16 maí 2025
/
Mál nr. 104/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 104/2025
Föstudaginn 16. maí 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 18. febrúar 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. febrúar 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 18. september 2024 og var umsóknin samþykkt 11. október 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. febrúar 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 18. febrúar 2025. Með bréfi, dags. 19. febrúar 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 13. mars 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 17. mars 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála er ekki að finna sérstakan rökstuðning fyrir kæru en af kærunni má ráða að kærandi sé ósátt við þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði. Þá liggja fyrir skýringar kæranda á fjarveru á boðað námskeið í gögnum málsins.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 18. september 2024. Með erindi, dags. 11. október 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 10. janúar 2025 hafi kærandi verið boðuð á námskeiðið „Job searching – for young job seekers“ á vegum Vinnumálastofnunar sem hafi átt að fara fram á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík. Í boðuninni hafi sérstaklega verið tilgreint að námskeiðið yrði haldið í fjögur skipti frá klukkan 9:00 til 12:00, dagana 13., 14., 15. og 17. janúar 2025. Kærandi hafi verið upplýst um að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum, með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 10. janúar 2025, klukkan 10:24. Kærandi hafi einungis mætt þann 13. janúar 2025 en ekki í seinni þrjú skiptin sem námskeiðið hafi verið haldið. Engin forföll hafi borist frá kæranda á boðað námskeið.
Með erindi, dags. 3. febrúar 2025, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hún hafi ekki uppfyllt kröfur um skyldumætingu á boðað námskeið. Áréttað hafi verið að ef hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð án gildra ástæðna gæti hún þurft að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Þann 7. febrúar 2025 hafi Vinnumálastofnun borist skriflegar skýringar frá kæranda þar sem fram hafi komið að hún hafi sannarlega mætt á námskeiðið fyrsta daginn sem námskeiðið hafi verið haldið en ekki í seinni þrjú skiptin þar sem hún hafi ekki haft barnapössun fyrir ungt barn sitt. Kærandi hefði mætt á námskeið þann 13. janúar með barn sitt.
Með erindi, dags. 17. febrúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt um tveggja mánaða stöðvun á greiðslum atvinnuleysisbóta til hennar sökum þess að hún hafi ekki uppfyllt kröfur um mætingaskyldu á boðað námskeið dagana 13., 14., 15. og 17. janúar 2025. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 18. febrúar 2025. Engum skriflegum skýringum né rökstuðningi sé til að dreifa í kæru til úrskurðarnefndarinnar. Kærandi hafi skilað á umsóknarvef Vinnumálastofnunar skýringum á fjarveru sinni, dags. 18. febrúar 2025, þar sem fram hafi komið að henni hafi verið meinaður aðgangur að umræddu námskeiði sökum þess að hún hafi verið með ungt barn sitt á námskeiðinu þar sem eiginmaður hennar væri upptekinn í vinnu og barn hennar væri ekki komið með pláss á leikskóla. Að mati kæranda sé ákvörðun Vinnumálastofnunar ósanngjörn.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnu-markaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um atvinnuleysisbætur komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að skylt sé að mæta í viðtöl, á fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hana til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu á námskeið dagana 14., 15. og 17. janúar 2025. Kærandi hafi aðeins mætt fyrsta daginn sem námskeiðið hafi farið fram þann 13. janúar. Vinnumálastofnun hafi hvorki borist tilkynning um forföll eða veikindi af hálfu kæranda. Í fyrirliggjandi skýringum komi fram að kærandi hafi ekki getað uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið þar sem hún hafi ekki haft barnapössun fyrir ungt barn sitt. Þá segi kærandi að henni hafi verið bannað að mæta á boðað námskeið með barn sitt.
Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið innt eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 3. febrúar 2025. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Vinnumálastofnun fallist ekki á að þær skýringar sem kærandi hafi veitt geti talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vísi Vinnumálastofnun til þess að kæranda hafi sannarlega verið send tilkynning í tölvupósti, farsíma og á „Mínar síður“ atvinnuleitanda um boðun á umrætt námskeið þann 10. janúar 2025 og henni tilkynnt um hvenær námskeiðið myndi fara fram. Það hafi komið skýrmerkilega fram í boðun að námskeiðið myndi vera haldið í fjögur skipti og dagsetningar ásamt tímasetningum tilgreindar í boðun.
Fyrir liggi að kærandi hafi einungis mætt á boðað námskeið þann 13. janúar 2025 og þá með ungt barn sitt. Kærandi hafi borið við að henni hafi verið meinaður aðgangur að námskeiði með barn sitt. Þá beri kærandi fyrir sig að hún hafi ekki barnapössun. Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda ekki gildar. Það eitt og sér að hafa ekki barnapössun réttlæti ekki fjarveru kæranda á boðað námskeið. Vinnumálastofnun telji skýringar kæranda á að henni hafi verið meinaður aðgangur að námskeiðinu sökum þess að hún hafi verið með ungt barn sitt meðferðis á námskeiðið byggja á misskilningi. Fyrir liggi að kærandi hafi mætt í eitt skipti með barn sitt á námskeiðið þann 13. janúar 2025. Ekkert í máli kæranda beri með sér að henni hafi verið meinaður aðgangur að námskeiðinu sökum þess að hún hafi haft ungt barn sitt meðferðis. Vinnumálastofnun bendi á að almennt eigi atvinnuleitendur að mæta á námskeið og þau vinnumarkaðsúrræði sem þeir séu boðaðir á án þess að taka ung börn sín meðferðis. Stofnunin hafi í undantekningartilfellum veitt atvinnuleitendum heimild til að mæta á námskeið með ung börn sín, þar á meðal kæranda. Vísi Vinnumálastofnun í því samhengi til þess að kærandi hafi fengið skráða mætingu þann 13. janúar 2025 þrátt fyrir að kærandi hafi mætt með barn á námskeiðið.
Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Beri henni að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 10. janúar 2025 boðuð á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem var haldið í fjögur skipti á tímabilinu 13. til 17. janúar 2025, klukkan 9-12. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Að endingu var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga.
Fyrir liggur að kærandi mætti aðeins fyrsta dag námskeiðsins af fjórum, eða þann 13. janúar 2025, og uppfyllti hún því aðeins 25% mætingarskyldu. Kærandi boðaði ekki forföll á öðrum dögum námskeiðsins og skilaði aðeins skýringum eftir að Vinnumálastofnun hafði leitað eftir þeim. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar þann 7. febrúar 2025 kom fram að hún hafi mætt á fyrsta dag námskeiðsins með barn sitt en ekki seinni þrjú skiptin þar sem hún hafi ekki haft barnapössun og eiginmaður hennar hafi verið í vinnu. Þá kom fram að starfsfólk námskeiðsins hafi sagt henni að hún gæti ekki mætt með barn sitt á námskeiðið. Hún hafi mætt á annað námskeið þann 16. janúar 2025.
Af gögnum málsins má ráða að kæranda hafi mátt vera fullljóst að henni bæri að uppfylla mætingarskyldu á boðað námskeið og hvert bæri að beina tilkynningum um forföll. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur almennt ekki verið talið réttlætanlegt að mæta ekki á námskeið á dagvinnutíma vegna umönnunar barna. Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að hafa vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara, sbr. d. lið 1. mgr. ákvæðisins og að vera reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða vaktavinnu, sbr. f. lið 1. mgr. ákvæðisins.
Í athugasemdum við ákvæðið 14. gr. í frumvarpi til laga nr. 54/2006 segir meðal annars svo:
„Enn fremur þykir ástæða til að taka fram að umsækjandi teljist vera í virkri atvinnuleit þegar hann, frá því að umsókn um atvinnuleysisbætur barst, hefur bæði vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara. Að öðrum kosti verður ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. Felur þetta til dæmis í sér að gert er ráð fyrir að foreldrar í virkri atvinnuleit með ung börn hafi barnapössun en reynslan í núverandi kerfi er að ungt fólk ber oft fyrir sig að það geti hvorki mætt í atvinnuviðtöl né tekið þátt í vinnumarkaðsúrræðum þar sem það hefur ekki gæslu fyrir börn sín.“
Í 4. mgr. 14. gr. kemur fram að Vinnumálastofnun sé heimilt að veita undanþágu frá skilyrðum c., e. og f. liða 1. mgr. þannig að hinn tryggði, sem vegna aldurs, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima óskar eftir hlutastarfi eða starfi innan tiltekins svæðis, geti talist vera í virkri atvinnuleit. Enn fremur sé heimilt að taka tillit til aðstæðna hins tryggða sem geti ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt mati sérfræðilæknis. Um þetta er tekið fram í athugasemdum með ákvæðinu að með umönnunarskyldu vegna ungra barna sé ekki átt við þau tilvik er hinir tryggðu beri fyrir sig að hafa ekki barnapössun fyrir ung börn á dagvinnutíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Að mati úrskurðarnefndar eru þær skýringar kæranda sem liggja fyrir í gögnum málsins ekki fullnægjandi til að réttlæta fjarveru á boðað námskeið. Verður því fallist á með Vinnumálastofnun að kærandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 og skuli sæta biðtíma.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. febrúar 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir