30 maí 2025

/

Mál nr. 155/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 155/2025

Föstudaginn 30. maí 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 11. mars 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 7. janúar 2025, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar á bið.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 16. nóvember 2024. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 7. janúar 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt en með vísan til þess að hún ætti ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn yrðu bætur ekki greiddar fyrr en sá tími væri liðinn.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 11. mars 2025. Með bréfi, dags. 12. mars 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 3. apríl 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. apríl 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa sótt um atvinnuleysisbætur þar sem hún hafi misst vinnuna. Vinnumálastofnun hafi vísað til þess að hún ætti ótekinn biðtíma og því yrðu bætur ekki greiddar fyrr en að fjórum mánuðum liðnum. Kærandi hafi ekki mætt í viðtal árið 2023 en hún hafi verið með Covid og öllum hafi verið sama um það. Kærandi hafi fengið starf árið 2024 en verið sagt upp í nóvember sama ár. Hún sé því tekjulaus.

Kærandi hafi á tilfinningunni að íslensk stjórnvöld styðji heimilisleysi þar sem hún hafi verið skilin eftir án tekna í þrjá mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að upphaf málsins megi rekja til ákvarðana Vinnumálastofnunar frá 28. nóvember og 27. desember 2023. Með ákvörðunum stofnunarinnar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og síðar á grundvelli 1. mgr. 58. gr sömu laga. Bótaréttur kæranda hafi með framangreindum ákvörðunum verið felldur niður í tvo mánuði og svo þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna.

Kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 16. nóvember 2024. Í umsókn kæranda hafi komið fram að hún væri atvinnulaus frá og með 2. desember 2024 og gæti hafið störf frá og með þeim degi. Kærandi hefði ekki áunnið sér nýtt bótatímabil, sbr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, þegar hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur að nýju. Með erindi, dags. 7. janúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar væri samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Með vísan til ótekinna viðurlaga yrðu bætur til hennar hins vegar ekki greiddar fyrr en að fjórum mánuðum liðnum.

Þann 29. janúar 2025 hafi kærandi farið fram á að mál hennar yrði tekið fyrir að nýju. Kærandi hafi talið það ósanngjarnt að hún þyrfti að sæta eldri biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Í því samhengi hafi kærandi bent á að hún hefði ekki fengið neina greiðslu frá atvinnuleysistryggingasjóði. Þá hafi kærandi talið að viðurlög á eldri umsóknum væru ekki sér að kenna.

Með erindi, dags. 29. janúar 2025, hafi Vinnumálastofnun hafnað beiðni kæranda um að mál hennar yrði tekið fyrir að nýju. Beiðni kæranda hafi verið hafnað á grundvelli 2. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 með vísan til tímamarka.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 7. janúar 2025, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 11. mars 2025. Í kæru greini kærandi frá því að viðurlög sem henni hafi verið gert að sæta eigi ekki rétt á sér.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eins og rakið hafi verið hér að framan hafi kæranda þann 28. nóvember 2023 verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, þar sem starfslok hennar hafi ekki verið metin gild. Þá hafi kæranda þann 27. desember 2023 verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga. Kærufrestur vegna þeirra ákvarðana sé nú liðinn sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála.

Eftir standi þá ákvörðun Vinnumálastofnunar um að kærandi skuli sæta eftirstöðvum viðurlaga sinna þegar hún hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta þann 16. nóvember 2024.

Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé meðal annars kveðið á um að sá sem hafi sætt viðurlögum samkvæmt 57. til 59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum. Ákvörðun um viðurlög á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi því leitt til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga hennar samkvæmt 1. mgr. 61. gr., þar sem hún hefði ekki unnið sér inn réttindi til nýs bótatímabils samkvæmt 29. gr. laganna. Heildarviðurlagatími hafi því verið fimm mánuðir.

Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um hvernig ítrekuð viðurlög samkvæmt lögunum falli niður eða frestist. Ekki sé fyrir hendi heimild til að fella niður ítrekuð viðurlög í þeim tilvikum sem hinn tryggði starfi á viðurlagatíma líkt og eigi við um fyrstu viðurlög innan kerfisins.

Þegar komi að ítrekuðum brotum sé í [5. mgr.] 61. gr. kveðið á um að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Eins og áður segi hafi kærandi ekki unnið sér inn réttindi til nýs bótatímabils. Því sé ljóst að skilyrði þess að viðurlagatími verði felldur niður séu ekki uppfyllt í máli þessu.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og að eftirstöðvar viðurlagatíma skuli halda áfram að líða frá 2. desember 2024.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið.

Með ákvörðunum Vinnumálastofnunar frá 28. nóvember 2023 og 27. desember 2023 var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo og þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. og síðar 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi sótti á ný um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 16. nóvember 2024. Umsókn hennar var samþykkt 7. janúar 2025 en tekið var fram að bætur yrðu ekki greiddar fyrr en ótekinn biðtími frá fyrri umsókn væri liðinn.

Í 5. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Í 29. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um að sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standi yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þá segir í 31. gr. laga nr. 54/2006 að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sæki að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.   

Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki, þegar umsókn hennar barst Vinnumálastofnun þann 16. nóvember 2024, starfað í 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hún fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafði því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laga nr. 54/2006 og því hélt allur ótekinn biðtími vegna eldri viðurlaga samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. desember 2023, áfram að líða þegar hún skráði sig atvinnulausa að nýju 16. nóvember 2024.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 7. janúar 2025, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til A, á bið, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir