30 apríl 2025
/
Mál nr. 85/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 85/2025
Fimmtudaginn 30. apríl 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 5. febrúar 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. janúar 2025, um að fella niður rétt hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 14. nóvember 2024. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 11. desember 2024, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt með 100% bótarétti. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. janúar 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi tekjur eða vinnu á árinu 2023. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 134.562 kr., að meðtöldu álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 5. febrúar 2025. Frekari gögn og skýringar bárust frá kæranda 6. og 9. febrúar. Með bréfi, dags. 11. febrúar 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 13. mars 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. mars 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hafa fengið innheimtubréf frá Vinnumálastofnun sem hún sé ekki sammála og óskar eftir því að krafan verði felld niður. Í kæru kemur fram að kærandi sé frá B en hafi fyrst komið til Íslands árið 2016 til að vinna í fiskvinnslu. Hún hafi unnið á Íslandi í erfiðum og köldum aðstæðum til að halda við og ljúka húsbyggingu í B. Hún sé X ára og einhleyp. Kærandi hafi ekki komið til Íslands til að fá atvinnuleysisbætur eða vera án vinnu.
Árið 2023 hafi kærandi fengið vinnu hjá C en verið sagt upp vegna samdráttar þann 30. júní 2023 og hafi fengið eins mánaðar uppsagnarfrest. Hún hafi upplifað mikla streitu vegna uppsagnarinnar sem hafi haft áhrif á heilsu hennar. Kærandi hafi með hjálp vinar fundið húsnæði í D í ágúst 2023. Hún hafi upplýst Vinnumálastofnun þann 18. ágúst 2023 um það að hún ætlaði í mánaðarfrí til B og lagt fram flugmiða til E. Þann 1. ágúst 2023 hafi kærandi fengið greiðslu vegna vangreiddra launa og orlofs vegna tímabilsins 31. júlí 2023. Hún hafi þá verið nýbúin að skrá sig hjá Vinnumálastofnun og hafi ekki haft vitneskju um greiðsluna á þeim tímapunkti.
Kærandi kæri ákvörðun Vinnumálastofnunar á þeim grundvelli að hún hafi ekki fengið tilkynningu um ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Það hafi aðeins verið þann 22. janúar 2025 sem hún hafi fengið bréf á Island.is varðandi ofgreiddar bætur. Hún hafi þá farið á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Keflavík og fengið upplýsingar um fyrra erindi varðandi ofgreiðslu atvinnuleysisbóta. Hún sjái erindið ekki á Island.is. Hún hafi skrifað erindi til Vinnumálastofnunar með skýringum, launaseðlum og ákvörðun Vinnumálastofnunar.
Í viðbótarskýringum kæranda, dags. 9. febrúar 2025, kemur fram að Vinnumálastofnun hafi sent henni ákvörðun 9. apríl 2024 með tólf mánaða biðtíma vegna uppsagnar hennar á starfi hjá F og tekna frá G. Kærandi tekur fram að hún hafi ekki komið til Íslands til að þiggja bætur, hún hafi átt rétt á atvinnuleysisbótum í allt að 33 mánuði. Hún hafi sjálf fundið starf og aðeins verið á atvinnuleysisbótum í um þrjá mánuði með hléum þegar hún hafi afskráð sig og tilkynnt um starf. Hún hafi frekar viljað vinna erfiðisvinnu hjá G en að þiggja bætur. Kærandi hafi þurft að fara á sjúkrahús í Keflavík nokkrum sinnum og verið vísað til taugalæknis en flogið heim til B í júlí 2024 og verið þar í endurhæfingu. Hún hafi nú þegar greitt fyrir ofgreiddar bætur með heilsu sinni. Kærandi óski eftir því að ákvörðun um endurgreiðslu verði felld niður.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta þann 1. ágúst 2023. Með erindi, dags. 18. ágúst 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt með 89% bótarétti. Kærandi hafi fengið greiddar atvinnuleysistryggingar í samræmi við rétt sinn til og með 9. október 2023 en hafi afskráð sig af atvinnuleysisskrá frá þeim degi á „Mínum síðum“ stofnunarinnar. Ástæða afskráningar hafi verið að kærandi hafi hafið störf á nýjum vinnustað.
Kærandi hafi sótt aftur um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 25. janúar 2024. Með erindi, dags. 20. febrúar 2024 hafi umsókn kæranda verið synjað þar sem hún hafi ekki verið stödd á landinu.
Kærandi hafi sótt aftur um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 14. nóvember 2024 og þann 11. desember 2024 hafi umsókn hennar verið samþykkt með 100% bótarétti. Kærandi hafi fengið greiddar atvinnuleysistryggingar í samræmi við rétt sinn til og með 20. nóvember 2024 en frá þeim degi hafi kærandi afskráð sig af atvinnuleysisskrá á „Mínum síðum“ stofnunarinnar. Ástæða afskráningar hafi verið að kærandi hafi hafið störf á nýjum vinnustað.
Í kjölfar reglulegs eftirlits innan Vinnumálastofnunar í janúar 2025 hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með tekjur í ágúst 2023 frá F að upphæð 195.457 kr. og einnig frá C að upphæð 77.043 kr. Þá hafi kærandi einnig verið með tekjur frá H í október 2023 að fjárhæð 508.113 kr., frá I í mars 2024 að fjárhæð 132.080 kr., og frá G að í apríl 2024 að fjárhæð 108.206 kr. og í maí 2024 að fjárhæð 757.557 kr. Vinnumálastofnun hafi ekki borist tilkynning um tekjur frá kæranda eða störf hennar á umræddum tímabilum. Með erindi, dags. 8. janúar 2025, hafi þess verið óskað að kærandi veitti stofnuninni skýringar vegna umræddra tekna, auk afrits af launaseðlum. Engin gögn hafi borist frá kæranda.
Kæranda hafi verið tilkynnt með erindi, dags. 22. janúar 2025, að þar sem hún hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hafi haft áhrif á rétt hennar til atvinnuleysistrygginga væri bótaréttur hennar felldur niður frá og með þeim degi í tvo mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi jafnframt verið tilkynnt að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli hennar hefði hún fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 134.562 kr., að álagi meðtöldu, sem innheimtar yrðu samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.
Þann 30. janúar 2025 og 5. febrúar 2025 hafi borist gögn frá kæranda sem séu þau sömu og kærandi hafi lagt fram samhliða kæru sinni. Ekki verði séð að þau gögn sem kærandi hafi skilað varði ótilkynntar tekjur hennar á umræddum tímabilum. Umrædd gögn hafi ekki verið tekin til skoðunar af hálfu Vinnumálastofnunar, enda liggi fyrir að kærandi hafi kært ákvörðun, dags. 22. janúar 2025. Í kæru bendi kærandi á að hún eigi rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta og að hún hafi ávallt afskráð sig af atvinnuleysisbótum um leið og hún hafi fengið vinnu.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 9. febrúar 2025. Við nánari skoðun á máli kæranda hafi komið í ljós að við vinnslu hinnar kærðu ákvörðunar hafi verið gerð mistök af hálfu Vinnumálastofnunar. Hin kærða ákvörðun hafi sannarlega átt að vera byggð á grundvelli 1. mgr. [59.] gr. og 1. mgr. 61. gr. sökum ítrekunaráhrifa. Fyrir liggi að kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 54. gr. við upphaf umsóknar hennar sökum þess að starfslok hennar hafi ekki verið metin gild. Enda þótt kæranda hafi verið gert að sæta tveggja mánaða biðtíma í stað þriggja beri að líta til þess að mistök hafi leitt til betri niðurstöðu fyrir kæranda og að Vinnumálastofnun meti sem svo að hin kærða ákvörðun skuli standa óröskuð þrátt fyrir augljós mistök stofnunarinnar í máli kæranda.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. janúar 2025, þess efnis að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, auk þess að vera gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar sökum þess að hún hafi ekki tilkynnt stofnuninni um tekjur sínar í apríl og maí 2024 og einnig í ágúst 2023.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun um tekjur sínar frá F og C í ágúst 2024. Þá hafi kærandi ekki tilkynnt um tekjur sínar frá H í október 2023 og frá I í mars 2024 og frá G í apríl og maí 2024.
Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri þannig meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem haft geti áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:
„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“
Vinnumálastofnun vilji árétta að upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé að finna ítarlegar upplýsingar á heimasíðu Vinnumálastofnunar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.
Í kæru komi fram að kærandi hafi afskráð sig af atvinnuleysisbótum um leið og hún hafi fengið vinnu. Fyrir liggi að kærandi hafi afskráð sig af atvinnuleysisbótum fyrst þann 9. október 2023. Engin tilkynning liggi fyrir af hálfu kæranda um að kærandi hafi verið með tekjur í ágúst 2023 frá F. Þá liggi fyrir að kærandi hafi afskráð sig af atvinnuleysisbótum þann 13. maí 2024 en engin tilkynning liggi fyrir af hálfu kæranda um að hún hafi verið kominn með vinnu í mars 2024 hjá I né um að hún væri kominn með vinnu hjá G í apríl og maí 2024. Þá liggi fyrir að umsókn kæranda, dags. 4. mars 2024, hafi verið samþykkt með tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi borið að tilkynna um tilfallandi vinnu sína þótt hún væri á biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 3. mgr. 9. gr. laganna.
Þar sem tekjur frá H í mars 2023, frá F í nóvember 2023 og frá C í ágúst 2023 hafi verið aflað utan þess tímabils sem kærandi hafi verið skráð atvinnulaus hjá stofnuninni komi þær tekjur ekki til skerðingar þegar greiddra atvinnuleysisbóta.
Það sé ein meginskylda atvinnuleitanda að tilkynna stofnuninni um allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar megi í því skyni finna ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inni á ,,Mínum síðum“. Kærandi hafi ekki greint frá því að hún hafi starfað hjá G í apríl og maí 2024 né hjá I í mars 2024. Kærandi hafi þess í stað tilkynnt á „Mínum síðum“ stofnunarinnar að hún væri byrjuð að vinna frá og með 13. maí 2024. Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Kærandi hafi verið upplýst um skyldu sína til að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur við upphaf vinnslu umsóknar hennar. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kæranda hafi mátt vera fulljóst að henni bæri að tilkynna stofnunni um upphaf og lok vinnu sinnar, auk þeirra tekna sem hún hafi aflað sér.
Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af þeirri ástæðu hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. sömu laga en ákvæðið hljóði svo:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði. Að auki hafi ofgreiddar atvinnuleysisbætur verið innheimtar samtals að fjárhæð 134.562 kr.
Kærandi hafi verið í vinnu og þegið laun í ágúst 2023 frá F að fjárhæð 195.457 kr. og frá G í maí 2024 að fjárhæð 757.557 kr. Aðrar tekjur sem kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna um komi ekki til skerðingar þegar greiddra atvinnuleysisbóta þar sem kærandi hafi ekki þegið greiðslur atvinnuleysisbóta á þeim tíma sökum biðtímaákvörðunar. Tekjur kæranda komi til frádráttar atvinnuleysisbótum í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sem hljóði svo:
„Þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans skv. 32.–34. gr. eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skv. 4. mgr. skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildir um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, um elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem eru komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kann að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skal taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hefur haft á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur, sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum.“
Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 1480/2022, settri með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sé frítekjumark 86.114 kr. á mánuði vegna ársins 2024. Í umræddum mánuðum hafi tekjur kæranda numið hærri fjárhæð en frítekjumark atvinnuleysisbóta. Umræddar tekjur hafi því réttilega átt að koma til skerðingar á atvinnuleysisbótum í samræmi við 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun hafi hins vegar ekki verið kunnugt um umræddar tekjur við útgreiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og því hafi skuld myndast við stofnunina, samtals að fjárhæð 20.960 kr. vegna ágúst 2023 og 96.050 kr. í maí 2024. Ofgreiddar atvinnuleysisbætur til kæranda séu innheimtar með 15% álagi. Skuld kæranda að meðtöldu 15% álagi sé samtals 134.562 kr.
Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“
Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess sem hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Þá hafi kærandi ekki fært fram rök fyrir því að fella skuli niður 15% álag. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar að upphæð 134.562 kr.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að henni beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.
Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í ágúst 2023 að fjárhæð 195.457 kr. hjá F og 77.034 kr. hjá G í maí 2024. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í janúar 2025.
Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hún tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um þær tekjur sem hún fékk í ágúst 2023 og maí 2024. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 59. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.
Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna framangreindra tekna. Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um framangreindar tekjur fékk hún greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hún átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hún fékk framangreinda mánuði og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.
Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. janúar 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir