26 maí 2025

/

Úrskurður nr. 442/2025


Hinn 26. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 442/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24100007

Kæra [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 1. október 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. september 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að krafist sé þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni kæranda um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins 17. september 2024, fyrir átta daga dvöl frá 22. – 29. nóvember 2024 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bandaríkjunum. Kærandi lagði fram ný gögn á kærustigi; afrit af ótímabundnu dvalarleyfiskorti, hótelbókun og flugbókun. Kærandi lagði einnig fram gögn sem lögð voru fram við meðferð málsins hjá sendiráði Íslands í Bandaríkjunum og Útlendingastofnun; bankayfirlit, afrit vegabréfs, starfsmannaupplýsingar og ferðasjúkratryggingu.

3 Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi sé handhafi ótímabundins dvalarleyfis í Bandaríkjunum, þ.e. græna kortsins, og muni ferðast með eiginmanni sínum sem er ríkisborgari Suður-Kóreu og einnig handhafi græna kortsins. Þar sem hann þurfi ekki Schengen vegabréfsáritun til að heimsækja Ísland, hafi þau skipulagt ferðina saman. Kærandi eigi húsnæði og bíl í Bandaríkjunum, hafi fasta atvinnu og nægjanlegt fjármagn til að standa straum af öllum útgjöldum vegna fyrirhugaðrar ferðar til Íslands. Fram kemur að kærandi hafi ekki getað lagt fram hótelbókun þegar hún kom til símaviðtals þar sem hún hafi pantað leiðsögn sem innihéldi gistingu í gegnum ferðaþjónustufyrirtæki. Hún hafi síðar fengið hótelbókun frá fyrirtækinu og lagt hana fram. Kærandi hafi áhyggjur af því að Útlendingastofnun hafi hugsanlega ekki móttekið hótelbókunina, sem gæti hafa leitt til synjunarinnar. Fram kemur að kæranda hafi lengi dreymt um að sjá stórkostlegt landslag Íslands, þar á meðal norðurljósin, Jökulsárlón og virk eldfjöll.

4 Vegabréfsáritun

4.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

4.2 Niðurstaða

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 2, 12, og 16, þ.e. að kærandi hefði ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar; rökstudd ástæða var til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra; og að kærandi hefði ekki fært sönnur á að hann væri handhafi viðeigandi og gildrar ferðasjúkratryggingar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að ekki hafi verið lögð fram hótelbókun, ekki hafi verið hægt að staðfesta flugbókun og ekki hafi verið lögð fram flugferðaáætlun með gildu bókunarnúmeri. Þá hafi ferðasjúkratrygging ekki verið fullnægjandi. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Gögn sem sýna fram á fullnægjandi ferðasjúkratryggingu eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. h. liður 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga og 15. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Kemur krafa um slík gögn auk þess fram í 4. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands í Bandaríkjunum. Í umræddum gátlista kemur m.a. fram að ferðasjúkratrygging verði að tryggja handhafa fyrir að lágmarki 30.000 bandaríkjadollara. Framlögð trygging verði að tilgreina með skýrum hætti gildistíma og gildissvið, nánar tiltekið til hvaða landa hún nær. Í framlagðri tryggingu kæranda hjá utanríkisþjónustunni og á kærustigi kemur hvorki fram gildistími tryggingarinnar né hámarkstryggingafjárhæð.

Kærandi hefur lagt fram ný gögn á kærustigi en ekki fullnægjandi ferðasjúkratryggingu.

Að framangreindu virtu hefur kærandi ekki fært sönnur á að hún sé handhafi viðeigandi og gildrar ferðasjúkratryggingar, sbr. h. liður 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga og 15. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður