22 maí 2025

/

Mál nr. 158/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 158/2025

Fimmtudaginn 22. maí 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 11. mars 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 22. janúar 2025, um að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna fyrir tímabilið 26. til 31. ágúst 2024 og 1. til 25. september 2024.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í ágúst og september 2024. Með ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 22. janúar 2025, var kæranda tilkynnt að hann hefði fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en heimilt væri fyrir tímabilið 26. til 31. ágúst 2024 og 1. til 25. september 2024. Honum bæri því að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði 143.535 kr., að meðtöldu 15% álagi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 11. mars 2025. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 13. mars 2025, var óskað eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs vegna kærunnar. Með erindi, dags. 31. mars 2025, tilkynnti Fæðingarorlofssjóður að mál kæranda vegna ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna hefði verið fellt niður á grundvelli nýrra gagna sem hefðu borist með kærunni. Því væri engin kæranleg ákvörðun til staðar í máli kæranda. Með erindi úrskurðarnefndar, dags. 2. apríl 2025, var óskað eftir afstöðu kæranda til þeirra upplýsinga Fæðingarorlofsssjóðs. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð var ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 22. janúar 2025, um að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra fæðingarorlofsgreiðslna fyrir tímabilið 26. til 31. ágúst 2024 og 1. til 25. september 2024. Fyrir liggur að sú ákvörðun var afturkölluð hjá Fæðingarorlofssjóði, sbr. 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sem kveður á um að stjórnvald geti afturkallað ákvörðun sína að eigin frumkvæði, sem tilkynnt hafi verið aðila máls, þegar það er ekki til tjóns fyrir aðila.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof skal úrskurðarnefnd velferðarmála kveða upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna.

Af framangreindu er ljóst að úrskurðarvald nefndarinnar er afmarkað við að fjalla um réttmæti tiltekinnar ákvörðunar eða ákvarðana sem teknar eru á grundvelli laga nr. 144/2020.

Í ljósi þess að hin kærða ákvörðun um endurgreiðslu til fæðingarorlofssjóðs var afturkölluð og framangreinds hlutverks úrskurðarnefndarinnar er það mat nefndarinnar að lögvarðir hagsmunir kæranda af efnislegri úrlausn málsins séu ekki lengur til staðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.      


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir