22 maí 2025
/
Nr. 418/2025 Úrskurður
Hinn 22. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 418/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU25020092
Kæra […]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 20. febrúar 2025 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn karlmanns að nafni […], fd. […], ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og vísa honum frá landinu.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.
Kærandi gerir kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga. Til vara er gerð sú krafa að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að máli hans verði vísað til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun. Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt alþjóðleg vernd samkvæmt ákvæðum 37. gr. laganna. Til þrautaþrautavara er þess krafist að honum verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 11. september 2024. Við skoðun stjórnvalda kom í ljós að kærandi hafði fengið útgefið dvalarleyfi í endursendingarríki sem námsmaður. Af þeim sökum var, 18. september 2024, send beiðni til ungverskra yfirvalda um upplýsingar um stöðu kæranda þar í landi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari ungverskra yfirvalda, dags. 30. september 2024, kom í ljós að kærandi væri handhafi dvalarleyfis fyrir námsmenn með gildistíma til 6. september 2025. Hinn 2. október 2024 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Ungverjalandi, sbr. 1. eða 3. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Í svari frá ungverskum yfirvöldum, dags. 24. október 2024, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi er handhafi dvalarleyfis þar í landi. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 16. október 2024, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 20. febrúar 2025 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Það var mat stofnunarinnar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur til endursendingarríkis. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst greinargerð kæranda 6. mars 2025 ásamt fylgigögnum. Viðbótargögn bárust 12. mars og 3. apríl 2025.
3 Greinargerð til kærunefndar
Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð kemur fram að kærandi hafi komið hingað til lands frá Ungverjalandi þar sem hann hafi verið í námi og fengið námsmannastyrk. Kærandi hafi verið með dvalarleyfi þar en hafi misst leyfið þegar hann hafi orðið að hverfa frá námi. Kærandi vísar til greinargerðar til Útlendingastofnunar er varðar málsatvik.
Í greinargerð er vísað til landaskýrslna og mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í endursendingarríki mótmælt.
Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem kærandi telur að fella beri aðstæður hans undir 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar en íslenskum stjórnvöldum sé heimilt að taka mál kæranda til efnismeðferðar á þeim grundvelli. Kærandi vísar til þess að kærunefnd hafi ekki án undaförnum árum vísað flóttafólki til endursendingarríkis á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Þá hafi Evrópudómstóllinn metið það svo að stjórnvöld í endursendingarríki brjóti gegn mannréttindum flóttafólks. Þá vísar kærandi til þess að ekki sé tryggt að kæranda verði veitt viðtaka verði hann sendur til endursendingarríkis á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar.
Kærandi gerir einnig kröfu um að honum verði veitt alþjóðlega vernd samkvæmt ákvæðum 37. gr. laga um útlendinga og dvalarleyfi af mannúðarástæðum samkvæmt 74. gr. laganna.
4 Umsókn um alþjóðlega vernd
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda og reglugerða og tilskipana Evrópusambandsins er varða landamæraeftirlit og umsóknir um alþjóðlega vernd eftir því sem tilefni er til.
Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur ákvæði laga og stjórnvaldsfyrirmæla sem máli skipta við úrlausn umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.
4.2 Aðstæður kæranda
Kærandi er karlmaður á […] sem staddur er hér á landi einsamall. Kærandi kvaðst eiga maka í heimaríki. Kærandi kvaðst hafa komið til Ungverjalands 2022 og dvalið þar í landi þar til hann fór til Íslands 11. september 2024. Kærandi hafi dvalið í landinu á grundvelli dvalarleyfis með gildistíma til 6. september 2025. Kærandi hafi verið með dvalarleyfi á grundvelli náms og fengið námsstyrk fyrir skólagjöldum, húsnæði og framfærslu. Kærandi hafi verið með aðgang að heilbrigðisþjónustu að undanskilinni tannlæknaþjónustu. Kærandi greindi frá því að hann hafi þurft að hætta í námi þar sem hann hafi ekki sýnt fram á fullnægjandi námsárangur. Kæranda hafi þá verið gert að fara úr landi. Kærandi hafi ekki lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í endursendingarríki og þekki ekki til móttökukerfisins. Kærandi kvaðst vera við góða heilsu.
Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 16. október 2024, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 20. febrúar 2025 um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari heilsufarsgögn bárust kærunefnd. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu er mál kæranda nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
4.3 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.
Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Ungverjalands á umsókn kæranda er byggt á 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi er handhafi dvalarleyfis þar í landi. Af þeim sökum skal kærandi endursendur til Ungverjalands enda bera ungversk yfirvöld ábyrgð á umsókn hans samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni.
Kærandi byggir á því að taka beri mál hans til efnismeðferðar samkvæmt 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Framangreint ákvæði er undanþáguákvæði frá meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram komi í reglugerðinni. Í eftirfarandi umfjöllun er lagt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og aðstæður í endursendingarríki um hvort taka beri umsókn kæranda til efnismeðferðar. Áréttað er að samkvæmt orðalagi 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. laganna tekin til efnismeðferðar nema aðstæður í a – d-lið ákvæðisins eigi við um umsóknina. Af því orðalagi er ljóst að stjórnvöldum beri skylda til að beita ákvæðum a – d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi þau við. Auk þess er nefndin bundin af jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga.
Samþykki ungverskra yfirvalda er byggt á 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Í 1. mgr. 3. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar er kveðið á um skyldu aðildarríkis til að taka til meðferðar umsókn um alþjóðlega vernd sem lögð er fram á yfirráðasvæði ríkis og er sú skylda ungverska ríkisins staðfest í framangreindu samþykki ungverskra stjórnvalda. Með vísan til framangreinds og neðangreindra landaupplýsinga er ekkert sem bendir til þess að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd muni ekki hljóta málsmeðferð að því gefnu að kærandi leggi fram skriflega yfirlýsingu þess efnis fyrir ungverskum stjórnvöldum. Með vísan til þess er ekki talið að þörf sé á að afla sérstakrar staðfestingar frá ungverskum yfirvöldum um að umsókn kæranda muni hljóta málsmeðferð í endursendingarríki og að hann muni hafa aðgang að móttökukerfinu.
4.4 Landaupplýsingar
Lagt hefur verið mat á aðstæður í Ungverjalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur jafnframt verið lagt mat á þær heimildir sem kærandi vísar til í greinargerð sinni og litið til efnis þeirra við mat á aðstæðum í endursendingarríki.
· 2023 Country Reports on Human Rights Practices - Hungary (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
· Amnesty International Report 2023/24 – Hungary (Amnesty International, 23. apríl 2024);
· Asylum Information Database National Country Report: Hungary (European Council on Refugees and Exiles, 16. maí 2025);
· Freedom in the World 2024 – Hungary (Freedom House, 29. febrúar 2024);
· ECRI report on Hungary (European Commission against Racism and Intolerance (ECRI), 9. mars 2023);
· Information on procedural elements and rights of applicants subject to a Dublin transfer to Hungary – (European Union Agency for Asylum, 24. maí 2024);
· Upplýsingar af vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (https://help.unhcr.org/hungary);
· Upplýsingar af vefsíðu Hungarian Helsinki Committee (https://helsinki.hu);
· Upplýsingar af vefsíðu OSCE – Office for Democratic Institutions and Human Rights (ODIHR) (https://hatecrime.osce.org/hungary) og
· World Report 2025 – Hungary (Human Rights Watch, janúar 2025).
Ungverjaland er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Ungverjaland er aðili að Evrópuráðinu og hefur fullgilt mannréttindasáttmála Evrópu. Ungverjaland hefur fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð og samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og barnasáttmálann. Þá er ríkið aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna.
Stofnun Evrópusambandsins um alþjóðlega vernd (European Union Agency for Asylum, EUAA) aflaði upplýsinga frá ungverskum yfirvöldum um móttöku, málsmeðferð og réttindi umsækjenda sem sendir eru til Ungverjalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar hinn 24. maí 2024. Samkvæmt framangreindum upplýsingum og skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá árinu 2025 séu umsækjendur sem sendir eru til Ungverjalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar upplýstir við komuna að þeir þurfi að leggja fram yfirlýsingu um að vilja leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd í landinu hjá stofnuninni National Directorate-General for Aliens Policing, NDGAP, sem taki ákvarðanir er varðar umsóknir um alþjóðlega vernd. Ungversk yfirvöld leggi svo mat á hvort umsókn um alþjóðlega vernd verði tekin til meðferðar. Í skýrslu ECRE kemur fram að málsmeðferðartími umsókna sé að jafnaði um tveir mánuðir frá því að umsókn er tekin til meðferðar. Umsækjendur eigi rétt á viðtali þar sem þeir eigi kost á að greina frá aðstæðum sínum og spurðir út í aðstæður flótta síns. Umsækjendur eigi rétt á aðstoð túlks við meðferð máls þeirra. Þá sé unnt að kæra ákvörðun um synjun til stjórnsýsludómstóls innan átta daga frá birtingu ákvörðunar. Málsmeðferðartími hjá stjórnsýsludómstólnum sé að jafnaði þrír mánuðir. Þá eigi umsækjendur rétt á endurgjaldslausri lögfræðiaðstoð við meðferð mála þeirra. Fram kemur á vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna að umsækjendur eigi rétt á að leita aðstoðar hjá mannréttindasamtökum, auk Flóttamannastofnunar, á meðan á málsmeðferð standi. Einstaklingar sem hafi fengið synjun á umsókn geti lagt fram endurtekna umsókn í máli sínu á grundvelli nýrra upplýsinga eða aðstæðna. Við málsmeðferð endurtekinna umsókna eigi einstaklingar ekki rétt á þjónustu á vegum stjórnvalda. Þá fresti endurtekin umsókn ekki réttaráhrifum fyrri ákvörðunar eða úrskurðar um synjun.
Fram kemur í skýrslu ECRE að í reynd fari ekki fram sérstakt mat á sérstaklega viðkvæmri stöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd. Samkvæmt lögum um alþjóðlega vernd í Ungverjalandi séu fylgdarlaus ungmenni, börn, eldra fólk, barnshafandi konur, einstæðir foreldrar með börn eða einstaklingar sem hafa orðið fyrir pyndingum, nauðgun eða öðru alvarlegu ofbeldi skilgreindir í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Í framangreindum upplýsingum frá ungverskum yfirvöldum, dags. 24. maí 2024, kemur fram að stjórnvöld leggi mat á hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi sérstakar þjónustuþarfir. Við það mat sé mögulega leitað aðstoðar hjá sérfræðingum eða læknum í samráði við umsækjanda. Í skýrslu ECRE kemur fram að umsækjendur, þ. á m. sem sendir eru til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, hafi aðgang að móttökumiðstöðvum en þar hafi þeir aðgang að búsetuúrræði og mat. Umsækjendur eigi rétt á þremur máltíðum á dag og drykkjarföngum eða framfærslu. Fram kemur í skýrslu ECRE að umsækjendur hafi aðgang að endurgjaldslausri heilbrigðisþjónustu. Umsækjendur eigi rétt á almennum skoðunum og meðferðum hjá heimilislækni en öll sérhæfð þjónusta sé einungis endurgjaldslaus í neyðartilvikum og með tilvísun frá heimilislækni. Einstaklingar sem hafi sérstakar þarfir eigi rétt á endurgjaldslausri heilbrigðisþjónustu í samræmi við þarfir þeirra, s.s. er varðar endurhæfingu, sálfræðimeðferð eða aðra þjónustu. Í skýrslu ECRE kemur fram að umsækjendur fái aðgang að almenna vinnumarkaðnum níu mánuðum frá framlagningu umsóknar og geti þá lagt fram umsókn um atvinnuleyfi. Á vef Flóttamannastofnunar kemur fram að á meðan málsmeðferð standi sé umsækjendum kleift að sækja um starf hjá hinu opinbera eða hjá móttökumiðstöð.
Af framangreindum skýrslum verður ráðið að ungversk yfirvöld hafi átt við margvíslegan vanda að etja við móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd og hefur móttökukerfið í Ungverjalandi verið harðlega gagnrýnt. Kemur þá m.a. fram í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 að í júlí 2018 hafi ungverska þingið samþykkt löggjöf sem geri það að verkum að lögmenn, ráðgjafar, sjálfboðaliðar og aðrir sem aðstoði m.a. umsækjendur um alþjóðlega vernd geti átt yfir höfði sér fangelsisrefsingu. Þá hafi ungverskum skattalögum verið breytt á þá leið að 25% skattur skuli lagður á starfsemi frjálsra félagasamtaka sem snúi að stuðningi við innflytjendur. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2024 hafi enginn aðili greitt skatt á grundvelli laganna árið 2022 og 2023 og þá bera fréttamiðlar með sér að engin þekkt rannsókn hafi verið framkvæmd á vegum skattstofunnar. Þá hafi Evrópudómstóllinn árið 2021 kveðið upp dóm um að umrædd löggjöf sé andstæð reglum Evrópusambandsins. Samkvæmt áliti Hungarian Helsinki Committee ná breytingar sem gerðar voru á lögunum ekki að fullnægja dómi Evrópudómstólsins að öllu leyti. Lög í Ungverjalandi leggi bann við mismunun á grundvelli þjóðernis og leggi refsingu við móðgandi og ógnandi háttsemi í garð aðila af öðrum kynþætti eða þjóðfélagshópi. Embætti umboðsmanns ungverska þingsins annist eftirlit gegn mismunun. Frjáls félagsamtök hafi þó bent á að yfirvöld í Ungverjalandi skilgreini atvik sjaldan sem hatursglæpi.
Í skýrslu United Nations Human Rights frá árinu 2019 kemur fram að á síðustu árum hafi umsóknum um alþjóðlega vernd í Ungverjalandi fjölgað verulega en í kjölfarið hafi orðið vart við umburðarleysi og hatursorðræðu gagnvart þessum hópi, svo og flóttafólki og innflytjendum. Hatursglæpir og hatursorðræða séu refsiverð samkvæmt ungverskum hegningarlögum en eftirfylgni með löggjöfinni skorti. Í skjóli þess refsileysis sem viðgangist í málaflokknum hafi hatursorðræða rutt sér til rúms á opinberum vettvangi og ofbeldi gegn innflytjendum, umsækjendum um alþjóðlega vernd og flóttafólki aukist til muna. Í skýrslunni kemur þó fram að í höfuðstöðvum lögreglu ríkisins hafi sérstök áhersla verið lögð á að uppfæra áætlun um hatursglæpi. Í skýrslu ECRE kemur fram að opinber umræða í Ungverjalandi feli í sér útlendingahatur og að pólitísk umræða hafi falið í sér umfjöllun sem beinist sérstaklega að flóttamönnum, umsækjendum um alþjóðlega vernd, múslimum og LGBT+ einstaklingum. Þá hafi mikil fjöldi innflytjenda, lagabreytingar og umfjöllun í fjölmiðlum skapað vettvang fyrir slíka hatursorðræðu. Í skýrslunni kemur þó einnig fram að stofnuð hafi verið áætlun, D.A.D.A., sem notuð sé af afbrotavarnarþjónustu lögreglunnar og framkvæmd í skólum sem stuðli að gagnkvæmri virðingu samhliða því að takast á við ofbeldisfulla hegðun. Auk þess starfi stuðningsþjónustur, Victim Support Service (VSS), sem bjóði upp á gjaldfrjálsan hjálparsíma fyrir þolendur, m.a. þolendur hatursglæpa, og aðra tiltæka þjónustu sem feli í sér sálrænan stuðning, fjárhagsstuðning og lögfræðiaðstoð.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2024 og skýrslu ECRE kemur fram að með löggjöf frá árinu 2020 hafi málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verið breytt á þann veg að umsækjendur þurfi að fylla út yfirlýsingu og sækja um leyfi fyrir inngöngu í landið hjá ungverska sendiráðinu í Serbíu eða Úkraínu til að vera kleift að koma til landsins og leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd. Sé viðkomandi veitt leyfi fyrir inngöngu í landið hafi hann þrjátíu daga til að koma til landsins. Einstaklingar sem fái ekki inngöngu í landið með sérstöku leyfi sé ekki gert kleift að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd í landinu. Í skýrslu ECRE kemur fram að ungversk yfirvöld beiti svokölluðum „push-back“ aðgerðum við landamæri Serbíu og Ungverjalands og hindri með þeim hætti aðgang umsækjenda um alþjóðlega vernd til landsins. Í desember 2020 komst Evrópudómstóllinn að þeirri niðurstöðu að ungversk yfirvöld hafi brotið gegn löggjöf Evrópusambandsins m.a. með því að hindra inngöngu umsækjenda í landið við landamæri Ungverjalands og Serbíu og meina umsækjendum að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd. Með því voru ungversk yfirvöld ekki talin hafa tryggt rétt umsækjenda til að sækja um alþjóðlega vernd í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar landsins. Í júní 2024 komst Evrópudómstóllinn að þeirri niðurstöðu að ungversk yfirvöld hefðu ekki gert ráðstafanir í samræmi við fyrri dóm Evrópudómstólsins frá desember 2020 og voru yfirvöld af þeim sökum dæmd til þess að greiða sektargreiðslur.
4.5 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið. Í 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi er að finna sambærilegt ákvæði og í 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu og Evrópudómstólsins leiðir að þrátt fyrir að ríki hafi rétt til að stjórna hverjir dvelji á landsvæði þeirra geti flutningur einstaklings til annars ríkis falið í sér brot á banni við ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þetta á við ef veruleg ástæða er til að ætla að viðkomandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð ákvæðinu.
Meðferð og aðbúnaður umsækjenda um alþjóðlega vernd í endursendingarríki þurfa að ná tilteknu alvarleikastigi til að fela í sér brot gegn banninu. Því alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda ríkisins hefur þær afleiðingar að einstaklingur, sem að öllu leyti er háður stuðningi þess, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann getur ekki mætt grundvallarþörfum sínum og grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn. Það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni verulega við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki telst ekki nægjanlegt til að teljast vanvirðandi meðferð. Þá er ríkjum ekki skylt að sjá þeim sem njóta alþjóðlegrar verndar eða dvalarleyfis fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum.
Samkvæmt dómum Evrópudómstólsins skal framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar vera í samræmi við 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Lög Evrópusambandsins eru byggð á grundvallarforsendunni um gagnkvæmt traust, þ.e. að gildi og lög sambandsins séu viðurkennd og virt í hverju aðildarríki og að réttarkerfi aðildarríkjanna veiti sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins mælir fyrir um. Dyflinnarreglugerðin er byggð á gagnkvæmu trausti og markmið hennar er að afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd sé skilvirk til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Samkvæmt framangreindu samrýmist meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera.
Kærandi telur ekki tryggt að ungversk stjórnvöld muni taka mál hans til efnismeðferðar. Kærandi vísar í greinargerð, m.a. til aðstæðna við landamæri Ungverjalands og Serbíu. Kærandi vísar m.a. til framkvæmdar Evrópudómstólsins í málum er varðar meðferð ungverskra stjórnvalda gagnvart umsækjendum við landamærin þar sem stjórnvöld voru talin hafa brotið gegn réttindum umsækjenda.
Samkvæmt skýrslum ECRE frá árunum 2024 og 2025 lögðu 28 umsækjendur fram umsókn um alþjóðlega vernd í landinu árið 2023, þar af voru 22 umsækjendum veitt alþjóðlega vernd og fjórum umsækjendum veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Þá lögðu 29 umsækjendur fram umsókn um alþjóðlega vernd árið 2024, þar af voru 14 umsækjendum veitt alþjóðleg vernd. Af framangreindu verður ráðið að skilvirkt umsóknarkerfi sé til staðar í endursendingarríki. Í máli kæranda liggur fyrir samþykki ungverskra yfirvalda á ábyrgð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd. Í svari ungverskra yfirvalda kemur fram flutningur skuli fara fram á alþjóðaflugvellinum í Búdapest. Af fyrirliggjandi upplýsingum, einkum upplýsingum frá ungverskum yfirvöldum, dags. 24. maí 2024, eru ekki forsendur til annars en að líta svo á að ungverk yfirvöld muni taka við kæranda og að hann muni hljóta málsmeðferð vegna umsóknar sinnar um alþjóðlega vernd þar í landi undirriti hann viljayfirlýsingu þess efnis. Verður með vísan til framangreinds ekki talið að kærandi sé í sambærilegum aðstæðum og fjallað er um í tilvísuðum skýrslum í greinargerð og fylgigögnum, en þær varða aðstæður einstaklinga við landamærin þar sem eru viðhafðar svokallaðar „push back“ aðgerðir af hálfu yfirvalda og einstaklingum er þannig meinuð innganga í landið og að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd.
Kærandi vísar til heimilda sem beri með sér að kynþáttafordómar viðgangist í Ungverjalandi, m.a. af hálfu stjórnvalda. Framangreindar landaupplýsingar gefa til kynna að fordómar gagnvart einstaklingum af erlendum uppruna séu fyrir hendi í endursendingarríki. Þá bera landaupplýsingar enn fremur með sér að almenningur þar í landi geti leitað sér aðstoðar löggæsluyfirvalda sökum þessa. Verður ekki talið að þær aðstæður sem kærandi hefur borið fyrir sig nái því alvarleikastigi að teljast ofsóknir eða ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð þannig að til skoðunar komi að beita 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi gerir kröfu um að máli hans verði vísað til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun á grundvelli skorts á rannsókn, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og brots á jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga. Lagt hefur verið mat á móttökuaðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í endursendingarríki, komist að þeirri niðurstöðu að umsókn kæranda verði ekki tekin til efnismeðferðar og hann sendur til endursendingarríkis. Þá liggja fyrir upplýsingar frá ungverskum yfirvöldum, dags. 24. maí 2024, þar sem fram kemur að umsækjendum sem sendir séu til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar sé tryggð málsmeðferð vegna umsóknar sinnar um alþjóðlega vernd. Ekki er gerð athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar á móttökuaðstæðum í Ungverjalandi og telst mál kæranda nægjanlega upplýst samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga. Er kröfu kæranda um að máli hans verði vísað til nýrrar meðferðar hafnað. Þá hefur kærandi ekki sýnt fram á málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi gengið í berhögg við jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga en ljóst er að brotthvarf 2. mgr. 36. gr. úr lögum um útlendinga hefur í för með sér óhjákvæmilegar breytingar á framkvæmd Útlendingastofnunar í málum er varðar ákvæði 36. gr. laganna. Er málsástæðu kæranda um brot á jafnræðisreglu stjórnsýsluréttarins af þeim sökum hafnað.
Litið hefur verið til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda í endursendingarríki með hliðsjón af aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi, sbr. gögn málsins og framangreindar landaupplýsingar. Ekkert bendir til að endursending kæranda til ríkisins sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Ungverjalandi, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði í Ungverjalandi og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, hefur ekki verið sýnt fram á að hann eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til endursendingarríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samkvæmt framansögðu verður umsókn kæranda ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
5 Frávísun
Kærandi kom hingað til lands 11. september 2024 og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.
Kærandi skal fluttur til Ungverjalands innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
6 Krafa á grundvelli 37. gr. laga um útlendinga og 74. gr. laganna
Kærandi gerir kröfu um að honum verði veitt alþjóðleg vernd samkvæmt ákvæðum 37. gr. laga um útlendinga. Þá gerir kærandi kröfu um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt orðalagi ákvæðanna kemur ekki til skoðunar að veita útlendingi alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli þeirra nema umsókn um alþjóðlega vernd hafi verið tekin til efnismeðferðar. Mál kæranda fellur undir c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og hefur ekki verið tekið til efnismeðferðar. Kemur því ekki til skoðunar hvort hann uppfyllir skilyrði ákvæðanna.
7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson Vera Dögg Guðmundsdóttir