19 maí 2025

/

Úrskurður nr. 416/2025


Hinn 19. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 416/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24090078

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 11. september 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. ágúst 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 21. ágúst 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun sem ferðamaður til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir ellefu daga dvöl frá 10. til 20. september 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. ágúst 2024. Hinn 11. september 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kemur fram að flugmiði kæranda hafi verið afbókaður vegna tæknilegra mistaka. Hún hafi því uppfært hann og látið nýjan flugmiða fylgja með kærunni. Þegar hringt hafi verið í kæranda til að taka viðtal vegna umsóknar um vegabréfsáritun hafi hún verið við vinnu þar sem henni sé ekki heimilt að nota síma sinn. Við þær aðstæður hafi kæranda reynst erfitt að svara spurningum í símann. Kærandi hafi hins vegar endurskipulagt ferðatímabil sitt í kjölfar synjunar á umsókn hennar og leggi fram gögn sem styðji við nýja ferðaáætlun hennar.

Samhliða kæru lagði kærandi fram nýjan flugmiða ásamt skjáskotum af keyptri afþreyingu hér á landi.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Nígeríu þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Umsækjendur um samræmda vegabréfsáritun skulu m.a. framvísa skjölum sem gefa til kynna tilgang ferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Til að kanna hvort skilyrðum sem talin eru upp m.a. í 1. mgr. 14. gr. er fullnægt, er yfirvöldum sem hafa umsókn um vegabréfsáritun til meðferðar heimilt að óska eftir gögnum sem talin eru upp í skrá í viðauka 2, sem eru ekki tæmandi talin. Yfirvaldinu er jafnframt heimilt að óska eftir öðrum gögnum ef þurfa þykir.

Í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 11, þ.e. að upplýsingarnar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar; og rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun hafi verið áreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að flugbókun hafi verið afbókuð og að skort hafi á þekkingu um fyrirhugaða ferð í viðtali. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Samkvæmt gögnum málsins var símaviðtal tekið við kæranda 23. ágúst 2024 þar sem ekki hafi verið hægt að staðfesta flugbókun. Í dagbókarfærslu fulltrúa utanríkisþjónustunnar kemur fram að hringt hafi verið í flugfélagið sem hafi staðfest að flug hafið verið bókað í gegnum þriðja aðili 10. ágúst 2024 en þar sem bókunin hafi ekki verið kláruð hafi hún verið afbókuð 14. ágúst 2024. Í símaviðtali staðfesti kærandi eftir sem áður framlagðan flugmiða. Í viðtalinu hafi kærandi jafnframt greint frá tilhögun ferðarinnar en hún hafi ekki getað nefnt hvar á landinu hún hygðist gista. Þá kemur fram í dagbókarfærslu sem skráð var eftir viðtalið að kærandi hafi ekki getað tilgreint nokkuð sem hún hafi í hyggju að skoða eða gera á Íslandi.

Ferðaáætlun og gögn sem tengjast henni eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 5. og 6. tölul. gátlista með vegabréfsumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni í London, þar sem kærandi lagði umsókn sína fram. Líkt og að framan greinir er í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og er í 8. mgr. ákvæðisins kveðið á um heimild stjórnvalda, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda. Í kæru kemur fram að þegar hringt hafi verið í kæranda hafi hún verið við vinnu þar sem henni sé ekki heimilt að nota síma sinn. Við þær aðstæður hafi kæranda reynst erfitt að svara spurningunum en hún hafi þó að sögn svarað þeim með fullnægjandi hætti. Þær skýring sem kærandi hefur lagt fram við meðferð kærumáls þessa eru ekki til þess fallnar að hnekkja mati Útlendingastofnunar um frammistöðu í viðtali og vafa er varðar ferðaáætlun kæranda. Til samræmis við 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir verður að gera þá kröfu til umsækjenda að þeir hafi þekkingu á framlagðri ferðaáætlun og geti gert grein fyrir henni í viðtali. Úr framangreindum annmarka verður ekki bætt á kærustigi með framlagningu nýrrar ferðaáætlunar. Þessu til viðbótar hefur ekki verið unnt að staðfesta nýja flugbókun sem kærandi lagði fram á kærustigi.

Að framangreindu virtu hafa ekki verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, sbr. ii. tölul. a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 1. málsl. 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Hefur þannig ekki verið sýnt fram á tilgang dvalar, sbr. d-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður