08 maí 2025

/

Mál nr. 202/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 202/2025

Fimmtudaginn 8. maí 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 28. mars 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 9. desember 2024, um að synja umsókn hennar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 3. október 2024, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna væntanlegrar barnsfæðingar X 2024. Með ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 9. desember 2024, var umsókn kæranda synjað á þeirri forsendu að hún hefði ekki verið í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. mars 2025. Með bréfi, dags. 2. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hún að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gætu átt við í málinu. Svar barst frá kæranda 3. apríl 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. apríl 2025, var óskað eftir gögnum frá Fæðingarorlofssjóði vegna kærunnar. Umbeðin gögn bárust 22. apríl 2025.

II. Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála óskar kærandi eftir því að hin kærða ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs verði endurskoðuð með vísan til þess að hún hafi verið með virkan ráðningarsamning við B. Kærandi hafi þurft að hefja ráðninguna á launalausu leyfi þar sem hún hafi verið að klára skóla og útskrifast sem stúdent. Að mati kæranda hafi hún mætt miklu tómlæti hjá Fæðingarorlofssjóði varðandi hennar mál. Fyrra bréf kæranda virðist hafa týnst í pósti eða því ekki verið svarað. Vegna þessa sendi kærandi nú inn rafræna ítrekun.

Í skýringum kæranda vegna kærufrestsins kemur fram að það hafi farist fyrir að senda kæruna innan kærufrestsins. Það hafi komið til vegna veikinda og annarra óviðráðanlegra aðstæðna. Þá tekur kærandi fram að ekki hafi verið tekið nægjanlegt tillit til þeirrar staðreyndar í ákvörðun Fæðingarorlofssjóð að bæði hafi verið um launaða vinnu að ræða samkvæmt ráðningarsamningi og skólasókn á ráðningartímabili. Því telji kærandi að það þurfi að skoða frekar alla þætti málsins.

III. Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 9. desember 2024, um að synja umsókn kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 28. mars 2025 vegna framangreindrar ákvörðunar Fæðingarorlofssjóðs. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Fyrir liggur að kæranda var í ákvörðun frá 9. desember 2024 leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að afsakanlegt verði talið að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Þá verður heldur ekki séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar. Í því sambandi er meðal annars haft í huga að gögn málsins benda ekki til þess að hin kærða ákvörðun hafi verið efnislega röng.

Með hliðsjón af framangreindu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir