22 maí 2025
/
Mál nr. 287/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 287/2025
Fimmtudaginn 22. maí 2025
A
gegn
Reykjavíkurborg
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 7. maí 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn hans um félagslegt leiguhúsnæði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 24. janúar 2024, sótti kærandi um félagslegt leiguhúsnæði hjá Reykjavíkurborg og var umsóknin samþykkt á biðlista. Í kjölfar endurmats á umsókninni var kæranda synjað um félagslegt leiguhúsnæði með bréfi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, dags. 22. janúar 2025, og var sú ákvörðun staðfest af áfrýjunarnefnd velferðarráðs, dags. 5. febrúar 2025.
Með úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála 24. mars 2025, sbr. mál nr. 92/2025, var ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði staðfest.
Kærandi lagði fram nýja kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 7. maí 2025 vegna umsóknar hans um félagslegt leiguhúsnæði. Með erindi úrskurðarnefndar sama dag var óskað eftir upplýsingum frá Reykjavíkurborg um hvort fyrir lægi nýrri ákvörðun í máli kæranda en sú sem hafði verið úrskurðað um í máli nr. 92/2025. Svar barst samdægurs þess efnis að svo væri ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála greinir kærandi frá því að hann þurfi aðstoð varðandi umsókn hans um félagslegt leiguhúsnæði. Hann hafi beðið eftir húsnæði í fimm ár, hann sé öryrki eftir vinnuslys og eigi eina dóttur.
III. Niðurstaða
Kærandi lagði áður fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála vegna umsóknar hans um félagslegt leiguhúsnæði hjá Reykjavíkurborg. Með úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála 24. mars 2025, sbr. mál nr. 92/2025, var ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 5. febrúar 2025, um að synja umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði staðfest. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg liggur ekki fyrir nýrri ákvörðun en sú vegna húsnæðismála kæranda.
Samkvæmt 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal nefndin úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar. Um húsnæðismál er fjallað í 45. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og í 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna kemur fram að aðila máls hjá félagsþjónustu sveitarfélaga sé heimilt að kæra stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru samkvæmt lögunum til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Í ljósi þess að úrskurðarnefnd velferðarmála hefur þegar úrskurðað um þá ákvörðun sem kærandi lagði fram er það mat nefndarinnar að mál hans sé ekki tækt til efnismeðferðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir