25 maí 2025
/
Úrskurður nr. 441/2025
Hinn 26. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 441/2025
í stjórnsýslumálum nr. KNU24090148 og KNU24100185
Kærur […]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 23. september 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Súdan (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. september 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands. Hinn 29. október 2024 kærði kærandi ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. október 2024, um að synja honum öðru sinni um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kærunum má ráða að kærandi krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í málum þessum gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsóknum, dags. 20. ágúst og 14. október 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir tíu daga dvöl frá 19. til 29. nóvember 2024. Umsóknir kæranda voru lagðar fram á Indlandi. Umsóknum kæranda var synjað með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 10. september og 22. október 2024. Hinn 23. september og 29. október 2024 bárust kærunefnd kærur frá kæranda. Kærandi lagði ekki fram ný gögn á kærustigi.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í athugasemdum með fyrri kæru sinni kveðst kærandi hafa skilað inn öllum nauðsynlegum og umbeðnum gögnum og að þau hafi verið áreiðanleg og í frumriti. Kærandi greinir frá því að símtal vegna viðtals hafi slitnað. Þegar hann hafi haft samband við utanríkisþjónustuna hafi honum verið tjáð að hringt yrði aftur í hann en það hafi ekki verið gert. Hann hafi svarað öllum tölvupóstum um leið og hann hafi getað og sett í þá skýringartexta vegna þess sem talið var að vantaði. Í seinni kæru lagði kærandi ekki fram kröfur eða rök fyrir kæru sinni.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Súdan þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Meðferð umsókna kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í fyrri ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 3, 10, 11 og 12, þ.e. að kærandi hefur ekki fært sönnur á nægt framfærslufé, hvorki meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur né til þess að snúa aftur til uppruna- eða búsetulands eða til gegnumumferðar um þriðja land sem víst þykir að honum verði hleypt inn í; upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar; rökstudd ástæða er til að draga í efa yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun séu áreiðanlegar og rökstudd ástæða er til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð eru fram, þ.e. hvort þau séu ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra.
Í seinni ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10, 11, og 13, þ.e. að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar; rökstudd ástæða er til að draga í efa yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun séu áreiðanlegar og rökstudd ástæða er til að draga í efa ásetning umsækjanda um að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin rennur út.
Ákvörðununum fylgdu viðbótarathugasemdir. Í fyrri ákvörðun kemur fram að bankaupplýsingar sem lagðar voru fram sýni ekki nægilega sönnun fyrir framfærslu vegna fyrirhugaðrar ferðar, ekki hafi verið unnt að staðfesta flugbókanir, og að kærandi hafi ekki lagt fram flugáætlun með gildu bókunarnúmeri. Þar með hafi verið rökstuddur vafi um áreiðanleika flugbókunarinnar sem lögð var fram. Þegar viðtal var tekið hafi kærandi verið óupplýstur um áætlaða ferð til Íslands og hafi gefið óáreiðanleg svör. Mikill vafi hafi verið um hvort kærandi hafi ætlað að ferðast til Íslands.
Í seinni ákvörðun kemur fram að ferðaáætlun sem lögð var fram hafi verið óraunhæf. Þegar viðtal var tekið hafi kærandi verið óupplýstur um áætlaða ferð til Íslands og gefið óáreiðanleg svör. Mikill vafi hafi verið um að kærandi hafi ætlað að ferðast til Íslands. Kærandi hafi takmörkuð tengsl við Malasíu, hvar hann hafi tímabundið dvalarleyfi, og væri því vafi á að hann hafi ætlað sér að snúa þangað aftur áður en vegabréfsáritun rynni út.
Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Samkvæmt dagbókarfærslu í málaskrá Útlendingastofnunar og endurriti viðtala voru símaviðtöl tekin við kæranda 30. ágúst, vegna fyrri umsóknar um vegabréfsáritun m.a. af því tilefni að ekki var hægt að staðfesta flugbókun kæranda og 16. október 2024 vegna síðari umsóknar m.a. af því tilefni að kærandi hafði áður hlotið synjun á umsókn um vegabréfsáritun og vegna framlagðs bankayfirlits.
Í endurriti af viðtali sem tekið var við kæranda 30. ágúst, sem og dagbókarfærslu sem skráð var eftir viðtalið, kemur m.a. fram að kærandi hafi ekki hikað í svörum en hafi haft litla þekkingu á Íslandi. Kærandi hafi ekki getað nefnt neina staði eða staðhætti á Íslandi. Því til viðbótar var ekki hægt að staðfesta flugbókun kæranda.
Í endurriti af viðtali sem tekið var við kæranda 16. október, sem og dagbókarfærslu sem skráð var eftir viðtalið, kemur m.a. fram að kærandi hafi lesið upp úr ferðaáætlun sinni og ekki getað útskýrt hvað hann langaði að sjá og gera á Íslandi. Hann hafi ekki verið með áætlun um hvernig hann hafi ætlað að ferðast á milli staða. Ferðaáætlunin hafi ekki þótt trúverðug þar sem hann hafi aðeins bókað gistingu í Reykjavík á meðan hann hafi áformað að dvelja á Íslandi en samkvæmt áætluninni hafi hann ætlað sér að ferðast langar vegalengdir í skoðunarferðir, m.a. Gullna hringinn, Landmannalaugar, Reynisfjöru og Stuðlagil, en alltaf áformað að snúa aftur til Reykjavíkur í gistingu. Því til viðbótar sýndi bankayfirlit óstöðugar tekjur.
Ferðaáætlun og gögn sem tengjast henni eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 5., 10. og 11. tölul. gátlista með vegabréfsumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni í Nýju Delí, þar sem kærandi lagði umsóknir sínar fram. Þær skýringar sem kærandi hefur lagt fram við meðferð kærumála þessara eru ekki til þess fallnar að draga úr vafa um ferðaáætlanir kæranda eða hnekkja mati Útlendingastofnunar um frammistöðu kæranda í viðtölunum 30. ágúst og 16. október 2024. Til samræmis við 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir verður að gera þá kröfu til umsækjenda að þeir hafi þekkingu á framlagðri ferðaáætlun og geti gert grein fyrir henni í viðtali. Því til viðbótar voru aðrir ágallar á báðum umsóknum kæranda, annars vegar var ekki hægt að staðfesta flugbókun í tengslum við fyrri umsókn kæranda og hins vegar var bankayfirlit ófullnægjandi í tengslum við síðari umsókn kæranda. Úr framangreindum ágöllum hefur ekki verið bætt á kærustigi.
Að framangreindu virtu eru upplýsingarnar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar ekki áreiðanlegar; og því er rökstudd ástæða til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun hafi verið áreiðanlegar, sbr. ii. tölul. og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 1. málsl. 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Hefur þannig ekki verið sýnt fram á tilgang dvalar, sbr. d-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verða hinar kærðu ákvarðanir því staðfestar.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður