15 maí 2025

/

Úrskurður nr. 355/2025


Hinn 15. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 355/2025

í stjórnsýslumálum nr. KNU24070218 og KNU24070219

Kæra […], […], […] og barna

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 26. júlí 2024 kærðu […], fd. […] (hér eftir M), […], fd. […] (hér eftir K) og […], fd. […] (hér eftir A), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 12. júlí 2024, um að synja þeim og börnum K, […], fd. […] (hér eftir B) og […], fd. […] (hér eftir C) ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og börn eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börnin B og C 21. september 2023. Kváðust K og M sækja um alþjóðlega vernd vegna hótana og áreitis sem fjölskyldunni höfðu borist vegna skuldar. Í för með kærendum var frændi K sem lagði einnig fram umsókn um alþjóðlega vernd. Málsmeðferð umsóknar hans var lokið á stjórnsýslustigi með úrskurði kærunefndar nr. 255/2025, dags. 20. mars 2025.

K og M komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 2. maí 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum. K og M kváðust vera fædd og uppalin í Ocumare del Tuy borg í Miranda fylki þar sem þau hafi búið áður en þau hafi flúið heimaríki ásamt A og börnunum B og C. K hafi starfað sjálfstætt við símaviðgerðir og sölu en starfað samhliða því sem sjálfboðaliði í húsnæðisverkefni í Venesúela. Í húsnæðisverkefninu hafi falist að safna fjárframlögum sem nýta átti til uppbyggingar húsnæðis fyrir fólk sem þess þarfnast í samstarfi við stjórnvöld. M kvaðst menntaður iðnaðarvélvirki og hafa starfað sem flugvirki fram til ársins 2018. Árið 2021 hafi M hafið lögreglunám og starfað samhliða náminu sem lögreglumaður. M og K kváðust jafnframt hafa verið virkir þátttakendur í sjálfboðaliðastörfum húsnæðisverkefnis sem gengið hafi undir nafninu AVV Leonor de la Guerra, hér eftir X, á vegum Mission Vivienda, hér eftir V. K kvað sig hafa tilheyrt minnihlutahópi í Venesúela á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna en hún kvaðst hafa verið andvíg ríkisstjórninni og verið aðili að stjórnarandstöðuflokki. M kvaðst hvorki hafa verið aðili að stjórnmálaflokki í Venesúela né virkur í þágu tiltekins málsstaðar, en verið andvígur stjórnvöldum.

Aðalástæðu flótta frá heimaríki kváðu K og M hafa verið ofsóknir opinberra starfsmanna sem tekið hafi höndum saman við glæpahóp að nafni Los Sanguinarios. K og M kváðu hina opinberu starfsmenn hafa svikið af þeim fé vegna húsnæðisverkefnisins. Hinir opinberu starfsmenn á vegum V hafi haft samband við K og M og krafist greiðslu fyrir land og byggingaskipulag. K og M hafi greitt starfsmönnunum umbeðna upphæð í nokkrum hlutum frá desember 2021 til apríl 2022. Þegar hefja átti verkefnið hafi þau ekki fengið nein svör frá hinum opinberu starfsmönnum og K hafi ekki séð sér aðra vegi færa en að leggja fram kæru á hendur nafngreindum forseta INTU, hér eftir R, og að hennar sögn, hægri hönd ríkisstjórans og ráðherra í Venesúela, 25. júlí 2022. R hafi verið handtekinn þann sama dag. Ofsóknirnar á hendur K og M hafi hafist eftir að þau hafi skrifað um málið á samfélagsmiðlum. Hinn 5. júlí 2023, hafi verið skotið á hús frænda K, skvett á það eldsneyti og gerð tilraun til íkveikju. Eftir þetta hafi frændi K flúið til Bandaríkjanna með fjölskyldu sína. K kvaðst hafa orðið óttaslegin og hafa sent börn sín til ömmu þeirra en dvalið sjálf áfram á heimili sínu. Hinn 22. júlí 2023 hafi leiðtogi Los Sanguinarios, sem gengið hafi undir nafninu El Gordo og aðrir meðlimir glæpahópsins komið fyrir utan hús kæranda fyrir tilstilli lögregluyfirvalda. Öskrað hafi verið á K að hún væri uppljóstrari og ætti ekki að dvelja lengur á heimili sínu. Lagði K fram kæru gegn R, forseta INTU, nafngreindum forseta V og nafngreindum forseta styrktar sjóðs V, 23. júlí 2023. K kvað málin hafa verið undir rannsókn lögreglu um tíma. M kvaðst hafa fengið sent hótunarmyndband þar sem fram hafi komið að ef þau styddu ekki glæpasamtökin Los Sanguinarios með fjármunum og matvælum, væru líf þeirra í hættu. M kvaðst jafnframt m.a. hafa fengið send myndbönd af ættingjum vera hálshöggnum eða ógnað með hnífum. Kvað M hann hafa fengið hótanirnar m.a. vegna kærunnar á hendur El Gordo, sem hafi verið í samstarfi við R. Hinn 27. júlí 2023 hafi K leitað til mannréttindaskrifstofu sem hafi ekki getað aðstoðað hana með vísan til þess að um háttsetta aðila væri að ræða sem þau hefðu ekkert vald gagnvart. K kvaðst ekki vita hvernig mál hennar stæðu í dag.

Þá greindi K frá því að barnsfaðir hennar hafi lagt fram kæru á hendur sama glæpahópi, Los Sanguinarios, árið 2014. Glæpahópurinn hafi í kjölfarið brennt hús hans til grunna, A verið skotin í tvígang, tvö börn verið drepin og átta manns særðir. Í kjölfarið hafi barnsfaðir kæranda flúið til Kólumbíu og A glími enn við mikinn ótta vegna atviksins.

M kvað sér hafa verið meinuð útskrift úr lögreglunáminu vegna þess að hann hafi verið talinn föðurlandssvikari þar sem hann hafi ekki fylgt stefnu stjórnvalda og þar sem hann og eiginkona hans hafi lagt fram kæru á hendur opinberum starfsmönnum. Þá kvað kærandi yfirmann sinn í lögreglunni hafa haft vitneskju um að hann hafi verið virkur þátttakandi í störfum húsnæðisverkefnisins. M kvað stjúpbörn sín hafa veigrað sér við að sækja skóla vegna ástandsins og þau hafi upplifað vanlíðan og ótta í heimaríki vegna þessa.

A kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 2. maí 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. A greindi m.a. frá því vera heilsuhraust en hafi þurft að dvelja á sjúkrahúsi þegar hún hafi verið átta ára gömul vegna skotárásar á hús föður hennar árið 2014. Kvaðst hún hafa fengið skotsár á nokkrum stöðum á fæti og sé með ör eftir sárin. Sárin hafi gróið vel og hái henni ekki í dag. A kvaðst upplýst um ástæðu flótta fjölskyldunnar frá heimaríki, en viti þó ekki allt í smáatriðum. A kvað aðalástæðu flótta frá heimaríki hafa verið vegna hótana við fjölskylduna. Upphaflega hafi A ekki viljað fara frá heimaríkinu en líði vel á Íslandi í dag.

Börnin B og C mættu til viðtals hjá Útlendingastofnun 6. maí 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum og túlki. B greindi m.a. frá því að hafa alla daga farið í skóla, oftast með strætó en stundum hafi hún verið keyrð af foreldri. B kvaðst hafa liðið vel í Venesúela og liðið best heima að horfa á sjónvarpsþætti. B kvaðst vera heilsuhraust en hafi verið greind með nýrnasjúkdóm og dvalið í kjölfar greiningarinnar í tvo mánuði á sjúkrahúsi. Í dag hafi sjúkdómurinn ekki áhrif á daglegt líf hennar, hún taki ekki inn lyf en þurfi að forðast mikið salt í fæðu sem og aukaefni. B kvað móður sína ekki hafa sagt sér ástæðu flótta en hún hafi tekið eftir að móðir hennar hafi verið afar þreytt. B kvaðst ekki langa að flytja aftur til heimaríkis. C greindi m.a. frá því að hafa verið í skóla í heimaríkinu og hann hafi ýmist tekið strætisvagn eða verið keyrður í skólann af föður sínum. C kvaðst ekki vita ástæðu flótta, þau hafi verið venjuleg fjölskylda en móðir hans hafi sagt að það hafi komið upp vandamál. C kvaðst alveg vilja búa í heimaríkinu ef ástandið breytist, hann sakni fjölskyldu sinnar í Venesúela, en sé einnig sáttur við að vera hér á Íslandi þar sem þau séu örugg.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kærendum og börnunum B og C synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum og börnunum B og C var jafnframt brottvísað frá landinu og kærendum K og M ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu K og M landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Voru þær ákvarðanir kærðar til kærunefndar 26. júlí 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 9. ágúst 2024. Með tölvubréfi, dags. 9. janúar 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá K og M. Með tölvubréfum, dags. 14. janúar 2025, bárust kærunefnd frekari upplýsingar og gögn frá K og M. Með tölvubréfi, dags. 14. janúar 2025, var K gefinn kostur á að mæta í afgreiðslu kærunefndar 15. janúar 2025, og K gefið tækifæri á að sýna starfsmanni nefndarinnar nánar umbeðin gögn. Hinn 15. janúar 2025, mætti K í afgreiðslu kærunefndar. Með tölvubréfi, dags. 16. janúar 2025, sendi kærunefndin fyrirspurn á flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum vegna ógildingar vegabréfa frá Venesúela. Með tölvubréfi, dags. 24. janúar 2025, bárust frekari upplýsingar frá flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum. Með tölvubréfi, dags. 27. janúar 2025, voru K og M upplýst um svör flugstöðvardeildarinnar og K og M gefið tækifæri á að skila inn frekari athugasemdum. Með tölvubréfi, dags. 28. janúar 2025, bárust athugasemdir K og M ásamt fylgigögnum. Með tölvubréfi, dags. 30. janúar 2025, bárust viðbótarupplýsingar frá K og M. Við rekstur málsins hjá kærunefnd varð A 18 ára og því fullorðin. Við mat á réttindum hennar og stöðu verður engu að síður litið til ungs aldurs hennar.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kærenda lýst. Þar kemur m.a. fram að K og M séu bæði fædd og uppalin í Ocumare del Tuy í Miranda fylki í Venesúela. Þau hafi búið með fjölskyldu sinni í húsnæði í eigu K í Miranda fylki áður en þau hafi flúið heimaríki. Kærendur, börnin B og C og systursonur K hafi komið hingað til lands 21. september 2023 en fjölskyldan hafi fjármagnað flóttann með því að selja allar sínar eigur. Aðalástæða flótta kærenda og barnanna B og C hafi verið ofsóknir í heimaríki en jafnframt almennt ástand í heimaríki þeirra. Kærendur telji sig og fjölskyldu sína eiga á hættu að verða þar fyrir frekari ofsóknum, ofbeldi og ránum. Um nánari upplýsingar um aðstæður kærenda og landaupplýsingar vísa kærendur til framlagðrar greinargerðar kærenda og annarra gagna við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun.

Í greinargerð kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. Að mati kærenda hafi verið lagðar óhóflegar sönnunarkröfur á kærendur.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og börnunum B og C verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og börnin hafi flúið heimaríki sitt vegna almenns ástands í landinu og ofsókna glæpasamtaka og yfirvalda. Kærendur óttist mjög um líf fjölskyldunnar þar sem í heimaríki sé mikið um ofbeldi, glæpi og óöruggt ástand sem stafi meðal annars af ólögmætum aðgerðum og ofbeldi yfirvalda, vopnaðra hópa á þeirra vegum og annarra glæpagengja. Kærendur og börn K hafi ekki getað fært sér í nyt vernd stjórnvalda í heimaríkinu þar sem þau séu ófær um að vernda íbúa landsins gegn ofsóknum og vegna þess að ofsóknirnar sem þau hafi orðið fyrir hafi stafað frá yfirvöldum.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og börnunum B og C verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, vegna alvarlegs ástands í Venesúela. Kærendur og börn K eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Einnig eigi þau á hættu að verða fyrir skaða af völdum árása og vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðar- og borgaralegra skotmarka verði þeim gert að snúa aftur heim. Öryggisástand á heimaslóðum kærenda sé mjög ótryggt, m.a. vegna árása glæpagengja og handahófskenndra morða auk þess sem stjórnvöld séu vanmáttug við að tryggja borgurum vernd gegn árásum óopinberra aðila.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og börnunum B og C verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa m.a. til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga. Gróf mannréttindabrot viðgangist í Venesúela og kærendur og börnin B og C búi við alvarlega hættu á ofsóknum og illri og vanvirðandi meðferð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis.

Með endursendingu kærenda og barnanna B og C til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

5.3 Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og börnin B og C. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og börn hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og börnin B og C séu venesúelskir ríkisborgarar.

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 23. apríl 2025);
  • UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);.
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezeula (Britannica, síðast uppfært 27. apríl 2025);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 22. apríl 2025);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
  • Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
  • Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (oppdatert april 2025) (Landinfo, 11. apríl 2025);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
  • World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025.

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Emundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.

Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða álitnum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðarsinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahófs myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.

Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en  undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 18. október 2024 höfðu 845 venesúelskir ríkisborgarar yfirgefið Ísland sjálfviljugir á árinu 2024. Þá hafi a.m.k. 825 þeirra farið aftur til Venesúela. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja kröfur sínar um alþjóðlega vernd á því að þau óttist ofsóknir glæpasamtaka og yfirvalda í heimaríki. Þá hafi kærendur og börnin B og C flúið heimaríki sitt vegna almenns ástands í landinu.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst K hafa tilheyrt stjórnmálaflokknum AVV Leonor de la Guerra. Af gögnum málsins má hins vegar ráða að AVV Leonor de la Guerra sé heiti á sjálfboðaliðaverkefninu sem K hafi tekið þátt í, en ekki heiti á stjórnmálaflokki. K kvaðst tilheyra minnihlutahópi á grundvelli þess að hún væri stjórnarandstæðingur og lagði fram skjal sem sýnir fram á skráningu í stjórnarandstöðuflokkinn Voluntad Popular. M hafi hafið lögreglunám árið 2021 og starfað samhliða náminu sem lögreglumaður hjá PNB lögreglunni. M kvaðst þó ekki hafa verið heimiluð útskrift úr lögreglunáminu sökum þess að opinberir starfsmenn hafi talið hann vera föðurlandssvikara og andstæðing stjórnvalda. M kvaðst enn þann dag í dag berast símtöl frá yfirmanni sínum í lögreglunni og beðinn um að gefa upp dvalarstað sinn.M kvaðst hvorki hafa verið aðili að stjórnmálaflokki í Venesúela né virkur í þágu tiltekins málsstaðar, en sé andvígur stjórnvöldum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kváðu K og M ástæðu flótta frá heimaríki jafnframt hafa verið ofsóknir opinberra starfsmanna sem tekið hafi höndum saman við glæpahóp að nafni Los Sanguinarios. K hafi lagt fram kæru á hendur R, forseta INTU, 25. júlí 2022. R hafi verið handtekinn þann sama dag. Ofsóknirnar á hendur K og M hafi hafist eftir að þau hafi skrifað um málið á samfélagsmiðlum. Hinn 5. júlí 2023 hafi verið skotið á hús frænda K, hellt yfir það eldsneyti og gerð tilraun til íkveikju. Hinn 22. júlí 2023 hafi El Gordo, leiðtogi Los Sanguinarios, og aðrir meðlimir glæpahópsins komið fyrir utan húskærenda fyrir tilstilli lögregluyfirvalda. Öskrað hafi verið á hana að hún væri uppljóstrari og hótað að dvelja ekki lengur á heimili sínu. Hafi K lagt fram kæru gegn þremur nafngreindum aðilum 23. júlí 2023. M kvaðst hafa fengið sent hótunarmyndband þar sem fram hafi komið að ef þau styddu ekki glæpasamtökin Los Sanguinarios með fjármunum og matvælum, væri líf þeirra í hættu. M kvaðst jafnframt hafa m.a. fengið send myndbönd af ættingjum þar sem þeir hafi verið hálshöggnir eða ógnað með hnífi. Kvað M hann hafa fengið hótanirnar m.a. vegna kærunnar á hendur El Gordo, sem hafi verið í samstarfi við R. Hinn 27. júlí 2023 hafi K leitað til mannréttindaskrifstofu sem hafi ekki getað aðstoðað hana með vísan til þess að um háttsetta aðila væri að ræða sem þau höfðu ekkert vald gagnvart. K kvaðst ekki vita hvernig mál hennar stæðu í dag. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi A m.a. frá því að hafa árið 2014 hafa orðið fyrir skotárás sem gerð var á heimili föður hennar. A hafi fengið skotsár á nokkrum stöðum á fæti. A kvað aðalástæðu flótta frá heimaríki hafa verið vegna hótana við fjölskylduna. Þá kemur fram í greinargerð kærenda að þau geti ekki fært sér í nyt vernd stjórnvalda í heimaríki þar sem þau séu ófær um að vernda íbúa landsins gegn ofsóknum samkvæmt framangreindu og vegna þess að ofsóknirnar sem þau hafa orðið fyrir hafi stafað frá yfirvöldum.

Við meðferð málsins hjá kærunefnd lögðu K og M til viðbótar m.a. fram ódagsett myndband af tilgreindum samfélagsmiðli af mótmælum sem leitt hafi til gíslatöku ættingja þeirra, skjáskot úr myndbandinu af manni er þau kveða ættingja kærenda, ódagsetta mynd af þeim sem teknir hafi verið í gíslingu eftir mótmælin og ódagsettar myndir af umræddum ættingja. Framlagðar myndir og myndbönd hafa takmarkað sönnunargildi í málinu enda óljóst hver hafi tekið framangreindar myndir og hverjir það eru sem raunverulega eru á myndunum eða hvaða þýðingu þau hafi fyrir mál kærenda. Ekki voru lögð fram myndbönd sem M greindi frá að hafa fengið þar sem ættingja eða ættingjum hans hafi verið ógnað með hnífi og/eða hálshöggvin.

Með tölvubréfi, dags. 9. janúar 2024, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kærendum hvað varðar málsástæðu í greinargerð kærenda um að venesúelska ríkið hafi ógilt vegabréf K vegna tengsla hennar við mótmælendahópa. Með tölvubréfi, dags. 14. janúar 2025, bárust kærunefnd frekari upplýsingar og gögn frá kærendum. Kváðu kærendur stjórnmálaþátttöku K fyrir stjórnarandstöðuflokkinn Voluntad Popular, hafa verið ástæðuna að baki því að stjórnvöld í Venesúela hafi ógilt vegabréf hennar. Kærendur lögðu m.a. fram skjáskot af SAIME, gagnagrunni venesúelskra yfirvalda, þar sem þau kveða að sjá megi staðfestingu þess að vegabréf K hafi verið ógilt (s. anulado). Þá lögðu kærendur fram skjáskot af fréttagreinum af veffréttamiðlum sem þau kveða sýna fram á að vegabréf fjölda stjórnarandstæðinga og stjórnarandstöðuleiðtoga sem staðsettir séu utan heimaríkis hafi verið ógild. Kærendur kváðu enn fremur að K hafi verið meinað að sækja um nýtt sakavottorð og lögðu fram gögn sem þau kveða sýna fram á það. Með tölvubréfi, dags. 14. janúar 2025, var K gefinn kostur á að mæta í afgreiðslu kærunefndarinnar þar sem K yrði gefið færi á að sýna starfsmanni nefndarinnar nánar ógildingu vegabréfsins á vefsíðu SAIME. Hinn 15. janúar 2025 mætti K í afgreiðslu kærunefndar og heimilaði starfsmanni nefndarinnar að skoða nánar ógildingu vegabréfsins í gagnagrunni SAIME. Með tölvubréfi, dags. 16. janúar 2025, sendi kærunefnd fyrirspurn á flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum vegna vegabréfa frá Venesúela. Með tölvubréfi, dags. 24. janúar 2025, bárust svör frá flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum. Í svörunum kemur fram að deildin hafi ráðfært sig við erlenda samstarfsaðila en enginn þeirra kannist við ógildingar á vegabréfum frá Venesúela. Þá kemur fram að í boði sé fyrir venesúelska ríkisborgara að skrá sig inn á vef SAIME og skrá þar tilkynningu um að vegabréf sé týnt, stolið, skemmt eða fullt af stimplum, en slík skráning myndi að öllum líkindum leiða til ógildingar á vegabréfinu af hálfu útgefanda. Fram kemur að ekkert vegabréfa kærenda eða barnanna B og C hafi verið skráð í kerfi Interpol fyrir týnd, stolin eða ógild vegabréf, en það kerfi sé notað til að koma upplýsingum til lögreglu og landamæraeftirlita út um allan heim um gildi vegabréfa og annarra skilríkja. Þá er vægi skráningar í SAIME dregið í efa fylgi slíkri skráningu ekki jafnframt skráning í alþjóðleg kerfi eftir hefðbundnum leiðum. Með tölvubréfi, dags. 27. janúar 2025, voru kærendur upplýstir um svör flugstöðvardeildarinnar og kærendum gefið tækifæri á að skila inn frekari athugasemdum. Með tölvubréfi, dags. 28. janúar 2025, bárust athugasemdir kærenda ásamt fylgigögnum. Í athugasemdum kærenda er ítrekað að ógilding vegabréfs K sé af pólitískum ástæðum en jafnframt vegna kæru hennar gegn opinberum starfsmönnum. Vegabréfið hafi verið ógilt í kerfum innan Venesúela í þeim tilgangi að skerða réttindi venesúelskra ríkisborgara. Þá kemur fram að vegabréf K hafi verið nýlega útgefið og til þess að hún geti skráð það týnt eða stolið þurfi hún að gera það í eigin persónu. Með tölvubréfi, dags. 30. janúar 2025, bárust nefndinni viðbótarupplýsingar frá kærendum. Kærendur lögðu m.a. fram myndband þar sem sjá má lögfræðing fjalla um þá hættu sem geti stafað að venesúelskum ríkisborgurum sem hafi orðið fyrir því að stjórnvöld hafi ógilt vegabréf þeirra. Af þýðingu nefndarinnar er um að ræða útvarpsviðtal sem fjölmiðlamaður tekur við lögmann sem sérhæfi sig í útlendingamálum í Boston í Bandaríkjunum. Í viðtalinu útskýrir lögmaðurinn m.a. að það séu aðallega þrír hópar fólks sem sæti því að vegabréf þeirra hafi verið felld úr gildi, þ.e. fjölmiðlafólk sem upplýsi almenning um aðstæður í Venesúela, pólitískir aðgerðarsinnar og fólk sem berjist fyrir mannréttindum venesúelskra ríkisborgara. Þá kveður lögmaðurinn vegabréfin hafa verið ógild án frekari tilkynningar eða ástæðu fyrir ógildingu. Í viðtalinu kveður lögmaðurinn ógildingu vegabréfanna ekki hafa áhrif utan Venesúela og geti venesúelskir ríkisborgarar með ógild vegabréf því ferðast án vandkvæða. Afleiðingar ógildingar vegabréfs komi einungis fram þegar ferðast er til Venesúela þar sem upplýsingar um ógildingu sé aðeins að finna í innlendum kerfum þar í landi. Í viðbótarupplýsingum kærenda er nefnt sem dæmi að vegabréf nafngreinds leiðtoga stjórnarandstöðuflokka í Chile og nafngreinds blaðamanns í Ekvador hafi verið gerð ógild en að engar vísbendingar séu um að upplýsingar um ógildinguna hafi verið deilt í alþjóðlegum gagnagrunnum. Benda kærendur á að afleiðingar ógildinga vegabréfa komi því helst fram við endurnýjun vegabréfa og ferðalaga innan Venesúela.

Ekki er ástæða til að draga í efa að K og M séu andsnúin stjórnvöldum í heimaríki og að K hafi verið skráður meðlimur stjórnarandstöðuflokksins Voluntad Popular. Hins vegar verður ekki ráðið af gögnum málsins að K hafi verið háttsett í flokknum eða að hún hafi verið áberandi fyrir hönd hans. Þá er ekki ástæða til að ætla að K og M eigi á hættu að sæta meðferð eða áreiti af hálfu stjórnvalda eða annarra aðila vegna stjórnmálaskoðana þeirra en af heimildum um Venesúela, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Þá benda heimildir um Venesúela ekki til þess að almennir lögreglumenn sem yfirgefi störf sín eigi á hættu að sæta áreiti eða annarri meðferð sem nái því marki að teljast ofsóknir snúi þeir aftur til heimaríkis.

Í mannréttindaskýrslu IACHR, dags. 27. desember 2024, kemur fram að í kjölfar forsetakosninganna í júlí 2024 hafi stjórnvöld tekið upp á því að ógilda vegabréf áberandi einstaklinga sem hafi ýmist barist fyrir mannréttindum venesúelskra ríkisborgara, leiðtoga stjórnarandstöðuflokka, fjölmiðlafólks og fjölskyldna þeirra í því skyni að hindra för þeirra úr landi og vekja hjá þeim ótta. Fram kemur að yfirvöld hafi ógilt vegabréf að minnsta kosti 40 áberandi einstaklinga innan framangreindra hópa. Í skýrslu Landinfo frá 11. apríl 2025 sem fjallar um ástandið í Venesúela eftir forsetakosningarnar í ágúst 2024 er fjallað um framangreinda framkvæmd. Þar kemur m.a. fram að ástæða ógildingu vegabréfa séu einkum tvær, annars vegar til þess að skapa ótta og pressu á andstæðinga stjórnvalda og hins vegar í þeim tilgangi að hafa fé af fólki með því að krefjast greiðslu fyrir útgáfu nýrra vegabréfa. Ekki séu til staðar nákvæmar tölur um fjölda þeirra einstaklinga sem hafi orðið fyrir því að vegabréf þeirra hafi verið felld úr gildi og því óvíst hversu margir hafi fengið vegabréf sín endurnýjuð. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisþjónustu Venesúela geta eigendur vegabréfa einnig sjálfir ógilt vegabréf sín í gegnum netkerfi SAIME ef um þjófnað eða tap á vegabréfi er að ræða.

Ljóst er af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað að tugir þúsunda manna hafa mótmælt ríkjandi stjórnvöldum í landinu á síðasta áratug. Þá hafa öryggissveitir handtekið meira en 2.000 manns fyrir að mótmæla sigri Maduro í forsetakosningunum síðastliðnum eða efast um fullyrðingar hans um að hann hafi sigrað í kosningum þriðja kjörtímabilið í röð. Kærendur hafi ekki verið í heimaríki síðan árið 2023 og hafi ekki tekið þátt í mótmælum eftir forsetakosningarnar 28. júlí 2024. Þá bera frásagnir K og M ekki með sér að þau hafi verið áberandi í mótmælum eða áberandi í starfi stjórnmálaflokks í Venesúela. Enn fremur ber að líta til þess að í gögnum málsins liggur fyrir venesúelskt vegabréf M, K, A, B og C útgefin 6. júní 2023. Í vegabréfunum má sjá útstimpil af Simon Bolivar flugvellinum, dags. 19. september 2023. Gefur það til kynna að kærendur hafi getað sótt um vegabréf og farið með löglegum hætti úr landinu án vandkvæða. Gefur framangreint ekki til kynna að kærendur séu eftirlýst eða undir sérstöku eftirliti hjá stjórnvöldum í heimaríki sínu. Með vísan til frásagnar kæranda, landaupplýsinga og gagna málsins er ekkert sem bendir til þess að vegabréf K hafi verið fellt úr gildi af stjórnvöldum í Venesúela vegna stjórnmálaskoðana hennar eða að kærendur og börnin B og C eigi á hættu að sæta meðferð af hálfu stjórnvalda sem nái því marki að teljast ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana þeirra, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Er það því mat kærunefndar að ekkert sé því til fyrirstöðu fyrir K að sækja um nýtt vegabréf í stað hins ógilda eða ferðast til heimaríkis á grundvelli vegabréfs síns.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram gögn sem þau telja sýna fram á þátttöku K í sjálfboðaliðaverkefninu, m.a. skjáskot af hópskilaboðum á tilgreindum samskiptamiðli, dags. 1. september 2021, 28. júlí 2022 og 7. september 2022, sem nefnd eru AVV Leneor de la Guerra. Í skilaboðunum virðist sem hópmeðlimir fagni stofnun samtakanna ásamt því að fyrirkomulag verkefnisins er rætt að einhverju leyti. Þá lögðu kærendur fram ódagsettar ljósmyndir sem þau kveða hafa verið teknar á fundi sjálfboðaliðasamtakanna. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lögðu kærendur fram afrit af undirritaðri yfirlýsingu frá X, dags. 11. nóvember 2021, þar sem m.a. kemur fram að K hafi verið meðlimur verkefnisins frá 2015. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur m.a. fram skjáskot af samskiptum á tilgreindum samskiptamiðli sem kærendur kveða vera á milli sín og R. Meginefni samskipta þeirra virðist vera ágreiningur um fjárgreiðslu þar sem R virðist krefja K um greiðslu en K kveðst þegar hafa greitt kröfuna til annarra starfsmanna V. Af skjáskotunum verður ekki ráðið hvenær samskiptin hafi átt sér stað eða hvort samskiptin hafi raunverulega verið á milli K og R. Kærendur lögðu jafnframt fram ljósmyndir af R sem þau kveða sýna fram á tengsl hans við háttsetta leiðtoga ríkisstjórnarinnar. Ljósmyndirnar eru ódagsettar og virðast teknar af Internetinu. Kærendur hafa jafnframt lagt fram ódagsetta myndbandsupptöku af handtöku R ásamt fréttaumfjöllun um málið. Samkvæmt umfjölluninni hafi R, starfsmaður opinberrar stofnunnar sem tilheyri húsnæðismálaráðuneyti Venesúela, verið handtekinn vegna spillingar. Í framlögðum gögnum er fréttaumfjöllunin ódagsett en kærunefnd fann fréttaumfjöllunina á veraldarvefnum og er hún dagsett 3. ágúst 2022. Þá lögðu kærendur fram gögn sem tilgreind voru í greinargerð sem gögn um svindl stjórnanda húsnæðisverkefna hjá húsnæðis- og innviðaráðuneyti Venesúela (s. Director del Viceministerio de Redes Populares de Vivienda), hér eftir L. Fyrra skjalið gefur til kynna að L, hafi sent út tilkynningu 13. desember 2021, um skoðun á landssvæði sem X hafði undir höndum. Síðara skjalið, dags. 27. desember 2021, virðist vera könnunarvottorð og gefi til kynna að skoðunin hafi farið fram. Samhliða skjölunum lögðu kærendur fram þrjár ljósmyndir, dags. 20. mars 2022, sem sýna einstaklinga taka ljósmyndir og kanna landsvæði. Að mati kærunefndar er ekkert í framlögðum gögnum sem bendir til svika af hálfu L. Í kjölfar handtöku R hafi forseti INTU (s. Instituto Nacional de Tierras Urbanas) kallað eftir því að íbúar Venesúela tilkynni um hvers kyns svindl eða svik til viðeigandi yfirvalda. Kærendur lögðu einnig fram skjáskot af stöðufærslum forseta INTU á tilgreindum samfélagsmiðlum, dags. 11. júní og 25. maí 2022. Samkvæmt nánari skoðun nefndarinnar var framangreindur einstaklingur ráðherra í Venesúela og fór með málefni kvenna og jafnréttis á árunum 2020 til 2021. Undir stöðufærslunum má m.a. sjá færslu frá K þar sem hún biður um áheyrn vegna byggingarverkefnisins og jákvætt svar ráðherrans við beiðninni. Einnig má þar sjá færslu frá aðgangi undir nafni L þar sem óskað er eftir upplýsingum frá ráðherranum um stöðu kvörtunar vegna fjársvika.

Þá hafa kærendur við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun m.a. lagt fram frumrit af lögreglukæru, dags. 23. júlí 2023. Í lögreglukærunni kemur m.a. fram að K hafi leitað til lögreglu, lagt fram kvörtun gegn þremur nafngreindum opinberum starfsmönnum og eftir það hafi hún orðið fyrir ofsóknum meðlima glæpagengisins Los Sanguinarios. Þá kemur fram að hinir opinberu starfsmenn hafi misnotað stöðu sína og svikið af henni fé, samtals 21.000 dollara. Samhliða lögreglukærunni lagði kærandi fram frumrit af yfirlýsingu frá mannréttindaskrifstofu, dags. 30. ágúst 2023. Í yfirlýsingunni staðfestir mannréttindaskrifstofan að hafa borist erindi frá kæranda 27. júlí 2023. Kærendur lögðu jafnframt fram undirritaða yfirlýsingu lögmanns, dags. 2. ágúst 2023, þar sem kemur fram að lögmaðurinn gæti hagsmuna K í málum hennar gegn hinum opinberu starfsmönnum. Lögmaðurinn hafi leitað eftir upplýsingum um stöðu málanna en ekki fengið svör frá ríkissaksóknara Venesúela. Þá lögðu kærendur fram skjáskot af skilaboðum á tilgreindum samskiptamiðli sem þau kveða vera frá nágranna sínum. Skilaboðin gefa til kynna að nágranninn hafi séð ókunnuga menn fyrir utan heimili kærenda. Ekki verður ráðið af skjáskotunum hvenær skilaboðin bárust eða hvort þau hafi raunverulega verið á milli kærenda og nágranna þeirra. Kærendur hafa einnig lagt fram nokkrar almennar fréttaumfjallanir um Los Sanguinarios glæpahópinn. Þá lögðu kærendur m.a. fram myndband þar sem sjá má fyrrverandi leiðtoga glæpahópsins handleika bæði handsprengju og byssu. Samkvæmt þýðingu nefndarinnar bendir ekkert til þess að umræddar hótanir hafi beinst að kærendum. Samhliða myndbandinu lögðu kærendur fram fréttaumfjöllun, dags. 21. júlí 2023, þar sem fjallað er um myndbandið í samhengi við umfjöllun um Los Sanguinarios og leiðtoga þeirra, El Gordo. Þá lögðu kærendur fram bráðamóttökuskýrslu, dags. 21. júlí 2014, þar sem fram kemur að A hafi orðið fyrir byssuskotum. Kærendur lögðu jafnframt fram skjáskot af færslum á tilgreindum samfélagsmiðli þar sem greint er frá skotárás þar sem eitt barn hafi látist og þrjú slasast.

Að teknu tilliti til gagna málsins og frásagna K og M telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að K og M hafi verið sjálfboðaliðar fyrir umrætt húsnæðisverkefni í heimaríki. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun kváðust K og M ekki geta sýnt fram á þær greiðslur sem þau hafi greitt hinum opinberu starfsmönnum frá desember 2021 til apríl 2022, þar sem kvittanirnar ásamt fyrstu kærunni gegn R, dags. 25. júlí 2022, væru á skrifstofu saksóknara í heimaríki. Kváðust K og M hafa beðið um afrit af framangreindum gögnum en saksóknari hafi ekki orðið við beiðninni þar sem um væri að ræða kæru gegn opinberum starfsmönnum, en að málsnúmerið hafa verið [...]. Kærendur lögðu fram skjal sem ber sama málsnúmer þar sem fram kemur staðfesting á að nafngreind kona hafi borið vitni fyrir dómstólum 20. júní 2023, sem gefur til kynna að málsmeðferð hafi farið fram um það leyti. Lögreglan virðist þá hafa tekið umrædda kæru gegn R alvarlega þar sem kæran var lögð fram 25. júlí 2022 og fréttaumfjöllun um handtöku hans er dagsett 3. ágúst 2022. Kærendur hafa ekki lagt fram gögn til stuðnings þess að kærendur hafi sannanlega greitt umbeðna fjárhæð til hinna opinberu starfsmanna. Með vísan til landaupplýsinga og gagna málsins telur kærunefnd á hinn bóginn ekki ástæðu til að draga í efa að kærendur hafi greitt ákveðna fjárhæð til opinberra starfsmanna á vegum V og að þeir starfsmenn hafi svikið þau um efndir, þ.e. ekki afhent land til uppbyggingar.

Af heimildum um heimaríki kæranda er ljóst að fjárkúgun hefur aukist vegna batnandi efnahags landsins og aðgengi að reiðufé. Hefur slíkt einkum beinst að fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa aðgang að erlendum gjaldmiðli. Fjárkúgun af hendi starfsmanna yfirvalda og öryggissveita hafa m.a. aukist sem einkum felst í að krafist er greiðslu til að ljúka hraða afgreiðslu mála í stjórnsýslunni, greiðslu frá vörubílstjórum og nautgripabændum. Viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ónæg. Með vísan til gagna málsins og þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér um aðstæður í Venesúela hafa stjórnvöld þar í landi brugðist við spillingu innan raða opinberra starfsmanna. Heimildir um heimaríki kærenda benda til þess að vopnaðir glæpahópar séu starfræktir í heimaríki þeirra sem stundi glæpi, fjárkúgun, eiturlyfjasmygl og mannrán. Samkvæmt ýmsum fréttamiðlum í Veneseúla, m.a. El Pitazo og Primicia, er gæpahópurinn Los Sanguinarios starfræktur í Miranda fylki. Samkvæmt fréttagrein Primicia, dags. 23. ágúst 2021, samanstendur hópurinn af 18 til 25 ára einstaklingum og sé þekktur fyrir mannrán, morð og þjófnað. Þeir notist við tilgreindan samfélagsmiðil þar sem birtar séu myndir af ökutækjum sem séu álitleg til ráns. Glæpahópurinn er samkvæmt fréttagrein El Pitazo, dags. 6. janúar 2022, viðriðinn að minnsta kosti 35 morð sem áttu sér stað í Paz Castillo í Miranda fylki sem sé í nágrenni við heimabæ kærenda og barnanna B og C. Samkvæmt fréttaumfjöllun El Nacional, dags. 9. janúar 2021, hafi fyrrverandi leiðtoga Los Sanguinarios verið ráðinn bani í janúar 2021. Þá kemur fram í fyrrnefndri fréttaumfjöllun Primicia að PNB hafi handtekið einn af leiðtogum glæpahópsins Los Sanguinarios í ágúst 2021. Í nýlegri fréttaumfjöllun El Pitazo kemur fram að leiðtogi Los Sanguinarios sem gengið hafi undir nafninu El Gordo, hafi verið skotinn til bana af lögreglu í maí 2024.

Með vísan til framangreinds og annarra heimilda um heimaríki kærenda er ljóst að venesúelsk stjórnvöld hafa ráðist í aðgerðir til að sporna við starfsemi glæpahópa þar í landi og þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kærenda sé að nokkru leyti ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi. Ekki verður annað ráðið kærendur hafi getað leitað til lögreglu og m.a. lagt fram kæru gegn R. Ekki liggja fyrir gögn um að yfirvöld hafi ekki tekið við kærunum eða að yfirvöld muni ekki grípa til aðgerða vegna þeirra. Þvert á móti má af þeim ráða að R hafi verið handtekinn vegna spillingar. Þegar litið er til þess að kærendur hafa greint frá því að um afmarkaðan hóp opinberra starfsmanna hafi verið að ræða, n.t.t. starfsmenn er komu að byggingarverkefninu, og þess sem að framan greinir um aðgerðir yfirvalda verður því lagt til grundvallar að kærendur geti leitað aðstoðar yfirvalda í heimaríki, telji þau þess þörf, jafnvel þótt einstakir opinberir starfsmenn kunni að hafa misnotað stöðu sína og svikið af þeim fé.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda, viðtölum við börnin og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnunum B og C til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barnanna B og C í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og börnin B og C uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja kröfu sína um viðbótarvernd á því að þau og börnin B og C eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Þá eigi kærendur og börn hættu á að verða fyrir skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðar- og borgaralegra skotmarka verði þeim gert að snúa aftur heim. Öryggisástand á heimaslóðum kærenda sé ótryggt, m.a. vegna árása glæpagengja og handahófskenndra morða auk þess sem stjórnvöld séu vanmáttug við að tryggja borgurum vernd gegn árásum opinberra aðila.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar ný afstaðinna forsetakosninga séu harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barna þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka. Við það mat hefur kærunefnd sérstaklega litið til málsástæðna K um stjórnmálaþátttöku hennar.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í Miranda fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Miranda fylki í norðurhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur og börn þeirra hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur og börn þeirra eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barnanna B og C séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og börn uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur og börnin B og C eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Ef um er að ræða barn skal miðað við 16 mánuði. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.

Kærendur og börnin B og C sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi 21. september 2023. Kærendur og börnin B og C teljast því ekki hafa fengið niðurstöðu í málum sínum innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita kærendum og börnunum B og C dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 74. gr. laga um útlendinga.

Kærendur og börnin B og C uppfylla skilyrði a- til d- liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram vegabréf fyrir sig og börnin B og C sem lögð hafa verið til grundvallar auðkenni þeirra. Verður því ekki talið að vafi leiki á því hver kærendur og börnin B og C séu, sbr. b-lið 2. mgr. 74. gr. laganna. Þá er það mat kærunefndar að ákvæði a- til d- liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Að öllu framangreindu er það niðurstaða kærunefndar að veita beri kærendum og börnunum B og C dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um kröfur kærenda skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest hvað varðar umsóknum kærenda og börnunum B og C um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum og A dvalarleyfi skv. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar hvað varðar umsóknir kærenda og barnanna B og C um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir stofnunina að veita kærendum og börnunum B og C dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

The decisions of the Directorate of Immigration regarding the appellant and B and C applications for international protection are affirmed. The Directorate is instructed to issue the appellants and B and C residence permits based on Article 74(2) of the Act on Foreigners.


Þorsteinn Gunnarsson

Vera Dögg Guðmundsdóttir