09 maí 2025

/

Úrskurður nr. 393/2025


Hinn 9. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 393/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24090013

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 3. september 2024 kærði [...], [...], ríkisborgari Filippseyja (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. ágúst 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 12. ágúst 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir tólf daga dvöl frá 6. nóvember til 17. nóvember 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Bandaríkjunum. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. ágúst 2024. Hinn 3. september 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kveðst kærandi ætla að hitta eiginkonu sína á ferðalagi sínu um Evrópu. Hann hafi lagt fram gögn um umsókn eiginkonu sinnar um Schengen-vegabréfsáritun. Þau vilji eiga góðar stundir saman áður en eiginkona hans sameinist honum í Bandaríkjunum. Kærandi kvaðst hafa lagt fram öll tilskilin gögn, hann uppfylli allar kröfur um áritun og vonist eftir jákvæðri niðurstöðu.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Filippseyja þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Umsækjendur um samræmda vegabréfsáritun til einnar komu eða tveggja skulu sýna fram á að þeir séu handhafar viðeigandi og gildrar ferðasjúkratryggingar til að mæta hvers konar kostnaði sem kann að falla til í tengslum við heimsendingu af læknisfræðilegum ástæðum, brýna læknismeðferð og/eða meðferð á sjúkrahúsi í neyðartilvikum eða við andlát meðan á dvöl þeirra stendur á yfirráðasvæði aðildarríkjanna, sbr. 1. mgr. 15. gr. reglugerðar um útlendinga. Í 3. mgr. sömu greinar kemur fram að tryggingin skuli gilda á öllu yfirráðasvæði aðildarríkjanna og taka til alls fyrirhugaðs dvalar- eða gegnumferðartímabils hlutaðeigandi. Lágmarkstryggingarvernd skuli vera í samræmi við þá tryggingarvernd sem krafist er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir.

Í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 2 og 16, þ.e. að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar og kærandi hafi ekki fært sönnur á að hann sé handhafi viðeigandi og gildrar ferðsjúkratryggingar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að staðfesting á flugferðum innan Schengen-svæðisins hafi vantað. Upphæð ferðasjúkratryggingar hafi vantað. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Kæranda var leiðbeint um það 8. ágúst 2024 þegar hann skilaði inn umsókn sinni um vegabréfsáritun að staðfestingu á flugferðum innan Schengen-svæðisins væri ábótavant og var kæranda veittur fimm daga frestur til að bæta úr því. Kæranda var einnig leiðbeint af utanríkisþjónustunni um að heildarupphæð ferðasjúkratryggingar vantaði. Kæranda var sent tölvubréf 15. ágúst með framangreindum leiðbeiningum. Kærandi svaraði ekki tölvupóstinum og bætti því ekki úr framangreindum annmörkum.

Gögn sem tengjast ferðaáætlun og viðeigandi og gild ferðasjúkratrygging eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. og 15. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 4. og 5. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands í Washington D.C. Við meðferð umsóknar kæranda hjá sendiráðinu var kærandi upplýstur um að bæði vantaði staðfestingu á flugferðum innan Schengen-svæðisins og heildarupphæð ferðasjúkratryggingar. Var kæranda í tvígang gefinn fimm daga frestur til að bregðast við sem kærandi gerði ekki. Á kærustigi hefur kærandi hvorki lagt fram staðfestingu á flugferðum innan Schengen-svæðisins né ferðasjúkratryggingu þar sem heildarupphæð kemur fram. Þegar af þeirri ástæðu verður ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar og kærandi hafi ekki fært sönnur á að hann sé handhafi viðeigandi og gildrar sjúkratryggingar, sbr. ii. og viii. tölul a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 1. málsl. 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Hafi þannig ekki verið sýnt fram á tilgang dvalar og gilda sjúkrakostnaðartryggingu, sbr. d- og h-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður