14 maí 2025

/

Úrskurður nr. 408/2025


Hinn 14. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 408/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24090054

Kæra […]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 6. september 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. ágúst 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 22. ágúst 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun sem ferðamaður til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 20 daga dvöl frá 20. september til 9. október 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. ágúst 2024. Hinn 6. september 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í kæru til kærunefndar kvaðst kærandi hafa ætlað sér að ferðast til Íslands sem ferðamaður en fengið slæma og misvísandi þjónustu þegar hún sótti um vegabréfsáritun til Íslands í Edinborg. Þar hafi henni verið gert að bæta við bókunum fyrir Íslandsferðina og fengið hálftíma til að gera slíkt á staðnum. Þá hafi hún verið undir miklum þrýstingi vegna þessa tímafrests og kvaðst ekki hafa getað nýtt sér kort af Íslandi til þess að gera góða ferðaáætlun. Kærandi greinir frá því að þegar hringt hafi verið í hana vegna viðtals hafi hún verið að sinna sjálfboðastarfi sínu og því ekki verið í góðum aðstæðum til þess að svara þeim spurningum sem lagðar voru fyrir hana. Í kæru greinir kærandi frá ferðaáætlun og ástæðum ferðar sinnar til Íslands. Kærandi eigi erfitt með að skilja rök fyrir synjun vegabréfsáritunar til Íslands og fer fram á að ákvörðunin verði endurskoðuð.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 11, þ.e. að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar, og að rökstudd ástæða væri til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun kæranda væru áreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að ferðaáætlun sé óáreiðanleg, að í viðtali hafi kærandi verið óupplýst varðandi áætlaða ferð hennar og hafi ekki getað lýst ferðaáætluninni. Rökstudd ástæða sé til þess að efast um að kærandi ætli sér að ferðast til Íslands. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Samkvæmt dagbókarfærslu í málaskrá Útlendingastofnunar var símaviðtal tekið við kæranda 27. ágúst 2024. Í endurriti af umræddu viðtali, sem og dagbókarfærslu sem skráð var eftir viðtalið, kemur m.a. fram að kærandi hafi ætlað sér að ferðast með eiginmanni sínum sem sé breskur ríkisborgari til Íslands. Spurð um ferðasögu sína hafi kærandi nefnt Amsterdam þar sem sonur hennar hafi búsetu. Spurð út í ferðaáætlun sína á Íslandi kvaðst kærandi vilja ferðast um hringveginn og minntist á eldfjöll og norðurljósin, einnig kvaðst kærandi velja að ferðast til Íslands þar sem landið hafi verið henni lengi hugleikið m.a. sökum landfræðilegra eiginleika þess. Kærandi hafi ekki haft vitneskju um fyrirhugaða millilendingu í Amsterdam á leiðinni til Íslands né hafi hún vitað af beinum flugum frá Glasgow til Íslands og kvað eiginmann sinn hafi bókað flugin. Þegar kærandi var spurð út í óvenjulegar hótelbókanir kvaðst hún hafa bókað hótel án þess að skoða kort af Íslandi. Ferðaáætlun kæranda hafi þótt óáreiðanleg m.a. vegna hótelbókana þar sem áætlunin hafi verið að keyra beint frá Keflavík til Húsavíkur þar sem kærandi hygðist dvelja í þrjár nætur, strax þar á eftir þrjár nætur í Reykjavík og þar næst fjórar nætur í Ólafsfirði en kærandi hélt því staðfastlega fram að hún hygðist ferðast hringveginn.

Gögn sem tengjast ferðaáætlun eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir og viðauka 2 við hana. Þá koma þau fram í 5. og 6.tölul. gátlista með vegabréfsumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni í Edinborg, þar sem kærandi lagði umsókn sína fram. Í kæru kveðst kærandi hafa getað útbúið ferðaáætlun sína betur og hafi gert það í samráði við eiginmann sinn eftir viðtalið. Hún hafi ekki gert sér grein fyrir því að fyrri bókanir hafi verið athugaverðar sökum þess stutta tíma sem henni hafi gefist til að bóka þær á skrifstofu VFS. Sem reyndur ferðalangur láti hún ferðaplön sín ráðast eftir að hún komi til nýs lands og hlusti m.a. á ráðleggingar heimamanna. Kærandi og eiginmaður hennar hafi nú ákveðið að dvelja fyrstu næturnar í Reykjavík í stað þess að hefja ferðalag sitt á norðurlandi. Þær skýringar sem kærandi hefur lagt fram við meðferð kærumáls þessa eru ekki til þess fallnar að hnekkja mati Útlendingastofnunar um synjun vegabréfsáritunar til handa kæranda. Til samræmis við 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir verður að gera þá kröfu til umsækjenda að þeir hafi þekkingu á framlagðri ferðaáætlun og geti gert grein fyrir henni í viðtali. Þá hafi kærandi haft tækifæri til þess að uppfæra ferðaáætlun sína eftir að hún lagði hana fram á VFS skrifstofunni í tengslum við umsókn sína og þangað til viðtal var tekið við hana af hálfu utanríkisþjónustunnar. Kærandi kveðst sjálf hafa getað útbúið ferðaáætlun sína betur og hafi gert það í samráði við eiginmann sinn eftir viðtalið. Úr framangreindum annarmarka verður ekki bætt með framlagningu uppfærðrar ferðaáætlunar og skýringa á kærustigi. Er kæranda þess í stað leiðbeint um að sækja um vegabréfsáritun að nýju.

Að framangreindu virtu eru upplýsingarnar sem veittar hafa verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar ekki áreiðanlegar og rökstudd ástæða til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun hafi verið áreiðanlegar, sbr. ii. tölul. og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 1. málsl. 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Hefur þannig ekki verið sýnt fram á tilgang dvalar, sbr. d-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður