16 maí 2025
/
Mál nr. 116/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 116/2025
Föstudaginn 16. maí 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 21. febrúar 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. sama dag, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. október 2024 og var umsóknin samþykkt 22. október 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. febrúar 2025, var kæranda tilkynnt að greiðslur til hans væru stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 21. febrúar 2025. Með bréfi, dags. 25. febrúar 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 18. mars 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. mars 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hann hafi ítrekað sótt um vinnu en virðist ekki geta fengið vinnu. Hann muni ekki gefast upp og þrái að komast aftur á vinnumarkað og komast í rútínu. Hann vilji ekki vera á atvinnuleysisbótum og hafi það slæm áhrif á hann. Kærandi kveðst muni þurfa að selja bíl sinn ef hann missi rétt til atvinnuleysisbóta. Hann hafi ekki séð skilaboð með boðun á fund og smáskilaboðin hafi farið á gamalt símanúmer. Hann hafi áður mætt á fund samkvæmt boðun og hefði mætt ef hann hefði séð skilaboðin. Hann óski eftir endurskoðun á sínu máli.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt síðast um atvinnuleysisbætur með umsókn þann 1. október 2024. Með erindi 22. október 2024 hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Með erindi 14. janúar 2025 hafi kærandi verið boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík sem hafi átt að fara fram þann 15. janúar 2025. Athygli kæranda hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda X. Vinnumálastofnun hafi jafnframt sent smáskilaboð á skráð símanúmer kæranda.
Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund og 3. febrúar 2025 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru hans á boðaðan kynningarfund. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum. Skýringar hafi borist frá kæranda með tölvupósti þann 14. febrúar 2025 þar sem fram komi að kærandi hafi ekki fengið boð sökum þess að símanúmer hans hefði verið rangt skráð. Þá hafi tölvupóstfang hans ekki virkað og hafi hann af þeim sökum ekki fengið boð á kynningarfund.
Með erindi, dags. 21. febrúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar sökum þess að hann hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sem kærandi hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur í 27 mánuði hafi bótaréttur hans verið felldur niður samkvæmt 4. mgr. 58. gr. laganna. Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 21. febrúar 2025. Í kæru greini kærandi frá því að boðanir hafi farið fram hjá honum og af þeim sökum hafi hann ekki mætt á boðaðan kynningarfund.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund þann 15. janúar 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, og á „Mínum síðum“, þar sem tímasetning hafi verið tilgreind og staðsetning. Þá hafi jafnframt verið send smáskilaboð á skráð símanúmer kæranda en skilaboðin ekki borist þar sem rangt símanúmer hafi verið skráð af hálfu kæranda í umsóknargrunn atvinnuleysistryggingasjóðs. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa.
Í 1. mgr. 58. gr. segi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Skýringar kæranda á fjarveru á boðaðan kynningarfund þann 15. janúar 2025 lúti einkum að því að hann hafi verið með skráð rangt símanúmer og að tölvupóstfang hans virki ekki. Kærandi hafi af þeim sökum ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði. Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda á fjarveru hans á kynningarfundinn ekki gildar. Í því samhengi bendi stofnunin á það sé á ábyrgð kæranda að hafa símanúmer rétt skráð og að vera með virkt netfang á meðan á virkri atvinnuleit standi. Að öðrum kosti sé ómögulegt fyrir Vinnumálastofnun að aðstoða kæranda í atvinnuleit. Þá sé bent á að þó svo að tvær boðleiðir hafi verið óvirkar að sögn kæranda hafi honum einnig verið send tilkynning á vefsvæði hans á „Mínum síðum“ stofnunarinnar.
Vinnumálastofnun sé samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem sé næst lögheimili viðkomandi.
Af fyrrnefndum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysistryggingar samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysisbóta, komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.
Í 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi að ef hinn tryggði hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama bótatímabili þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. eigi sér stað, skuli hann ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hafi áunnið sér rétt á nýju bótatímabili. Í ljós þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði beri að synja kæranda um frekari greiðslur atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en kærandi hafi þegið greiðslur úr atvinnuleysistryggingarsjóði í 27 mánuði á yfirstandandi bótatímabili.
Með vísan til framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að stöðva beri greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda á grundvelli 1. og 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, og skuli hann ekki eiga rétt á greiðslum fyrr en hann hafi áunnið sér rétt á nýju bótatímabili samkvæmt 31. gr. laganna.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna. Í 4. mgr. 58. gr. segir að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. mgr. á sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Fyrir liggur að kærandi var þann 14. janúar 2025 boðaður í viðtal sem fara átti fram daginn eftir. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi boðaði ekki forföll í viðtalið en kvaðst í skýringum til Vinnumálastofnunar, dags. 14. febrúar 2025, ekki hafa fengið boð á fundinn sökum þess að símanúmer hans hafi verið rangt skráð og tölvupóstfang hans ekki virkað.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á boðuðum tíma. Í framangreindri boðun Vinnumálastofnunar kom skýrt fram að kæranda bæri að mæta á kynningarfund hjá stofnuninni. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru hans á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun. Er það á ábyrgð kæranda að tryggja að réttar samskiptaupplýsingar séu skráðar í kerfi Vinnumálastofnunar svo hann geti uppfyllt skyldur sínar samkvæmt lögunum.
Þegar kærandi var beittur viðurlögum hafði hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur samtals í 27 mánuði á yfirstandandi bótatímabili sínu. Því voru atvinnuleysisbætur til hans stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. febrúar 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir