. júlí 2024, áfram að líða þegar hann skráði sig atvinnulausan að nýju 19. desember 2024.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. janúar 2025, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til A, á bið, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir