08 maí 2025
/
Úrskurður nr. 365/2025
Hinn 8. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 365/2025
í stjórnsýslumálum nr. KNU25010021 og KNU25010022
Kæra [...] og [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 4. janúar 2025 kærðu einstaklingar er kveðast heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Bandaríkjanna (hér eftir A), og [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Bandaríkjanna (hér eftir B), ákvarðanir lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 30. desember 2024, og 2. janúar 2025, um brottvísun og endurkomubann til Íslands í tvö ár, sbr. 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Kærendur krefjast þess aðallega að endurkomubönn til tveggja ára verði felld úr gildi en til vara að þau verði stytt.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, og ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Samkvæmt gögnum málsins hafði lögregla afskipti af kærendum 13. ágúst 2024 á Keflavíkurflugvelli vegna ólögmætrar dvalar á Schengen-svæðinu. Með ákvörðunum lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 30. desember 2024 og 2. janúar 2025, var kærendum gert að sæta brottvísun og endurkomubanni til tveggja ára, sbr. 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Ákvarðanir lögreglu vísuðu einnig til 3. mgr. 14. gr. laga um landamæri.
Kærendur kærðu ákvarðanir lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 4. janúar 2025. Með bréfum lögreglu, dags. 28. janúar 2025, var kærendum tilkynnt um afturköllun hinna kærðu ákvarðana að frumkvæði lögreglu, sbr. 25. stjórnsýslulaga.
III. Málsástæður og rök kærenda
Í kæru vísa kærendur til atvika málsins og bera fyrir sig misskilning um gildandi reglur þar sem ETIAS-ferðaheimildakerfið hafði ekki tekið gildi. Enn fremur hafi þau eingöngu millilent á Íslandi eftir dvöl í Þýskalandi og voru á leið til Bandaríkjanna að nýju. Að sögn kærenda eigi þau nákomna fjölskylduvini innan Schengen-svæðisins og myndi endurkomubann girða fyrir samneyti við þau. Því óski kærendur eftir því að endurkomubönn þeirra verði felld úr gildi.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga kemur fram að lögin gilda, þegar stjórnvöld, þar á meðal stjórnsýslunefndir, taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna. Ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga eru kæranlegar til kærunefndar útlendingamála á grundvelli 7. gr. laganna.
Samkvæmt því sem rakið hefur verið afturkallaði lögregla hinar kærðu ákvarðanir með bréfum, dags. 28. janúar 2025. Samkvæmt 1. tölul. 1. mgr. 25. gr. stjórnsýslulaga er stjórnvaldi heimilt að afturkalla ákvörðun að eigin frumkvæði, sem tilkynnt hefur verið aðila máls, þegar það er ekki til tjóns fyrir aðila. Ákvörðun um brottvísun og endurkomubann er íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun og liggur það í hlutarins eðli að afturköllun slíkra ákvarðana er kærendum til hagsbóta. Ekki er að finna sérstök fyrirmæli í lögum eða lögskýringagögnum sem koma í veg fyrir afturköllun stjórnvaldsákvarðana þrátt fyrir að þær hafi verið kærðar. Líkt og þegar hefur komið fram laut kröfugerð kærenda að niðurfellingu endurkomubanna, en til vara að endurkomubönn þeirra yrðu stytt. Að virtum atvikum málsins hafa kærendur nú fengið þá aðalkröfu uppfyllta án efnislegs úrskurðar. Þá hafa kærendur ekki sett sig upp á móti afturköllun lögreglu.
Að framangreindu virtu er kæru kærenda vísað frá kærunefnd.
Úrskurðarorð:
Kæru kærenda er vísað frá.
The appellants‘ appeal is dismissed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir