09 maí 2025
/
Úrskurður nr. 386/2025
Hinn 9. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 386/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24090034
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 5. september 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Alsír (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. september 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 30. ágúst 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun sem ferðamaður til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 22 daga dvöl frá 23. september til 14. október 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. september 2024. Hinn 5. september 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda ásamt fylgigögnum. Frekari gögn bárust frá kæranda 17. mars 2025.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í kæru kemur fram að kærandi hafi skipulagt vandlega 21 daga langa ferð til að skoða fegurð Íslands. Ferðaáætlun hans innihaldi Reykjavík, suðurströndina, norðrið og þekkta staði eins og gullna hringinn og Vestfirði. Kærandi hafi skipulagt ferðina með eins fjárhagslega hagkvæmum hætti og mögulegt er með því að velja hagstæða gistingu eins og tjaldstæði og gistiheimili, hagkvæma ferðamáta og gjaldfrjálsar leiðir til að skoða landið eins og t.d. göngu. Þá kvaðst kærandi hafa sterk tengsl við Bretland þar sem hann ætti kost á að sækja um dvalarleyfi sem fyrrum námsmaður þar í landi eftir að hann lyki meistaranámi sínu í september.
Kærandi lagði fram ferðaáætlun á kærustigi og staðfestingu á heimild hans til dvalar í Bretlandi.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Alsír þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu. Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 11, þ.e. að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar; og að rökstudd ástæða væri til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlunina væru áreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að í viðtali hafi kærandi verið óupplýstur um fyrirhugaða ferð sína til Íslands og gefið óáreiðanleg svör. Hann hafi til að mynda ekki þekkt fyrirhugaða ferðadaga eða nafn hótelsins sem hann ætlaði að gista á. Þá hafi hann ekki getað nefnt nokkurn stað á Íslandi. Mikill vafi léki á því að kærandi hygðist ferðast til Íslandi. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Samkvæmt dagbókarfærslu í málaskrá Útlendingastofnunar var símaviðtal tekið við kæranda 30. ágúst 2024 til þess að spyrja hann um ferðaáætlun hans á Íslandi. Í endurriti af umræddu viðtali, sem og dagbókarfærslu sem skráð var eftir viðtalið, kemur m.a. fram að kærandi hafi verið alls óupplýstur er hann hafi verið spurður um ferðaáætlun sína og hafi svarað öllum spurningum hikandi. Hann hafi ekki getað nefnt neina staði á Íslandi, ekki skipulagt dvölina hér á landi auk þess sem hann vissi ekki nafn hótelsins sem hann ætli sér að gista á. Hann hafi viljað fletta því upp en ekki fundið. Aðspurður kvast kærandi muni ljúka námi sínu í Bretlandi þann 25. september 2024. Í athugasemdum í endurriti viðtals kemur enn fremur fram að óupplýst og hikandi svör kæranda virðist ekki trúverðug m.t.t. þriggja vikna dvalar í nýju erlendu ríki. Kærandi hafi áður fengið útgefnar áritanir inn á Schengen-svæðið og heimsótt Spán og Ítalíu. Hann hafi ekki komið til Íslands og vilji heimsækja norðurslóðir. Fram kemur í fyrrnefndri dagbókarfærslu að kærandi hafi í viðtalinu tilgreint ferðadagana 23. október til 14. nóvember 2024 en ferðadagar samkvæmt upplýsingum í umsókn kæranda séu 23. september til 14. október. Ferðaáætlanir kæranda virðist ótrúverðugar þar sem hann hafi viljað ferðast til Íslands þann 23. september en hann hefði þurft að vera í Bretlandi þann 25. september fyrir útskrift sína úr námi.
Gögn sem tengjast ferðaáætlun eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir og viðauka 2 við þá reglugerð. Þá koma þau fram í 5. og 6. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands í Bretlandi. Kærandi lagði ekki fram ferðaáætlun á fyrsta stjórnsýslustigi og gat í viðtali ekki gert grein fyrir tilhögun ferðlagsins og virtist ekki hafa þekkingu á staðháttum á Íslandi eða ferðadögum sínum. Þá lagði hann ekki fram nein gögn varðandi dvöl sína hér á landi annað en bókun á einu gistiheimili í Reykjavík fyrir allt ferðatímabilið. Á kærustigi hefur kærandi lagt fram ferðaáætlun þar sem hann tekur fram að hann hyggist ferðast hringinn í kringum landið og skoða helstu ferðamannastaði. Þá kemur fram í kæru hans sem og ferðaáætlun að hann hyggist gista á ódýran hátt um landið m.a. á tjaldsvæðum. Er framlögð ferðaáætlun því í engu samsvarandi þeim ferðaplönum sem lágu fyrir þegar hann lagði fram umsókn um vegabréfsáritun. Til samræmis við 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir verður að gera þá kröfu til umsækjenda að þeir hafi þekkingu á ferðaáætlun sinni og geti gert grein fyrir henni í viðtali. Verður ekki talið að frásögn kæranda í viðtali sem og framlögð ferðaáætlun á kærustigi uppfylli skilyrði 7. mgr. 21. gr. reglugerðarinnar og er af þeim sökum tilefni til að efast um sannleiksgildi og áreiðanleika framburðar kæranda.
Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki getað fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar og að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðalag hans til Íslands hafi verið áreiðanlegar, sbr. ii. tölul. 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi kærandi þannig ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar og að ástæða hafi verið til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. d-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður