28 maí 2025
/
Úrskurður nr. 451/2025
Hinn 28. maí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 451/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24090091
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. september 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. september 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 21. ágúst 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun sem ferðamaður til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir níu daga dvöl frá 25. október til 2. nóvember 2024. Umsókn kæranda var lögð fram í Bandaríkjunum. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. september 2024. Hinn 12. september 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda ásamt fylgigögnum. Kærandi lagði fram frekari gögn 13., 14. og 27. september 2024. Þá bárust frekari upplýsingar frá Útlendingastofnun 8. maí 2025.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í kæru greinir kærandi frá því að hann hafi hlotið synjun þar sem hann hafi ekki lagt fram fullnægjandi ferðasjúkratryggingu með umsókn sinni. Hann hafi nú bætt úr þeim annmarka á umsókn sinni. Á kærustigi lagði kærandi fram nýja ferðasjúkratryggingu sem hann hafði keypt 13. september 2024.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. gr. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Umsækjendur um samræmda vegabréfsáritun til einnar komu eða tveggja skulu sýna fram á að þeir séu handhafar viðeigandi og gildrar ferðasjúkratryggingar til að mæta hvers konar kostnaði sem kann að falla til í tengslum við heimsendingu af læknisfræðilegum ástæðum, brýna læknismeðferð og/eða meðferð á sjúkrahúsi í neyðartilvikum eða við andlát meðan á dvöl þeirra stendur á yfirráðasvæði aðildarríkjanna, sbr. 1. mgr. 15. gr. reglugerðar um útlendinga. Í 3. mgr. sömu greinar kemur fram að tryggingin skuli gilda á öllu yfirráðasvæði aðildarríkjanna og taka til alls fyrirhugaðs dvalar- eða gegnumferðartímabils hlutaðeigandi. Lágmarkstryggingarvernd skuli vera í samræmi við þá tryggingarvernd sem krafist er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir.
Í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 16, þ.e. að kærandi hafi ekki fært sönnur á að hann sé handhafi viðeigandi og gildrar ferðasjúkratryggingar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að ferðasjúkratrygging hafi verið ófullnægjandi. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Gögn sem sýna fram á gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. h-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga og 15. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir og koma fram í 4. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands í Washington. Við meðferð málsins hjá utanríkisþjónustunni lagði kærandi fram ferðasjúkratryggingu með tryggingafjárhæð 500.000 bandaríkjadali vegna sjúkraflutninga í neyðartilvikum (e. emergency medical transportation) og 25.000 bandaríkjadali vegna neyðar læknis- og tannlæknisþjónustu (e. emergency medical and dental) samtals 525.000 bandaríkjadalir. Í dagbókarfærslum í málakerfi Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi lagt fram ófullnægjandi ferðasjúkratryggingu þar sem neyðar læknis- og tannlæknisþjónusta væri aðeins tryggð fyrir 25.000 bandaríkjadali. Reynt hafi verið að hringja í kæranda og senda honum tölvupóst en hann hafi ekki svarað. Á kærustigi hefur kærandi lagt fram nýja ferðasjúkratryggingu. Það ferðatímabil sem kærandi sótti um vegabréfsáritun fyrir er hins vegar liðið þegar úrskurður þessi er kveðinn upp. Forsendur hinnar kærðu ákvörðunar hvað þetta varðar byggjast á efnislegum skilyrðum sem ættu ekki að hafa íþyngjandi áhrif á réttarstöðu kæranda hafi hann áform um að sækja um vegabréfsáritun til ferðalaga inn á Schengen-svæðið að nýju eða koma hingað til lands í framtíðinni, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar nr. 25/2022, dags. 9. maí 2022. Þykir kærandi því ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að lagt sé mat á nýja ferðasjúkratryggingu sem lögð var fram á kærustigi. Er kæranda þess í stað leiðbeint um að sækja um vegabréfsáritun að nýju. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun sótti kærandi um vegabréfsáritun að nýju 2. október 2024, fyrir sama ferðatímabil og kærumál þetta varðar. Í tengslum við á umsókn lagði kærandi fram uppfærða sjúkratryggingu og var veitt vegabréfsáritun.
Að framangreindu virtu hefur ekki verið lögð fram sönnun fyrir því að kærandi sé handhafi gildrar ferðasjúkratryggingar, sbr. viii. tölul. a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. h-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem kærandi veitti, sbr. 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður