16 maí 2025
/
Mál nr.. 109/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 109/2025
Föstudaginn 16. maí 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 20. febrúar 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. febrúar 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 2. nóvember 2024 og var umsóknin samþykkt 20. desember 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. febrúar 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 20. febrúar 2025. Með bréfi, dags. 25. febrúar 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 18. mars 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. mars 2025. Athugasemdir bárust sama dag og voru kynntar Vinnumálastofnun 20. mars 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hún kæri ákvörðun Vinnumálastofnunar um biðtíma vegna þess að skýringar hennar á því að hafa ekki mætt á boðaðan fund hjá stofnuninni hafi ekki verið teknar gildar þrátt fyrir að hún hafi fengið tölvupóst um að hún gæti hafnað boðun án vandræða. Hún hafi auk þess fengið tölvupóst klukkan 22:30 með boðun á annan fund, sem kærandi telji að hafi verið sendur of seint. Í ljós þessa telji kærandi að taka eigi ástæður hennar fyrir því að hafa ekki mætt á boðaðan fund gildar. Tölvupóstur Vinnumálastofnunar hafi aðeins tilgreint að henni yrði gert að sæta biðtíma ef hún myndi ekki boða forföll án ástæðulausrar tafar. Kærandi telji óraunhæft að gera þá kröfu að hún gæti tilkynnt forföll án ástæðulausrar tafar þar sem tölvupóstur með boðun hafi verið sendur klukkan 22:00 sem hún hafi ekki séð í tæka tíð og það sé óraunhæft að ætlast til að kærandi hafi getað séð tölvupóstinn á þeim tíma. Boðun á fundinn hafi ekki verið send henni innan tilskilins tíma. Hún geti ekki framfleytt sér með öðrum hætti á meðan hún leiti að vinnu í B sem henni hafi jafnframt verið tjáð að henni væri heimilt.
Í athugasemdum kæranda kemur fram að hennar skilningur hafi verið sá að aðeins hafi verið nauðsynlegt að boða forföll en ekki að Vinnumálastofnun þyrfti einnig að samþykkja ástæður forfalla. Hvergi hafi komið fram að Vinnumálastofnun þyrfti að samþykkja ástæður forfalla. Þessi nálgun sé umdeilanleg þar sem hún gefi til kynna að aðeins tilteknar ástæður forfalla séu samþykktar sem kærandi telji ósanngjarnt. Hún telji mjög óeðlilegt að svo mikilvæg skilaboð hafi verið send henni kl. 22:00. Í ljósi þess að þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar sé opin til kl. 13:00 veki þetta upp spurningar um hvort um mistök eða ásetning hafi verið að ræða. Það sé hvorki faglegt né ásættanlegt að ætlast til þess að hægt sé að móttaka og bregðast við slíku erindi á svo stuttum tíma, sérstaklega seint að kvöldi þegar breytingar á skyldum og ráðstöfunum séu ekki auðveldar. Kærandi treysti því að málið verði endurskoðað.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur með umsókn, dags. 2. nóvember 2024. Með erindi, dags. 20. desember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Kæranda hafi jafnframt verið tilkynnt að með tilliti til starfsloka hennar yrði hún að sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum á grundvelli 1. mgr. 54. laga um atvinnuleysistryggingar.
Þann 30. janúar 2025 hafi kærandi verið boðuð á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjanesbæ þann 31. janúar 2025 klukkan 10:00. Kærandi hafi verið upplýst um að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í skráð símtæki kæranda þann 30. janúar [2025], klukkan 9:47. Í boðunum hafi verið vakin athygli á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga.
Í kjölfarið hafi kærandi haft samband símleiðis við Vinnumálastofnun þar sem hún hafi tilkynnt að hún gæti ekki mætt í boðað viðtal þar sem hún væri stödd í fríi með vinum sínum á Hellu. Jafnframt hafi borist tölvupóstur frá kæranda þess efnis þann 30. janúar 2025 að hún gæti ekki mætt þar sem hún væri stödd á Hellu. Kærandi hafi spurt hvort hún gæti mætt í viðtal á mánudegi eftir helgi. Tölvupósti kæranda hafi verið svarað af hálfu starfsmanns Vinnumálastofnunar samdægurs þar sem kæranda hafi verið leiðbeint um að mæta á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem væri þá í hennar tilviki á Selfossi. Kærandi hafi ekki mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Selfossi.
Þann 5. febrúar 2025 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru á boðaðan kynningarfund. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum. Skýringar hafi borist frá kæranda þann 6. febrúar 2025. Skýringar kæranda hafi verið þær að hún hefði verið á Hellu að halda upp á afmæli vinar síns. Í skýringum kæranda hafi hún jafnframt borið við að hún hefði boðað forföll með því að hringja á Vinnumálastofnun og senda tölvupóst. Kærandi hafi sagst hafa fengið þær upplýsingar í símtali við starfsmann Vinnumálastofnunar að það væri í lagi að hún myndi mæta eftir helgi. Hún hafi ekki fengið neinar leiðbeiningar í umræddu símtali að mæta á næstu nálægu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Þá hafi kærandi sagst hafa verið í gleðskap fram á nótt þann 30. janúar 2025 og því ekki orðið vör við tölvupóst Vinnumálastofnunar um að henni bæri að mæta á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar við Hellu, þ.e. á Selfoss. Kærandi hafi ekki orðið vör við tölvupóst stofnunarinnar fyrr en um kl. 10:30 um morguninn. Þá hafi verið orðið um seinan að keyra frá Hellu á Selfoss.
Með erindi, dags. 17. febrúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið stöðvaðar í þrjá mánuði sökum þess að hún hefði ekki mætt á boðaðan kynningarfund. Ákvörðunin hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 20. febrúar 2025. Kæra til nefndarinnar sé efnislega samhljóða þeim skýringum sem þegar hafi borist Vinnumálastofnun.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðað viðtal þann 31. janúar 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“, þar sem tímasetning hafi verið tilgreind og staðsetning. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa.
Í 1. mgr. 58. gr. segi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Skýringar kæranda á fjarveru sinni á boðaðan kynningarfund lúti einkum að því að hún hafi verið upptekin á Hellu í afmæli vinar síns. Kærandi hafi af þeim sökum ekki getað mætt í boðað vinnumarkaðsúrræði.
Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda á höfnun á þátttöku í vinnumarkaðsúrræði ekki gildar. Í því samhengi bendi stofnunin á að kæranda hafi verið leiðbeint í tölvupósti um að mæta þess í stað á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Samkvæmt skýringum kæranda hafi hún verið í gleðskap daginn fyrir að boðaður upplýsingafundur myndi fara fram og því ekki orðið vör við tölvupóst frá stofnuninni. Afmælisfögnuður eða gleðskapur réttlæti ekki, að mati Vinnumálastofnunar, fjarveru kæranda á boðað vinnumarkaðsúrræði. Kæranda hafi borið að mæta á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Það hafi kærandi ekki gert.
Vinnumálastofnun sé samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.
Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að boð á upplýsingafund hafi verið sent bæði með tölvupósti á skráð netfang og með SMS skilaboðum á skráð símanúmer kæranda rúmlega 24 tímum fyrir áætlaðan fund. Boðun til umrædds fundar hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess sem tölvupósti kæranda hafi verið svarað og henni leiðbeint um að mæta á næstu þjónustuskrifstofu stofnunarinnar á Selfossi. Í ljósi ofangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga.
Í ljós þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr., beri henni að sæta viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis. Þar sem um önnur viðurlög sé að ræða á sama bótatímabili komi til beitingar 1. mgr. 61. gr. laganna og beri kæranda að sæta þriggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga.
Með vísan til framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 30. janúar 2025, klukkan 9:47 boðuð á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjanesbæ sem fara átti fram 31. janúar 2025, klukkan 10:00. Í boðuninni kom fram að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Þá kom fram að forföll þyrfti að tilkynna á netfangið [email protected]. Vakin var athygli á því að ótilkynnt forföll gætu leitt til þess að bótaréttur félli niður. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Kærandi hafði samband við Vinnumálastofnun símleiðis klukkan 10:40 og tilkynnt forföll þar sem hún væri stödd í fríi á Hellu. Jafnframt barst Vinnumálastofnun tölvupóstur frá kæranda þann 30. janúar 2025 þess efnis að hún gæti ekki mætt á fundinn þar sem hún væri stödd á Hellu og óskaði hún eftir öðrum fundartíma. Kæranda var þá með tölvupósti það kvöld sagt að mæta á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem væri á Selfossi. Kærandi mætti ekki á boðaðan fund.
Kærandi hefur meðal annars gert athugasemd við að í fundarboðun hafi einungis verið tilgreint að tilkynna þyrfti forföll en ekki að Vinnumálastofnun myndi meta hvort um gild forföll væri að ræða.
Líkt og að framan greinir er Vinnumálastofnun heimilt að boða hinn tryggða til sín með mjög skömmum fyrirvara og skal viðkomandi þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar. Af gögnum málsins er ekki að sjá að kærandi hafi upplýst Vinnumálastofnun fyrir fram um að hún væri stödd út á landi. Kæranda bar í samræmi við skyldur sínar samkvæmt lögum nr. 54/2006 að vera reiðubúin til að mæta til Vinnumálastofnunar án sérstaks fyrirvara. Að öðrum kosti gæti komið til viðurlaga í formi biðtíma eftir greiðslum.
Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er ekki réttlætanlegt að mæta ekki á fund hjá Vinnumálastofnun vegna ferðalags út á land. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 20. desember 2024 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna í ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 17. febrúar 2025. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. febrúar 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir