05 maí 2025
/
Úrskurður nr. 352/2025
Hinn 5. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 352/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24080172
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 29. ágúst 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. ágúst, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 7. ágúst 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 10 daga dvöl frá 3. til 12. desember 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Kína. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. ágúst 2024. Hinn 29. ágúst 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.
III. Málsástæður og rök kæranda
Kærandi lagði ekki fram ný gögn á kærustigi og færði engin rök fyrir því að hin kærða ákvörðun hafi verið röng. Af kæru mátti ráða að kærandi hafi ætlað sér að leggja fram frekari gögn. Þann 4. apríl 2025 var kæranda leiðbeint um að engin fylgigögn hafi borist með kæru og var kæranda veittur sjö daga frestur til að leggja fram frekari gögn. Engin frekari gögn eða upplýsingar bárust nefndinni frá kæranda.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 2 og 10, þ.e. að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar; og upplýsingarnar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að umsókn kæranda hafi hvorki fylgt staðfesting á atvinnu né viðskiptaleyfi. Þá kæmi ekki fram á bankayfirliti kæranda launagreiðslur frá atvinnurekanda þeim er hún kvæðist starfa hjá. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Í bréfi sem fylgdi umsókn kæranda kemur fram að kærandi hafi unnið í þrjú ár hjá nafngreindu fyrirtæki og safnað fyrir ferðinni til Íslands, en starfi nú hjá félagslegu kaffihúsi í hlutastarfi og geti því ekki lagt fram staðfestingu á atvinnu sinni vegna eðlis rekstrar kaffihússins. Í c-lið 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er áskilið að umsækjendur leggi fram skjöl sem gefi til kynna að þeir hafi nægt fé til framfærslu, bæði meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til þess að snúa aftur til uppruna- eða búsetulands síns. Stjórnvöldum er heimilt að óska eftir gögnum sem talin eru upp í skrá í viðauka 2 við reglugerðina. Þar á meðal eru gögn sem gera kleift að meta ásetning umsækjanda um að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna, s.s. sönnun um starf með því að leggja fram reikningsyfirlit banka. Kærandi ber hallann af því að hafa ekki sannað að hún sé í starfi hjá meintum atvinnuveitanda.
Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, sbr. ii. tölul. a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi kærandi þannig ekki sýnt fram á tilgang dvalar, sbr. d-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga og 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður