26 maí 2025
/
Úrskurður nr. 434/2025
Hinn 26. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 434/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24090158
Kæra […]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 24. september 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi) ásamt eiginkonu sinni ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 17. september 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands. Fjallað er um umsókn eiginkonu kæranda í úrskurði nr. 435/2025.
Af kæru má ráða að krafist sé þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni kæranda um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins 6. september 2024, fyrir sjö daga dvöl frá 15. nóvember til 21. nóvember 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Bandaríkjunum. Á kærustigi málsins lagði kærandi fram afrit af nýrri flugbókun með staðfestingarnúmeri og nýrri brottfarardagsetningu, afrit af nýrri hótelbókun með nýjum dagsetningum gistinátta sem og afrit af ferðasjúkratryggingu sem kærandi lagði einnig fram með umsókn sinni um vegabréfsáritun.
3 Málsástæður og rök kæranda
Í kæru til kærunefndar kvaðst kærandi hafa breytt flugbókun sinni þar sem hann hafi fundið hagstæðara verð á flugmiðum fyrir ferðina auk þess sem hann hafi breytt hótelbókunum sínum í samræmi við breytta flugbókun. Hafi hann ætlað að leggja fram uppfærð gögn þegar íslenska sendiráðið hefði samband við hann. Kærandi greinir frá því að hann hafi tekið eftir tveimur símtölum frá Íslandi sem hann hafi ekki svarað þar sem hann hafi talið að um svikasímtöl hafi verið að ræða. Þá hafi engin texta- eða raddskilaboð fylgt símtölunum. Kærandi undri sig á hvers vegna hann hafi ekki fengið tölvupóst frá utanríkisþjónustunni þar sem tölvupóstur sé algeng samskiptaleið. Ósanngjarnt hafi verið að synja umsókn hans án þess að honum hafi verið gefið færi á því að leggja fram ný og uppfærð gögn sem hann hafi nú gert á kærustigi.
4 Vegabréfsáritun
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
4.2 Niðurstaða
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 12, þ.e. að rökstudd ástæða var til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að ekki hafi verið hægt að staðfesta flugbókanir. Icelandair hafi staðfest að flugbókunin hafi verið afbókuð. Umsækjandi hafi ekki svarað símtölum vegna viðtals. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Gögn sem sýna fram á flugbókun eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir og viðauka 2 við sömu reglugerð. Kemur krafa um slík gögn auk þess fram í 5. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands í Bandaríkjunum. Kærandi hefur lagt fram nýja flugbókun á kærustigi. Það ferðatímabil sem kærandi sótti um vegabréfsáritun fyrir er hins vegar liðið þegar úrskurður þessi er kveðinn upp. Forsendur hinnar kærðu ákvörðunar hvað þetta varðar byggjast á efnislegum skilyrðum sem ættu ekki að hafa íþyngjandi áhrif á réttarstöðu kæranda hafi hann áform um að sækja um vegabréfsáritun til ferðalaga inn á Schengen-svæðið að nýju eða koma hingað til lands í framtíðinni, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar nr. 25/2022, dags. 9. maí 2022. Telst kærandi því ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að lagt sé mat á nýja flugbókun sem lögð var fram á kærustigi. Er kæranda þess í stað leiðbeint um að sækja um vegabréfsáritun að nýju.
Að framangreindu virtu uppfyllir kærandi ekki skilyrði um vegabréfsáritun, sbr. b-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið rökstudd ástæða til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. d-liðar 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður