26 maí 2025

/

Úrskurður nr. 437/2025


Hinn 26. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 437/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24090153

Kæra […]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 25. september 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. september 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að krafist sé þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni kæranda um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins 11. september 2024, fyrir sex daga dvöl frá 5. til 10. nóvember 2024. Umsókn kæranda var lögð fram á Indlandi. Engin frekari gögn voru lögð fram á kærustigi.

3 Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi áætli að ferðast til Íslands sem ferðamaður ásamt eiginmanni sínum sem hafi fjölnota vegabréfsáritun inn á Schengen-svæðið. Kærandi hafi bókað tímabundna flugmiða sem séu mjög dýrir og óendurgreiðanlegir. Þetta hafi hún gert með fyrirvara um veitingu vegabréfsáritunar til Íslands. Kærandi

4 Vegabréfsáritun

4.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

4.2 Niðurstaða

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10, 11 og 12 þ.e. að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar; að rökstudd ástæða var til að draga í efa yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun væru áreiðanlegar; og rökstudd ástæða var til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að flugbókun með Icelandair hafi verið afbókuð og ekki hafi verið hægt að staðfesta flugbókun með British Airways. Kærandi hafi ekki lagt fram flugáætlun með gildu bókunarnúmeri. Því væri rökstuddur vafi á áreiðanleika flugbókunarinnar sem lögð hafi verið fram og að hún væri ósvikin. Skortur hafi verið á þekkingu á fyrirhugaðri ferð og vafi leikið á um fyrirætlun kæranda á að ferðast til Íslands. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Samkvæmt dagbókarfærslu í málaskrá Útlendingastofnunar var símaviðtal tekið við kæranda 16. september 2024. Í endurriti af umræddu viðtali, sem og dagbókarfærslu sem skráð var eftir viðtalið, kemur m.a. fram að kærandi hafi ætlað sér að ferðast með eiginmanni sínum til Íslands. Spurð um ferðasögu sína hafi kærandi nefnt að hún hafi heimsótt Sviss og Frakkland árið 2023. Spurð út í ferðaáætlun sína á Íslandi kvaðst kærandi vilja fara í norðurljósaferðir. Kærandi greindi frá því að eiginmaður hennar hafi séð um bókanir og útbúið ferðaáætlun. Kærandi hafi í viðtali staðfest framlagðar flugbókanir sem ekki hafi verið hægt að staðfesta, ekki vitað nafnið á hótelinu sem hún hugðist dvelja á og minntist aðeins á að ætla skoða norðurljósin í ferð sinni. Eiginmaður kæranda heyrðist leiðbeina henni í bakgrunni símtalsins hvernig hún ætti að svara og var hún því hikandi og ósannfærandi. Í fyrstu hafi eiginmaður kæranda svarað símtalinu en síðan gefið samband við kæranda.

Ferðaáætlun og gögn sem tengjast henni eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 5. og 6. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni á Indlandi, þar sem kærandi lagði sína umsókn fram. Í kæru kemur fram að kærandi hafi bókað tímabundna flugmiða sem séu mjög dýrir og óendurgreiðanlegir. Þetta hafi hún gert með fyrirvara um veitingu vegabréfsáritunar til Íslands. Kærandi áætli að ferðast til Íslands sem ferðamaður ásamt eiginmanni sínum sem hafi fjölnota vegabréfsáritun inn á Schengen-svæðið. Þær skýringar sem kærandi hefur lagt fram við meðferð kærumáls þessa eru ekki til þess fallnar að hnekkja mati Útlendingastofnunar um synjun vegabréfsáritunar til handa kæranda. Til samræmis við 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir verður að gera þá kröfu til umsækjenda að þeir hafi þekkingu á framlagðri ferðaáætlun og geti gert grein fyrir henni í viðtali. Þessu til viðbótar hafi ekki verið hægt að staðfesta flugbókanir kæranda við meðferð umsóknar hennar hjá utanríkisþjónustunni.

Að framangreindu virtu eru upplýsingarnar sem veittar hafa verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar ekki áreiðanlegar, og rökstudd ástæða til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun hafi verið áreiðanlegar, sbr. ii. tölul. a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hefur þannig ekki verið sýnt fram á tilgang dvalar, sbr. d-liðar 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður